Morgunblaðið - 28.08.2006, Page 44

Morgunblaðið - 28.08.2006, Page 44
44 MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. dagbók Víkverji flutti í nýtthúsnæði í sumar og þurfti að sinna inn- kaupum og alls konar vafstri sem fylgir bú- ferlaflutningum. Hann lenti nokkrum sinnum á ungu afleysingafólki sem var ekki starfi sínu vaxið. T.a.m. þurfti hann að jagast við orkufyrirtæki sem sendi honum svo háa rafmagnsreikninga vegna nýja húsnæð- isins að þeir voru aug- ljóslega alveg út í hött. Afleysingafólkið var því ekki sammála og Víkverji þurfti að hringja fjórum sinnum í fyrirtækið til að fá það til að leiðrétta mistökin. Fyrsti afleysingamaðurinn kenndi leigusalanum um en það var alger- lega tilhæfulaust. Víkverji talaði við annan mann sem ráðlagði honum að lesa af rafmagnsmælinum. Þegar Víkverji hringdi aftur til að greina frá tölunni á mælinum sagði annar afleysingamaður að reikningarnir væru réttir; Víkverji þyrfti að leita til rafvirkja vegna þess að líklega væri um að ræða „rafmagnsleka“ í ein- hverju heimilistæki. Þetta var en- demisbull. Í stað þess að eyða pen- ingum í rafvirkja hringdi Víkverji enn einu sinni í fyr- irtækið í von um að fá að tala við einhvern sem hefði einhverja þekkingu á þjónustunni sem fyrirtækið veitir. Og viti menn, nú svar- aði eldri kona sem sá um leið og Víkjverji las töluna að fyrri aflestur var rangur og reikning- arnir því alltof háir. Víkverji lenti einnig í argaþrasi við af- greiðslufólk raftækja- verslunar vegna gall- aðrar vöru sem hann keypti. Eftir að hafa aflað sér upplýsinga á netinu í aðeins tíu mínútur var Víkverji kominn með meiri þekkingu á umræddum galla en afgreiðslufólkið. x x x Verslanir og önnur þjónustufyr-irtæki þurfa að þjálfa af- greiðslufólkið betur. Þetta á ekki að- eins við um afleysingafólkið. Í sumum matvöruverslunum er t.a.m. fast starfsfólk sem þekkir ekki al- gengar grænmetis- og ávaxtateg- undir. Það ætti ekki að vera erfitt að kenna starfsliðinu að þekkja græn- metið, sem er á boðstólum, því að úr- valið er lítið. víkverji skrifar | vikverji@mbl.is             Orð dagsins: Ég, ég er Drottinn, og enginn frelsari er til nema ég. (Jes. 43, 11.) Í dag er mánudagur- 28. ágúst, 240. dagur ársins 2006 árnað heilla ritstjorn@mbl.is velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Þjónustuólund á Hafinu bláa við brúarsporðinn FYRIR nokkru fórum við á þennan rómaða veitingastað og fegnum okk- ur fiskisúpuna indælu. Þjónustan og matur var til fyrirmyndar. Síðan komum við í gær og hugð- umst fá samskonar þjónustu. Nán- ast tómur salur og veðrið frábært. Ég kalla á gengilbeinu, myndarkonu og spyr um laust borð við gluggann. Ekkert laust, allt upppantað, er svarað þurrlega. En áttu laust sæti, spyr ég. Já, þarna fyrir innan, er sagt í sama tón. Við fáum okkur sæti og bíðum. Gengilbeinan kemur eftir smá bið og spyr önuglega hvað sé hægt að gera fyrir okkur. Ég bið um matseðil. Það eru bara súpur á boð- stólum, er svarað, og enginn matseð- ill. Fylgir salat með, spyr