Morgunblaðið - 28.08.2006, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 25
lok hvers lags og enn meira í lok tónleikanna.
Á efnisskrá tónleika Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands var óperutónlist, aríur og dúett-
ar, m.a. úr Carmen eftir Bizet, Machbeth og
Rigoletto eftir Verdi, Faust eftir Gounod, og
Rakaranum frá Sevilla eftir Rossini. Ein-
söngvarar voru Arndís Halla Ásgeirsdóttir,
sópran, Sigríður Aðalsteinsdóttir, messósópr-
an, Kolbeinn Ketilsson, tenór, Ólafur Kjartan
Sigurðarson, baritón og Kristinn Sigmunds-
son, bassi. Stjórnandi á tónleikunum var Guð-
mundur Óli Gunnarsson.
Tónleikarnir voru í boði BM Vallár, í tilefni
60 ára afmælis fyrirtækisins, en dagskráin
var hin sama og á fyrri tónleikum sveit-
arinnar og söngvaranna fimm á Klambratúni
á Menningarnótt í Reykjavík viku áður.
Að tónleikunum loknum kallaði kynnir
kvöldins, Arnar Jónsson leikari, á svið mann-
inn sem hafði þann stórhug að gefa þjóð sinni
þessa tónleika – eins og leikarinn orðaði það;
Víglund Þorsteinsson forstjóra BM Vallár.
Víglundur ávarpaði samkomuna, en sú tala
var reyndar mjög stutt. Hann tilkynnti ein-
göngu að hann myndi ekki syngja!
Orgel eða hross?
Tónleikunum lauk klukkan laust fyrir hálftíu
og um það bil klukkustund síðar hófst loka-
atriði Akureyrarvöku á Ráðhústorgi þar sem
fjöldi fólks var saman kominn og ekki var
stemningin síðri þar en á Kaupfélagshorninu
sem einu sinni var.
Hluti torgsins hafði verið þökulagður og á
iðjagrænu grasinu var boðið upp á tískusýn-
ingu þar sem sýndur var fatnaður og hár-
greiðslur, gerðar af meistara höndum. Lát-
bragðsleikarinn Kristján Ingimarsson gerði
mikla lukku með óborganlegu atriði þar sem
hann dró gamalt orgel langa leið – eða var
þetta hross? Kristján skellti alltjent hnakki á
orgelið auk þess að járna skepnuna. Áður en
yfir lauk hafði hann reyndar kveikt í kvik-
indinu, sem líklega var orgel eftir allt saman.
Um leið voru tendruð blys sem sýningarstúlk-
urnar gengu með um svæðið undir fögrum
karlaröddum félaga í Karlakór Akureyrar –
Geysis, sem söng Brennið þið vitar, og fé-
lagar í björgunarsveitinni Súlum settu svo
punktinn yfir i-ið með glæsilegri flugeldasýn-
ingu. Blys voru þá tendruð á þökum nokkurra
nærliggjandi húsa og dökkur ágústhimininn
veggfóðraður með margslungnu og marglitu
munstri.
Atriði var kynnt sem „ævintýraleg blanda
tísku, látbragðs, kórsöngs og sprenginga“, og
víst er að það voru engar ýkjur.
Fyrr um daginn hafði margt verið í boði,
sem fyrr segir, fyrir unga sem aldna. Fólki
var boðið í sund um morguninn; gat rennt
fyrir fisk, skoðað báta og bíla, keppt á fjalla-
hjólum og skoðað sérkennileg sjávardýr, svo
fátt eitt sé nefnt. Tónlistaratriði voru hér og
hvar og myndlistarsýningar opnaðar; til dæm-
is var opnuð í Listasafninu sýning á verkum
þeirra sem tilnefndir eru til Íslensku sjón-
listaverðlaunanna 2006. Þeir eru Hildur
Bjarnadóttir, Katrín Sigurðardóttir og Mar-
grét H. Blöndal myndlistarkonur, hús-
gagnahönnuðurinn Guðrún Lilja Gunnlaugs-
dóttir og fatahönnuðurinn Steinunn
Sigurðardóttir, auk arkitektanna Margrétar
Harðardóttur og Steves Christers hjá Stúdíói
Granda.
Þá var síðla kvölds boðið upp á svokallaða
draugagöngu í umsjá Minjasafnsins og Leik-
félags Akureyrar. Alls þáðu um 300 manns
göngugerð með þeim draugum en leiðin lá frá
Minjasafninu út að Samkomuhúsi.
Það voru ekki bara heimamenn sem
skemmtu sér í miðbænum á laugardags-
kvöldið því töluverður fjöldi fjöldi útlendinga
var bæði á sinfóníutónleikunum og annars
staðar. Mikið var að gera á veitingastöðum og
fjöldi fólks á kaffihúsum, inni og úti.
Gjöf til friðar
Mikil fjöldi fólks mætti á fjölskylduhátíð
skáta að Hömrum við Kjarnaskóg á Akureyri
á laugardaginn og þar var raunar nánast um-
ferðaröngþveiti um tíma. Hátíðin var hluti
dagskrár Akureyrarvöku, og þar var einnig
haldinn húsgagna- og flóamarkaður þar sem á
boðstólum var alls kyns smádót og notuð hús-
gögn og ný. Margir gerðu þar góð kaup og
studdu í leiðinni gott málefni, því allur ágóði
af hátíðinni rennur milliliðalaust til þróun-
arhjálpar í Mósambík. Þetta verkefni er þátt-
ur í Gjöf til friðar, verkefni sem skátar um
allan heim eru að vinna að í tilefni 100 ára af-
mælis skátastarfs í heiminum.
rúmslofti og við finnum að bæjarbúar kunna
mjög vel að meta þetta.“
Veður var gott framan af degi en undir
kvöld tók að rigna, en fólk virtist ekki láta
það skemma fyrir sér. Einn og einn dró upp
regnhlíf en svo stytti upp á ný skömmu eftir
að stóru tónleikarnir hófust og fólk skemmti
sér greinilega konunglega; margir sungu með
og dönsuðu á staðnum og vel var klappað í
við Morgunblaðið. Aðstandendur Akureyr-
arvöku auglýstu hana í ríkisútvarpinu með
slagorðinu „Menningarsnobb fyrir alla“, og
sagði Þórgnýr ástæðu þess að „við vildum
gera mátulegt grín að okkur sjálfum. En það
segir þó ákveðna sögu; við viljum að þetta sé
rómantískt, stemningin róleg og að rökkrið
njóti sín. Afskipti okkar hjá bænum snúast
fyrst og fremst um að koma á ákveðnu and-
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
við hljóðfæraleik og söng. Veðurguðinn stríddi fólki ögn í byrjun með nokkrum dropum en síðan var afbragðsveður á meðan tónlistarveislan stóð yfir.
Akureyrarvaka
Sigríður Aðalsteinsdóttir, Kristinn Sigmunds-
ttir komu fram með Sinfóníuhljómsveitinni.
Orgelhestur? Kristján Ingimarsson látbragðsleikari fór á kostum í atriði þar sem hann dró gam-
alt orgel um Ráðhústorgið, settist á bak því, járnaði það eins og hest og kveikti í því á endanum.
Takk! Víglundur Þorsteinsson, forstjóri BM
Vallár, sem bauð upp á tónleikana í tilefni 60
ára afmælis fyrirtækisins, heilsar upp á Guð-
mund Óla Gunnarsson, stjórnanda Sinfón-
íuhljómsveitar Norðurlands. Til vinstri er
Kristinn Sigmundsson.