Morgunblaðið - 18.07.2006, Side 4

Morgunblaðið - 18.07.2006, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍSLENSKA landsliðið í stærð- fræði náði besta árangri sínum á 47. Ólympíuleikunum í stærðfræði sem fram fóru í Ljubliana í Slóven- íu dagana 12.–13. júlí sl., með sam- tals 63 stig og lenti þar með í 59. sæti, en alls tóku 92 þjóðir þátt í leikunum. Besti árangur íslenska landsliðsins náðist áður í Argent- ínu árið 1997 þegar íslenska lands- liðið fékk samtals 48 stig og Kári Ragnarsson hlaut silfurverðlaun. Íslenska liðið var í ár skipað þeim Einari Axel Helgasyni, Elvari Steini Kjartanssyni, Guðmundi Reyni Gunnarssyni, Jóni Bene- diktssyni, Pétri Orra Ragnarssyni og Erni Stefánssyni. Einnig voru með í för þeir Auðunn Sæmunds- son, fararstjóri hópsins, og Kári Ragnarsson, dómnefndarfulltrúi. Að sögn Auðuns voru þrír ís- lensku keppendanna með samtals fimm fullkomnar lausnir. Örn var með tvær fullkomnar lausnir og hlaut fyrir það 18 stig sem skilaði honum bronsverðlaunum. Var hann aðeins einu stigi frá silf- urverðlaunum. Þetta er í annað sinn sem Örn hlýtur brons- verðlaun í keppninni, en hann hlaut líka brons í fyrra. Að sögn Auðuns er þetta í þriðja og síðasta sinn sem Örn tekur þátt í leik- unum. Guðmundur Reynir var einnig með tvær fullkomnar lausn- ir og hlaut hann samtals 14 stig og var því aðeins einu stigi frá brons- verðlaunum. Einar Axel var með eina fullkomna lausn og hlaut fyrir það 10 stig. Guðmundur Reynir og Einar Axel fengu við verðlaunaaf- hendingu leikanna sem fram fór í gær sérstaka heiðursviðurkenn- ingu fyrir góðan árangur sinn. Að venju voru lögð fyrir þrjú stærðfræðidæmi hvorn daginn og höfðu keppendur fjóra og hálfan klukkutíma hvorn daginn til að leysa dæmin. Samkvæmt upplýs- ingum frá Auðuni hafa Íslendingar tekið þátt í Ólympíukeppninni í stærðfræði óslitið frá árinu 1985. Að vanda voru það Kínverjar sem stóðu sig best í ár og fengu allir sex liðsmanna þeirra gullverðlaun. Aðspurður sagði Auðunn allt skipulag keppninnar hafa verið til fyrirmyndar hjá Slóvenum og vel verið tekið á móti keppendum. Besti árangur íslenska liðsins 47. Ólympíu- leikunum í stærð- fræði lauk í gær Kári Ragnarsson dómnefndarfulltrúi, lengst t.v., Elvar Steinn Kjart- ansson, Guðmundur R. Gunnarsson, Jón Benediktsson, Örn Stefánsson, Einar Axel Helgason, Pétur Orri Ragnarsson og Auðunn Sæmundsson. ÞÓ AÐ bændur séu sífellt að verða tækni- væddari og séu jafnvel sumir hverjir farnir að láta vélmenni um að mjólka þarf samt ennþá að ná í beljurnar. Kúasmalar eru því síður en svo óþarfir. Þeirra hlutverk er að ná í kýrnar á morgnana og síðdegis og reka þær aftur út á tún eftir að búið er að mjólka. að mjólkin fari að leka úr þeim. Það liggur heldur ekkert á þegar veðrið er gott og fugl- arnir syngja. Víst er að margir jafnaldrar Orra öfunda hann af starfinu. Kúabúum hefur fækkað mikið í Lundarreykjadal á undan- förnum árum. Kúabúin sem eftir eru verða talin á fingrum annarrar handar. Á myndinni er Orri Jónsson frá Lundi í Lundarreykjadal að reka kýrnar heim. Orri er 14 ára gamall og hefur lengi starfað sem kúasmali. Hann hefur