Morgunblaðið - 28.08.2006, Page 40
40 MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
EIN-
MITT!
HVERNIG GETURÐU LÁTIÐ
GANGA Á EFTIR ÞÉR ÞEGAR
ÞÆR HLAUPA SEM HRAÐAST
Í HINA ÁTTINA?
SVONA
KOMIÐ!
KALLI VAR AÐ EIGNAST
LITLA SYSTUR. HANN ER AÐ
GEFA SÚKKULAÐIVINDLA!
TIL HAMINGJU
KALLI
TAKK
FYRIR
ÞAÐ
ÞETTA MÆTTI
ALVEG GERAST
OFTAR
REYNDU BARA
AÐ LENDA EKKI Á
HÁKARLI!
HÉR STÖNDUM VIÐ OG
BÚUM OKKUR UNDIR AÐ
BRUNA Á ÞESSUM
STÝRISLAUSA SLEÐA, NIÐUR
BREKKUNA OG Í ÁTT AÐ
GLJÚFRINU!
VIÐ HORFUMST Í AUGU VIÐ
EITTHVAÐ SEM GÆTI ORÐIÐ
OKKAR BANI
...OG AF
HVERJU GERUM
VIÐ SVONA
N0KKUÐ?
ÞVÍ VIÐ
FÁUM
BORGAÐ?
NEI!
VEGNA ÞESS
AÐ VIÐ
GETUM ÞAÐ!
ÉG SKIL ÞIG
KALLINN MINN.
KONAN BRÁÐNAR
EKKI HELDUR Í
HÖNDUNUM Á MÉR
FASTAN ER AÐ NÁLGAST.
HVAÐ VERÐA MARGIR Í MAT Í
ÁR?
MIG
LANGAÐI AÐ
RÆÐA ÞAÐ
AÐEINS VIÐ
ÞIG
ÉG ER AÐ VERÐA OF
GÖMUL TIL AÐ HALDA
ÞESSI MATARBOÐ
ÉR ER AÐ SPÁ Í AÐ
SLEPPA ÞESSU Í ÁR
ÆTLARÐU
AÐ HVAÐ?
HA, HA
VOÐA
FYNDIÐ
MAMMA!
NEI, Í
ALVÖRU
ÉG
ÆTLA AÐ
TAKA VIÐ
AF ÞÉR
KALLINN
MINN
ÞAÐ VÆRI GÓÐ LEIÐ TIL
AÐ FELA SIG FRÁ
LÖGREGLUNNI ÉG ÆTLA AÐ KÍKJA
Á TÖKUSTAÐINN
HINN EINI SANNI NASHYRNINGUR HEFUR
GÓMAÐ MANNINN SEM ÞÓTTIST VERA HANN...
Á MEÐAN...
ÞEGAR KVENMENN ERU
ANNARSVEGAR ÞÁ LÆT ÉG
GANGA Á EFTIR MÉR
1.
Duglegum strák - má hafa sérstakt
útlit - jafnvel vera nördalegur - þó
ekki skilyrði.
Allir sem geta leikið koma þó
til greina.
3.
Rauðhærðum strák - mjóslegnum
og fornum í útliti.
Allir rauðhærðir koma þó til greina.
2.
Kátri og hressri stelpu - þarf að
geta verið ákveðin, ráðrík
og jafnvel frek.
Allar sem geta leikið koma þó
til greina.
4.
Allskonar krökkum á aldrinum
11-13 ára í ýmiss konar
aukahlutverk.
Óskum eftir leikurum á aldrinum
11-13 ára til að leika stór hlutverk
í nýrri íslenskri kvikmynd.
Umsóknir með mynd berist til auglýsingadeildar Morgunblaðsins fyrir
5. september merktar KVIKMYNDALEIKUR 2006
eða sendist með tölvupósti á taka@taka.is
Heilmikil sýning helguðheilsu og vellíðan, 3LEXPO, verður haldin íEgilshöll dagana 7. til 11.
september.
Ólafur Örn Jónsson er við-
burðastjóri Vivus sem sér um skipu-
lagningu dagskrárinnar: „Í sýning-
unni taka þátt öll helstu fyrirtæki
landsins á sviði heilsu og vellíðunar.