konan mín. Þú getur svosem fengið salat, er svarað í sömu tóntegund. Var það eitthvað fleira? Daman fer við svo búið og hverfur inn fyrir. Okkur var svo nóg boðið að við stóðum upp við svo búið og fórum. Ég hringdi síðan á staðinn og bað um yfirmann eða eiganda sem kom í símann. Kvenmannsrödd svarar og ég segi henni erindi mitt. Einustu viðbrögðin voru að þurrlega var sagt „okkur þykir þetta leitt“. Mér finnst þessi framkoma fyrir meðan allar hellur og ekki gott vöru- merki þessa veitingastaðar. Þrymur Sveinsson. Þjóðin hyllir Ómar ÞAÐ er löngu orðið tímabært að sjónvarpsáhorfendur sendi Ómari Ragnarssyni þakkir og votti honum virðingu fyrir frábær störf hans í sjónvarpi. Ómar átti á sínum tíma heima í Stórholti, hann hefur alltaf hugsað stórt, eins og þjóð hans hefur orðið vitni að í sambandi við störf hans, flug og kvikmyndir frá hálendi Íslands. Kærar þakkir, Ómar. Þjóð- in hyllir þig. Pétur Pétursson, þulur. Fyrirspurn til Flugmálastjórnar ÓMAR Ragnarsson er að fljúga austur að Kárahnjúkastíflu með far- þega og sýna og kynna hvað skeður ef eitthvað fer úrskeiðis. Nú spyr ég Flugmálastjórn, hvað skeður ef eitthvað fer úrskeiðis hjá Ómari í lendingu eða flugtaki? Hvaða öryggisráðstafanir eru til staðar ef óhapp verður? Flugáhugamaður. Morgunblaðið/RAX TF-FRÚ Ómar Ragnarsson lendir flugvél sinni á melnum við Kringilsárrana. 75 ÁRA afmæli.Í dag, 28. ágúst, er 75 ára Svanhildur Ólöf Eggertsdóttir (Lóa), Suðurgötu 43, Siglufirði. Hún er að heiman í dag en í tilefni afmæl- isins býður hún ættingjum og vinum til fagnaðar laugardaginn 2. september kl. 15–19 í sal Skálahlíðar. Brúðkaup | Gefin voru saman í Ár- bæjarkirkju 12. ágúst sl. af sr. Önnu Sigríði Pálsdóttur þau Atli Már Guð- mundsson og Steinunn Jónsdóttir. Heimili þeirra er í Kjarrhólma 22. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostn- aðarlausu. Tilkynningar þurfa að ber- ast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100 eða sent á netfangið ritstjorn@mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON H.J. MBL. eee S.U.S. XFM 91,9 SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA V.J.V. TOPP5.IS eeee eeee S.U.S. XFM 91,9. eeee TOMMI KVIKMYNDIR.IS B.J. BLAÐIÐ rúmlega 60.000 gestir 4 vikur á toppnum á Íslandi ! JAMIE FOXX COLIN FARRELL SVALASTA SPENNUMYND SUMARSINS FRÁ MICHAEL MANN LEIKSTJÓRA “COLLATERAL” OG “HEAT” eee LIB - TOPP5.IS eee HJ - MBL með Owen Wilson (Wedding Crashers) sem fer á kostum, ásamt Kate Hudson, Matt Dillon og Michael Douglas. 60.000 gestir GEGGJUÐ GRÍNMYND Ein fyndnasta grínmynd ársins YOU, ME AND DUPREE kl. 5:50 - 8 - 10:10 PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 9 - 10:30 B.i. 12.ára. SUPERMAN kl. 5:30 - 8:30 B.i. 10.ára. THE BREAK UP kl. 5:30 Leyfð 5 CHILDREN AND IT kl. 6 Leyfð LADY IN THE WATER kl. 8 - 10:20 B.i. 12 PIRATES OF THE CARIBBEAN: 2 kl. 6 - 9 SNAKES ON A PLANE kl. 8 - 10:10 B.i. 12 THE SENTINEL kl. 8 B.I.14 HALF LIGHT kl. 10:10 B.I.16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.