Morgunblaðið - 01.08.2006, Page 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Þau ætla að ná aftur hverfinu...
...einn bita í einu!
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
Stormbreaker kl. 6, 8 og 10.
Silent Hill kl. 8 og 10.20 B.i. 16.ára.
Stick It kl. 6
Silent Hill kl. 8 og 10.40 B.i. 16 ára
Silent Hill LÚXUS kl. 8 og 10.40 B.i. 16 ára
Over the Hedge m.ensku.tali kl. 3, 5, 7 og 9
Over the Hedge m.ensku.tali LÚXUS kl. 3 og 5
Over the Hedge m.ísl.tali kl. 3 og 5
Ultraviolet kl. 4.50 og 8 B.i. 12 ára
Stick It kl. 3, 5.30, 8 og 10.20
Click kl. 10.10 B.i. 10 ára
Rauðhetta m.ísl tali kl. 3
ÞÚ ERT ALDREI OF UNGUR TIL AÐ DEYJA
HÖRKU
SPENNUMYND
Í ANDA JAMES
BOND
Magnaður spennutryllir eftir
höfund „Pulp Fiction“
VELKOMIN TIL SILENT HILL.VIÐ ÁTTUM VON Á ÞÉR!
Með frábærum úrvalsleikurum eins og Sean Bean, Deborah Kara
Unger og Radha Mitchell (Pitch Black og Melinda & Melinda)
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA!
HLAUT TILNEFNINGU TIL GOLDEN TRAILER
VERÐLAUNANNA Í FLOKKNUM BESTA HRYLLINGSMYNDIN
eee
L.I.B. Topp5.is
eee
S.V. Mbl.
eeee
P.B.B. DV
ÉG bakaði súkkulaðiköku í fyrradag, nokkuð
sem ég hef ekki gert í mörg ár. Þegar ég var
að útbúa kremið, um fjögurleytið, eftir upp-
skrift sem ég fann á netinu heyrði ég í Sigur
Rós inn um eldhúsgluggann minn frá Mikla-
túni. Sándtékkið var byrjað. Surg úr boga-
stroknum gítarstrengjum heyrðist um alla
Norðurmýrina, líkt og verið væri að þeyta al-
mannavarnaflautur. Það var eitthvað ein-
staklega heimilislegt og þægilegt við þetta.
Þessi andi var enn í gangi þegar ég rölti svo
út á tún um kvöldið, svo gott sem yfir götuna.
Mér fannst eins og ég væri að fara niður í bæ
á 17. júní. Fólk streymdi í rólegheitum í átt að
tónleikasviðinu, sem var aftan við Kjarvals-
staði, og það var undarleg værð yfir öllu.
Meðlimir Sigur Rósar ákváðu að ljúka
þrettán mánaða löngu tónleikaferðalagi sínu,
sem er það yfirgripsmesta í sögu sveitarinnar,
með nokkrum tónleikum á Íslandi. Staðarval
hefur verið óvenjulegt en tónleikarnir hafa átt
það sammerkt að ókeypis er fyrir gesti og
gangandi. Þetta útspil verður að teljast ein-
staklega „Sigur Rósarlegt“ og er til vitnis um
hvernig sveitin hefur frá fyrsta degi sniðgeng-
ið venjur og hefðir „bransans“. Þessi hug-
myndafræði – ásamt stórkostlegri tónlist – er
það sem hefur fært gulldrengjunum frægð og
frama; heimurinn stendur á öndinni yfir heil-
indunum og heiðarleikanum sem stýrir gjörð-
um meðlima og við Íslendingar erum þar í
engu undanskildir.
Strengjasveitin Amiina, sem hefur reyndar
sprengt þá skilgreiningu utan af sér, hóf tón-
leikana en sveitin er einnig undir- og meðleik-
ari hjá Sigur Rós og hefur svo verið allt síðan
að Sigur Rós kynnti plötu sína Ágætis byrjun
sumarið 1999. Í upphafi mátti heyra loft-
kennda, „ambient“-lega hljóma, hægstreym
tónlistin leið upp í himininn og sveipaði um-
hverfið kyrrlátri, notalegri stemningu sem átti
eftir að einkenna tónleikana alla. Það viðraði
að sönnu vel til Sigur Rósar-tónleika þennan
daginn, loftið var hvorki hlýtt né kalt og stór-
eflis ský yfir. Amiinu-liðar drógu fram glös og
sög og þessi tilraunaglaði strengjakvartett
hagnýtti sér auk þess kjöltutölvu í hljómagald-
ur sinn. Sum lögin voru sveimkennd, önnur
taktbundin og síðasta lagið braut þetta allt
saman upp, einkennilega sprelligosalegt (í
mjög svo jákvæðum skilningi).
Síendurtekin dáleiðandi druna barst frá
tómu sviðinu meðan Sigur Rósar-menn komu
sér fyrir. Upphafsstef Takk … hóf svo að
hljóma og mannskapurinn fór að hrópa og
klappa.
Greinilegt var að Sigur Rós er búin að þaul-
spila efnisskrána – var eins og vel smurð
draumavél frá fyrstu mínútu til hinnar síð-
ustu. Aldrei fékk ég þó á tilfinninguna að
menn væru orðnir pirraðir eða þreyttir, menn
hlógu og brostu og gerðu að gamni sínu.