góðan hund sér til halds og traust, en bæði Orri og hundurinn vita að það er harðbannað að reka kýrnar svo hratt að þær fari að hlaupa því þá er hætt við Morgunblaðið/Golli Orri kúasmali nær í kýrnar á Lundi MAGNÚS Stefánsson félagsmálaráðherra hefur skipað starfshóp sem ætlað er að semja tillögur að nýjum reglum um ættleið- ingarstyrki til foreldra er ættleiða börn frá öðrum löndum. Starfshópnum er ætlað að skila tillögum um hugsanlegar laga- og reglugerðarbreytingar fyrir 1. október nk. með það að markmiði að greiðslur styrkja hefjist 1. janúar 2007. Guðmundur Páll Jónsson verður formað- ur starfshópsins og aðrir fulltrúar Guð- mundur Örvar Bergþórsson, Jóhanna Gunnarsdóttir, Elmar Hallgríms Hall- grímsson, Ingibjörg Helga Helgadóttir og Karl Steinar Valsson. Starfsmaður starfs- hópsins verður Björg Kjartansdóttir. Starfshópur skipaður um ætt- leiðingarstyrki SAMTÖK verslunar- og þjónustu – SVÞ – hafa kært rekstur komuverslunar í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar til ESA, eftirlits- stofnunar EFTA en samtökin hafa þráfald- lega krafist þess af stjórnvöldum að vöruval verslunar fyrir komufarþega verði tak- markað við einkasöluvörurnar áfengi og tóbak. Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri SVÞ, sagði í samtali við Morgunblaðið að samtökin væru orðin langþreytt á að bíða eftir reglugerð sem m.a. afmarkar vöruval verslunarinnar, en yfirvöldum ber að setja þessa reglugerð til að fara eftir tollalögum sem sett voru um síðustu áramót: „Okkur var sagt að hún [reglugerðin] myndi koma 1. mars. Við reiknuðum með því að þetta myndi koma á meðan þing sat. Við vorum alltaf að bíða og ýta á þetta og einu svörin sem við fengum voru þau að það væri verið að vinna í þessu. Í lokin gafst ég upp á þessu og sendi Baldri Guðlaugssyni, ráðuneytis- stjóra fjármálaráðuneytisins, bréf og fékk svar frá honum þar sem hann tilkynnti að málið væri ennþá í vinnslu og [reglugerðin] væri ekki að koma.“ Langþreyttir á biðinni Sigurður sagði að málið hefði þvínæst verið tekið upp hjá stjórn samtakanna þar sem ákveðið var að grípa til aðgerða: „Menn ákváðu að það væri engin ástæða til að bíða með þetta heldur kæra, enda mál sem er bú- ið að vera lengi í umræðu á milli aðila. Það skapaðist nýtt umhverfi með nýjum tolla- lögum sem sett voru um áramótin síðustu,“ segir Sigurður en verslunin er nú rekin á undanþágu samkvæmt ákvæði í tollalögun- um og ber þeim að setja þessa reglugerð. Sigurður sagði kaupmenn vera orðna lang- þreytta á biðinni. SVÞ kærir verslun í Leifs- stöð til ESA „ÞAÐ er mikill vilji hjá ríkisstjórn- inni til að skoða verðlag á Íslandi al- mennt,“ segir Guðni Ágústsson land- búnaðarráðherra um skýrslu nefndar forsætisráðuneytis um matvælaverð á Íslandi. Nefndin klofnaði sem kunn- ugt er í afstöðu sinni og því skilaði formaður hennar inn skýrslu í eigin nafni. Guðni segir það svið sem mat- vælanefndin fékk til skoðunar full- þröngt að sínu mati. „Eðlilegt hefði verið að skoða allt verðlag á Íslandi.