Morgunblaðið - 28.08.2006, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 28.08.2006, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 11 Laugalækur 58 105 Reykjavík Verð: 54.900.000 Stærð: 239,1 fm Fjöldi herbergja: 7 Byggingarár: 1973 Brunabótamat: 29.950.000 Bílskúr: Já Fallegt og sígilt og einstaklega vel við haldið raðhús með bílskúr í einu af vinsælustu hverfum borgarinnar. Vandað handverk, öll efni af vönduðustu gerð og viðhald til fyrirmyndar. Á fostofu, borðstofu og í eldhúsi eru fallegar flísar en gegnheilt parket á stofu og er þaðan útgengt á verönd og út í garð. Gegnheill eikarstigi upp á efri hæð þar sem eru 4 svefnherbergi og baðherbergi m/baðkari og sturtu. Sérinngangur er í kjallara en þar er rúmgott sjónvarpsherbergi, þvottahús o.fl. Jóhanna Kristín Sölufulltrúi 698 7695 jkt@remax.is Jónas Örn Jónasson hdl. lögg. fasteignasali 520 9550 MJÓDD Opið hús í kvöld kl. 19:30-20:30 RÚMLEGA 500 gestir frá 18 lönd- um sóttu Ísland heim vegna nor- ræna hjarta- og lungnaskurðlækna- þingsins sem fór fram í Reykjavík. Meðal þeirra voru heimsfrægir er- lendir fyrirlesarar á sviði hjarta- og lungnaskurðlækninga. Ýmis álita- efni sem snerta þessar ört vaxandi greinar innan læknisfræðinnar voru rædd í fyrirlestraröðum og mál- stofum, auk þess sem nýjasta tækni var kynnt á ráðstefnunni. Breski hjartaskurðlæknirinn Steven Wes- taby er einn þeirra lækna sem sóttu ráðstefnun, en hann er einn af brautryðjendum nýrrar tækni á sviði hjartabilunar. Batahorfur verri en krabbameinssjúklinga Steven Westaby á að baki langan starfsferil við hjartaskurðlækningar í Oxford. Westaby segir að hann hafi fljótt fengið áhuga á alvarlegri hjartabilun og segir hann ástæður þess einfaldar: „Hjartabilun er eitt stærsta heilbrigðisvandamál hins vestræna heimshluta, sé tillit tekið til dauðsfalla af völdum sjúkdóms- ins. Batahorfur þeirra sem kljást við alvarlega hjartabilun eru verri en batahorfur krabbameins- og eyðnisjúklinga og margir kljást við vandann, ekki bara háfullorðið fólk, heldur börn og einstaklingar á besta aldri sem fá óvænta veirusýk- ingu,“ segir Westaby. Hann segir að hingað til hafi eina svarið við mjög alvarlegri hjartabilun verið hjartaígræðsla. Sú aðferð takmark- ast hins vegar mjög við líf- færagjafavandann, einungis 4.000 hjörtu eru til reiðu fyrir hjartaíg- ræðslu á hverju ári og um helm- ingur ígræðslna ár hvert er fram- kvæmdur í Bandaríkjunum. „Ég vann við hjartaígræðslu til skamms tíma og vonbrigðin jukust með hverjum sjúklingi sem ég þurfti að horfa á eftir,“ segir Westaby. „Þá fór ég að leita að öðrum úrræðum fyrir þá sem kljást við sjúkdóm- inn.“ Dæla á stærð við þumal gegnir hlutverki vinstra hjartahvolfs Westaby hóf að kanna möguleika á því að koma rafknúnum búnaði fyrir í hjartanu og á vegi hans varð Robert Jarvik, bandarískur verk- fræðingur, sem mikið hafði unnið með gervihjörtu og fundið upp fyrsta nothæfa gervihjartað. Upp- finningin stóð ekki undir vænt- ingum verkfræðingsins og þegar þeir hittust var Jarvik að leita nýrra leiða til að þróa tæki sem hjálpað gæti hjartveikum. „Afrakst- urinn var rafknúin dæla á stærð við þumalinn á mér. Dælan stuðlar að stöðugu blóðflæði með jöfnum þrýstingi og henni er komið fyrir í vinstra hjartahvolfi, þar sem trufl- un á starfsemi hjartans á sér stað í vinstra hvolfinu í 95% tilvika,“ segir Steven. Þegar tilraunir með tækið hófust kom í ljós sú merkilega stað- reynd að þegar hið lasburða hjarta fær hvíld, lagast það. „Það sem gerist er að vöðvafrumur hjartans breytast við hjartabilun. Frum- urnar stækka og efnaskiptin rask- ast,“ segir Steven. „Þegar hjartað fær hvíld virðist ástandið þó batna til muna.