Morgunblaðið - 08.06.2006, Page 16
410 4000 | www.landsbanki.is
Við færum þér fjármálaheiminn
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
30
46
9
11
/2
00
5
Nú býðst þér að eiga milliliðalaus verðbréfaviðskipti með
E*TRADE í gegnum netið á stærsta verðbréfamarkaði heims,
NYSE, Nasdaq og AMEX í Bandaríkjunum, og á mörkuðum í
Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.
Kynntu þér málið á www.landsbanki.is
F
járfestatengsl eru mikilvægur þáttur í starf-
semi allra fyrirtækja sem þurfa að leita á
fjármagnsmarkaði og gildir þá einu hvort um
hlutabréfa- eða skuldabréfamarkaði er að
ræða. Eigi fjárfestar að leggja fjármuni til
slíkra fyrirtækja þurfa þeir að hafa góða mynd af rekstri
þeirra og jafnframt er nauðsynlegt að þeir hafi góðan að-
gang að upplýsingum.
Stoðtæknifyrirtækið Össur er eitt þeirra fyrirtækja sem
hefur leitað á fjármagnsmarkaði en Sigurborg Arnarsdótt-
ir hefur starfað sem forstöðumaður fjárfestatengsla hjá
Össuri síðan 2001.
Kópavogsbúi í húð og hár
Sigurborg er fædd árið 1972 og er að eigin sögn Kópa-
vogsbúi í húð og hár. „Ég er alin upp í vesturbæ Kópavogs
og gekk því í Kársnesskóla og Þinghólsskóla áður en leiðin
lá í Menntaskólann í Kópavogi,“ segir Sigurborg þegar
blaðamaður spyr um skólagöngu hennar.
Hún lauk stúdentsprófi frá MK árið 1993 og þaðan lá
leiðin í Háskóla Íslands þar sem hún nam þýsku og sagn-
fræði. „Ég hafði alltaf mikinn áhuga á listasögu en hún er
ekki kennd hérna heima. Þess vegna ákvað ég að fara í
sagnfræði ásamt þýskunáminu. Veturinn 1996–1997 gafst
mér tækifæri til þess að fara til München í Þýskalandi til
þess að læra listasögu og ég greip það. Ég kláraði síðan
sagnfræðina hér heima árið 1999.“
Veturinn 1998–1999 starfaði Sigurborg hjá Endur-
menntun Háskóla Íslands og hafði þá meðal annars um-
sjón með námskeiðum fyrir erlenda stúdenta. Síðan lá leið-
in til Össurar þar sem hún hefur starfað alla tíð síðan.
Hafði hún hugsað sér að fara að vinna í viðskiptaheiminum
þegar hún innritaði sig í sagnfræðina?
„Alls ekki. Mér virtist þetta frekar óspennandi og það
má því kannski segja að ég hafi runnið á bananahýði inn í
starfið. Ég var ráðin hingað vegna tungumálakunnáttu
minnar en ég hef lítið þurft að nota þýskuna í vinnunni.“
Sigurborg segir að margar hliðar séu á starfinu, t.d. snú-
ist það ekki bara um tölur. „Þetta snýst mjög mikið um
mannleg samskipti og kynningarmál. Þetta er ekki ein-
göngu kynning til fjárfesta því allt umtal um fyrirtækið
hefur áhrif á ímynd þess og það er mikilvægt að halda
góðri ímynd.“
Starf fjárfestatengils hjá Össuri varð ekki til fyrr en árið
2001 og fram að því starfaði Sigurborg á fjármálasviði fyr-
irtækisins, meðal annars í fjárreiðum og í hluthafaskrán-
ingu en félagið var einmitt skráð á hlutabréfamarkað
stuttu eftir að hún kom til starfa. En hvernig er að starfa
sem fjárfestatengill? Er þetta mjög þrætusamt starf?
„Ég myndi ekki segja það en það er vissulega mikilvægt
að vanda sig við það sem maður er að gera og koma hlut-
unum skilmerkilega til skila. Þá losnar maður við að þurfa
að leiðrétta misskilning. Okkur hjá Össuri hefur tekist
mjög vel að skila því sem við viljum segja um reksturinn.
Þannig höfum við komist hjá því að þurfa að senda mikið af
leiðréttingum eða bera til baka rangfærslur og ranghug-
myndir um fyrirtækið.“
Blaðamaður ræddi við vinnufélaga Sigurborgar sem
segir hana vera góðan vinnufélaga og mjög ánægjulegt að
vinna með henni. „Það eru þrjú orð sem lýsa henni best:
Dugleg, ákveðin og lífleg. Sigurborg hikar ekki við að tak-
ast á við ný verkefni.“
Fjölskyldan aðaláhugamálið
Maki Sigurborgar er Helgi Ólafsson, stórmeistari í skák
og skólastjóri Skákskóla Íslands, og eiga þau tvo syni, sá
eldri er fimm ára gamall og sá yngri tveggja ára. Aðspurð
segir hún að lítill tími gefist til áhugamála enda sé helsta
áhugamálið utan vinnunnar fjölskyldan. „Ég hef gaman af
útivist og mér finnst einnig gaman að fara á tónleika eða að
lesa góða bók,“ segir Sigurborg sem segist vera frekar
menningarsinnuð. Þegar hún er spurð hvað hún ætli að
gera nú þegar HM í knattspyrnu hefst verður fátt um svör.
