Morgunblaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 48
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 240. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: auglysingar@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691122
mbl.is: netfrett@mbl.is
NA 3–8 m/s, en
hvessir síðan
heldur vest-
anlands. Rigning norðan-
og austanlands, en víðast
bjartviðri um sunnan- og
vestanvert landið. » 8
Heitast Kaldast
16°C 16°C
HJÓLREIÐAMENNINGIN er greinilega í
miklum blóma hjá krökkunum í Grímsey eins
og sjá má af þessum fríða hópi. Þrátt fyrir að
Senn er sumarið á enda en jafnvel þótt dag-
urinn sé ekki farinn að styttast um of er eins
gott að einhver lýsi leið með stýrisluktina á.
regnboginn skarti sínu fegursta verður ekki
séð að bleyta trufli hjólreiðafólkið, enda hefur
sólin skinið skært í eynni síðastliðnar vikur.
Ljósmynd/Helga Mattína
Hjólað við heimskautsbaug
ÞRJÁR sprengingar urðu í
tyrknesku hafnar- og ferða-
mannaborginni Marmaris í
gærkvöldi, eftir miðnætti að
tyrkneskum tíma. Samkvæmt
fyrstu fregnum AFP-frétta-
stofunnar beið enginn bana í
tilræðunum en sextán særðust,
þar af tíu Bretar og fjórir
þeirra alvarlega. Talsverður
hópur Íslendinga er í borginni
og voru þeir allir sagðir
ómeiddir.
Ein af sprengjunum sprakk skammt frá hóteli
um 30 Íslendinga. Ragnheiður Haraldsdóttir,
sem þar dvelur ásamt dóttur sinni, sagði að
sprengingin hefði orðið í ruslatunnu í innan við
100 metra fjarlægð frá hótelinu.
Héldu sig innandyra
„Við vorum nýsofnaðar þegar við vöknuðum
við sprenginguna,“ sagði hún. Hinar sprengj-
urnar tvær hefðu sprungið við höfnina þar sem
ferðamenn væru jafnan flestir en hún sagðist
hafa þær upplýsingar frá fararstjóra Úrvals-
Útsýnar að enginn Íslendingur hefði meiðst í
sprengingunum. Eftir að sprengingin kvað við
dreif að lögreglu- og sjúkrabíla. Öllum götum
var lokað og taldi Ragnheiðar réttast að halda
sig innandyra.
Að sögn Ragnheiðar eru flestir Íslendinganna
á hótelinu eldra fólk eða ungmenni og töluverð
ónot gerðu vart við sig í hópnum. Margir ræddu
um að fara fyrr heim en til stóð en Ragnheiður
segist þó ekki búast við að af því verði.
Dóttirin byrjuð að pakka niður
„Við erum búnar að vera hér í tvær vikur ekki
á morgun heldur hinn og þá voru áformin þau að
fara heim. Ég sé reyndar að dóttir mín er að
pakka.
Okkur verður líklega ekki svefnsamt í nótt.
Við notum síðasta daginn í að slappa af og kom-
um svo heilu og höldnu heim á þriðjudaginn,“
sagði hún.
Vaknaði við sprengingu
Þrjár sprengingar í tyrknesku borginni Marmaris Ein skammt frá hóteli
Íslendinga Verður ekki svefnsamt í nótt, sagði Ragnheiður Haraldsdóttir
ÓVENJULEGT smyglmál kom til
kasta sýslumannsins á Keflavíkur-
flugvelli á fimmtudag en þá var
þriggja manna fjölskylda, hjón á
fertugsaldri með barn á þriðja ári,
stöðvuð við komuna til landsins frá
Kaupmannahöfn. Karlmaðurinn
hafði gleypt um hálft kíló af hassi
og telur lögregla að fólkið hafi von-
ast til að það yrði síður stöðvað
vegna þess að barn var með í för.
Skv. upplýsingum frá sýslu-
villa um fyrir tollgæslu og lögreglu-
mönnum. „Það er ljóst að verið er
að láta líta svo út að hefðbundin
fjölskylda sé á ferð. Okkur finnst
það með ólíkindum óskammfeilið
og að fólkið skuli hafa verið með
barn með sér við slíka smygltilraun
sýnir að því er ekkert heilagt,“ seg-
ir Jóhann. Málið er talið upplýst og
verður tilkynnt til barnaverndar-
yfirvalda.
Fólkið hefur búið hér á landi um
tíma, maðurinn er frá S-Ameríku
en konan frá N-Afríku. Hvorugt
hafði áður komið við sögu lögreglu.
manninum á Keflavíkurflugvelli
vaknaði grunur um að karlmaður-
inn væri að smygla fíkniefnum inn-
vortis og fékkst það staðfest með
röntgenmyndatöku.