“ Fyrsti sjúklingurinn sem tækið var grætt í fór undir hnífinn fyrir um sex árum og þó að ýmislegt hafi bjátað á í fyrstu, lifir maðurinn til- tölulega eðlilegu lífi, miðað við þá sem hlotið hafa ígræðslu og stöðugt þurfa að vera undir eftirliti læknis og vera á stífri lyfjameðferð gegn höfnun líffærisins. „Eftir því sem þróun tækisins heldur áfram og við verðum færari í að koma í veg sýk- ingar og tæknilega örðugleika fær- umst við nær því að hafa í höndum örsmátt tæki sem getur komið í veg fyrir að fólk þurfi á hjartaígræðslu að halda“ Westaby segir að með þessari tækni verði hægt að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða og græða tækið í þá sem eru með lasburða hjarta áður en sjúkdómurinn hefur dregið þá að dauðans dyrum. Tæk- ið hefur notið vaxandi athygli fag- fólks og fyrir þremur vikum fjallaði New England Journal of Medicine um árangurinn af notkun þess. Steinar í götu hugsjónamanns Eins og oft vill verða með góðar hugmyndir hefur þróunarvinna Westaby oft strandað á fjármunum. Hver hjartadæla kostar 50.000 pund og segir Westaby að erfitt hafi verið að koma heilbrigðisyf- irvöldum í Bretlandi í skilning um hagkvæmni þess að fjárfesta í tæk- inu. Hann viðurkennir fúslega að tækið sé mjög dýrt, en þegar upp er staðið kosti það jafnmikið og hjartaígræðsla, með öllum þeim eft- irmálum sem ígræðslu fylgja. „Munurinn er hins vegar sá að að- eins brotabrot af hjartabilunar- sjúklingum á kost á ígræðslu auk þess sem hjartadælan gerir sjúk- lingnum auðveldara að hverfa aftur til hefðbundins lífernis.“ Westaby lét ekki deigan síga þótt skilningur breskra stjórnvalda á vinnu hans væri takmarkaður. Hann ýtti úr vör styrktarsjóði fyrir þá sjúklinga sem þörfnuðust tæk- isins og safnaði samtals 1,5 millj- ónum punda. Westaby þurfti að sníða sér stakk eftir vexti í starfs- mannamálum skurðstofu sinnar, til þess að gera ísetninguna sjúkling- um sem ódýrasta. Hann nýtur að- eins aðstoðar hjúkrunarfræðings og eins annars starfsmanns þegar hann framkvæmir meginþorra skurðaðgerðanna. „Sjáðu til, ég er jafnframt með gráðu í lífefnafræði og er doktor í lífverkfræði,“ segir Westaby og bætir við að menntun sín færi sér ákveðið forskot og það sé ótrúlega gagnlegt að geta bæði verið verkfræðingurinn sem tekur þátt í þróun tækisins og læknirinn sem kemur því fyrir. Brýnt að fylgjast með nýjungum hér á landi Ein dæla af þeirri tegund sem fjallað hefur verið um er komin til landsins og eiga íslenskir læknar einungis eftir að fara í eina starfs- ferð áður en mögulegt verður að nota tækið til þess að bregðast við hjartabilun hér á landi. Bjarni Torfason, yfirlæknir hjartaskurð- deildar LSH, segir að tækið sé komið til Íslands fyrir tilstuðlan þjóðarátaksins „Í hjartastað“ sem efnt var til í kjölfar fráfalls Þor- bjarnar Árnasonar sem lést vegna hjartabilunar í nóvember árið 2004. Hann tekur undir orð Westaby og segir að kostnaður við dæluna sé lítill miðað við það hvað hver gervi- hjartaígræðsla geti sparað í umönn- unarkostnaði og annarri þjónustu sem sjúklingar með hjartabilun á endastigi þurfa annars á að halda. „Þessi nýjung kemur til með að borga sig fyrir samfélagið þegar upp er staðið auk þess sem hún dregur verulega úr þjáningum hjartabilunarsjúklinga og lengir líf þeirra,“ segir Bjarni. Bjarni telur mjög brýnt í fagi sem sífellt tekur breytingum vegna tækninýjunga að fylgjast með því sem er að gerast hverju sinni, því sé ráðstefna eins og nú fari fram á Hótel Nordica gríðarlega mikilvæg fyrir íslenska lækna, ekki síður en erlenda starfsbræður þeirra. Breski hjartaskurðlæknirinn Steven Westaby er brautryðjandi á sviði hjartabilunar Með lífið í lúkunum Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbli.is Morgunblaðið/Ásdís Hjartaskurðlæknar Steven Westaby, til vinstri, og Bjarni Torfason. Morgunblaðið/Ásdís Tækninýjungar Á ráðstefnunni bauðst fagfólki að kynnast nýjustu tækni. írska fiskveiðilögsögu, en þar sé stærstur hluti hans drepinn. Orri segir að á dögunum hafi Joey Murrin, yfirmaður laxamála hjá írsku stjórninni, játað í írskum ríkisfjöl- miðlum að sér hafi verið greitt fyrir að fara rangt með staðreyndir. „Í millitíðinni var írska ríkisstjórnin bú- in að setja á stofn þriggja manna óháða nefnd til þess að gera tillögur um hvernig ætti að vinna úr mál- unum. Ég fór á fund hennar um miðj- an júlí og lagði fram tillögur um það og greindi frá því hvernig þetta hefði verið gert í öðrum löndum. Svo fékk ég bréf frá sjávarútvegsráðherranum á dögunum þar sem hann ítrekaði að þeir væru