Morgunblaðið - 11.06.2006, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 C 5
Leikskólakennari!
Þér býðst starf þar sem stjórnendur leggja sig
fram við að hlúa að þinni andlegu og líkamlegu
velferð. Það gerum við m.a. með faglegum
og persónulegum stuðningi, góðum kjörum
og metnaðarfullu símenntunarprógrammi. Um
leikskólann var fjallað í Morgunblaðinu 2. júní
„UPPELDI - Börnin læra að borða rétta matinn
á fyrstu árunum”. Greinina má nálgast á barna-
land.is, tengill: Leikskólakennari!
Við hlúum að þinni velferð.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér starfið nánar
eða sækja um vinsamlegast hafið samband við
Ólaf Grétar Gunnarsson þróunarstjóra í síma
897 1122 (er við símann núna) eða með því að
senda tölvupóst á leikskolinn@obradgjof.is .
Kirkjubæjarskóli á Kirkjubæjarklaustri
Grunnskólakennarar
Við leitum að áhugasömum kennurum næsta
skólaár. Ýmsar kennslugreinar koma til greina.
Nánari upplýsingar veitir Stella Á. Kristjáns-
dóttir, skólastjóri, í símum 487 4633 eða
865 7440. Einnig má senda fyrirspurnir á
netfangið: kbskoli@ismennt.is.
Veffang skólans er www.kbs.is .
Alcan á Íslandi leitar að kraftmiklum einstaklingi í starf leiðtoga gæðastjórnunar. Viðkomandi þarf að
hafa reynslu af gæðastjórnun og vera gæddur góðum samskiptahæfileikum. Um er að ræða fjölbreytt
og krefjandi starf hjá fjölþjóðlegu fyrirtæki.
Svona erum við
Alcan á Íslandi hf. er þekkingarfyrirtæki sem
rekur álver í Straumsvík. Við bjóðum upp á
margbreytileg störf, þar sem hugvit, þekking
og kunnátta starfsmanna gegnir lykilhlutverki.
Við leggjum áherslu á markvisst fræðslustarf,
endurgjöf á frammistöðu og gott upplýsinga-
flæði ásamt tækifærum til starfsþróunar.
Við setjum umhverfis-, öryggis- og heilbrigðis-
mál í öndvegi og höfum stöðugar umbætur á
verkferlum og aðferðum að leiðarljósi. Við
leggjum áherslu á að starfa í góðri sátt við
umhverfið og samfélagið allt, sem við erum
hluti af.Alcan á Íslandi . Straumsvík . www.alcan.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun skilyrði, t.d. á sviði
viðskiptafræði eða verkfræði
Reynsla af gæðastjórnun æskileg
Góðir samskiptahæfileikar nauðsynlegir
Frumkvæði og öguð vinnubrögð
Gott vald á ensku
Reynsla af verkefnastjórnun
Starfssvið:
Aðlögun framsækinna aðferða í gæða-
stjórnun að þörfum fyrirtækisins
Þróun á samþættu stjórnkerfi byggðu á
ISO 9001, ISO 14001 og OHSAS 18001
Umsjón og stjórnun innri og ytri úttekta
Stýring og eftirfylgni stöðugra umbóta
Virk þátttaka í árangursstjórnun og
stefnumótun fyrirtækisins
Starf leiðtoga gæðastjórnunar heyrir undir framkvæmdastjóra tækniþjónustu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Ingi Magnússon, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs,
netfang: thorsteinnm@alcan.com.
Umsóknarfrestur er til og með 19. júní nk.
Hægt er að sækja um starfið á heimasíðu Alcan á Íslandi, www.alcan.is.
Leiðtogi gæðastjórnunar
Smiðir og laghentir!
Trésmiðja GKS ehf. óskar eftir að ráða smiði
og laghenta menn til starfa við innréttinga-
og skrifstofuhúsgagnaframleiðslu. Leitað er
eftir mönnum til framtíðarstarfa hjá traustu
og framsæknu fyrirtæki. Góður aðbúnaður og
virkt starfsmannafélag sem stendur fyrir ýms-
um uppákomum. Nánari uppl. gefur Arnar
Aðalgeirsson (arnar@gks.is) eða á staðnum.
Trésmiðja GKS ehf.,
Funahöfða 19,
sími 577 1600.
Heilsueflandi heimsóknir
til aldraðra
Óskum eftir að ráða starfsmann í heilsueflandi heimsóknir til
aldraðra. Um er að ræða fullt starf og æskilegt að
umsækjandi geti hafið störf sem fyrst en ekki seinna en 1.
september.
Heilsueflandi heimsóknir til aldraðra fela í sér reglulegar
heimsóknir til 75 ára og eldri á þjónustusvæði
Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri. Markmiðið með
heimsóknunum er að efla aldraða í að viðhalda heilbrigði og
sjálfstæði sem lengst.
Æskilegt er að umsækjendur hafi háskólamenntun á sviði
hjúkrunar, iðjuþjálfunar, sálfræði eða félagsráðgjafar. Reynsla
af vinnu með öldruðum, áhugi á málefnum aldraðra og
forvarnarstörfum, lipurð í samskiptum og sjálfstæð
vinnubrögð eru nauðsynleg. Viðkomandi þarf að hafa
bílpróf og hafa bíl til umráða.
Laun eru skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við
Launanefnd sveitarfélaga. Tekið verður tillit til samþykktar
bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismál við ráðningu í
starfið.
Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá berist til Búsetudeildar
Akureyrarbæjar, Glerárgötu 26, 600 Akureyri, fyrir 25. júní
næstkomandi.
Umsóknareyðublöð fást í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9 og á vefsíðu Akureyrarbæjar
http://www.akureyri.is.
Upplýsingar gefur Kristín Sigursveinsdóttir í síma 460 1407
og á netfanginu kristin@akureyri.is.
Umsóknarfrestur er til 25. júní næstkomandi.
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri
Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
AKUREYRARBÆR
Búsetudeild