Morgunblaðið - 01.08.2006, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Selskógur | Leikfélag Fljótsdals-
héraðs hefur að undanförnu sýnt
leikritið Miðsumarnæturdraum, í
leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar, í
Selskógi á Egilsstöðum. Aðsókn hef-
ur verið góð í útileikhúsið.
Leikritið, sem samið er af Guðjóni
og leikhópnum Auðhumlu, er laus-
lega byggt á leikriti Williams Shake-
speares, Draumi á Jónsmessunótt.
Það leikrit sýndi leikfélagið í Sel-
skógi árið 1997 við fádæma vinsæld-
ir, þar sem áhorfendur þurftu að elta
leikarana út um allan skóg. Eltinga-
leikurinn berst ekki jafn víða að
þessu sinni þótt áhorfendur sitji ekki
allan tímann á sama stað.
Leikarar í sýningunni eru flestir
ungir að árum, frá 14 til 25 ára. „Við
erum að nýta unga fólkið okkar, auk
þess sem í verkinu eru unglingar
sem ekki hafa verið með okkur áð-
ur,“ segir Þráinn Sigvaldason, for-
maður Leikfélags Fljótsdalshéraðs.
„Við erum líka í samstarfi við Vinnu-
skólann. Í honum eru fjórir krakkar
sem höfðu áhuga á að vera með í sýn-
ingunni og þau þurfa ekki að mæta í
vinnuskólann heldur eru í vinnu hjá
okkur.“
Að sögn Þráins hefur aðsókn að
sýningunum verið góð, leikritið var
frumsýnt fyrir nokkru og er ein sýn-
ing eftir, í dag.
Leikfélagið fagnar í ár fjörutíu ára
afmæli sínu og er sýningin hluti af
viðburðum í tengslum við afmælið. „Í
lok Ormsteitis verður haldið upp á
afmælið. Í haust sýnum við frum-
samið leikverk auk þess sem við
stefnum á að halda fullt af námskeið-
um í haust og næsta vor. Við endum
síðan á því að halda þing Bandalags
íslenskra leikfélaga og bjóðum öllum
leikfélögum á landinu í afmæli til
okkar,“ segir Þráinn.
Morgunblaðið/GG
Draumur Aldís Fjóla Ásgeirsdóttir og Pétur Ármannsson í hlutverkum sín-
um sem Fura og Hrói í Miðsumarnæturdraumi sem sýndur er í Selskógi.
Ungt fólk sýnir Mið-
sumarnæturdraum
Eftir Gunnar Gunnarsson
Vopnafjörður | Fjöldi glæsilegra
listaverka var útbúinn í Sandvík
sl. laugardag. Því miður er ekki
um að ræða varanlega eign því
sjórinn og veðrið sjá um að jafna
alla kastalana við jörðu.
Þegar krakkarnir höfðu útbúið
listaverk sín, með aðstoð fjöl-
skyldunnar, var efnt til fjársjóðs-
leitar.
Sandvíkurdagurinn er liður í
Fjölskylduhátíðinni Vopnafjarð-
ardögum sem stóð yfir í nokkra
daga. Boðið var upp á sjóstanga-
veiði, dorgveiði, gönguferð, sigl-
ingu um fjörðinn og margt fleira.
Hátíðinni lauk með fjöl-
skylduskemmtun í Miklagarði á
laugardagskvöldið þar sem hljóm-
sveitin Í svörtum fötum sá um
fjörið.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Glæsileg listaverk í fjörunni
AUSTURLAND
„ALGJÖRT ævintýri,“ segir Ingi-
björg Aldís Ólafsdóttir óperu-
söngkona sem nú er á ferð um
Norðurland með föður sínum, tón-
listarmanninum Ólafi Beinteini
Ólafssyni, en þau munu í ferðinni
leika og syngja fyrir íbúa á dval-
arheimilum aldraðra. Þau heim-
sækja alls 12 heimili að þessu
sinni, en þetta er fjórða sumarið
sem pokasjóður veitir styrk til
þessa verkefnis. Söngferðalög sín
kalla feðginin „Hvað er svo glatt“.
