Morgunblaðið - 28.08.2006, Side 16
16 MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í UPPHAFI júlímánaðar héldu fjór-
ar íslenskar listakonur til Japans til
þátttöku á alþjóðlegu sýningunni
Giftex sem haldin er árlega þar í
landi í hinni risavöxnu sýningarhöll
Tokyo Big Sight. Ísland hefur aldrei
áður átt fulltrúa á sýningunni en að
sögn eins Japansfarans, leirkera-
smiðsins Koggu, var sýningaraðilum
hennar mikið kappsmál að íslenskir
listamenn tækju þátt þetta sinnið.
Kogga fullyrðir að þrátt fyrir að
það hafi kostað mikla vinnu að und-
irbúa sýninguna hafi ferðin verið
fyllilega þess virði. „Það var satt
best að segja alveg gífurlegur áhugi
á verkum okkar,“ segir hún en með
henni í för voru Tinna Gunnarsdóttir
iðnhönnuður, Elísabet Ásberg hönn-
uður og skartgripahönnuðurinn
Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir. „Sýn-
ingarsvæði okkar var troðið frá
morgni til kvölds, en sýninguna
sóttu um 50.000 manns. Við urðum
jafnvel varar við öfund annarra sýn-
enda vegna áhugans.“
Til að útskýra áhugann upplýsir
hún að Íslendingarnir hafi haft
ákveðna sérstöðu. „Okkar hönnun
var öðruvísi.“ Hún getur sér til um
að ástæða þess skrifist að einhverju
leyti á annars konar nálgun vegna
smæðar. „Við erum svo ung á þessu
sviði.“
Seldi Tokyo
Modern Museum verk
Ferðalagið var styrkt af Útflutn-
ingsráði og segir Kogga að án að-
ildar þess hefði lítið orðið úr ferð-
inni. „Fyrst barst einfaldlega boð frá
Japan til okkar listamannanna. Sýn-
ingaraðilarnir úti gáfust svo ekki
upp þótt við værum allar búnar að
afþakka sökum kostnaðar og settu
sig í samband við íslenska sendiráðið
úti. Starfsmenn sendiráðsins höfðu
svo samband við Útflutningsráð til
að kanna hvort þar væri vilji til að
aðstoða okkur. Sem þeir og ákváðu
að gera. Annars hefði þetta aldrei
getað átt sér stað.“
Kogga, sem hafði ekki áður sýnt
verk sín í Asíu, segir að það hafi ver-
ið sérstaklega gaman að sjá við-
brögð fólks frá þeim heimshluta þar
sem menn spyrji allt öðruvísi spurn-
inga og skoði verkin öðruvísi en hún
á að venjast. Hún segir einnig að
fyrir sig sem leirkerasmið hafi ferðin
verið einstaklega áhugaverð, eins
konar pílagrímsferð.
„Keramik á að baki árþúsunda
hefð í Japan og er sú listgrein sem er
hvað hæst metin.“ Hún nefnir til
gamans að teskálar geti í sumum til-
fellum selst á húsverði. „Við sáum
reyndar ekki sjálfar slíka teskál en
við fundum eina sem kostaði eina og
hálfa milljón íslenskra króna.“
Aðspurð segir hún að verkum sín-
um hafi verið ákaflega vel tekið í
Japan. Tekin voru við hana viðtöl í
þarlendum tímaritum og eitt helsta
nútímalistasafn Japans, Tokyo Mod-
ern Museum, keypti eftir hana verk.
Hönnun | Fjórir íslenskir listamenn á alþjóðlegri sýningu í Japan
Í landi leirkerasmíðinnar
Ljósmynd/Jónas Hallgrímsson
Áhugi Kogga segir að Japanir hafi verið mjög áhugasamir um verk sín.
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
Í VIKUNNI munu nokkrar íslenskar
hljómsveitir spila í Kaupmannahöfn.
Þessi útrás í tónlistargeiranum er
annars vegar í tengslum við nýja
verslun 12 tóna í Fiolstræde í gömlu
höfuðborginni okkar Íslendinga, og
hins vegar kynning fyrir Iceland
Airwaves.
Þannig mun Hudson Wayne spila í
nýju versluninni nk. miðvikudag, og
síðar um kvöldið á Loppen í sjálfri
Kristjaníu. Föstudaginn 1. sept-
ember sjá svo Jeff Who? og Eberg
um Airwaves-kynninguna á Vega.