“ Það hafi þó verið á stefnuskrá þessarar ríkisstjórnar að skoða ýms- ar leiðir til að lækka verð á nauðsynj- um, þ á m. matvælum. „Hins vegar ber á það að líta að íslenskar landbún- aðarvörur skera sig almennt ekki úr öðru verðlagi á Íslandi.“ Viss grundvöllur sé markaður með WTO-samningum sem fyrirsjáanlega geti breytt aðstæðum hér innan- lands. „Þar erum við að semja og til geta komið tollalækkanir, einhver að- lögun og breyttur innanlandsstuðn- ingur. Það hafa bændur verið og eru að búa sig undir.“ ASÍ hefur haldið því fram að afnám verndartollanna myndi ráða úrslitum um matvælaverð. „Ég er náttúrlega undrandi á ASÍ,“ segir Guðni. „Al- þýðusamband Íslands hefur innan sinna raða þúsundir iðnverkamanna sem vinna úr íslenskri landbúnaðar- vöru. Hin stóra hreyfingin, BSRB, telur mikilvægt að landbúnaðurinn fái einhver ár til aðlögunar áður en menn ganga svo langt sem ASÍ gerir kröfu um. Ég trúi ekki að fulltrúi ASÍ í matvælaverðsnefndinni hafi umboð forystu sinnar til að tala eins og hann hefur gert.“ Aðspurður um hverjar þeirra leiða sem nefndar eru í skýrslunni megi setja í forgang segir Guðni á hreinu að hann myndi ekki setja í forgang að lækka verð á óhollustuvöru sem sé sjáanlegt heilbrigðisvandamál fram- tíðar. „Ég myndi setja í forgang að lækka í verði hin góðu matvæli. Það liggur fyrir að menn sjá fyrir sér vörugjöldin og samræmingu gagn- vart veitingahúsum á virðisauka- skatti. Svo geta menn auðvitað skoð- að tollígildi og farið yfir tollamálin, hvort það séu einhverjar leiðir án þess að fórna íslenskum landbúnaði. Stjórnarflokkarnir báðir hafa tals- vert talað um matarskattinn svo- nefnda, að lækka hann eða fella nið- ur, sem væri náttúrlega langmikilvirkasta aðferðin til að lækka matvælaverð. Svo það eru ýmsar leiðir til,“ segir Guðni sem minnir á að málið komi nú fyrir rík- isstjórn. Landbúnaðarráðherra um skýrslu nefndar um matvælaverð Trúir ekki á umboð fulltrúa frá ASÍ Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@mbl.is OLÍUFÉLÖGIN hækkuðu í gær verð á eldsneyti. Lítrinn af bensíni hækkaði um 3,40 kr. og lítrinn af dísilolíu hækkaði um 2 kr. Eftir hækkunina er algengt verð á bensíni með fullri þjónustu 137,80 kr. og á dísilolíu 130,30 kr. Algengt sjálfs- afgreiðsluverð er fimm krónum lægra eða 132,80 kr. fyrir bensínlítr- ann og 125,30 kr. fyrir lítrann af dís- ilolíu. Samkvæmt upplýsingum olíufé- laganna er ástæðan fyrir hækkun- inni hækkun á heimsmarkaðsverði eldsneytis sem rekja má einkum til ástandsins fyrir botni Miðjarðar- hafsins. Verð á eldsneyti hefur breyst yfir þrjátíu sinnum það sem af er þessu ári, oftast til hækkunar. Frá því í ársbyrjun hefur verð á bensíni með fullri þjónustu hækkað úr 114,80 kr. á lítrann eða um 23 krónur, sem er 20% hækkun. Á sama tíma hefur verð á dísilolíu hækkað úr 112,80 kr. í 130,30 kr. á lítrann, sem er 15,5% hækkun. Hefðbundið er að bensín hækki meira en olía yfir sumarmán- uðina vegna mikillar eftirspurnar þegar ferðatíminn fer í hönd, sam- kvæmt upplýsingum olíufélaganna. Bensín hækkað um 20% frá áramótum Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is Lítrinn hækkaði um 3,40 krónur í gær                                        ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.