Morgunblaðið - 05.09.2006, Side 19
Morgunblaðið |19
Quick start pakkinn, allt sem þú þarft til að koma þér af stað
HUGSANLEGA HOLLASTI
MORGUNMATUR
Í HEIMI
Jónína Ósk Lárusdóttir, s: 845 4582
www.heilsufrettir.is/jol • netfang: jol77@torg.is
Sjálfstæður dreifingaraðili Herbalife
GJÖF FYLGIR HVERJUM KEYPTUM PAKKA
Hópmeðferð - Innsæismeðferð
Í september hefst hópmeðferð fyrir fullorðna einstaklinga sem vilja efla
samskipti, starfsgetu, sköpunargleði, bæta andlega og líkamlega líðan.
Í hverjum hópi verða 8-10 manns sem mæta 3 sinnum í viku. Meðferðin
byggir á “psychoanalytiskum” grunni, þ.e. kenningum sálgreiningar sem
hafa verið þróaðar með tilliti til hópa.
Að meðferðinni stendur þverfaglegt teymi. Í teyminu eru Anna K.
Kristjánsdóttir sjúkraþjálfari, Halldóra Halldórsdóttir listmeðferðarfræðingur,
Hanna Unnsteinsdóttir félagsráðgjafi og Ragnheiður Indriðadóttir sálfræðingur.
Ráðgefandi geðlæknir starfar við teymið.
Umsóknir óskast sendar á: Hópmeðferð/Kjörgarði, Laugavegi 59,
101 Rvk, eða á netföng: halldorah@heima.is, ragnhind@simnet.is.
Geymið auglýsinguna
BLÁA lónið hefur opnað nýja
Blue Lagoon-verslun og þjónustu
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í
versluninni eru seldar Blue Lago-
on-húðvörur og boðið upp á orku-
meðferðir. Er þetta í fyrsta skipti
sem slík þjónusta er boðin í Leifs-
stöð.
Orkumeðferðir fyrir hendur og
fætur eru í boði á spa-svæði
verslunarinnar. Þær byggjast á
hreinum jarðsjó úr Bláa lóninu
og Blue Lagoon-húðvörum. Þær
hreinsa húðina og veita vellíðan
og slökun, segir í fréttatilkynn-
ingu um opnum verslunarinnar.
Töluvert er lagt í verslunina.
Hún er hönnuð af ítalska hönn-
unarfyrirtækinu Design Group
Italia. Í útliti hennar er skír-
skotun til náttúrulegs umhverfis
Bláa lónsins og meðal annars set-
ur hraunveggur sterkan svip á
verslunina og vatn rennur í
veggjum.
Ný verslun Grímur Sæmundsson
forstjóri stendur á milli Emmu Ein-
arsdóttur, sviðsstjóra versl-
unarsviðs, og Önnu G. Sverr-
isdóttur framkvæmdastjóra í nýju
versluninni í Leifsstöð.
Nýtískulegt Ýmis heilsuþjónusta er veitt í nýrri Blue Lagoon-verslun í Leifsstöð. Ítalskt hönnunarfyrirtæki sá um
hönnun verslunarinnar.
Orkumeð-
ferðir í nýrri
Blue Lag-
oon-verslun
Fréttasíminn
904 1100