Morgunblaðið - 01.08.2006, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MS drykkjarvörur í fjallgönguna
MS mjólkurdrykkirnir eru prótein- og kalkríkir og stútfullir
af næringarefnum. Veldu þér ískaldan mjólkurdrykk í
handhægum umbúðum í næstu verslun.
VEL gekk að lyfta akkerinu við
Kolkuós af hafsbotni í gærmorgun.
Akkerið fannst sem kunnugt er við
köfun á svæðinu undir lok síðustu
viku, en neðansjávarrannsóknir eru
hluti af fornleifarannsóknunum við
Kolkuós. Að sögn Ragnheiðar
Traustadóttur, fornleifafræðings sem
stýrir Hólarannsókninni og upp-
greftrinum við Kolkuós, er nú þegar
ljóst að akkerið er meira en 150 ára
gamalt og hefur verið í notkun fyrir
árið 1850. Segir hún akkerið verða
röntgenmyndað á Hólum síðar í vik-
unni og þá verði vonandi hægt að ald-
ursgreina það mun nákvæmar.
Að sögn Ragnheiðar er akkerið
nokkuð brothætt og því var notast við
kassa til þess að lyfta því af hafsbotni.
Þegar blaðakona náði tali af Ragn-
heiði var búið að koma akkerinu fyrir
í keri fullu af sjó, en framundan er
forvörsluferli þar sem akkerið verður
geymt í söltu vatni, en reynt að
minnka saltmagnið smám saman með
það að leiðarljósi að geta tekið akker-
ið upp úr vatninu. „Því ef við tækjum
það upp á þurrt þá gæti það hreinlega
molnað í sundur,“ segir Ragnheiður.
Akkerið holt að innan
„Það er ekkert járn eftir í akker-
inu. Þetta er í raun eins og afsteypa,“
segir Ragnheiður og útskýrir fyrir
blaðakonu að þegar járn tærist og
umbreytist þá falli það út og myndi
nokkurs konar afsteypu af upp-
haflega forminu. „Sökum þessa sýnist
akkerið miklu stærra en það í raun
er,“ segir Ragnheiður og bendir á að
akkerið sé í raun holt að innan og því
fremur brothætt. Akkerið var brotið
á tveimur stöðum þegar það fannst
og að sögn Ragnheiðar má með því að
skoða sárin sjá að um er að ræða grip
úr smíðajárni. Að sögn Ragnheiðar
mun röntgenmyndin geta leitt í ljós
hvers konar form er á akkerinu, sem
svo aftur hjálpi til við að aldursgreina
það.
Aðspurð segir Ragnheiður sjáv-
arrannsóknir og köfun við Kolkuós
standa út þessa viku. Segir hún ekk-
ert hafa fundist við norður- og vest-
urhluta Elínarhólma, en að fundur
akkerisins við suðurhluta hólmans
veki vonir um að þar leynist fleiri
hlutir, enda staðfesti fundur akkeris-
ins að skip hafi legið sunnan við hólm-
ann á öldum áður.
Ljósmynd/Ragnheiður Traustadóttir
Brothættu akkerinu var lyft af sjávarbotni í kassa með sjó, það verður geymt í sjó fyrst um sinn.
Akkerinu lyft af sjávarbotni
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
TVÆR konur er starfa á skrifstofu
Bónusvídeós við Lækjargötu í Hafn-
arfirði urðu fyrir árás karlmanns
sem framdi vopnað rán á skrifstof-
unni í gær.
Maðurinn, sem er á þrítugsaldri,
ruddist inn á skrifstofu Bónusvídeós
um hádegisbilið í gær. Skrifstofan er
fyrir ofan verslun fyrirtækisins í
Lækjargötu í Hafnarfirði. Var mað-
urinn vopnaður hamri og ógnaði
hann konunum sem starfa á skrif-
stofunni og veittist að þeim með of-
beldi. Hann beitti ekki hamrinum en
sló þær báðar í höfuð og veitti þeim
nokkra áverka. Önnur kvennanna
náði að hlaupa framhjá manninum
og grípa lykil að því herbergi skrif-
stofunnar sem hann var inni í. Tókst
konunum þannig að komast undan
og læsa manninn inni á skrifstof-
unni. Reyndi hann þá að komast út
með því að lemja hamrinum í hurð-
ina. Þegar það bar ekki árangur
braut hann glugga og stökk niður á
götuna, en skrifstofan er á 2. hæð.
Vegfarendur urðu hans varir og
náðu að yfirbuga hann en svo virðist
sem vitorðsmaður ræningjans hafi
komist yfir hluta ránsfengsins og
stungið af.
Þorvaldur Þorláksson, fram-
kvæmdastjóri Bónusvídeós, sagði í
samtali við Morgunblaðið að konurn-
ar tvær hefðu leitað læknisaðstoðar
eftir atvikið en þær hefðu ekki verið
alvarlega slasaðar. Hann vildi hins
vegar ekki gefa upp hversu miklum
fjármunum hefði verið stolið. Þegar
haft var samband við lögregluna í
Hafnarfirði í gærkvöldi var vitorðs-
maðurinn enn ófundinn.
