Morgunblaðið - 05.09.2006, Side 6
6|Morgunblaðið
Fitusog án skurðaðgerðar
• Á aðeins 10 dögum færðu árangur sem jafnast á við fitusog
• Húðin stinnist og appelsínuhúðin hverfur
• Þú ert mæld,magi rass og læri, fyrir og eftir
• Öflugasta cellómeðferð hingað til sem stittir biðtímann um margar vikur
• 6 mismunandi aðferðir notaðar á þig til að skila sem mestum árangri
• 100% ánægja þegar meðferðinni er lokið...
Verð: 37.400,-
Ef þú pantar strax í dag Minna Mál grenningarmeðferðina færðu hana
á tilboðsverði kr: 21.900,-
Hringdu núna, síminn er: 577 7007
Kínastofan • Stórhöf›i 17 • 110 Rvk
S
igrún Grendal opnaði
dansskóla fyrir átta ár-
um sem sérhæfir sig í
Afródönsum. „Ég var
þá nýkomin heim frá
Gíneu þar sem ég lærði af einum
virtasta Afrókennara í heimi
Moustapha Bangoura. Gínea er oft
nefnd Mekka dans- og tónlistar í
Afríku en ég hef farið þangað á ári
hverju í ein 9 ár.
Það eru reyndar 20 ár síðan
Sigrún fór á sitt fyrsta Afró-
námskeið. „Ég fann samstundis
fyrir kraftinum sem fylgir dans-
inum, bæði andlegum og lík-
amlegum. Síðar, þegar Moustapha
kom til Íslands að halda sín nám-
skeið, fóru að renna upp fyrir mér
enn aðrir leyndardómar sem ég
hafði ekki uppgötvað áður. Það má
segja að ég hafi fundið sálina í
dansinum, merkingu hvers spors
sem síðan tilheyrir ákveðnum takti
sem hefur svo sitt nafn og þýð-
ingu.
Hvert land í Afríku hefur sína
sérstöku dans- og tónlistarmenn-
ingu og hún er ólík milli landa.
Sigrún segir að sér hafi verið
ótrúlega vel tekið í öll skiptin sem
hún heimsótti og dvaldi í Gíneu.
„Það var eins og innfæddir litu á
það sem köllun sína að gera mig
að verðugum umboðsmanni dans-
listarinnar,“ segir hún hlæjandi.
En hvað er það sem heillar við
Afródansinn? „Hann er ekki ald-
ursbundinn og hefur ekkert með
vaxtarlag og þyngd dansarans að
gera. Allir geta notið þess að
dansa og fundið þá ánægjutilfinn-
ingu sem hríslast um kroppinn
þegar lifandi trommuslátturinn
hrífur mann með sér. Við Íslend-
ingar erum villtir og ástríðufullir
þegar á reynir. Síðan fylgir sá
bónus Afródansinum að hann er
orkufrekur og því stórhættlegur
þaulsetnum kaloríum.“
Húsdans, Reggaeton-dans
og Balkan-dansar
Kramhúsið er að hefja sitt tutt-
ugusta og fjórða starfsár og þar
verða ýmis spor stigin í vetur. „Á
meðal nýjunga í vetur verður svo-
kallaður húsdans eða það sem á
ensku nefnist „Housedance“ sem
nýtur vaxandi vinsælda í Evrópu,
einkum Frakklandi og tengist
samnefndri tónlistarstefnu. Dans-
inn er sambland af hip-hop-dansi
og fönki,“ segir Vigdís Arna Jóns-
dóttir í Kramhúsinu. „Þá verðum
við í suður-amerískum dansbræð-
ingi við Reggaeton-danstónlist og
með Balkan-dansa en danshefðin á
Balkan-skaganum er óvenju ríku-
leg. Þar dansar fólk á öllum aldri
saman við ýmis tækifæri, byrj-
endur og lengra komnir, við takt
tónlistarinnar sem margslunginn
og óvenjulegur.“
Vigdís segir greinilegt að dans-
sveifla hafi riðið yfir landið und-
anfarin ár enda sé dansinn góð
hreyfing og skemmtileg líkams-
rækt. „Það er sérstaklega gaman