Fjölmargar uppákomur verða í Eg-
ilshöll sýningardagana, yfir 80 fyr-
irlestrar af ýmsum toga og skemmti-
atriði auk fjölbreyttra sýningarbása
þar sem gestir geta fengið að skoða,
prófa, njóta og smakka hvers konar
vöru og þjónustu,“ segir Ólafur Örn.
Sýningin er sú fyrsta sem haldin
er í Egilshöll sem verður þar með
stærsta sýningarhús landsins. Mikl-
ar framkvæmdir hafa staðið yfir til
að undirbúa sýninguna og var meðal
annars keypt heildstætt sýning-
arkerfi sem býður upp á betri kynn-
ingarmöguleika en áður hafa verið á
vöru- og þjónustusýningum hér-
lendis. „Það hefur vantað sýningu af
þessu tagi hérlendis, þar sem koma
saman undir einu þaki öll helstu
þjónustufyrirtæki sem sérhæfa sig í
heilsu og vellíðan landsmanna. Það
mun örugglega koma gestum
skemmtilega á óvart hversu fjöl-
breytt sýningin verður en sýnendur
kynna allt frá húsgögnum og líkams-
ræktaráhöldum til snyrtivara og
fæðubótarefna, nuddmeðferðir og
líkamsrækt,“ segir Ólafur Örn.
Meðal þess sem upplifa má á sýn-
ingunni í Egilshöll er stærsta Barna-
land Íslandssögunnar sem starfrækt
er í samstarfi við Heilsuakademíuna.
Sett hefur verið upp í Egilshöll fyrsta
sérsmíðaða hérþjálfunarbrautin hér
á landi á vegum Heilsuakademíunnar
og haldið verður Reykjavíkurmót í
skvassi á glervelli sem sérstaklega
var fluttur til landsins og er þeim eig-
inleikum gæddur að áhorfendur geta
fylgst með leiknum frá öllum hliðum.
Hnefaleikanefnd ÍSÍ verður með
sýningarbardaga og gestir geta jafn-
vel spreytt sig í köfun í sérstakri köf-
unarlaug á sýningarsvæðinu.
3L EXPO-sýningin er sölusýning
og ugglaust hægt að gera góð kaup:
„Að fara með alla fjölskylduna á sýn-
inguna kostar álíka og bíóferð og
gildir aðgöngumiðinn alla sýning-
ardagana. Það má gera skemmti-
legan fjölskyldudag úr heimsókninni
og foreldrarnir geta skilið börnin eft-
ir í barnalandinu, þar sem þau
skemmta sér konunglega, og snætt á
Sportbitanum eða Conditori Copen-
hagen sem verða með veitingasölu á
sýningunni,“ segir Ólafur Örn.
Nánari upplýsingar um sýninguna
má finna á slóðinni www.3lexpo.is.
Sýning | 3L EXPO Egilshöll 7.–11. sept.
Ólafur Örn
Jónsson fæddist í
Lundí í Svíþjóð
1975. Hann lauk
stúdentsprófi frá
Verslunarskóla
Íslands 1995 og
hlaut atvinnu-
flugmannsrétt-
indi frá Flug-
skóla Íslands árið 2000. Ólafur Örn
leggur stund á nám í viðskiptafræði
með vinnu. Frá 1996 til 2006 starf-
aði Ólafur Örn hjá Altech sem við-
skipta- og verkefnastjóri. Hann hef-
ur verið viðburðastjóri hjá Vivus
síðan í mars 2006. Ólafur er kvænt-
ur Sólborgu Sumarrós Sigurð-
aróttur gullsmið og eiga þau tvö
börn.
Stórsýning um
heilsu og vellíðan
Borgaryfirvöld í Glasgow á Skot-landi kanna nú hvort Keith
Richards, gítarleikari rokksveit-
arinnar Rolling Stones, hafi brotið
reykingabann, sem er í gildi í land-
inu, þegar hljómsveitin lék á tón-
leikum í Hampden Park á föstudag-
inn. Sjónarvottar segja, að Richards
hafi verið með sígarettu í munninum
alla hljómleikana.
Takist borgarráði Glasgow að
færa sönnur á þetta á Richards yfir
höfði sér 50 punda sekt, jafnvirði
6.600 króna. Hampden Park gæti
einnig þurft að greiða 250 pund í
sekt fyrir að framfylgja ekki banni
við reykingum á opinberum sam-
komum.
Fólk folk@mbl.is