Morgunblaðið - 28.08.2006, Side 38
38 MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Sun 10/9 kl. 14 Sun 24/9 kl. 14
Lau 30/9 kl. 14 Sun 1/9 kl. 14
VILTU FINNA MILLJÓN?
Lau 2/9 kl. 20 Sun 3/9 kl. 20 UPPS.
Fim 7/9 kl. 20 Sun 10/9 kl. 20
FOOTLOOSE
Fim 31/8 kl. 20 Lau 9/9 kl. 20
Fim 21/9 kl. 20 Fös 22/9 kl. 20
EYFI STÓRTÓNLEIKAR
Fös 1/9 kl. 20
Fös 1/9 kl. 22
MANNAKORN
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
Þri 5/9 kl. 20
Þri 5/9 kl. 22
HÖRÐUR TORFA
AFMÆLISTÓNLEIKAR
Fös 8/9 kl. 19:30
Fös 8/9 kl. 22
PINA BAUSCH
LOKSINS Á ÍSLANDI!
Dansleikhúsið frá Wuppertal undir stjórn
Pinu Bausch verður með 4 sýningar á
verkinu Aqua í Borgarleikhúsinu.
Sun 17/9 kl. 20
Mán 18/9 kl. 20
Þri 19/9 kl. 20
Mið 20/9 kl. 20
Aðeins þessar 4 sýningar.
Miðaverð 4.900.
MIÐASALA HAFIN.
OPIÐ HÚS
Sunnudaginn 3.september verður opið hús
í Borgarleikhúsinu. Allir velkomnir.
ÁSKRIFTARKORT
Endurnýjun áskrftarkorta stendur yfir!
Mein Kampf e. George Tabori
Amadeus e. Peter Shaffer
Fagra veröld e. Anthony Neilson
Dagur vonar e. Birgi Sigurðsson
Söngleikurinn Grettir e. Ólaf Hauk Símonar-
son, Þórarinn Eldjárn og Egil Ólafsson.
Lík í óskilum e. Anthony Neilson
Ronja ræningjadóttir e. Astrid Lindgren
Viltu finna milljón? e. Ray Cooney.
Belgíska Kongó e. Braga Ólafsson
Íslenski dansflokkurinn
og margt, margt fleira.
Kortasala hafin!
Áskriftarkort er ávísun á góðan vetur. Vertu með!
Litla hryllingsbúðin - síðustu aukasýningar!
Lau. 2/9 kl. 19 UPPSELT
Lau. 2/9 kl. 22 ný aukasýn – sala hafin!
Sun. 3/9 kl. 20 UPPSELT
Fös. 8/9 kl. 19 örfá sæti laus
Lau. 9/9 kl. 19 örfá sæti laus
Lau. 9/9 kl. 22 ný aukasýn – sala hafin!
Sun. 10/9 kl. 20
Fös. 15/9 kl. 19
Lau. 16/9 kl. 19 örfá sæti laus
www.leikfelag.is
Miðasala 4 600 200
ÞRIÐJU Berjadagatónleikar Ólafsfirðinga voru háðir
undir yfirskriftinni Strengleikar í höfuðkirkju bæjarins.
Kom þar fram staðbundið hljómburðarsérkenni er ég
hafði ekki áður veitt eftirtekt, þ.e.a.s. hvað leikhljóm-
urinn gat aftast í kirkju stundum virzt líkt og úr hátal-
ara. Sennilega stóð það eitthvað í sambandi við hálf-
rörlaga loftið, er myndað getur „phasing“-kennd áhrif ef
spilari stendur á ákveðnum stað við altarið. Ekki reynd-
ist það þó trufla svo neinu næmi.
Hinar sex sellósvítur Bachs hafa allt frá endur-
uppgötvun Pablos Casals fyrir liðlega hundrað árum
verið helgustu vé einleikssellóbókmennta. Gunnar Kvar-
an lék nr. 3 í C-dúr af mikilli og heyranlegri innlifun,
jafnvel þótt honum skjöplaðist nokkuð í Allemande (II)
og að hluta í Courante (III); e.t.v. fyrir minnisgloppu.
Sarabandan (IV) var hins vegar upphafin í kyrrlátri tign
sinni, og lokaþátturinn (Gigue) skartaði dunheitri 6/8-
sveiflu og smekklegum skreytingum við hæfi í end-
urtekningum.
Fúgan úr 1. sónötu Bachs fyrir einleiksfiðlu endurbirt-
ist þessu næst í svo að segja gegnlýstri mynd með út-
setningu Guðnýjar Guðmundsdóttur fyrir tvær fiðlur og
víólu er leyfði þannig raddfærslunni að njóta sín betur en
jafnvel stjörnufiðlarar á við Heifetz og Oistrakh megn-
uðu einir og óstuddir. Með því að dreifa lagrænu athygl-
inni milli spilara af talsverðu hugviti sló konsertmeist-
arinn hér nokkrar flugur í senn – gerði hlust- og
samspilsvæna útfærslu, og einnig kjörna inngangskynn-
ingu fyrir langt komna fiðlunemendur áður en þeir
leggja til atlögu við nafntogaðan fingurbrjótinn í upp-
haflegri útgáfu. M.ö.o. kennslufræðilegt kólumbusaregg!
Hinar tvær litlu íslenzku þjóðlagaútsetningar fyrir
fiðlu og selló – Sofðu unga ástin mín (er gæti verið eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson) og Góð börn og vond sem
Guðný og Gunnar pöntuðu hjá Herberti H. Ágústssyni
fyrir hljómleikaför til Kanada – hljómuðu fallega í fyrra
fallinu og af krafti í því síðara. Luku þær fúgutríóstöllur
síðan vel heppnaðri dagskránni með viðamiklum Ter-
zetto Dvoráks Op. 74 fyrir tvær fiðlur og víólu af safa-
ríkri syngjandi og smitandi leikgleði.
