Morgunblaðið - 01.08.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 207. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
MARAÞON
REYKJAVÍKUR
GLITNIS
19. ÁGÚST
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Skráðu þig núna
á www.glitnir.is
Geldings-
röddin
Jarðneskar leifar Farinellis grafn-
ar upp og rannsakaðar | Af listum
Sofna ekki
á verðinum
Mæðrastyrksnefnd flytur í
nýtt húsnæði | Daglegt líf
Íþróttir í dag
Örn tvíbætti Íslandsmetið
Garðar Jóhannsson með þrennu
HK fær rússneskan varnarmann
EKKI reyndist unnt að veita fulla flugumferð-
arþjónustu vegna veikinda hjá flugumferðar-
stjórum og mikillar flugumferðar í gær. Var
umferð takmörkuð við ákveðna hæð og tiltekin
svæði fyrir vikið, að sögn Hjördísar Guðmunds-
dóttur, upplýsingafulltrúa flugmálastjórnar.
Hún segir að ástæða þessa séu veikindi meðal
flugumferðarstjóra og að málið sé angi af deilu
þeirra við flugmálastjórn þar sem flugumferðar-
stjórar fáist ekki til að taka aukavaktir eða
vinna yfirvinnu þegar forföll verða.
„Það komu upp veikindi og þá er ekki hægt að
fá flugumferðarstjóra til að taka vaktir í stað-
inn,“ segir Hjördís en bætir við að unnt hafi
verið að lengja vaktir hjá þeim sem voru í vinnu
í staðinn og bjarga málunum með þeim hætti.
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Ice-
landair, sagði að takmarkanirnar hefðu ekki
haft nein áhrif á flugvélar félagsins í gær. Það
hefði hins vegar komið upp um þarsíðustu helgi
að til slíkra takmarkana hefði þurft að grípa og
þurftu nokkrar af vélum Icelandair að lækka
flug sitt af þeim sökum með tilheyrandi kostn-
aði, að sögn Guðjóns, en eldsneytisnotkun eykst
þegar vélar þurfa að lækka flugið. Hann segir
til skoðunar hjá fyrirtækinu að fá endurgreidd-
an þann aukakostnað sem þessi aukna eldsneyt-
isneysla skapaði. Ekki hafi þó verið tekin end-
anleg ákvörðun um hvort slík krafa verði sett
fram.
Hluti af stærri vanda
Loftur Jóhannsson, formaður Félags flugum-
ferðarstjóra, segir að þetta sé hluti af þeim
vanda sem fylgi nýju og umdeildu vaktakerfi
flugumferðarstjóra. Slík atvik hafi komið upp
nokkuð oft eftir að kerfið var tekið upp.
Flugumferðarstjórar
neita að taka aukavaktir
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
LOFTUR Jóhannsson, formaður Félags flug-
umferðarstjóra, segir að flugumferðarstjóri sem
hafi tilkynnt veikindi hafi verið neyddur til þess
að mæta til vinnu.
„Trúnaðarlæknir flugmálastjórnar mætti
heim til mannsins og sagði við hann að það væri
allt í lagi með hann. Það var sama þótt maðurinn
hefði lýst því yfir að sér liði illa og hefði tekið
parkódín forte. Stuttu síðar hringdu yfirmenn
mannsins í hann og skipuðu honum að mæta,
sem hann og gerði,“ segir Loftur.
Aðspurður hvort manninum hafi verið hótað
einhvers konar viðurlögum segir Loftur svo ekki
vera en menn viti hins vegar að það komi niður á
þeim ef þeir neiti slíku. „Menn ráðast á einstak-
lingana hjá svona stofnun,“ segir Loftur.
Segir veikan mann
neyddan til vinnu
Morgunblaðið/Eggert
Skýrari sýn á mannlífið
ÞAÐ þarf að gæta að því að gluggar séu þvegnir af og til, þá sérstaklega
gluggarnir sem sýna mannlífið í sinni víðustu mynd líkt og hægt er að
ímynda sér að gluggar Kaffitárs í Bankastræti geri. Gluggaþvottamaðurinn
sér til þess að útsýnið fyrir þá sem inni sitja sé eins og best verður á kosið.
