Morgunblaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 7 H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 9 3 3 Laugavegi 172 • Reykjavík • sími 590 5700 KIA umboðið er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. 3 ára ábyrgð. KIA Sportage er sigurvegari í sínum flokki, samkvæmt gæðakönnun hins virta alþjóðlega rannsóknarfyrirtækis JD Power. Könnunin náði til 115 þúsund bíleigenda í Bandaríkjunum. *M.v. 30% útborgun og 84 mán. bílasamning hjá SP fjármögnun með blandaðri myntkörfu. KIA umboðið á Íslandi er í e igu Heklu hf. Vegna sérlega hagstæðra samninga við framleiðendur getum við nú boðið örfáa KIA Sportage á þessu frábæra verði. KIA Sportage nýtur sívaxandi vinsælda á Íslandi, enda framúrskarandi og margverðlaunaður sportjeppi. Byltingarkennd 2ja lítra dísilvélin er einstaklega hljóðlát og umhverfisvæn en skilar engu að síður 140 hestöflum og eyðir aðeins 7,1 lítra á hundraðið í blönduðum akstri. SértilboðKIA Sportage dísil 140 hestöfl eða 27.720 kr. á mánuði* 2.690.000 kr. Hólmavík | Það ríkti mikil eftirvænting en jafnframt kátína hjá þeim fjölmörgu sem voru komnir í Sævang við Steingrímsfjörð í gær til að fylgjast með og taka þátt í meistaramóti í hrútadómum. Um fjörutíu manns skráðu sig til leiks í hrútaþuklinu og skiptust nokkuð jafnt í flokk vanra þuklara og flokk óvanra og hræddra þuklara. Þeir vönu einbeittu sér að atriðum eins og hryggbreidd, læradýpt og öðru slíku meðan hinir óvönu mátu hrútana frekar eftir útliti, hegðun og kyn- þokka. Á meðan þuklararnir athöfnuðu sig héldu svokallaðir íhaldsmenn hrútunum í skefjum. Svo var að sjá sem hrútaþukl væri mikil fræðigrein og útheimti miklar spekúlasjónir. Það var líka til mikils að vinna því í verðlaun voru handverksmunir úr hér- aðinu ásamt því sem vönu hrútaþukl- ararnir fengu að launum nokkra skammta af hrútasæði frá Búnaðarsamtökum Vest- urlands. Til að fullkomna sveitastemninguna var svo boðið upp á kjötsúpu að hætti Stranda- manna og drekkhlaðið kaffihlaðborð. Morgunblaðið/Kristín Sigurrós Vanir og óvanir þukluðu hrúta SENN styttist í að sjósundkappinn Benedikt S. Lafleur reyni við Erm- arsundið. Í samtali við Morg- unblaðið segist hann hafa synt sitt síðasta stóra æfingasund rétt fyrir helgi þegar hann synti í alls 8 klst. Segist hann afar ánægður með hve auðvelt það hafi í reynd verið og tekur fram að sér hafi jafnvel liðið betur eftir 8 klst. í sjónum en á fyrstu tímunum. Aðspurður segir Benedikt algjört lykilatriði að matast nægilega vel og alltaf á klukkutíma fresti meðan á sjósundinu standi til þess að við- halda nægum líkamshita og orku. Bendir hann á að hann hafi prófað sig áfram með næringu í sjósundum sínum hér heima og finnist langbest að drekka Herbalife-hristing, sem sé bæði saðsamur og bragðgóður, auk þess sem hann drekki Herba- life-te og aloe vera-safa. „Síðan hef ég fengið góð ráð frá erlendum sjó- sundköppum sem hér eru staddir og þannig bentu þeir mér á duft sem heitir Maxime, sem gott er að blanda út í sódavatn með rifs- berjabragði, en bragðið af drykkn- um veitir gott mótvægi við seltuna og vinnur því vel á ógleðinni sem fylgir því að velkjast um í sjónum í lengri tíma,“ segir Benedikt og tek- ur fram að sjórinn virki mun saltari við Bretlandsstrendur en heima. Syndir kannski til baka líka Aðspurður segist Benedikt munu æfa styttri sundspretti næstu daga þangað til hann leggur í hann. Einnig segir hann mikilvægt að undirbúa sig vel andlega. Að sögn Benedikts kemur jafnvel til greina að hann syndi til baka aftur þegar hann hefur lokið við sundspölinn yfir Ermarsundið. Segir hann í raun aðeins vont veður eða ónóga krafta geta komið í veg fyrir það. Eins og áður hefur komið fram er sjósund Benedikts yfir Erm- arsundið liður í því að vekja athygli á mansali. Allar nánari upplýsingar um sundið og upplýsingar um hvernig heita má á Benedikt má nálgast á vef hans. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tilbúinn Benedikt S. Lafleur reynir senn að synda yfir Ermarsundið. Síðasta stóra æfingasundið að baki TENGLAR .............................................. www.ermasund.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.