að sjá hvað strákar á öllum aldri
eru að taka við sér.“
Salsa, jive og fugladansinn
Það er gott að hafa grunn í
samkvæmisdönsunum því þeir nýt-
ast oft á fínni dansleikjum og
árshátíðum fyrir utan að vera
skemmtileg íþrótt og iðja. „Jive,
cha cha cha, mambó, salsa og fleiri
eru vinsælir samkvæmisdansar en
aðsóknin hefur aukist mjög síðustu
ár og jafnvel hjá unglingum,“ seg-
ir Kara Arngrímsdóttir hjá Dans-
skóla Jóns Péturs og Köru. „Við
erum bæði með námskeið fyrir
byrjendur og eins þá sem eru að
keppa í samkvæmisdönsum. Fyrir
litla fólkið eru námskeið þar sem
við kennum börnunum að hreyfa
sig í takt við tónlistina, syngja og
leika. Sígildu dansarnir eins og
fugladansinn, fingrapolkinn og
skósmíðadansinn eru að sjálfsögðu
í grunnnámsefninu. Eldri börnin
og unglingar læra fyrstu sporin í
nokkrum samkvæmisdönsum,
skottís og léttir Freestyle-dansar
eru líka á dagskránni.“
Freestyle og söngleikjadansar
Dansskóli Birnu Björnsdóttur
sérhæfir sig í svonefndum Free-
style-dönsum. „Það eru nokkrir
dansstílar sem koma þar við sögu
eins og „hip hop“ og „street
dance“, segir Birna Björnsdóttir
danskennari. „Við sérhæfum okk-
ur einnig í söngleikjakennslu en
þar leggjum við mikla áherslu á
leikræna tjáningu og sviðs-
framkomu. Á hverju ári er nem-
endasýning þar sem nemendur á
öllum námskeiðum vetrarins koma
fram á stórri sýningu í Borgarleik-
húsinu. Birna á gott samstarf við
systur sínar, þær Guðfinnu
Björnsdóttur dansara og Selmu
Björnsdóttur söngkonu. „Við Guð-
finna höfum lengi unnið saman
sem danshöfundar í söngleikjum,
bæði fyrir atvinnuleikhúsin og
Verslunarskóla Íslands. Meðal
þeirra söngleikja sem við höfum
staðið að eru Grease, Fame og
Kalli á þakinu. Þá hefur Selma
verið tíður gestur í skólanum og
kennt nemendum í söngleikjum,
sviðsframkomu og tjáningu. Það
er ómetanlegt að eiga samleið með
systrum sínum í listinni og án efa
verður áframhald á okkar sam-
starfi.“
Dansinn dunar í vetur
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Samkvæmisdans Nýtur
sívaxandi vinsælda og um
að gera að taka sér gott
rými á dansgólfinu á
árshátíðinni eftir slíkt
námskeið.
Morgunblaðið/Ómar
Línudans Kúrekinn hefur tekið sér bólfestu í mörlandanum.
Dans er talinn hafa fylgt manninum frá
örófi alda og oft hefur hann gegnt mikilvægu
samfélagslegu hlutverki. Dans hefur oft verið
hluti af helgiathöfnum eins og vígslum, hjóna-
böndum, frjósemisathöfnum, en er auðvitað hin
besta skemmtun og líkamsrækt.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ballett Klassískur dans sem iðkendur búa að alla ævi.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Þjóðdansar Skemmtilegir dansar fyrir unga sem aldna.
Morgunblaðið/Jim Smart
Afródans Landinn dáir taktfastan dansinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Magadans Íslenskar konur hafa
fallið fyrir magadansinum sem er
munúðarfull líkamsrækt.
ȃg fann sam-
stundis fyrir
kraftinum sem
fylgir dansinum,
bæði andlegum og
líkamlegum.
Morgunblaðið/Ali Vigfússon
Barnadans Fugladansinn vekur alltaf lukku.