STJÓRN Ísraels varð í gærkvöldi
við beiðni hersins um heimild til að
auka landhernaðinn í Suður-Líb-
anon. Áður hafði Ehud Olmert, for-
sætisráðherra Ísraels, sagt að hern-
aðinum í Líbanon yrði haldið áfram
þar til Ísrael stafaði ekki lengur
hætta af Hizbollah-hreyfingunni.
„Átökin halda áfram,“ sagði Olm-
ert. „Það verður ekkert vopnahlé á
næstu dögum.“
Kviknað hafði von um að vopnahlé
væri í sjónmáli eftir að stjórn Olm-
erts tilkynnti í fyrrakvöld að gert
yrði hlé á loftárásum Ísraela á Suð-
ur-Líbanon í tvo daga eftir árás á
þorpið Qana sem kostaði a.m.k. 54
manns lífið, þar af yfir 30 börn.
Ísraelskar herflugvélar skutu þó
flugskeytum á nokkur skotmörk í
gær og Ísraelsher kvaðst ætla að
halda áfram loftárásum á menn sem
teldust ógna öryggi Ísraela.
Þúsundir liðsmanna varahers Ísr-
aels hafa verið kallaðar út og hófu í
gær æfingar til að undirbúa hugs-
anlega stórsókn í Suður-Líbanon eft-
ir að herinn óskaði eftir heimild til að
auka landhernaðinn. Markmið hers-
ins verður að eyðileggja bækistöðvar
Hizbollah við landamærin að Ísrael,
að sögn fréttavefjar ísraelska dag-
blaðsins Haaretz.
Þótt hléið á loftárásum Ísraela
væri skammvinnt notuðu tugir þús-
unda Líbana tækifærið til að flýja
norður á bóginn frá Suður-Líbanon.
Stjórn Ísraels heimilar
aukinn landhernað
AP
Fréttaljósmyndarinn Wael Ladiki
heldur á aldraðri konu sem hann
bjargaði úr kjallara í líbanska bæn-
um Bint Jbail þar sem hún hírðist í
viku vegna árása Ísraela.
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
Höfðum hvorki mat né vatn | 15
SKÝRT var frá því í gærkvöldi að
nítján hermenn stjórnarinnar á Sri
Lanka hefðu beðið bana í sprengju-
árás á rútu þeirra á norðausturhluta
eyjunnar.
Allt að 67 menn hafa fallið í átökum
stjórnarhersins og uppreisnarmanna
úr röðum tamílsku Tígranna síðustu
daga og lýstu talsmenn Tígranna því
yfir í gær að stríð væri hafið í landinu.
Fréttastofan AFP hafði þó eftir
Ulf Ericsson, yfirmanni norrænu eft-
irlitssveitanna á Sri Lanka, SLMM,
að hann teldi ekki að allsherjarstríð
væri skollið á.
„Hvorki ráðamennirnir né upp-
reisnarmennirnir eru tilbúnir að
heyja allsherjarstríð sem myndi hafa
hörmulegar afleiðingar fyrir alla,“
sagði Ericsson.
Skýlaus brot
Þorfinnur Ómarsson, talsmaður
norrænu eftirlitssveitanna, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi
að átök tamílsku Tígranna og stjórn-
arhersins væru skýlaus brot á skil-
málum vopnahlésins frá árinu 2002.
„Tígrarnir stöðvuðu dreifingu
vatns til svæða þar sem einkum býr
fólk sem tilheyrir þjóðflokki sinhala,“
sagði Þorfinnur. „Að stöðva dreifingu
vatns með þessum hætti er brot á
Genfar-sáttmálanum.“
Segja stríð
hafið á
Sri Lanka
Stríðið er hafið | 22