Lárus Jóhannesson er meðeigandi
12 tóna og segir að tónleikarnir í
næstu viku séu liður í útrásarstefnu
verslunarinnar: „Við höfum verið
með talsvert mikið af tónleikum í
búðinni frá því við opnuðum. Þeir eru
ekkert bundnir við föstudaga eins og
hér í Reykjavík, enda er Kaupmanna-
höfn stærri borg og það er hægt að
bjóða upp á tónleika hvenær sem er í
vikunni.
Við erum búnir að tengja okkur við
nokkra tónleikabókara í Kaupmanna-
höfn og víðar á Norðurlöndum. Mein-
ingin er að besta leiðin til að kynna þá
listamenn sem við erum að vinna með
sé að fá þá til að koma og setja upp
tónleika. Þannig að þetta er bara
hluti af heildarmyndinni, sem er að
koma þessum listamönnum á kortið í
Danmörku.“
Þetta er semsagt eitthvað sem þið
ætlið að gera meira af?
„Já, það er það. Við erum með svo
marga frábæra listamenn á okkar
snærum að við bara skuldum þeim að
vinna með þeim að því að koma þess-
ari músík áfram. Núna um daginn
voru Apparat og Trabant að spila.
Það eru fleiri hljómsveitir á leiðinni í
haust: Singapore Sling og vonandi
Úlpa. Þetta eru hvort tveggja hljóm-
sveitir sem við erum að gefa út. Síðan
erum við að vinna að því að Flís fari
út.
Svo verður Eivör Pálsdóttir með
stóran konsert í Tívolí 9. september.
Ef einhverjir Íslendingar eru á ferð-
inni verður hægt að sjá hana þar með
danskri sveit. Þannig að jújú, það er
nóg framundan.“
Fyrst Reykjavík, svo
Kaupmannahöfn, þá Berlín?
Hvernig hefur gengið að reka nýju
verslunina í Kaupmannahöfn?
„Búðin fer bara vel af stað. Henni
hefur verið vel tekið og það hefur ver-
ið stígandi. Við erum með ótrúlega
reyndan verslunarstjóra, Þórhall
Jónsson sem var í Skífunni, og hann
veit alveg hvað þarf að gera til að
„stimpla sig inn“, eins og maður seg-
ir. Dreifingin er síðan langtímaverk-
efni en fer eðlilega af stað.“
Kemur til greina að færa út kvíarn-
ar í fleiri borgir í Evrópu?
„Ég sagði um daginn að það væri
stefnan mín að opna búðir jafnt og
þétt þangað til ég væri kominn að
Miðjarðarhafinu. Þá væri kominn
tími til að setjast í helgan stein
(hlær). Við erum að gæla við Berlín
mest. En það er auðvitað miklu
stærra skref, því þó að Kaupmanna-
höfn sé miklu stærri en Reykjavík þá
er hún smáborg miðað við Berlín.
Við erum náttúrulega búnir að
plana þetta Danmerkurdæmi í
kannski tvö ár þegar maður tekur allt
saman. Dönum fannst sérkennilegt
að við værum að opna nýja plötubúð
árið 2006, því plötubúðum fækkar
víðast hvar. En við sjáum ákveðna
möguleika, þetta er ákveðin aðferð.
Við erum með búðina fyrir opnum
tjöldum sem andlit út á við fyrir
miklu stærri hlut. Það er frábær leið
til að skapa tengsl sem nýtast fyrir
tónleikahald og ýmislegt annað.“
Ásgeir Valur Flosason er gítarleik-
ari og einn fimmmenninganna í Jeff
Who? sem spilar á Vega. Hann segir
tónleikaferðina framundan verða
mjög stutta: „Þetta verður hreint
eins og að fara út á land. Við komum
þarna á föstudeginum, verðum eitt-
hvað smá í Köben, spilum um kvöldið
og förum heim strax næsta dag. Við
bara komum, spilum og förum. Rokk
og búið, bless.“
Áttu von á því að tónlistin höfði til
Dana?
„Já alveg eins. Ég gæti alveg trúað
því. Það bara kemur í ljós. Ég læt þig
vita á föstudaginn.“
Er von á meiri landvinningum?
„Framtíð þessarar hljómsveitar er
alls óráðin. Við bara tökum hverja
tónleika í einu. Við erum ekkert að
stefna á frekari utanlandsferðir, bara
aðeins hérna á Íslandi, en það á eftir
að sýna sig.“
Tónlist | Jeff Who?, Hudson Wayne og Eberg í útrás
Íslenskum hljóm-
sveitum komið
á kortið í Danmörku
Morgunblaðið/Sverrir
Á flugi Ásgeir Valur Flosason, Þormóður Dagsson, Elís Pétursson og
Bjarni Lárus Hall í Jeff Who? Þorbjörn Sigurðsson vantar á myndina.
Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson
hsb@mbl.is
ÞÝSKI danshöfundurinn Pina
Bausch er væntanleg hingað til lands,
en hún er einn af virtustu danshöf-
undum heims. Hún kemur hingað til
lands ásamt Wuppertal-leikhúsinu,
sem er undir hennar stjórn, og mun
hópurinn sýna verkið Aqua sem var
unnið í samráði við borgaryfirvöld í
Sao Paolo í Brasilíu. Alls koma um 50
manns til landsins vegna sýning-
arinnar sem verður sýnd fjórum sinn-
um, dagana 17.,18.,19. og 20. sept-
ember.
Pina Bausch fæddist í Þýskalandi
árið 1940 og byrjaði 15 ára gömul
dansnám við Folkwang-skólann í
Essen, meðal annars undir hand-
leiðslu Kurts Joos, en hún lauk þar
námi árið 1959. Þaðan lá leiðin til
New York þar sem hún nam við hinn
virta Juilliard-skóla. Þegar hún sneri
heim tveimur árum síðar dansaði hún
við Folkwang-ballettinn sem sóló-
dansari um nokkurra ára skeið, þar á
meðal undir stjórn Kurts Joos.
Feril sem danshöfundur hóf hún
með verkinu Fragmente eða Brot ár-
ið 1968 og skömmu síðar Im Wind
der Zeit eða Í golu tímans sem vann
til verðlauna í danshöfundakeppni
Kölnar. Hún tók fljótt við listrænni
stjórn Folkwang-ballettsins og starf-
aði þar jafnt sem stjórnandi, danshöf-
undur og dansari þar til henni var
boðin staða stjórnanda Wuppertal-
óperuballettsins. Pina tók með sér
dansara úr gamla flokknum sínum og
hóf að byggja upp þennan öfluga
flokk sem að hluta starfar enn með
henni. Frá því Pina tók við stjórn
ballettsins í Wuppertal hefur hróður
hans vaxið og hefur hún unnið til ótal
verðlauna og viðurkenninga um heim
allan og flokkur hennar verið einn af
eftirsóttustu dansflokkum heims.
Pina Bausch
kemur
til landsins
Eftirsóttur Wuppertal sýnir fjórum
sinnum hér á landi.
Einn af virtustu
danshöfundum heims
DANSKA mynd-
listarkonan Birthe
Jörgensen verður
fyrsti fyrirlesarinn
í fyrirlestraröð sem
opni Listaháskólinn
stendur fyrir í vet-
ur. Birthe mun
fjalla um skapandi
iðnað í London og
þau nýju tækifæri
og margþættu hlut-
verk sem hafa
skapast í kjölfarið
fyrir unga lista-
menn. Fyrirlest-
urinn fer fram í húsnæði LHÍ í Laugarnesi klukk-
an 12.30 og stendur yfir í rúman klukkutíma.
Fyrirlestur
Ný tækifæri fyrir
unga listamenn
Fjallað verður um skapandi iðn-
að í fyrirlestrinum.
Bókabúð Ný-
hils, Gallerí
Humar eða
frægð,
Smekkleysa
og Elvis eru
nú öll komin
undir sama
þak að Klapp-
arstíg 27 í
miðbæ
Reykjavíkur,
en efnt var til
samkvæmis í tilefni af sameiningunni á fimmtu-
daginn. Þar er því að finna sannkallaða menning-
armiðstöð þar sem fólk getur notið tónlistar, bók-
mennta og myndlistar, auk þess sem hægt er að
kaupa notuð föt í Elvis.
Fólk
Bækur, tónlist,
föt og myndlist
Elvis er kominn á Klapparstíg.
ÍSLANDSATLAS Eddu út-
gáfu, fékk þrenn gull-
verðlaun á ESRI-ráðstefn-
unni sem haldin var í San
Diego í Bandaríkjunum, en
um er að ræða stærstu ráð-
stefnu heims á sviði korta-
og landupplýsingakerfa.
Íslandsatlas Eddu vann
verðlaun sem besti kortaat-
lasinn, en meðal keppenda í þeim flokki var Nat-
ional Geographic. Atlasinn vann einnig vinsælda-
verðlaun fólksins, Peoples choice, og að lokum var
hann valinn „Best Overall“, sem þýðir að hann var
valinn fremstur þeirra 10 verka sem verðlaunuð
voru. Á myndinni eru þeir Hans H. Hansen korta-
gerðarmaður og Örn Sigurðsson, kortaritstjóri
Eddu útgáfu, með verðlaunin.
Bókmenntir
Íslandsatlas vinnur
til verðlauna