Morgunblaðið - 18.07.2006, Side 30

Morgunblaðið - 18.07.2006, Side 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ásta Björg Þor-steinsdóttir, Hjallalundi 14 á Akureyri, fæddist í Fagrabæ í Grýtu- bakkahreppi 5. des- ember 1937. Hún lést á Landspítalan- um í Reykjavík 9. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Þor- steinn Sigurbjörns- son, f. 1905, d. 1994 og Sigríður Guðna- dóttir, f. 1904, d. 2001, bæði búsett á Akureyri. Systkini Ástu Bjargar eru: Björg, f. 1934 en dó skömmu eftir fæð- ingu, Agnar, f. 1935 og Guð- björn, f. 1943. Ásta Björg var gift Jóni Dal- manni Ármannssyni, f. 15. apríl 1929, d. 28. nóvember 2003. Þau áttu tvær dætur: 1) Sigríður Dal- mannsdóttir, f. 7. mars 1969. 2) Drífa Björk Dalmannsdóttir, f. 13. janúar 1972, maki Zoran Radiskovic, f. 18. ágúst 1967. Börn þeirra eru Aleksandar, f. 30. maí 1999, Sara, f. 10. desember 2001 og Davíð, f. 29. apríl 2005. Ásta Björg gekk í skóla á Akureyri og lauk þar gagn- fræðaprófi frá Gagnfræðaskólan- um á Akureyri 1954. Síðan fór hún í Hússtjórnarskól- ann á Ísafirði 1956– 1957. Að námi loknu fór Ásta Björg að starfa hjá Landssímanum á Akureyri og vann þar í 17 ár. Árið 1980 hóf hún síðan störf í gestamót- tökunni á Hótel KEA þar sem hún starfaði í tæp 17 ár. Eftir það vann hún nokkur ár á skipti- borði Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Af og til vann hún einnig að ýmiskonar saumastörf- um auk húsmóðurstarfanna á heimili sínu. Ásta Björg verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Með söknuði kveðjum við góða frænku okkar Ástu Þorsteinsdóttur sem lést á Landspítalanum eftir langvinn veikindi. Ásta missti eig- inmann sinn Jón Dalmann Ár- mannsson fyrir aðeins tveimur ár- um. Við systurnar minnumst þeirra hjóna fyrir einkar hlýtt viðmót og gestrisni. Ásta og Dalli bjuggu alla tíð á Akureyri og á heimili þeirra voru ættingjar og vinir úr fjarlæg- um landshlutum alltaf velkomnir. Á unglingsárunum dvöldu tvær okkar systranna sumarlangt hjá þeim hjónum þegar við unnum í Nonna- húsinu á Akureyri. Heimili þeirra stóð okkur ætíð opið. Hið sama átti við um aðra farfugla sem sóttu Ak- ureyri heim. Hjá Ástu og Dalla nut- um við unglingarnir frelsisins sem fólst í því að dveljast fjarri foreldra- húsum en jafnframt aðhalds sem birtist best í þeim einlæga áhuga sem Ásta og Dalli sýndu hugðarefn- um okkar. Þau höfðu bæði mikinn áhuga á útivist og þeim áhuga miðl- uðu þau okkur systrunum. Allar göt- ur síðan hefur fjölskylda Ástu og Dalla átt sérstakan sess í hjörtum okkar. Vinátta okkar og dætra þeirra, Siggu og Drífu, er okkur öll- um dýrmæt. Það er sárt að sjá eftir þeim hjónum en kynnin við þau hafa vissulega gert líf okkar ríkara. Við vottum dætrum þeirra og öðrum að- standendum samúð okkar. Ólöf, Sigríður, Ingunn, Rúna Björg og Steinunn Garðarsdætur. Það var bjart yfir Akureyri þegar okkur barst andlátsfregn Ástu, sól skein á heiðum himni og við minnt- umst allra þeirra björtu og hlýju stunda sem við höfðum átt með henni í gegnum árin. Hún missti mann sinn, Jón Dalmann Ármanns- son, árið 2003 og átti sjálf við erfiðan sjúkdóm að stríða hin síðari ár. Við kynntumst í Norðurgötunni. Eins og oft vill verða hófst vinátta okkar í gegnum börnin. Jón Marinó, sonur okkar og Sigga ,,vina“ voru á sama reki og leikfélagar. Ásta og Dalli þekktu landið sitt vel og nutum við góðs af fróðleik þeirra í þeim ferðum sem við fórum saman. Askja og Drekagil eru sér- staklega minnisstæð. Hver hóll og hæð í fjallahringnum átti sitt nafn og við fengum nýja sýn á landið okk- ar. Í sumarbústaðnum að Lækjar- lundi í Öxarfirði áttu þau sér unaðs- reit. Eftir að sá bústaður var seldur var draumur þeirra að eignast ann- an bústað sem rættist í landi Reykja í Fnjóskadal. Nú átti að planta og njóta efri áranna, tími sem því miður reyndist allt of stuttur. Oft var