Morgunblaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 2
2 B FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
#$
"$
$
$
$
"
% &'(
% &'(
$
$ "
% &'(
$
$ "
!"
Viðskiptablað Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang
vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri,
bjb@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun
Prentsmiðja Morgunblaðsins
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ
(FME) hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að hafi myndast yfirtöku-
skylda í hlutafélagi sé yfirtökuskyld-
um aðila ekki heimilt að minnka
eignarhlut sinn í félaginu án leyfis
yfirvalda. Þetta kemur fram í túlkun
FME á réttarúrræðum eftirlitsins
þegar aðili sem hefur farið upp fyrir
yfirtökumörk selur aftur þann hluta
sem er umfram leyfileg mörk. Túlk-
unin er birt á vef eftirlitsins en þar
segir að tiltekin álitamál varðandi
þetta efni hafi komið upp og við úr-
lausn þessa hafi FME „kannað fram-
kvæmd annarra Evrópuríkja, auk
þess að leita upplýsinga á vettvangi
Evrópusambandsins.“ Þetta er gert
með tilliti til þess að íslenskar yf-
irtökureglur byggjast í meginatrið-
um á tilskipun ESB sem er ætlað að
samræma yfirtökureglur í álfunni.
Markmið ákvæðisins um yfirtöku-
skyldu er að tryggja hagsmuni
minnihlutahluthafa í félögum, þ.e.
veita þeim möguleika á útgöngu úr
hluthafahópi þegar einn aðili er orð-
inn alls ráðandi þar.
Réttarúrræði FME
Niðurstaða FME varðandi áður-
nefnd álitamál er sú að samkvæmt
orðalagi 1. málsgreinar 37. greinar
laga um verðbréfaviðskipti sé yfir-
tökuskyldan fortakslaus. Eftirlitið
geti veitt undanþágu frá þessari
skyldu ef vissar aðstæður séu fyrir
hendi en samkvæmt íslenskum lög-
um beri yfirtökuskyldum aðila að
sækja með formlegum hætti um
heimild til þess að selja niður fyrir
yfirtökumörk og losna þannig undan
tilboðsskyldu. Yfirtökuskyldum að-
ila er sem sagt ekki í sjálfsvald sett
hvort hann selur bréfin eða ekki þeg-
ar yfirtökumörkum er náð.
Í 48. grein laganna um verðbréfa-
viðskipti er að finna úrræði FME
þegar tilboðsskyldur aðili fer ekki að
reglum. „Í ákvæðinu segir nánar að
ef aðili sem er tilboðsskyldur skv. 37.
gr., setur ekki fram tilboð innan til-
skilins frests geti Fjármálaeftirlitið
fellt niður allan atkvæðisrétt við-
komandi aðila í félaginu. Er viðkom-
andi aðilum að því búnu skylt að
selja þann hluta eignarhlutarins sem
er umfram leyfileg mörk. Skal Fjár-
málaeftirlitið setja tímamörk í því
skyni en fresturinn skal ekki vera
lengri en fjórar vikur, að viðlögðum
dagsektum,“ segir á vef FME.
Þar segir jafnframt að sú spurning
hafi vaknað hvort draga megi þá
ályktun að þar sem endanlegt úrræði
FME sé að þvinga menn til þess að
selja niður hljóti mönnum að vera
frjálst að gera það að eigin frum-
kvæði. Niðurstaðan er sú að svo sé
ekki. Hér er eigi að síður um brot á
yfirtökuskyldu að ræða og gæti það
leitt til sektar í refsimáli.
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME,
segir að óvissa hafi ríkt um þetta at-
riði og að það sé í samræmi við boð-
aða stefnu FME að setja fram túlk-
un um viðhorf eftirlitsins svo að
markaðsaðilar geti tekið mið af því.
Óheimilt að selja niður
án samþykkis FME
HLUTABRÉF lækkuðu í verði í
Kauphöll Íslands í gær. Úrvalsvísi-
talan lækkaði um 0,19% í um 2,2
milljarða króna viðskiptum og var
5.728 stig. Velta á skuldabréfamark-
aði nam 2,9 milljarða króna.
Mest viðskipti voru með bréf
Glitnis, fyrir 736 milljónir króna.
Bréf Flögu hækkuðu um 0,99% og
bréf Össurar um 0,89%, en þetta
voru einu bréfin sem hækkuðu í gær.
Bréf FL Group lækkuðu um 2,01%,
bréf Mosaic um 1,84% og bréf Avion
um 1,11%.
Hlutabréf lækkuðu í verði
EIGENDUR Pennans hafa fest
kaup á 73% hlut í lettneska rekstr-
arvörufyrirtækinu AN Office sem
er hið þriðja stærsta sinnar teg-
undar á Eystrasaltssvæðinu.