„Ekkert heilagt“
Fremur óvenjulegt er að menn
séu teknir með hass sem þeir hafa
gleypt, hvað þá í svo miklu magni
sem um ræðir í þessu tilviki, að
sögn Jóhanns R. Benediktssonar,
sýslumanns á Keflavíkurflugvelli.
Þá minnist hann þess ekki að fólk
hafi reynt að nota lítið barn til að
Fjölskyldufaðirinn með
hálft kíló af hassi innvortis
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
»Nánast allur meltingarvegurmannsins var fullur af hass-
fylltum smokkum. Hann var flutt-
ur á sjúkrahús meðan beðið var
eftir því að fíkniefnin skiluðu sér.
»Um tíma var maðurinn á gjör-gæsludeild vegna hjartslátt-
artruflana og lá á gjörgæsludeild
þegar síðasti smokkurinn gekk
niður þremur sólarhringum eftir
handtökuna.
Í HNOTSKURN
SÚ NÝBREYTNI að veita sérhæfða
sjúkrahústengda þjónustu við veika aldr-
aða í heimahúsi fer að öllum líkindum af
stað um mánaðamótin september/október.
Þetta er nýtt úrræði sem nýtast mun öldr-
uðum sem lokið hafa meðferð á Landspít-
ala – háskóla-
sjúkrahúsi
(LSH) en eru
enn of veikburða
til að sjá um sig
sjálf heima og fá
ekki inni á
hjúkrunarheim-
ili vegna pláss-
skorts.
Verkefninu er
m.a. ætlað að
vinna á útskrift-
arvanda spít-
alans. „Það er
eðlilegt að þeir
öldruðu sem geta verið heima eða á hjúkr-
unarheimilum séu þar í stað þess að vera á
sjúkrahúsi, sem hentar þessum hópi ekki
sérstaklega vel,“ segir Siv Friðleifsdóttir
heilbrigðisráðherra og tekur fram að hún
fagni þessu nýja úrræði sem hún hafi lagt
mikla áherslu á að koma mætti í fram-
kvæmd sem fyrst.
Kostar 67 milljónir króna á ári
LSH og Heilsugæsla höfuðborgarsvæð-
isins auglýstu í gær eftir hjúkrunarfræð-
ingum, sjúkraliðum og félagsliðum til þess
að taka þátt í teymisverkefni til að móta,
þróa og byggja upp umrædda þjónustu við
aldraða í heimahúsum. Að sögn Margrétar
Hallgrímsson, starfandi hjúkrunarfor-
stjóra LSH, leggur spítalinn auk þessa til
hjúkrunarfræðing, lækni, sjúkraþjálfara
og iðjuþjálfa, sem meta munu hverja sé
hægt að útskrifa og í framhaldinu veita
þeim einstaklingum heimahjúkrun.
Aðspurð segist hún gera ráð fyrir að
strax í haust þegar þjónustan fari af stað
verði hægt að útskrifa um tuttugu aldraða
af spítalanum. Segir hún þjónustuna fela í
sér mikið innlit, allt að átta til tíu skipti á
dag. Spurð um kostnað segir hún ráðgert
að heildarpakkinn kosti árlega alls 67 millj-
ónir króna. Spurð um framhaldið segir
Margrét að ef reynslan verði góð sé mögu-
legt að efla þjónustuna og útskrifa fleiri.
„Þetta er spennandi nýbreytni og það verð-
ur gaman að sjá hvort þetta tekst vel.“
Sjúkrahús-
tengd heima-
þjónusta með
haustinu
MARGAR jarðir hafa skipt um eig-
endur í Vopnafirði á síðustu árum og
hefur jarðaverð hækkað fyrir vikið.
Jóhannes Kristinsson hefur fjárfest
í jörðum í Sunnudal, Hofsárdal,
Vesturárdal og Selárdal í Vopnafirði
fyrst og fremst til að byggja upp
veiðiárnar, sem þar eru. Hann lítur
svo á að hækkun jarðaverðs sé til
góðs og fólki verði ekki haldið vilji
það fara.
Jóhannes kveðst ósammála þeim,
sem telji jarðakaupin vera slæma
þróun fyrir bændur og sveitirnar.
Nú fái bóndinn laun erfiðis síns.
„Hins vegar heldur maður ekki fólki
ef það vill fara og þá er spurningin
einfaldlega sú hvort það fái eitthvað
fyrir sitt eða ekki,“ segir hann. | 12
Heldur ekki
fólki ef það
vill fara
Ragnheiður
Haraldsdóttir