gaman í gegnum árin. Ek- ið var um allar trissur á Lödu Sport A-336 með tjaldvagn í eftirdragi og landið skoðað. Sá tími er nú liðinn en minningin lifir í hjörtum okkar. Ástvinum öllum sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Elsku Sigga og Drífa, Guð styrki ykkur í sorg- inni. Að lokum vitnum við í Drauma- landið eftir Jón Trausta sem sungið var við lag Sigfúsar Einarssonar við útför Jóns Dalmanns. Ó, leyf mér þig að leiða til landsins fjalla heiða með sælu sumrin löng. Þar angar blóma breiða við blíðan fuglasöng. Þar aðeins yndi fann ég, þar aðeins við mig kann ég, þar batt mig tryggða band, því þar er allt sem ann ég, það er mitt draumaland. (Jón Trausti.) Þau hjón, sem nú hafa kvatt, unnu landinu og nutu þeirra stunda sem þau áttu saman. Sævar Sigtýsson, Sigríður G. Torfadóttir. Dag einn í desember 1966 var að venju mikið um að vera við undir- búning jólahalds í gamla húsinu í Innbænum á Akureyri hjá foreldr- um og tengdaforeldrum okkar og fyrir dyrum stóð laufabrauðsgerð. Þá brá svo við að elsti sonurinn á heimilinu, Jón Dalmann, þurfti að bregða sér frá í miðjum laufa- brauðsönnunum. Var ekki laust við að sumum þætti hann ætla að koma sér hjá sínum verkum við laufa- brauðsgerðina. En þegar hann birt- ist nokkru seinna með væntanlegt konuefni sitt, hana Ástu Björgu, sér við hlið, þá voru öll brotthlaup hans fyrirgefin. Okkur þótti mikill happafengur að fá Ástu í fjölskylduna. Hún var hress og skemmtileg og boðin og bú- in að leggja lið þar sem þörf var hvort sem það var við að gæta barna, taka upp kartöflur eða að- stoða við veisluhöld. Þau Ásta og Dalli voru vel undir það búin að stofna heimili og fjöl- skyldu. Þau eignuðust tvær elsku- legar dætur sem hafa verið þeim gleðigjafar alla tíð. Ásta bjó að sinni húsmæðramenntun og var að auki einkar verklagin og skapandi kona. Það kom sér vel fyrir þá sem var ung og fákunnandi að njóta leið- sagnar hennar og hvatningar. Þau ferðuðust mikið með stelpurnar alla tíð og þá kom sér vel að eiga litla, hlýja svefnpoka, sem mamman hafði auðvitað saumað. Við hjónin nutum þeirrar ham- ingju að alla tíð voru náin tengsl milli fjölskyldna okkar. Ásta var glaðvær kona sem skap- aði stemningu í kringum sig og var aldrei ánægðari en þegar heimili hennar var fullt af gestum. Hún bauð í vöfflukaffi í snjóskafli uppi í Hlíðarfjalli. Grill, garðveislur og gamlárskvöldin með höttum, leikj- um og spilamennsku gleymast ekki. Hún var drífandi og kom oft ótrú- lega miklu í verk. En þegar allt virt- ist leika í lyndi fór heilsa Ástu að gefa sig. Það hallaði smátt og smátt undan fæti og að lokum voru bæði nýru hennar orðin óstarfhæf. Á sama tíma veiktist Dalli einnig og lést hann í nóvember 2003. Það var átakanlegt en jafnframt hrífandi að sjá hve vel Ásta studdi mann sinn fárveikan þótt kraftar hennar færu þverrandi. Á þeim tíma kom í ljós hve þau áttu marga trygga vini sem lögðu þeim lið. Síðustu árin voru Ástu erfið. En gamla framtakssemin var ekki langt undan. Þó þrekið væri lítið þá dreif hún sig í píanótíma, stofnaði göngu- klúbb með gömlum vinkonum og dreif sig í ferðalög til að hitta elsku- legu barnabörnin þrjú meðan þess var nokkur kostur. Hún naut aðstoð- ar Heimahlynningar á Akureyri og var þeim ágætu konum innilega þakklát fyrir góða umönnun. Þegar Ásta var á heimleið frá Kaupmannahöfn eftir erfiða nýrna- ígræðslu og sjúkrahúslegu í lok maí sl., þá var hún ennþá bjartsýn og sá fyrir sér betri tíma, þegar hún væri nú laus við kviðskiljuna sem hún hafði þurft að nota í 4 ár. En baráttan við heilsuleysið und- anfarin ár hafði tekið sinn toll þann- ig að ekki varð við það ráðið þegar enn komu upp ný vandamál. Þessi erfiða sjúkdómsbarátta þeirra Dalla og síðan Ástu var mjög þungbær fyrir dætur þeirra og aðra aðstandendur. Nú sendum við þeim Sigríði, Drífu Björk og fjölskyldu hennar og öðrum