Hljómur á sviði angraði þó Jónsa, söngvara og
gítarleikara, reglubundið en það sakaði okkur
hin ekki vitund. Ríflega var þá veitt af tónlist
en sveitin var á sviðinu í rúma tvo tíma. Sam-
úel J. Samúelsson, hinn mikilhæfi útsetjari og
blásari, sem þátt tók í Ágætis byrjun, leiddi þá
fimm manna málmblásturssveit, Brassgat í
bala. Svo kynnti Jónsi þá a.m.k. ef ég heyrði
rétt.
Lög af nýju plötunni voru eðlilega áberandi,
en eldri lög fengu og að hljóma. „Vaka“
(„Ónefnt 1“) og „Njósnavélin“ („Ónefnt 4“) af (
) eða Svigaplötunni. Þá voru „Ný batterí“,
„Olsen Olsen“ og „Viðrar vel til loftárása“ –
fallegasta lag sem samið hefur verið – leikin.
Það var athyglisvert að sjá hvernig Sigur
Rós hefur þróast sem tónleikasveit, hljóðfærin
eru farin að ganga ótt og títt á milli meðlima
og við lok tónleikanna mátti sjá trymbilinn
Orra Pál Dýrason einn á píanóinu.
Uppklappslög voru tvö, „Hafsól“ af Von var
leikið með tilheyrandi látum en lokalokalag
var „Popplagið“ eða „Ónefnt 8“. Mikil flug-
eldasýning fylgdi því magnaða lagi og Sigur
Rós ásamt aðstoðarmönnum kom svo fram í
endann, hneigði sig og klappaði áhorfendum
lof í lófa. Undir hljómaði „Avalon“, lokalag
Ágætis byrjunar. Þessi háttur er táknrænn
fyrir það hvernig Sigur Rós hefur leitast við
að afhelga hlutverk rokkstjörnunnar, fjar-
lægja mæri á milli þeirra sjálfra og áhorfenda
og undirstrika með því þá einingu sem er óhjá-
kvæmilega á milli hljómsveitar og hlustanda.
Það hefði enginn komist upp með annað
eins sjónarspil og ég varð vitni að þessa vina-
legu kvöldstund, sem líkt og tónlist Sigur Rós-
ar einkenndist af hlýju og fegurð sem hafin er
yfir smásmugulegt streð og látalæti hvers-
dagsins. Það var eins og áhorfendur næðu fyr-
ir alvöru að slökkva agnarstund á sér og njóta
tónlistar sem stundum virðist ekki vera af
þessum heimi. Já, það er engu upp á þessa
drengi logið.
Heimkoman
TÓNLIST
Tónleikar á Miklatúni
Tónleikar Sigur Rósar og Amiinu á Miklatúni
sunnudagskvöldið 30. júlí.
Sigur Rós – Morgunblaðið/Eggert
Sigur Rós hélt einhverja mögnuðustu tónleika sem haldnir hafa verið hér á landi.
Arnar Eggert Thoroddsen
ALÞJÓÐLEG kvikmyndahátíð í
Reykjavík hefst hinn 28. september
nk. og stendur yfir í ellefu daga. Í
boði verður úrval alls kyns kvik-
mynda auk annars konar viðburða.
Meðal þeirra má nefna kvikmynda-
tónleika, spurt og svarað sýningar,
miðnæturbíó, fjölda málþinga og
umræðufunda, námskeið fyrir al-
menning og fagfólk.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík leggur áherslu á að bjóða
upp á nýjar og framsæknar myndir
alls staðar að úr heiminum og skipt-
ist dagskráin í nokkra flokka.
Margt góðra mynda
Dagskrá haustsins er óðum að
skýrast. Nú hefur verið staðfest að
nýjasta kvikmynd Michael Winter-
bottoms, The Road to Gunatanamo,
verði á hátíðinni en hún segir sanna
sögu þriggja Breta sem voru í haldi í
Guantanamo-fangabúðunum í tvö ár
án dóms og laga. Myndin er blanda
af heimildarmynd og leikinni kvik-
mynd og hefur vakið gríðarlega at-
hygli.
Þá stendur til að sýna finnsku
kvikmyndina Frozen City, en hún er
eftir leikstjórann Aku Louhimies
sem gerði einnig Frozen Land sem
var sýnd hér á landi í fyrra. Myndin
segir sögu leigubílstjórans Veli-
Matti sem hefur glatað fjölskyldu
sinni og stendur nú frammi fyrir því
að vera dæmdur fyrir morð sem
hann man ekki eftir að hafa framið.
Myndin var í keppnisflokki Karlovy
Vary-hátíðarinnar sem er nýlokið.
XXX Rottweiler með lög í
mynd Yong Kim og Rust Gray
Nýjasta mynd So Yong Kim og
Bradley Rust Gray, In Between Da-
ys, verður sýnd á hátíðinni. Þau
gerðu kvikmyndina Salt hér á landi
fyrir þremur árum. Í þeirri mynd
voru eingöngu íslenskir leikarar.
In Between Days vakti mikla at-
hygli á kvikmyndahátíðinni í Berlín í
vetur. Þar segir frá kóreskri stúlku í
Toronto sem verður ástfangin af
besta vini sínum. Sérstaka athygli
Íslendinga vekur að hljómsveitin
XXX Rottweiler á nokkur lög í
myndinni.
Kvikmyndir | Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík
Óðum að koma mynd á
dagskrá hátíðarinnar
Finnski kvikmyndaleikstjórinn Aku Louhimies. Mynd hans Frozen City
verður á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík í september og október.