Morgunblaðið - 17.06.2006, Side 9

Morgunblaðið - 17.06.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 9 FRÉTTIR K R I N G L U N N I KRINGLU KAST - í fullum gangi til þriðjudagsAF ÖLLUM SÖFNUNAR Tilvalið tækifæri að versla brúðkaupsgjafir & útskriftargjafir Líttu á www.tk.is OPIÐ SUNNUDAG -HNÍFAPÖRUM -STELLUM -GLÖSUM -20% af öllum MENU vörum HM TILBOÐ 6 Bjórglös frá kr. 1.995.- -20% af brúðhjónaglösum RÚMFÖT verð frá 1.995.- -20% af kristalskrónum og mörg, mörg, fleiri KRINGLUKAST - TILBOÐ Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Costa del Sol í júní. Bjóðum nokkraríbúðir á hinum vinsæla gististað Aquamarina á Torremolinos á frábæru verði. Góðar íbúðir á besta stað á Torremolinos. Skelltu þér til Costa del Sol og búðu vel á meðan á dvölinni stendur. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Costa del Sol 29. júní, 6. eða 13. júlí Sértilboð – Aquamarina frá kr. 39.990 Góðar íbúðir á besta stað Verð kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíóíbúð á Aquamarina í viku, 29. júní, 6. eða 13. júlí. Munið Mastercard ferðaávísunina Viðbótargisting! Aðeins 10 íbúðir í boði Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð á Aquamarina í viku. 29. júní, 6. eða 13. júlí. GUÐMUNDUR Ingi Guðmundsson, skip- stjóri og útgerðarmað- ur í Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja 14. júní sl. á 74. aldursári. Guð- mundur Ingi fæddist 22. október 1932 í Hafnarfirði og foreldr- ar hans voru Guðmund- ur Tómasson og Stein- unn Anna Sæmunds- dóttir. Guðmundur Ingi fór ungur á sjó og lauk skipstjórnarnámi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1954. Hann kom til Eyja 1955 og fór í eigin útgerð 1959 þegar hann keypti Hugin VE 65 ásamt Óskari Sigurðssyni. Guðmundur Ingi keypti hlut Óskars árið 1958. Guðmundur Ingi og fjölskylda hafa síðan átt þrjú skip með sama nafni, en seinni skipin voru skráð Huginn VE 55 og voru öll nýsmíði. Einnig átti hann Sleipni VE og var eigandi að Vestmannaey VE 54, sem hann og Krist- inn Pálsson mágur hans létu smíða í Jap- an. Guðmundur Ingi var alla tíð farsæll skip- stjóri og útgerðarmað- ur og í dag er Huginn VE eitt glæsilegasta skip íslenska fiskveiði- flotans. Guðmundur Ingi var virkur í félagsstarfi skipstjóra og útvegs- bænda í Vestmanna- eyjum og Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi heiðraði hann fyrir vel unnin störf. Einnig var hann félagi í Akóges og Golfklúbbi Vestmanna- eyja og studdi dyggilega við bakið á ÍBV. Eftirlifandi kona hans er Kristín Pálsdóttir frá Þingholti í Vest- mannaeyjum. Þau eiga fjögur börn, Guðmund Hugin, Bryndísi Önnu, Pál Þór og Gylfa Viðar, og barnabörnin eru orðin ellefu. GUÐMUNDUR INGI GUÐMUNDSSON GUNNAR Sigurðsson, fyrrverandi flugvallar- stjóri Reykjavíkurflug- vallar, lést hinn 15. júní á hjúkrunarheimilinu Sóltúni, 89 ára að aldri. Gunnar fæddist á Akur- eyri 4. september árið 1916 og voru foreldrar hans Sigurður Sigurðs- son bóksali og Soffía Stefánsdóttir. Gunnar lauk námi í flugvallar- stjórnun frá Parks Col- lege of Aeoronautical Technology í St. Louis University í Bandaríkj- unum árið 1944 og var settur flug- vallarstjóri Reykjavíkurflugvallar (1946–1947). Hann gegndi störfum sem fulltrúi flugmálastjóra ríkisins frá 1949–1951 og sem skrifstofustjóri flugmálastjóra frá 1952–1956. Hann var skipaður flugvallar- stjóri Reykjavíkur- flugvallar árið 1956 og gegndi því starfi í lið- lega 40 ár, eða til 1. febrúar árið 1987. Gunnar sat í flugráði um nokkurra ára skeið og var í stjórn