Síðdegis í gær fluttu þau íbúum
á Hlíð á Akureyri tónlist sína og
við það tækifæri var frumflutt
sönglagið „Minningar“, lag og
texti Ólafs. „Þetta lag er nokkurs
konar ástaróður til Akureyrar,“
segir Ólafur en í viðlagi eru þess-
ar línur:
Ég skynja norðurjarðar háan
hljóm
og heyri tæra tóna allt um
kring.
Og yfir Eyjafjarðar bláan óm
til Akureyrar ástarljóð ég syng.
Lagið tileinkar Ólafur Fanneyju
Oddgeirsdóttur og Jóhanni heitn-
um Konráðssyni, en þau tengdust
Hjaltested-fólkinu vel að sögn
Ólafs. Móðir Ólafs og amma Ingi-
bjargar Aldísar er hin lands-
þekkta óperusöngkona Sigurveig
Hjaltested, þannig að eplið fellur
sjaldan langt frá eikinni ef svo má
segja. Minntist Ólafur á tónleika
hennar og Ragnars Bjarnasonar í
Akureyrarkirkju árið 1962, sem
lengi voru í minnum hafðir og
greinilegt að nokkrir í hópi hlust-
enda á Hlíð í gær höfðu verið í
hópi tónleikagesta fyrir rúmum
fjórum áratugum.
„Þetta hefur verið mjög
ánægjuleg ferð hér fyrir norðan,“
segir Ólafur, hún hafi í alla staðið
tekist vel og greinilegt sé á hlust-
endum, sem flestir eru komnir af
léttasta skeiði, að þeir kunni að
meta svolítið krydd í tilveruna.
„Hlustendur eru alveg einstaklega
þakklátir og því hefur þessi ferð
verið afskaplega gefandi og
skemmtileg,“ segir Ingibjörg Aldís
en hún hefur starfað við óp-
erusöng í Þýskalandi undanfarin
sex ár.
Feðgin syngja fyrir íbúa á dvalarheimilum norðanlands
Ég heyri tæra tóna allt um kring
Hlýtt á hugljúfan söng Þær stöllur Sigríður Schiöth og Fanney Oddgeirs-
dóttir hlýddu á feðginin Ólaf B. Ólafsson og Ingibjörgu Aldísi Ólafsdóttur
sem sungu fyrir íbúa á Hlíð í gærdag. Þau frumfluttu m.a. nýtt lag og texta
eftir Ólaf, Minningar, en það tileinkar hann hjónunum Fanneyju og Jó-
hanni Konráðssyni, Jóa Konn.
Nikkan þanin Ólafur lék á als oddi er hann spilaði og söng á Hlíð.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Hlustar af athygli Alfreð Jónsson,
Alli í Grímsey eins og hann er iðu-
lega kallaður, skemmti sér kon-
unglega á tónleikunum.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
AKUREYRI
HREFNA Harðardóttir myndlistar-
kona hefur opnað sýninguna MAN –
MEN í Ketilhúsinu. Hún verður opin
til 13. ágúst, kl. 13–17 alla daga nema
mánudaga.
Viðfangsefni Hrefnu á þessari
sýningu eru samsetningar hand-
gerðra forma í leir og náttúrulegra
fylgihluta með áhrifum frá fornum
menum (hálsmenum). Hrefna brá
sér í huglægt tímaferðalag til að
muna hvernig men voru á tímum
mæðraveldisins þar sem gyðjan var í
hávegum höfð í gömlu Evrópu og áð-
ur en formleg trúarbrögð og tími
skreytilistar hófst. Yfirskriftina má
túlka sem tilraun til að muna mána-
gyðjuna með menið.
Hrefna lærði leirlist í MHÍ en hef-
ur einnig fjölbreyttan náms- og
verkferil og hefur tekið þátt í fjöl-
mörgum sýningum hérlendis sem er-
lendis og er þessi sýning í Ketilhús-
inu hennar tíunda einkasýning.
Hrefna er einnig framkvæmdastjóri
Sumartónleika í Akureyrarkirkju
sem verða nú haldnir í 20. sinn.
Verkin á sýningunni eru öll ný og
unnin á síðustu vikum.
Hrefna sýnir
í Ketilhúsi
TENGLAR
..............................................
http://www.umm.is/