Morgunblaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 B 15  Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóriLandsbankans, reyndist sann-spár, er hann sagði við blaða- menn Morgunblaðsins á mánudag, í tilefni tilkynningar Standard & Po- or’s, að hann óttaðist að fréttir af breyttum horfum á mati ríkissjóði úr stöðugum í neikvæðar yrðu tengdar við fréttir af brotthvarfi Halldórs Ás- grímssonar forsætisráðherra úr stjórnmálum. Það hefði verið óheppi- leg tilviljun að þessar fregnir hefðu borið upp á sama dag. „Ég hef áhyggjur af því að menn fari að tengja þetta tvennt saman en þetta eru ótengd atriði. Ég er hins vegar viss um að einhverjar fréttir muni tengja þetta saman,“ sagði Sig- urjón. Þetta varð raunin. Blekið á þessum orðum var vart þornað er lesa mátti frétt á þriðjudag í hinu virta og víð- lesna viðskiptablaði, Financial Times, um afsögn Halldórs, ásamt mynd af honum, þar sem við sama tækifæri var greint frá mati Standard & Po- or’s. Jafnframt var sagt að með því að Geir H. Haarde settist í stól forsætis- ráðherra gæti komist á stöðugleiki og FT bætti um betur í gær með frétt þar sem Geir er hvattur til að draga úr ríkisútgjöldum. „Vinir okkar“ í Danske Bank voru sömuleiðis snöggir til, eftir að til- kynningin frá Standard & Poor’s birtist í vikubyrjun, og töldu hana ásamt afsögn Halldórs vera slæmar fréttir sem gætu aukið líkur á harðri lendingu í íslensku efnahagslífi. Ekki kemur á óvart að Danirnir taki fljótt undir vangaveltur sem eru í samræmi við þeirra sjónarmið. Áhyggjur Sigurjóns Þ. Árnasonar eru skiljanlegar og sprottnar af þeirri staðreynd hve erlendir fjölmiðlar eru farnir að fylgjast grannt með íslensku efnahagslífi. Aukin umfjöllun hefur sýnt að hún byggist ekki alltaf á mik- illi þekkingu á aðstæðum hér á landi. Fréttir Financial Times og ann- arra erlendra miðla sýna hins vegar mikilvægi þess að við núverandi að- stæður í efnahagsmálum ríki stöð- ugleiki í stjórnmálum. Stjórnmálin geta sannarlega haft áhrif á and- rúmsloftið í viðskiptalífinu. Vandi bankanna við að endurfjármagna sig á erlendum mörkuðum hefur verið nægur að undanförnu, að ekki bætist við óvissa í íslenskum stjórnmálum. Slíkri óvissu þarf nýr forsætisráð- herra, Geir H. Haarde, að eyða. Hann má heldur ekki standa einn í þeirri baráttu á stjórnarheimilinu, báðir stjórnarflokkarnir þurfa að vera sam- stíga ef íslensk stjórnvöld eiga að halda trúverðugleika sínum út á við. Víðar er fylgst með þeirra verkum en margur skyldi halda. Erlendar sem innlendar fjár- málastofnanir hafa haft uppi aðvar- anir um harða lendingu í efnahags- málum og beint fjölmörgum athugasemdum til stjórnvalda til að draga úr þensluhvetjandi áhrifum, allt verkefni sem bíða úrlausnar, t.d. málefni Íbúðalánasjóðs. Hvergi má slaka slöku við. Viðskiptalífið kallar eftir því að ró og friður skapist í Stjórnarráðinu. Um leið er uppi krafa um að ríkið dragi úr umsvifum sínum og fram- kvæmdum. Krafa um frið og ró INNHERJI SKRIFAR ... Innherji@mbl.is ’Vandi bankanna hefurverið nægur, að ekki bætist við óvissa í íslenskum stjórnmálum. ‘ /!                         !"###$%&'#($)*+ ,      -    .    .             0   .    ,        1         02  3 HALLGRÍMUR Kristinsson hef- ur verið ráðinn framkvæmda- og svæðisstjóri hjá Heimssamtökum kvikmyndarétthafa (Motion Picture Association, MPA) og verður yfir baráttunni gegn ólöglegri dreifingu myndefnis í Evrópu, Miðaustur- löndum og Afríku. Hallgrímur mun stýra starfinu frá höfuðstöðvum MPA í Brussel í Belgíu. Þar mun hann vinna náið með 35 samtökum í 40 löndum við framkvæmd almennra aðgerða til að stemma stigu við ólöglegri dreifingu mynd- efnis á staðar- vísu. Undanfarin ár hefur Hallgrímur verið fram- kvæmdastjóri Samtaka mynd- rétthafa á Íslandi (SMÁÍS) og áður starfaði hann m.a. sem fram- kvæmdastjóri ferðafélagsins Úti- vistar og framkvæmdastjóri Opinn- ar miðlunar. Stærstu framleiðendur kvik- mynda og sjónvarpsefnis í heim- inum standa að MPA og eru höf- uðstöðvar samtakanna á heimsvísu í Encino í Kaliforníu. Meðal fyrirtækja sem eiga aðild að MPA eru Paramount Pictures Corporation, Twentieth Century Fox og Warner Bros. Pictures Int- ernational. Ráðinn framkvæmda- og svæðisstjóri heimssamtaka kvikmyndarétthafa Hallgrímur Kristinsson Afl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.