Morgunblaðið - 28.08.2006, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 39
flugan
Gerður Kristný, Edda Andrésdóttir
og Ragnhildur Sverrisdóttir.
Gréta Guðmundsdóttir
og Diljá Þórhallsdóttir.
Brynja Dögg Friðriksdóttir, Auðbjörg
Ólafsdóttir og Tinna Magnúsdóttir.
Helga Vala Helgadóttir
og Áslaug Skúladóttir.
Elín Vigdís Guðmundsdóttir og Sig-
urbjörg Sæunn Guðmundsdóttir.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Jón Már Héðinsson og Rósa
Líney Sigursveinsdóttir.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Rúnar Þór Sigursteinsson og Reg-
ína Margrét Gunnarsdótttir með
Gunnar Sölva Guðmundsson.
Sara Karen Þórisdóttir, Unnur Ragnarsdóttir,
Ragna Ragnars og Kristín Larsdóttir Dahl.
Morgunblaðið/Eggert
Brynhildur Þorgeirsdóttir
og Hrönn Harðardóttir.
Gunnlaugur Helgason
og Ágústa Valsdóttir.
Soffía Sigurgeirsdóttir og
Ragna Sæmundsdóttir.
»Óperutónleikar voru
haldnir í Listagili á
Akureyrarvöku að við-
stöddu fjölmenni.
»Stuðmannadansleikur var
haldinn í íþróttahúsinu við
Suðurströnd.
» Í Listasafni Reykja-
víkur kynntu auglýs-
endur sér breytingar á
Morgunblaðinu.
»Fjölmiðlakonur komu
saman í húsnæði Kafara-
félagsins í Nauthólsvík.
Glöggt er tískuaugað
Guðjón Pedersen, Steinunn Knúts-
dóttir og Þorsteinn S. Árnason.
FLUGA var á stressflugi í mið-
bænum í hádeginu á föstudaginn og
þurfti að skjótast í KB banka í Aust-
urstræti en þar reyndist aðeins einn
gjaldkeri að störfum og það „sökkar sko feitt“. Allir
hinir voru í mat. Er ekki kominn tími til þess að ís-
lenskir bankamógúlar líti aðeins upp úr útrásaræðinu
og átti sig á því að þeir reka þjónustufyrirtæki? Það
hlýtur að vera hægt að næra gjaldkerana á öðrum
tímum. Bankamenn vildu örugglega ekki mæta á rétt-
um tíma í bíó og þurfa að bíða eftir að sýning hæfist
meðan starfsmenn hökkuðu í sig kjötbollur og kál.
Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) hefur nú
hreiðrað um sig í hinum gömlu höfuðstöðvum Land-
helgisgæslunnar á Seljavegi 32 en frú Dorrit Moussa-
ieff er sérstakur verndari hússins. Mikill fjöldi fólks
mætti til að samgleðjast listamönnunum við opnunina,
skoðaði hvað listafólkið er að bralla á vinnustofunum
sínum og naut veitinga í formi léttvíns, konfekts og
jarðarberja. Viðstaddir voru kátir í hátíðarskapi og
Björgólfur Guðmundsson stórathafnamaður smellti
smekklegum kossi á kinn Þorgerðar Katrínar Gunn-
arsdóttur menntamálaráðherra en hún leit listavel vel
út með geggjaðan bleikan varalit. Á svæðinu voru líka
leikstjórinn Ágúst Guðmundsson, leikkonan Edda
Þórarinsdóttir og Rannveig Rist, forstjóri Alcan, sem
var í sexí hælaskóm með leðurbandi yfir granna ökkl-
ana. Jón Óskar, nýskipaður aðalútlitshönnuður Fróða,
var „hipp“ með grænu plastgleraugun sín og Bragi
Kristjónsson, bóksali og vitringur, var líka búinn að
dubba sig upp með hárautt bindi af tilefninu. Óskar
Jónasson kvikmyndagerðarmaður var í hlutverki upp-
boðshaldara og var tilbreyting í að sjá hann í gler-
fínum jakkafötum. Öll listaverkin seldust. Ekki að
spyrja að því þegar peningamenn fá áhuga á listinni.