Miðað við hvað tónleikaskráin gætti þess í hvívetna að
íslenzka hvert einasta ítalska þáttaheiti innan sviga var
dálítið skondið að nefna ekkert annað um verkin, hvað þá
plássófrek ártöl. Þó ekki væri nema fyrir aðeins lengra
komna hlustendur …
Gegnlýstur fingurbrjótur
TÓNLIST
Ólafsfjarðarkirkja
J.S. Bach: Sellósvíta nr. 3 í C BWV 1009; Fúga úr einleiksfiðlu-
sónötu í g BWV 1001 úts. f. tvær fiðlur & víólu. Herbert H.
Ágústsson: Tvær íslenzkar þjóðlagaútsetningar f. fiðlu & selló.
A. Dvorák: Terzetto Op. 74 f. tvær fiðlur & víólu. Guðný Guð-
mundsdóttir & Pálína Árnadóttir fiðla, Unnur Sveinbjarnardóttir
víóla, Gunnar Kvaran selló. Laugardaginn 19. ágúst kl. 20:30.
Berjadagar á Ólafsfirði
Morgunblaðið/ÞÖK
Guðný Guðmundsdóttir „Fúgan úr 1. sónötu Bachs
fyrir einleiksfiðlu endurbirtist þessu næst í svo að segja
gegnlýstri mynd með útsetningu Guðnýjar.“
Ríkarður Ö. Pálsson
SUMARTÓNLEIKAFERÐ Stuð-
manna lauk með stórdansleik í
íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi á
laugardagskvöld. Húsfyllir var enda
biðu margir spenntir eftir að sjá
hvaða söngkona kæmi í stað Birgittu
er einmitt eiginkona Stefáns Karls
Stefánssonar leikara sem hefur ver-
ið að skemmta með Stuðmönnum að
undanförnu og það má því segja að
hálfgerð fjölskyldustemning hafi
ríkt á sviðinu á Seltjarnarnesi.
Haukdal, sem er stödd erlendis og
gat því ekki sungið með sveitinni. Í
ljós kom að það var leikkonan Stein-
unn Ólína Þorsteinsdóttir sem
hreppti hnossið, en hún hljóp í
skarðið í þetta eina skipti. Steinunn
Stuð Áhorfendur voru vel með á nótunum.
Steinunn Ólína söng með Stuðmönnum
Bleikir Valgeir, Egill og Stefán Karl voru í góðum gír.
Morgunblaðið/Eggert
Samvinna Stefán Karl lamdi húðir á meðan eiginkonan, Steinunn Ólína, þandi raddböndin.
ÞAÐ gæti orðið erfitt valið fyrir þá
sem ætla sér að kaupa áskrift að Tí-
brártónleikum í Salnum í vetur.
Segja má að þar komi fram rjómi
ungra íslenskra tónlistarmanna, auk
erlendra listamanna sem sumir
hverjir virðast hafa tekið ástfóstri
við Salinn.
Nýbakaður Evrópumeistari í
Bachspilverki, Elva Rún Kristins-
dóttir, leikur á tónleikum í febrúar-
lok, en sem kunnugt er hreppti hún
fyrsta sætið í Bachkeppninni í Leip-
zig á dögunum. Meðleikari hennar
verður faðir hennar, Kristinn Örn
Kristinsson og þau leika verk eftir
Hafliða Hallgrímsson, Ra-
vel, Schumann, – og auðvitað Bach.
Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á
tvennum tónleikum í Salnum í vet-
ur, fyrst á ljóðatónleikum með Guð-
rúnu Jóhönnu Ólafsdóttur í október,
þar sem Grieg og Schumann verða
á dagskránni, og svo í maí, þar sem
hann leikur verk eftir Bach,
Beethoven, Brahms, Chopin og Ólaf
Óskar Axelsson.
Reka Szilvay, einn mesti fiðluleik-
ari Finna í dag leikur með landa
sínum, Heini Kärkkäinen í byrjun
nóvember, en árlegir fullveldistón-
leikar Salarins í ár verða helgaðir
tónskáldinu Árna Björnssyni.
Sjaldséður gestur
Teremkvartettinn sem gerði allt
vitlaust í salnum í fyrra kemur aft-
ur í vetur, og verða vonandi jafn-
skemmtilegir.
Viðar Gunnarsson er sjaldséður
gestur á íslensku tónleikasviði, enda
búinn að starfa lengi erlendis. Hann
verður í salnum í byrjun mars. Viku
seinna verður þar annar listamaður
sem sést alltof sjaldan á sviðinu, en
það er Valgerður Andrésdóttir pí-
anóleikari. Efnisskrá hennar er
mjög forvitnileg, – þar eru verk eft-
ir Peteris Vasks, Toru Takemitsu,
Franz Mixa, Mozart og Liszt.
Þeim sem heyrðu Bjarna Thor
Kristinsson syngja í salnum fyrir
nokkrum árum gleymist varla sú
stund, og í janúarlok er von á
Bjarna aftur á Tíbrártónleika í
Salnum.
Listinn yfir tónleika vetrarins er
mun lengri en hér er upp talið, –
enda vel á fjórða tug tónleika í röð-
inni. Dagskrá verður í Salnum
næsta laugardag kl. 13.30, þar sem
tónleikaröðin verður kynnt.
Tónlist | Tíbrárröð Salarins kynnt
Unga fólkinu gert
hátt undir höfði
Morgunblaðið/Jim Smart
Píanóleikarinn Víkingur Heiðar
leikur á tvennum tónleikum.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Bassasöngvarinn Bjarni Thor
Kristinsson syngur í janúar.
TENGLAR
..............................................
www.salurinn.is