Morgunblaðið - 18.07.2006, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
OFURMENNIÐ virðist njóta tölu-
verðra vinsælda hér landi en kvik-
myndin Superman Returns rataði
beint í toppsæti bíólistans þessa vik-
una. Leikstjóri myndarinnar er
Brian Singer sem er einna helst
þekktur fyrir X-men eitt og tvö og
má því segja að hann búi nú yfir
góðri reynslu af að yfirfæra teikni-
myndasögur á hvíta tjaldið. Súper-
mann, sem að þessu sinni er leikinn
af nýstirninu Brandon Routh, hefur
verið horfinn í fimm ár og þegar
hann snýr til baka hefur margt
breyst í Metrópólis. Lois Lane, leik-
in af Kate Bosworth, er trúlofuð og á
fimm ára son og Lex Luthor, leikinn
af Kevin Spacey, er sloppinn úr
fangelsi. Myndin um sambandsslitin,
The Breakup, fer niður í annað sæti
en hún segir frá ungri konu sem seg-
ir upp kærasta sínum í von um að
hann bæti ráð sitt og fari að virða
hana meira og sambandið sem þau
áttu. Jennifer Aniston og Vince
Vaughn leika parið óhamingjusama
en Aniston lét nýverið þau orð falla
að hún hefði lært heilmikið um sam-
band kynjanna eftir leik sinn í
myndinni.
Pixar-teiknimyndin Cars vermir
þriðja sætið aðra vikuna í röð og er
greinilegt að íslenskir áhorfendur
kunna vel að meta talandi bílana
enda virðist myndin höfða til mjög
breiðs hóps.
Ofurmennið
trónir á toppnum
David James
Súpermann snýr aftur á hvíta tjaldið.
!"
#"
$"
%"
&"
'"
("
)"
*"
!+"
C (( -((
Kvikmyndir | Vinsælustu myndirnar á Íslandi
MIÐASALA á tónleika Morrissey
hefst í dag klukkan 10 en eins og
greint var í Morgunblaðinu fyrir
helgi verða tónleikarnir haldnir í
Laugardagshöll hinn 12. ágúst
næstkomandi.
Morrissey þarf vart að kynna fyr-
ir Íslendingum en hann varð fljót-
lega einn af þekktustu en jafnframt
umdeildustu poppstjörnum Breta.
Hann stofnaði hljómsveitina The
Smiths ásamt Johnny Marr í upp-
hafi 9. áratugarins og á 5 til 6 árum
tókst þeim að byggja upp stóran og
dyggan aðdáendahóp. Morrissey er
einkar mælskur og hafði sterkar
skoðanir á þjóðfélagsmálum og
gagnrýndi stjórnvöld harðlega.
The Smiths lagði upp laupana á há-
tindi ferils síns árið 1987, um það
leyti sem síðasta plata hljómsveit-
arinnar, Strangeways, here we
come, kom út. Morrissey hóf í kjöl-
farið sólóferil en fyrsta plata hans,
Viva Hate, kom út 1988 og hefur
hann síðan sent frá sér þónokkrar
plötur. Síðasliðið vor sendi hann frá
sér plötuna The Ringleader of the
Tormentors sem margir vilja meina
að sé með því besta sem Morrissey
hefur gert.
Miðasala fer fram á midi.is, í
verslunum Skífunnar og völdum
BT-verslunum. Miðaverð í stæði er
4.500 krónur og 5.500 í stúku auk
miðagjalds.
Miðasala hafin á Morrissey
Morrissey stofnaði The Smiths.
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Adam Sandler, Kate Beckinsale og Christopher
Walken í fyndnustu gamanmynd ársins!
Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt lífi þínu?
Hvað myndir þú gera ...?
ÓVÆNTASTA, KYNÞOKKA-
FYLLSTA OG SKEMMTI-
LEGASTA GRÍNMYND ÁRSINS
FRÁ HÖFUNDI
BRING IT ON
The Benchwarmers kl. 6 og 8 B.i. 10 ára
Bandidas kl. 6 og 8 B.i. 10 ára
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 10 B.i. 12.ára.
Click kl. 10 B.i. 10 ára
Stick It kl. 5.40, 8 og 10.20
The Benchwarmers kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 10 ára
Click kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára
Click LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára
Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
RV kl. 3.50
Rauðhetta/Hoodwinked m. íslensku tali kl. 3.50
Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 3.50
Sprenghlægileg grínmynd með Íslandsvini-
num Rob Schneider úr Deuce Bigalow og
John Heder úr Napoleon Dynamite!
Frá leikst jóra
Big Daddy og Happy Gilmore
kemur sumarsmellurinn í ár!
Hluthafafundur
Actavis Group hf.
Dalshraun 1 w www.actavis.com t +354 535 2300
220 Hafnarfirði @ actavis@actavis.com f +354 535 2301 ©Actavis 2006
Actavis Group hf.
Haldinn verður hluthafafundur í
Actavis Group hf. 25. júlí 2006 kl. 08.00.
Fundurinn verður haldinn á Hótel Nordica,
Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
1. Tillaga um samþykki hluthafafundar til útgáfu
ábyrgðar á skuldabréfum með breytirétti í hlutafé
í Actavis Group hf.
2. Tillaga um heimild til handa stjórn félagsins til útgáfu
viðbótarhlutafjár í Actavis Group hf., án forgönguréttar
núverandi hluthafa.
3. Önnur mál.
Hægt er að nálgast tillögurnar sjálfar og nánari skýringar á
tillögunum á skrifstofu Actavis Group hf., Reykjavíkurvegi 76-78.
Frekari upplýsingar veitir Halldór Kristmannsson
í síma 535 2364 og 840 2364 og í netfangi
hkristmannsson@actavis.com.