Magnús Hreggviðsson, fyrrverandi Fróðaverja-
forstjóri, spókaði sig í bænum sama dag og tilkynnt
var um sölu gömlu tímaritaútgáfunnar hans; brúnn og
í beigelitum fötum. Gísli Marteinn Baldursson borg-
arfulltrúi var einnig á rölti í Aðalstræti. Sjálfstæð-
ismaðurinn var að reyna að vera virðulegur í jakkaföt-
um en elsku Gísli minn, ekki skella sjúskuðum
bakpoka yfir múnderinguna! Sárabætur fyrir þetta
tískuslys var götutískusýningin sem fór fram á Skóla-
vörðustíg þegar borgarbúar röðuðu sér eftir gang-
stéttum og dáðust að módelunum sem sýndu fatnað
frá ER og hár og förðun ættaða úr herbúðum 101
Hárhönnun. Benóný Ægisson leikskáld kíkti við og
Björn Brynjólfur Björnsson kvikmyndagerðarmaður
var að filma viðburðinn. Það var leðurlykt í loftinu
þegar ný glæsiverslun, húsgagnaverslunin Heima,
opnaði nýja búð með stæl í Síðumúla 30 á föstudaginn
og slegið upp veglegri veislu. Marta María Jón-
asdóttir, ritstjóri Veggfóðurs, var auðvitað að
„mingla“ innan um húsgögnin og það gerði Egill Eð-
varðsson kvikmyndagerðarmaður líka. Húsgögnin svo
glæsileg að búðin ætti frekar að heita Að heiman … |
flugan@mbl.is
… en hún leit listavel vel út með geggjaðan bleikan varalit …
Gamanmyndin Þú, ég og Dupree
(You, Me and Dupree) getur varla
talist til mikils nýjabrums í gam-
anmyndalandslagi Hollywood. Líkt
og langflestar gamanmyndir sem
koma frá Hollywood þessa dagana
fjallar hún um tvö meginþemu:
Annars vegar um karlmann eða
vinahóp karlmanna sem ekki vilja
verða fullorðnir, og hins vegar um
þá togstreitu sem viðkomandi karl-
menn upplifa er þeir reyna að haga
sér eins og fullorðnir menn, sem
felur undantekningarlaust í sér þá
stöðu að vera meginfyrirvinna
heimilis sem inniheldur kynþokka-
fulla en kröfuharða eiginkonu. Örfá
nýleg dæmi um þessa tegund kvik-
mynda eru, auk Þú, ég og Dupree,
The Benchwarmers, RV, Click, Old
School 1 & 2 og The Wedding Cras-
hers en hér mætti lengi áfram telja
og rekja sig eins og leið liggur aft-
urábak í kvikmyndasöguna.
Í Þú, ég og Dupree segir frá
æskuvinunum Carl Peterson (Matt
Dillon) og Randy Dupree (Owen
Wilson), en þeir tilheyra hópi vina
sem hittast reglulega til að drekka
og horfa á boltann. Á meðan allt
gengur eins og í sögu hjá Carl, sem
er í upphafi myndar að fara að gift-
ast hinni fullkomnu konu, barna-
skólakennaranum Molly (Kate
Hudson) og er á uppleið í starfi
sínu sem hönnuður hjá stóru verk-
takafyrirtæki, er Dupree fastur í
fari hins óábyrga eilífðarunglings.
Þegar Carl og Molly koma úr brúð-
kaupsferðalaginu er Dupree kom-
inn á götuna eftir að hafa misst
vinnuna og hin nýgiftu hjón geta
ekki annað en skotið yfir hann
skjólshúsi „í nokkra daga“. Dag-
arnir verða talsvert fleiri en upp-
haflega stóð til, enda fer bara vel
um Dupree í fína nýja húsinu þeirra
Peterson-hjóna.
Gamanframvindan sem á eftir
fylgir er fremur spör á fyndnina,
enda má segja að Þú, ég og Dupree
sé uppteknari af vandamálunum og
dramanu í kringum ástarþríhyrn-
inginn milli aðalsöguhetjanna en
gamanhliðinni á málum. Miðjan í
þeim ástarþríhyrningi er reyndar
ekki Cate, eins og margir kynnu að
halda, heldur Carl, sem Dupree á
erfitt með að sleppa hendi af í faðm
Cate. Þessi ástarþríhyrningur
kemst þó í réttar skorður þegar
Carl fer að gruna þau Dupree og
Cate um græsku, en e.t.v. er það þó
Dupree fremur en Cate sem lendir í
miðju þríhyrningsins í þeirri fram-
vindu. Það má því segja að myndin
sé hvorki fugl né fiskur, þar sem
dramatíska hliðin er frekar mátt-
laus, enda ekki ætlað að vera í for-
grunni. Hvað leikframmistöðu varð-
ar er það Owen Wilson sem heldur
myndinni á floti með sínum
áreynslulausa gamanleik og trú-
verðugu túlkun á eilífðarbarninu
Dupree. Kate Hudson fer vel með
sitt hlutverk, og hefði vel mátt gefa
henni meira svigrúm til að spreyta
sig á gamanleiknum, en þess í stað
er hennar hlutskipti að mestu það
að vera nöldrandi eiginkona. Matt
Dillon er slakur í sínu hlutverki og
sama er að segja um Michael Dou-
glas sem leikur tengdaföður og yf-
irmann Carls. Þú, ég og Dupree er
fyrir vikið fremur óeftirminnileg
dæmigerð Hollywood-gamanmynd
sem hefur sig þó vel yfir lágkúruna
sem viðgengst í gamanmyndagerð-
inni.
Strákurinn sem vildi ekki verða stór
KVIKMYNDIR
Þú, ég og Dupree
(You, Me and Dupree)
Leikstjórn: Anthony og Joe Russo. Aðal-
hlutverk: Matt Dillon, Kate Hudson og
Owen Wilson. Bandaríkin, 108 mín.
Heiða Jóhannsdóttir
Seinþroska „Hvað leikframmistöðu varðar er það Owen Wilson sem held-
ur myndinni á floti með sínum áreynslulausa gamanleik.“