aðstandendum okkur innilegustu samúðarkveðjur, þegar við í sameiningu kveðjum Ástu. Hrefna og Ingólfur. Ásta, Dalli, Sigga og Drífa bjuggu í sömu götu og við, „ská á móti“ hús- inu okkar eins og við kölluðum það. Systurnar Sigga og Drífa á sama aldri og við systur þannig að sam- gangurinn var mikill. Okkur systrunum fannst notalegt að koma á heimili þeirra og vorum alltaf hjartanlega velkomnar. Ásta hafði alltaf tíma til að setjast niður og spjalla við okkur stelpurnar og sýndi mikinn áhuga á því sem var að gerast í lífi okkar vinkvennanna. Ásta var með skemmtilegri konum sem við höfum kynnst, alltaf stutt í húmorinn og dillandi hláturinn. Eig- inlega var hún stríðinn grallari sem alltaf var til í smá sprell, jafnvel enn frekar en við sem yngri vorum. Ásta var líka dugnaðarforkur, ósérhlífin, ákveðin og drífandi. Þá lá hún heldur ekki á liði sínu ef einhver þurfti aðstoðar við. Fjölskyldan var samheldin og þau hjón, Ásta og Dalli, vildu allt fyrir dætur sínar gera og hag þeirra sem bestan. Síðustu ár hafa verið erfið fyrir fjölskylduna vegna veikinda Ástu og Dalla sem lést í lok árs 2003. Aðdá- unarvert hefur verið hvernig þær systur, Sigga og Drífa, hafa staðið eins og klettar við hlið foreldra sinna í veikindum þeirra. Við systur og fjölskyldur okkar sendum Siggu, Drífu, Zoran, Alex- ander, Söru og Davíð okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Ástu Bjargar Þorsteinsdóttur. Kristjana og Þóra Guðný. ÁSTA BJÖRG ÞORSTEINSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Ástu Björg Þorsteinsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Valgerður og Baldur, Ármann, Auður og Ásgeir Ingólfsbörn, Edda, Erla og Kolbrún. Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, VALGERÐUR MAGNÚSDÓTTIR, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 19. júlí kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Félag langveikra barna. Hildur Eiðsdóttir, Jóhann Tryggvason, Svala Eiðsdóttir, Rudolf Kristinsson, Sif Eiðsdóttir, Rúnar Pálsson, Eiður Eiðsson, Jónbjörg Sigurjónsdóttir, Páll Arnar Árnason, Anna Margrét Árnadóttir, Jóhann Einarsson, Sigríður Árnadóttir, Skjöldur Stefánsson, Ingólfur Hansen, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegustu þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, AGNARS GUÐMANNS GUÐMUNDSSONAR múrarameistara, Haðalandi 15, Reykjavík. Guðrún Valdimarsdóttir, Sigurbjörg Edda Agnarsdóttir, Benóný Eiríksson, Svanhildur Agnarsdóttir, Hafliði Sigtryggur Magnússon, Agnar Rúnar Agnarsson, Guðlaug Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRN ST. HÓLMSTEINSSON fyrrverandi útgerðarmaður frá Raufarhöfn, síðast til heimilis á Grandavegi 47, Reykjavík, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund þriðju- daginn 11. júlí, verður jarðsunginn frá Raufarhafnarkirkju föstudaginn 21. júlí kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Félag aðstandenda alzheimer- sjúklinga. Jónína Ósk Pétursdóttir, Jóhanna Björnsdóttir, Pétur Björnsson, Margrét Þorvaldsdóttir, Hólmsteinn Björnsson, Þorgerður Ása Tryggvadóttir, Guðrún R. Björnsdóttir, Lilja V. Björnsdóttir, Jón Ómar Finnsson, Birna Björnsdóttir, Ríkharður Reynisson og barnabörn. Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför BJÖRNS JÓHANNESSONAR (BJÖSSA-ÓLÍNU) frá Sauðárkróki. Helgi Sævar Björnsson, Helen Sandra Róbertsdóttir, Þorsteinn Úlfar Björnsson, Arndís Valgarðasdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra BRAGA JÓNSSONAR frá Brekku í Aðaldal, síðast til heimilis í Akurgerði 39, sem jarðsunginn var þriðjudaginn 11. júlí sl. Guðrún Magnúsdóttir, Ragnar Bragason, Kristín Ólafsdóttir, Magnús Jón Bragason, Hildur Mary Thorarensen, Ómar Geir Bragason, Jónína Vilborg Sigmundsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og systur. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.