Morgunblaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 10
10 B FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
TVG-ZIM
SEN SÍ
MI
5 600 70
0
Kaupmannahöfn – Reyk
Einfalt mál
Þ
egar siglt var um Rotterdamhöfn og horft
yfir þann hóp manna er mætti til vígslu
tveggja nýrra skipa Samskipa í síðustu viku
mátti glögglega sjá að félagið hefur skapað
sér trausta stöðu í þessari stærstu höfn
Evrópu. Auk samgönguráðherra Hollands
og eiginkonu borgarstjóra Rotterdam, sem
gáfu skipunum sín nöfn, voru mættir
fulltrúar stærstu viðskiptavina Samskipa
og helstu fyrirtækja er tengjast flutningaiðnaði í Rotterdam
og víðar í Evrópu, hvort sem það eru opinberar stofnanir,
flutningafyrirtæki eða fjármálafyrirtæki. Þá voru viðstaddir
nokkrir sérhæfðir fjölmiðlar úr heimi flutningaiðnaðarins í
Evrópu, sem sýndu starfsemi íslenska félagsins mikinn áhuga.
Næst á eftir Maersk
Athafnasvæði Samskipa við Rotterdamhöfn er hið næst-
stærsta á eftir Maersk. Þarna er þungamiðjan í erlendri starf-
semi Samskipa en sama dag og skipin voru vígð, Samskip Pio-
neer og Samskip Courier, var hornsteinn lagður að nýrri
byggingu á gamla hafnarsvæðinu í Rotterdam. Þar munu um
200 manns starfa undir einu þaki, en aðstaða félagsins í borg-
inni hefur verið á nokkrum stöðum. Starfsmenn Samskipa í
heild eru um 1.400 og netið er orðið þétt því félagið er með 59
skrifstofur í 23 löndum í þremur heimsálfum; Evrópu, Asíu og
N-Ameríku. Nú síðast var S-Ameríka að bætast við með
tveimur skrifstofum í Brasilíu. Gámaskipin eru orðin 27 talsins
með gámaflota upp á 13 þúsund stykki. Velta félagins er að
nálgast 600 milljónir evra, um 56 milljarða króna. Áætlunar-
siglingar eru á milli Íslands, Bretlands, Írlands, Spánar,
Skandinavíu, Eystrasaltslandanna, Rússlands og meginlands
Evrópu.
Mikil endurnýjun fer nú fram á skipaflotanum en Courier og
Pioneer eru systurskip gámaflutningaskipanna Geestdijk og
Geeststroom, sem afhent voru á síðasta ári og hafa reynst vel í
siglingum milli Hollands og Bretlandseyja. Tvö skip til við-
bótar þessum eru í smíðum hjá Damen skipasmíðastöðinni í
Rúmeníu sem afhent verða síðar á þessu ári. Samskip taka
skipin á kaupleigu af skipamiðlurum, en fulltrúar þeirra voru
viðstaddir vígsluna í Rotterdam í síðustu viku og lýstu yfir
mikilli ánægju með samstarfið við Samskip. Félagið hefur
þann háttinn á að leigja öll skipin og er ekkert þeirra í beinni
eigu þess.
Aukið vægi sjóflutninga
Að lokinni vígslu skipanna flutti samgönguráðherra Hollands,
frú Karla Peijs, ávarp þar sem henni varð tíðrætt um mik-
ilvægi þess að flytja flutninga sem mest af landi á sjó. Tekist
hefði að auka sjóflutninga til og frá Hollandi og stjórnvöld þar
í landi hefðu tekið þá stefnu að gera sjóflutningum enn hærra
undir höfði. Tilkynnti hún aukið framlag til sérstakrar stofn-
unar, sem ætlað er að stuðla að vöruflutningum á sjó. Frú
Peijs lýsti yfir sérstakri ánægju með skipin sem Samskip tóku
í notkun, þau væru sérhæfð í styttri siglingar milli hafna í Evr-
ópu og væru að auki umhverfisvænni en önnur farartæki. Á
þessum vettvangi vildi hún sjá aukinn vöxt, mikil þörf væri á
að draga úr umferðarþunga á vegum Hollands og víðar í Evr-
ópu.
„Stolt og glöð“
Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, er stór eigandi
að félaginu og var að sjálfsögðu viðstaddur vígsluna í Rotter-
dam. Hann segir það hafa verið nauðsynlegt að flytja starf-
semi allra dótturfélaga undir eitt nafn, Samskip væri gott
nafn.