Velta AN Office var um 1,5 millj-
arðar íslenskra króna á síðasta ári
en kaupverð hlutarins er ekki gefið
upp.
Kristinn Vilbergsson, forstjóri
Pennans, segir í tilkynningu að lyk-
ilstjórnendur AN Office í höf-
uðstöðvunum í Lettlandi taki þátt í
yfirtökunni og halda áfram í sínum
störfum.
AN Office er þekkt fyrirtæki á
sínu markaðssvæði og hefur um 150
birgja um alla Evrópu. Sameiginleg
innkaup og kaupsamningar Penn-
ans og AN Office munu auka slag-
kraft beggja, segir í tilkynning-
unni, þótt AN Office verði áfram
rekið sem sjálfstæð eining. Rúmur
þriðjungur af tekjum fyrirtækisins
er frá sölu á netinu og fyrirtækið
rekur auk þess verslanir og dreif-
ingarmiðstöðvar í Eystrasaltslönd-
unum, en meirihluti veltu fyrirtæk-
isins er í Lettlandi.
Behrens Corporate Finance veitti
ráðgjöf við kaupin, en fyrirtækið
sérhæfir sig í ráðgjöf við norræna
fjárfesta í Eystrasaltslöndunum.
Penninn kaupir hlut í fyrirtæki í Lettlandi
AVION Group og HB Grandi
munu koma inn í Úrvalsvísitölu
Kauphallar Íslands um næstu mán-
aðamót ef marka má nýja spá grein-
ingardeildar Glitnis. Avion kemur
inn í stað Flögu Group og HB Grandi
í stað Kögunar sem hefur verið af-
skráð í kjölfar yfirtöku Dagsbrúnar
á fyrirtækinu.
Úrvalsvísitalan er endurskoðuð á
hálfs árs fresti og hefur löngum ver-
ið búist við því að Flaga Group
myndi detta út, en ef nota má
íþróttamál má segja að félaginu hafi
með naumindum tekist að hanga inni
vegna sérstakra aðstæðna sem hafa
myndast hverju sinni. Nú eru engar
slíkar fyrir hendi og því dettur Flaga
út.
Í Morgunkorni Glitnis segir að nú
verði í síðasta skipti notuð núverandi
aðferð við samsetningu vísitölunnar
en um áramótin verði tekin upp ný
aðferð. Sérfræðingar bankans hafa
einnig spáð fyrir um samsetningu
vísitölunnar miðað við þá aðferð og
komist að þeirri niðurstöðu að yrði
hún notuð myndu Marel og HB
Grandi detta út og Icelandic Group
koma inn í staðinn. Þannig yrðu ein-
ungis 14 félög í vísitölunni.
#
!
!"$
* + &
(
,
-.! + &
-/ .
-! &
-+
&
0 +' &
,1
2 &
23 &
!
,
40
% &5
,
3
,
6
6 .2
7! 8 90 :
;
2<
=>
*
=>
%&'
(&)
*&+
+&,
)&-
*&(
.
/&)
*0&,
(&'
/+&/
**&/
(&-
*&)
**&0
*&-
Avion í Úrvalsvísitölu
KAUPÞING banki hefur mikla
vaxtarmöguleika vegna lágs hagnað-
armargfaldara og alþjóðlegir fjár-
festar eru nýfarnir að uppgötva að
þar felist kauptækifæri. Þetta segir
breska greiningarfyrirtækið Red-
burn Partners í nýrri skýrslu um
bankann en þar er spurt hvernig slíkt
tækifæri geti leynst á hinum skil-
virku fjármálamörkuðum nútímans.
Höfundar skýrslunnar komast að
því að vegna þess að bankinn sé
skráður í Kauphöll Íslands hafi at-
hygli alþjóðlegra fjárfesta ekki
beinst að bankanum fyrr en tiltölu-
lega seint í vaxtarferli hans. Veiking
krónunnar undanfarið hafi haft áhrif
á gengi bréfa bankanna í ósamræmi
við virði þeirra, sem skapað hafi
kauptækifæri nú þegar dragi úr
ástæðulausri hræðslu sem gripið hafi
um sig á íslenskum hlutabréfamark-
aði.
Í skýrslunni er fjallað ítarlega um
Kaupþing banka og starfsemi hans
og segir að vöxtur bankans felist í því
að hann bjóði þjónustu sem fáir aðrir
veiti. Þá spáir Redburn Partners því
að bankinn verði skráður í Kauphöll-
ina í London innan fárra ára.
Kauptækifæri í
Kaupþingi banka
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Skýrsla Erlenda greiningarfyrirtækið Redburn Partners fjallar í nýrri
skýrslu ítarlega um KB banka og telur að þar felist kauptækifæri.