Morgunblaðið - 05.09.2006, Page 10
10|Morgunblaðið
Viltu laga línurnar?
Fagleg heilsurækt
Frábær a›sta›a
Frábær lífsstíls námskei›
Frábær sta›setning
Nánari uppl‡singar um fleiri námskei›
og stundaskrá fyrir hausti› 2006 á
www.hreyfigreining.is
Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
Jakobína
Sigur›ardóttir,
sjúkrafljálfari BSc
framkvæmdastjóri
Arna Hrönn
Aradóttir,
Rope-Yoga kennari
Gígja fiór›ardóttir,
sjúkrafljálfari BSc
Hólmfrí›ur
fiorvaldsdóttir,
danskennari
Sandra Dögg
Árnadóttir,
sjúkrafljálfari BSc
Harpa Helgadóttir,
sjúkrafljálfari BSc,
MTc, MHSc
Talya Freeman,
Jógakennari
Joga flæ›i
N‡ námskei› eru a› hefjast
Í formi til
framtí›ar
Örfá pláss enn laus.
Joga Flæ›i
Kröftugt Joga – mótar
líkamann og róar hugann.
Skráning stendur yfir.
Hefst 9. september.
Bumban
burt
Námskei›i› er a› fyllast.
Líkamsrækt
Einkafljálfun hjá sjúkra-
fljálfurum. Frábær a›sta›a
til a› æfa á eigin vegum
á flægilegum sta›.
Opnir tímar. Stundaskrá:
www.hreyfigreining.is
Dans-
kennsla
Byrjenda- og framhalds-
námskei› byrja
14. september.
Mó›ir og
barn
Bókanir eru hafnar í fimm
vikna námskei› Söndru
Daggar Árnadóttur.
Námskei›i› byrjar 19.09.
Fullt
Heilsa og hreyfing
É
g var þriggja ára þeg-
ar ég steig fyrst á
skíði, í Kirkjubrekk-
unni á Dalvík. Bróðir
minn Sverrir var að
æfa og dró mig með sér á æfingu.
Jú, ég á honum líklega margt að
þakka. Hann keypti líka handa
mér fyrstu skíðin,“ segir Björgvin.
Á unglingsárunum sneri Sverrir
sér að fótboltanum en Björgvin
hélt áfram á skíðunum og á nú að
baki farsælan feril sem enn sér
ekki fyrir endann á. ,,Í vetur
keppi ég bæði í Evrópubikarnum
og Heimsbikarnum. Það er mjög
gaman. Ég ferðast víða og kynnist
mörgu nýju fólki. Æfingarnar eru
auðvitað strangar en þetta er auð-
vitað ævintýralíf,“ segir hinn 26
ára gamli skíðakappi sem nú er
staddur í Austurríki við æfingar.
,,Ég hef aldrei verið kuldaskræfa
og finnst útiveran frábær. Íþróttin
sjálf er líka spennandi, maður á í
sífelldu kappi við tímann. Maður
er alltaf að reyna að bæta sig.“
Stafganga
Stafganga á rætur sínar að
rekja til Finnlands en hún nýtur
vaxandi vinsælda hér á landi. Þeg-
ar snjóa tók að leysa létu þjálfarar
gönguskíðamanna þar í landi
kappana arka um með stafina til
þess að halda efri hluta líkamans í
þjálfun. Nú er þessi tegund hreyf-
ingar stundum af milljónum og
hentar jafnt ungum sem öldnum,
keppnisfólki sem og þeim sem
vilja hreyfa sig hóflega. Stafirnir
veita góðan stuðning á göngu og
einnig á línuskautum þar sem þeir
eru gott öryggistæki.
Allt sem þarf til að stunda staf-
göngu eru góðir skór og sérhann-
aðir stafir í réttri hæð. Hægt er
að æfa hvar sem er og hvenær
sem er, einsamall eða í góðra vina
hópi.
Skíðaganga
Fjöldi Íslendinga stundar skíða-
göngu, einkum á landsbyggðinni
þar sem snjórinn er heldur meiri
en á höfuðborgarsvæðinu. Þar er
víða mikil gróska og til marks um
það er að um 80 Íslendingar ætla
að taka þátt í Vasa-göngunni á
næsta ári. Þar á meðal eru þaul-
reyndir skíðamenn en einnig þeir
sem stundað hafa íþróttina í
skemmri tíma.
Snjóbretti
Hjá unga fólkinu njóta snjó-
bretti mikilla vinsælda og það er
ótrúlegt hvað það er leikið í
íþróttinni.
Björgvin Björgvinsson,
Íslandsmeistari í alpa-
greinum, æfir stíft og
ferðast víða um heim
til þess að keppa.
Spennandi Björgvin lifir flökkulífi því æfingar og keppni krefjast mikilla ferðalaga. Hann keppir bæði í Evrópubikarnum og Heimsbikarnum.
Morgunblaðið/Golli
Skíðagöngugarpur Haukur Eiríksson fagnar sigri í skíðagöngu.
Björgvin Björgvinsson
Morgunblaðið/Kristján
Vetraríþróttir