„Maður finnur sér eitthvað að gera annað en að horfa á
sjónvarpið.“
Ímyndin mikilvæg
SVIPMYND
sverrirth@mbl.is
Sagnfræðingurinn Sigurborg
Arnarsdóttir hefur umsjón með
fjárfestatengslum hjá Össuri.
Guðmundur Sverrir Þór spjallaði við
hana og komst að því að hún rann á
bananahýði inn í viðskiptaheiminn.
Morgunblaðið/Kristinn
Menningarsinnuð Sigurborg Arnarsdóttir hefur gaman
af að fara á tónleika og lesa góða bók.
ÞAÐ getur verið gaman
að horfa á HM í knatt-
spyrnu en öllu gamni fylgir
nokkur alvara.
Ný rannsókn frá Tuck
School of Business í
Dartmouth háskóla, MIT og
norska Viðskiptaháskól-
anum hefur leitt í ljós að
sterk fylgni er á milli úrslita
í knattspyrnulandsleikjum
og gengisbreytinga í kaup-
höllum. Og spili landslið í
HM eru áhrifin enn meiri.
Frá þessu er greint í sænska
blaðinu Dagens Industri en
Svíar eru einmitt meðal
þátttakenda í HM sem hefst
á morgun.
Samkvæmt niðurstöðum
rannsóknarinnar lækkar
gengi í kauphöllum að með-
altali um 0,39% tapi landslið
leik í úrslitakeppni HM.
Tapi liðið í „venjulegum“
landsleik lækkar gengi að
meðaltali um 0,29%.
„Fólk trúir því oft að hag-
fræði og viðskipti byggist á
skynsemi og rökhugsun en
þetta sýnir okkur að svo er
alls ekki alltaf,“ segir Diego
Garcia, prófessor við Tuck
háskólann.
Áhrifin eru að hans sögn
mest í löndum á borð við
Frakkland, England, Spán
og Ítalíu þar sem knatt-
spyrna er þjóðaríþrótt.
REUTERS
Eins gott það gangi vel
VANTRAUST er eitt af því sem
einkennir versnandi efna-
hagslegt árferði. Þannig
treysta fjármálastofnanir við-
skiptavinum sínum ekki jafn-
vel og þegar hagsveiflan er á
uppleið og draga gjarnan úr
útlánum. Útherji fékk nýlega
að upplifa að myrkrið nálgast
í íslensku efnahagslífi.
Þannig er mál með vexti að
Útherji hafði á mynd-
bandaleigu einni á höfuðborgarsvæð-
inu leigt barnamynd fyrir ungan son
sinn. Svo illa vildi til að Útherji
gleymdi að skila myndinni (svo sem
ekki í fyrsta sinn) og þegar slíkt hefur
komið fyrir áður hefur það svo sem
ekki þótt neitt tiltökumál og þá berst
yfirleitt vinalegt sms-skeyti með
áminningu um að skila nú spólunni.
Í þetta skipti var þó annað upp á
teningnum. Þegar Útherji var að
svæfa soninn eitt kvöldið tók síminn
að hringja sem andsettur væri. Ekki
náðist í símtólið nægilega snemma
og því var hringt út. Innan við mínútu
síðar tók síminn að hringja á ný og í
þetta skipti var frekjulegur hringitónn-
inn þannig að sá stutti hrökk upp
með harmkvælum miklum. Útherja
brá svolítið og taldi víst að einhver í
fjölskyldunni hefði slasast eða eitt-
hvað þaðan af verra. Hann dreif sig
því að svara og þá rumdi kvenmanns-
rödd í símanum að þetta væri á
myndbandaleigunni og að nú væri
mál að skila myndinni. Útherji spurði
vinsamlega hvort einhver væri að
bíða eftir myndinni en svo var ekki.
Af þessu má greina að vantraust í
samfélaginu er orðið mikið og næst á
Útherji von á innheimtukröfu frá
sýslumanni vegna myndarinnar góðu.
ÚTHERJI
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Vantraust á vídeóleigu
SAMNINGAR hafa náðst milli Alcoa, eiganda Alcoa Fjarðaáls, og íþrótta-
framleiðandans Nike þess efnis að Alcoa framleiði sérstaka álhólka fyrir
Nike sem síðan verður breytt í hafnaboltakylfur. Um er að ræða fínustu kylf-
ur íþróttavörurisans sem verða notaðar um allan heim í keppni í sumar.
Hólkarnir verða framleiddir í álveri Alcoa í Arizona-fylki í Bandaríkjunum
en ekki er gefið upp hvert verðmæti samningsins er.
Alcoa framleiðir fyrir Nike