Íslensk- ameríska félagsins frá 1954 og formaður þess frá 1961–1963. Gunnar hlaut ýmsar viðurkenningar vegna starfa sinna að flug- málum og var m.a. sæmdur riddara- krossi hinnar íslensku fálkaorðu. Eiginkona Gunnars, Elínborg Sig- urðsson, lést árið 2003 og láta þau eftir sig þrjú uppkomin börn. Andlát GUNNAR SIGURÐSSON FRAMLEIÐSLA rafmagns úr sjáv- arstraumum með skoskri tækni, yf- irbyggð skíðabrekka í Reykjavík, stofnfrumubanki og lággæslufang- elsi þar sem fangar vinna við lífrænt kúabú eru meðal þeirra viðskipta- hugmynda sem nemendur á 1. ári í viðskiptafræði og lögfræði hafa unnið að í Háskólanum í Reykjavík í vetur og kynnt voru í skólanum á fimmtudag. Frá því að Háskólinn í Reykjavík var stofnaður árið 1998 hafa nem- endur á 1. ári unnið viðskiptaáætl- anir að stofnun fyrirtækja. Ásta Bjarnadóttir, forstöðukona BSc- náms í viðskiptafræði við skólann, segir að námskeiðið sé komið til vegna hlutverks Háskólans í Reykja- vík, sem sé að efla samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Markmið nám- skeiðsins er að allir í skólanum kunni að stofna fyrirtæki og þeir hafi þá hugsun að þeir eigi að gera það. Nú stendur til að víkka nám- skeiðið frekar út. „Á næsta ári munu verkfræðinemar, laganemar og við- skiptafræðinemar vinna saman við verkefni. Við viljum fá hugmyndir sem tengjast hátækni og hugmyndir þar sem þekking mismunandi aðila nýtist vel,“ segir Ásta. Hún bendir á að rannsóknir sýni að hlutfall frum- kvöðla sem eru háskólamenntaðir sé hér lægra en í nágrannalöndunum og því þurfi að breyta. Með því að hvetja fólk með háskólamenntun til að koma hugmyndum sínum í fram- kvæmd sé hægt að auka nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Alls voru 32 viðskiptaáætlanir unnar af nemendum í vetur. Einn hópurinn fann upp á nýrri gerð leik- fanga með rafeindaskynjurum, ann- ar vann að áætlun um framleiðslu mjólkurvara úr stoðmjólk og enn annar skoðaði möguleika á sögu- safni við Bláa lónið þar sem fólk gæti tekið þátt í og upplifað kafla úr Íslandssögunni. Morgunblaðið/ÞÖK Nemendur í Háskólanum í Reykjavík kynna viðskiptaáætlun sína um stofn- un stofnfrumubanka, eina þeirra 32 áætlana sem unnar voru í vetur. Fangar vinni á lífrænu kúabúi NÆR helmingur foreldra eða 42,8% hefur ekki sett börnum sínum nein- ar reglur um netnotkun og 45,5% foreldra hafa lítið sinnt því að ræða við börn sín um öryggi á netinu. Þetta kemur fram í könnun sem Gallup hefur gert fyrir Símann og SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni). Síminn og SAFT, vakningarverk- efni hjá Heimili og skóla um örugga notkun barna og unglinga á netinu og tengdum miðlum, hafa í samein- ingu gefið út leiðbeiningaspjald þar sem fjallað er um öryggi á netinu og í farsímanum og hvaða atriði er mikilvægast að ræða við börn og unglinga varðandi net- og far- símanotkun. Spjaldinu verður dreift til allra foreldra 6–14 ára barna. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Sjöfn Þórð- ardóttir, formaður foreldrafélags Grunnskóla Seltjarnarness, tóku við fyrstu leiðbeiningaspjöldunum í verslun Símans í Smáralind. 42% ekki sett reglur um netnotkun F.v. Anna Margrét Sigurðardóttir, verkefnisstjóri SAFT, Eva Magnús- dóttir, upplýsingafulltrúi Símans, börnin Aron Freyr og Elín Helga Lár- usarbörn, Sjöfn Þórðardóttir, formaður Foreldrafélags grunnskóla Sel- tjarnarness, og Lárus B. Lárusson ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra sem veitti viðtöku fyrsta spjaldinu. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.