Ræningi læstur
inni á skrifstofu
Bónusvídeós
BILUN í tölvubúnaði í sjálfsala Esso á Fosshóli við Goða-
foss á laugardag varð til þess að verð á bensínlítra varð
heldur lægra en venjulegt er. Gátu þeir sem leið áttu um
Fosshól á laugardag og fram á miðjan sunnudag, þegar bil-
unin uppgötvaðist, keypt lítra af 95 oktana bensíni á um 13
krónur í stað 130 króna, að sögn Inga Þórs Hermannsson-
ar, deildarstjóra markaðsdeildar á neytendasviði Esso.
Ingi Þór segir að einn sjálfsali sé á stöðinni á Fosshóli.
„Einhverra hluta vegna hliðraðist komma um einn staf
þannig að verðið fór úr rúmum 130 krónum í rúmar 13
krónur,“ segir hann. Spurður hvort margir hafi nýtt sér
bilunina og orðið sér úti um ódýrt bensín kveðst Ingi Þór
ekki hafa nákvæmar tölur um það.
„En þetta er ekki stór stöð og þar af leiðandi ekki mikið
tankarými. Þetta gætu hafa verið einhverjar þúsundir lítra
en ekki mikið meira en það,“ segir Ingi Þór og bætir við að
bensín á tönkum stöðvarinnar hafi ekki klárast. „Það eru
örugglega einhverjir glaðir bifreiðaeigendur og viðskipta-
vinir sem hafa fengið þarna óvæntan glaðning,“ segir Ingi
Þór. Hann segir að Esso reki sjálfsalastöðvar víða um land
og búnaðurinn sem notaður sé hafi reynst ágætlega. Hann
minnist þess ekki að svona tilvik hafi komið upp áður.
Bensínlítrinn seldur á 13 krónur
HREIÐAR Már Sigurðsson, for-
stjóri Kaupþings banka, var með að
jafnaði 22,5 milljónir króna í tekjur á
mánuði á síðasta ári, samkvæmt nið-
urstöðum Frjálsrar verslunar.
Tekjublað tímaritsins kom út í gær.
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri
Landsbankans, var með 20,2 milljón-
ir á mánuði samkvæmt útreikningum
blaðsins.
Styrmir Þór Bragason, fram-
kvæmdastjóri MP fjárfestingar-
banka, var með 16,5 milljónir króna
að jafnaði í tekjur á mánuði, Jón Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri fjárfest-
ingasviðs hjá FL Group, var með
tæpar 14,8 milljónir á mánuði og Þór-
arinn Sveinsson, forstöðumaður
eignastýringar KB banka, var með
14,1 milljón. Sigurður Helgason,
fyrrum forstjóri Flugleiða, var með
11,8 milljónir á mánuði að mati
Frjálsrar verslunar.
Í blaðinu eru birtar upplýsingar
um tekjur 2.400 einstaklinga, sem
reiknaðar eru út frá útsvari þeirra
eins og það birtist í álagningarskrám.
Blaðið tekur fram að um sé að ræða
skattskyldar tekjur á árinu 2005 og
þær þurfi ekki að endurspegla föst
laun viðkomandi og þar séu heldur
ekki fjármagnstekjur taldar með.
Forstjóri KB banka
með hæstu tekjurnar
MEÐAL þeirra sem orðaðir hafa ver-
ið við framboð meðal sjálfstæðis-
manna í norðvesturkjördæmi eru Ak-
urnesingarnir Borgar Þór Einarsson,
formaður Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna, og Ragnheiður Ríkharðs-
dóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ en
Vesturland, Vestfirðir og Norðvest-
urland tilheyra norðvesturkjördæmi.
Borgar sagði við Morgunblaðið í
gær vera að velta þessum möguleika
fyrir sér og að margir hefðu rætt við
sig um framboð. Hann sagðist þó vilja
skoða stöðu sína vandlega og hann
myndi ekki bjóða sig fram nema eftir
því yrði kallað.
Ragnheiður vildi lítið segja um
hvort hún ætlaði að gefa kost á sér til
framboðs í kjördæminu. Hún sagði þó
að vissulega kitluðu landsmálin. Kjör-
dæmisráð Sjálfstæðisflokksins í norð-
vesturkjördæmi mun funda í byrjun
október og verða framboðsmál rædd
þar.
Orðuð við framboð í
norðvesturkjördæmi
JÓN E. Guðmundsson, sem gengur með
ströndum landsins til styrktar Krabba-
meinsfélagi Íslands, mun í dag ljúka tvö-
þúsundasta kílómetranum af göngu sinni.
Í samtali við Morgunblaðið í gær gerði
Jón ráð fyrir að þessum áfanga yrði náð
rétt fyrir utan Ólafsvík og vonaðist hann
til þess að bæjarbúar sæju sér fært að
mæta honum og ganga með honum nokk-
urn spöl. Sagði Jón að honum hefði verið
tekið afar vel á mörgum stöðum og marg-
ir slegist í för með honum hluta leið-
arinnar.
Í fyrradag sló Jón persónulegt met þeg-
ar hann gekk 40 kílómetra en hann hafði
aldrei gengið svo langt á einum degi. Nú á
göngugarpurinn 434 kílómetra eftir af
leið sinni en hann reiknar með að ljúka
göngunni í Reykjavík á Menningarnótt
sem haldin verður 19. ágúst næstkomandi.
Strand-
vegagöngu-
garpurinn
slær met
Morgunblaðið/Alfons
Jón gengur um Snæfellsnesið um þessar mundir.