„Við erum stolt og glöð yfir því að keyra starfsemina undir
nafni Samskipa. Eðlilega er nafnið Geest þekkt á sínum mark-
aði en það mun breytast. Samskip verður það nafn sem menn
nota í framtíðinni,“ segir Ólafur en ýmsir möguleikar voru
skoðaðir á nafngiftinni, m.a. með sérstakri markaðsrannsókn í
samvinnu við breskt ráðgjafarfyrirtæki.
Ólafur segir markmiðið með breytingunum hafa verið að
koma á einu samhæfðu siglinganeti sem myndi auka ferðatíðni
og hraða um hafnir Evrópu. Með því að notast við 45 feta
gáma, líkt og nýju skipin gera, gætu Samskip boðið sambæri-
lega kosti og flutningabílar á landi, sem einnig verði í boði hjá
fyrirtækinu. Þetta verði öflugasta flutningakerfið í Evrópu,
jafnt til sjós sem lands.
Varðandi ræðu hollenska samgönguráðherrans segir Ólafur
þessa umræðu vera ofarlega á baugi í Evrópu. Hraðbrautirnar
séu að fyllast af bílum og fyrirtæki eins og Samskip geti nýtt
sér þau tækifæri sem felist í stefnumörkun um flutning vöru-
samgangna á sjó. Fyrirtæki séu hins vegar ekki endilega sam-
mála stjórnmálamönnum um leiðir að þessum markmiðum.
Heimurinn lagður undir
Ár er senn liðið frá því að Michael F. Hassing gekk til liðs við
Samskip, sem annar forstjóri félagsins ásamt Ásbirni Gísla-
syni. Þessi 48 ára Dani hafði um aldarfjórðungsskeið unnið við
flutningastarfsemi í Evrópu og Asíu og allan tímann í stjórn-
unarstörfum fyrir AP Moller-Maersk. Erlend starfsemi Sam-
skipa er mest á hans könnu en þó skipta þeir Ásbjörn með sér
verkum í því sambandi, enda Ásbjörn öllum hnútum kunnugur
í Rotterdam eftir að hafa stýrt útflutningsdeild Samskipa og
verið framkvæmdastjóri Samskipa BV í Rotterdam.
Hassing segist í samtali við Morgunblaðið vera mjög sáttur
við að hafa farið til Samskipa. Hann hafi farið um borð á
spennandi og viðburðaríkum tímum, er Samskip keyptu Geest,
Seawheel og Kloosterboer. Nú hafi tekist að koma öllum dótt-
urfélögunum undir einn hatt og gríðarleg vinna síðustu mán-
aða liggi þar að baki.
Hann segir margt líkt með Samskip og Maersk en hann hafi
fljótt hrifist af krafti og áræðni Íslendinganna. Metnaður
stjórnenda Samskipa sé mikill og það sjáist á þeim stórum
skrefum sem hafi verið stigin síðustu árin. Í raun hafi lítið fyr-
irtæki ákveðið að leggja heiminn undir og nefnir Hassing þar
sem dæmi að félagið láti sér ekki duga að vera með skrifstofur
í Evrópu, Asíu og N-Ameríku. Framundan sé að opna skrif-
stofur í Brasilíu og Chile.
Spurður um möguleika Samskipa á að stækka enn frekar
segir Hassing að félagið hafi nú þegar skipað sér í hóp þriggja
eða fjögurra stærstu flutningafyrirtækja Evrópu. Með því að
nota gáma sem henta bæði skipum og bílum séu gríðarlegir
möguleikar á auknum vexti fyrirtækisins.
Reynslubolti Michael F. Hassing, forstjóri Samskipa, hefur
langa reynslu af flutningastarfsemi í Evrópu og Asíu.
Nýtt skip Vörur lestaðar um borð í Samskip Pioneer í Rotter-
dam-höfn áður en skipið lagði af stað í jómfrúarferð sína.
Ljósmyndir/Hreinn Magnússon
Við stýrið Þeir standa vaktina í brú Samskipa, Ásbjörn Gísla-
son, Michael F. Hassing og Ólafur Ólafsson.
Samskip ætla sér stærri hluti
Samskip ætla sér stóra hluti á evrópskum flutningamarkaði á næstu árum. Einn liður í því er að nota Samskipanafnið á allan
rekstur og færa höfuðstöðvar erlendrar starfsemi undir eitt þak. Björn Jóhann Björnsson var í Rotterdam á dögunum og kynnti
sér breytta starfsemi og áherslur skipafélagsins íslenska.
bjb@mbl.is
Starfsmenn Samskipa í heild eru
um 1.400 og netið er orðið þétt því
félagið er með 59 skrifstofur í
23 löndum í þremur heimsálfum;
Evrópu, Asíu og N-Ameríku.
Nú er S-Ameríka að bætast við.