ekki að taka lax frá öðrum þjóðum,“ segir Orri. Hann hafi því sent ráðherranum bréf, en það er dagsett 21. ágúst sl. Í bréfinu bendir Orri meðal annars á að yfirmaður laxamála á Írlandi hafi viðurkennt að hafa farið með rangt mál og beðist af- sökunar á því. Jafnframt segir í bréfi Orra til Browne að Írum beri að hlíta alþjóðasamningum. Þegar hafi verið unnið að lausn málsins í 10–15 ár, en á þeim tíma hafi Írar meira og minna brotið alla samninga. Spurður um hvort hann telji að Ír- ar muni senn láta af reknetaveið- unum kveðst Orri óttast málinu verði ekki lokið fyrir næstu þingkosningar í landinu, en þær eiga að fara fram eigi síðar en í maí á næsta ári. Það geti þýtt að veiðunum verði haldið áfram í nokkur ár til viðbótar. Þriggja manna nefndin, sem írsk stjórnvöld skipuðu fyrr á árinu, eigi reyndar að skila tilllögum á næstu vikum. „Ég veit ekki hvernig sú til- laga verður en ég hef heyrt að það sé verið að reyna að fá ráðherrann til þess að breyta nöfnunum á reknetum í draftnet og halda þannig áfram að hluta til með þessar veiðar,“ segir hann. Brýnt sé hins vegar að Írar hætti reknetaveiðum svo loks verði hægt að hrinda í framkvæmd stóru alþjóðlegu verk- efni um endurreisn allra laxastofna. JÚLÍUS Vífill Ingvarsson, borgar- fulltrúi og formaður Menntaráðs Reykjavíkurborgar, segir að styrkja megi fræðslu kennara vegna þjón- ustu við sérgreind börn í grunnskól- um og að fjárúthlutanir til mála- flokksins verði teknar til skoðunar. Í Morgunblaðinu á fimmtudag birtist viðtal við Ásgeir Beinteinsson, skóla- stjóra Háteigsskóla, þar sem hann varpaði fram hugleiðingum um stöðu málaflokksins og hvað betur mætti fara í samskipt- um skólanna og borgaryfirvalda. „Mér þykir vænt um að lesa þetta viðtal við Ásgeir, ég tel það endurspegla þá umhyggju sem hann ber fyrir málaflokknum og þeim nemendum í hans skóla sem eru sérgreindir. Það sem hann er að benda á er margt alveg rétt. Það má gera miklu betur í þessum mála- flokki. Hann bendir t.d. á að kenn- arar finni til þekkingarleysis við umönnun og kennslu þessara barna og það er eflaust rétt hjá honum. Ég dreg það ekki í efa enda má eflaust styrkja þennan hluta námsins hjá Kennaraháskóla Íslands enn frek- ar,“ segir Júlíus Vífill. Fötluð börn fái tækifæri „Við sjáum það líka að það hefur e.t.v. ekki enn gengið sem skyldi að láta þjónustumiðstöðvarnar sinna þessum málaflokki að hluta, eins og ráðgert er. Það verður að fara betur yfir þessa þætti,“ segir Júlíus og bætir við að málefni sérgreindra barna séu viðkvæmur málaflokkur: „Öll viljum við að fötluð börn fái tækifæri til jafns við alla aðra, sama hver þeirra fötlun er,“ segir hann. Spurður um umfjöllun Ásgeirs um fjárúthlutanir til málaflokksins segir Júlíus Vífill að gagnrýni Ásgeirs varðandi rammaúthlutanir borgar- innar sé rétt. „Vinnuferli þroska- þjálfa breyttist í síðustu kjarasamn- ingum Rammarnir hafa fylgt launum kennara, þroskaþjálfa og stuðnings- fulltrúa. Fyrirkomulag vinnutíma þeirra síðastnefndu breyttist hins- vegar á móti sem gerði það að verk- um að það getur verið nokkuð erf- iðara að rekja framlag borgarinnar að þessu leyti. Þetta er eitt þeirra at- riða sem við munum fara vel yfir. Ég mun setja af stað vinnuhóp til að fara yfir þennan málaflokk. Það er ástæða til þess að við köllum saman þá sem þekkja þessi mál best og þá sem þessi mál brenna á. Það gerum við til að fá þessa umræðu inn á menntasviðið,“ segir Júlíus sem ætl- ar sér jafnframt að nýta næstu daga til að heimsækja skóla sem sinna sérgreindum börnum sérstaklega. Styrkja má fræðslu og endurskoða fjárúthlutanir Júlíus Vífill Ingvarsson »Hjartabilun er eitt stærsta heil-brigðisvandamál hins vestræna heimshluta, sé tillit tekið til dauðs- falla af völdum sjúkdómsins. »Dælan stuðlar að stöðugu blóð-flæði með jöfnum þrýsingi og henni er komið fyrir í vinstra hjartahvolfi, þar sem truflun á sér stað í 95% tilvika. Í HNOTSKURN » …kostnaður við dæluna sé lítill miðað við þaðhvað hver gervihjartaígræðsla geti sparað í umönnunarkostnaði og annarri þjónustu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.