Morgunblaðið - 05.09.2006, Side 21
Aðstoð Það eru ekki allir svo heppnir að hafa fagfólk við að koma hárinu í lag.
Litað Permanett og önnur efnameðferð getur orsakað prótínskort í hári.
»Með aðstoð fagfólk, góðs
mataræðis og réttra hár-
efna á ekki að vera mikið
mál að ráða við hárið,
hvernig sem það er gert af
náttúrunnar hendi.
jafnaði en þá stöðvast vöxturinn og hárið
fellur að lokum og nýtt kemur í staðinn. Eftir
því sem aldurinn færist yfir fækkar svo nýj-
um hárum og hárið tekur að þynnast. Hins
vegar er eðlilegt að fólk á besta aldri missi
um 100 hár daglega en hver einstaklingur er
með um það bil 100.000 hár á höfðinu. Margt
getur valdið óeðlilegu hárlosi eins og alvar-
legir sjúkdómar, hormónabreytingar, barns-
fæðing, tilfinningaleg og líkamleg streita,
sveppasýking og vöðvabólga. Ef hárlos á
rætur sínar að rekja til geislameðferðar,
sjúkdóma eða lyfja er lítið hægt að gera en
yfirleitt vex hárið aftur þegar meðferð lýkur
eða sjúkdómar ganga yfir. Þegar um annað
er að ræða er gott ráð að taka inn B-vítamín
og borða hollan mat. Útivera og líkamsrækt
hjálpar einnig, því við hana eykst blóðflæði í
hársverðinum.“
Flasa, sá hvimleiði ári –
Hvað ber að gera?
„Flasa er eðlileg endurnýjun en hún getur
líka verið fylgifiskur hárloss eða sveppasýk-
ingar, skorts á vítamínum eða fitusýrum. Til
að sporna við mikilli flösu þarf að þvo hárið
vel og reglulega með góðu flösusjampói sem
látið er liggja í hárinu í 3–5 mínútur. Nudda
þarf sjampóinu vel í hársvörðinn og skola
með volgu vatni fremur en heitu. Það er jafn-
framt lykilatriði að láta hárið ekki þorna í
blautu tagli. Einnig er hægt að nota Funger-
al, sem er efni sem oft virkar á sveppasýk-
ingu í hársverðinum.“
Er umhirða hárs mismunandi
að vetri til og sumri ?
„Það er vissulega oft munur á ástandi
hársins á veturna og á sumrin. Á veturna
borðum við oft minna af grænmeti og ávöxt-
um og borðum þyngri og óhollari mat. Vatns-
drykkja minnkar töluvert á veturna vegna
þess að við erum oftast ekki eins þyrst á
þessum árstíma. Vatnið og hollu bitarnir
hafa góð áhrif á hárið eins og annað.“
Morgunblaðið |21
ekki í samræmi við umhverfið.
Umhverfisþættir: Ef þú ert í her-
bergi sem er of heitt eða of kalt, há-
vaðasamt eða of bjart getur það
haft áhrif á svefn og svefngæði.
Rúmið þarf einnig að vera þægi-
legt. Svefnvenjur maka hafa áhrif á
þínar svefnvenjur, sem og hávaði
heimilisfólks.
Líkamlegir þættir: Liðagigt,
bakverkir eða aðrir sjúkdómar sem
valda stöðugum óþægindum eða
verkjum hafa augljóslega áhrif á
svefn. Kæfisvefn veldur því að við-
komandi vaknar oft, en þetta veld-
ur þreytu og syfju yfir daginn.
Kæfisvefn einkennist af hrotum og
tímabundinni stöðvun öndunar.
Konur finna oft fyrir svefntrufl-
unum vegna hormónabreytinga á
meðgöngu.
Hormónabreytingar og líkamleg
einkenni sem fylgja tíðablæðingum
og tíðahvörfum geta einnig valdið
svefntruflunum.
Lyf: Mörg lyf hafa aukaverkanir
sem geta truflað svefn.
Nokkur ráð sem bæta
nætursvefninn
» Forðastu koffín, nikótín og áfengi
seint á kvöldin.
» Leggðu þig ekki á daginn.
» Hreyfðu þig reglulega.
» Gerðu reglulega eitthvað afslapp-
andi áður en þú leggst til hvílu.
» Reyndu að gera svefnumhverfið
eins þægilegt, dimmt og kyrrlátt
og mögulegt er.
» Ef þú sofnar ekki innan 30 mín-
útna skaltu fara fram úr og gera
eitthvað róandi. Reyndu að leiða
hugann frá daglegum vanda-
málum.
og rökhugsun
» Áfengi og koffín geta haft
óæskileg áhrif á svefn og svefngæði.
Kínverjar hafa í árþúsundirþróað mjög margar aðferð-ir, eins og nudd, nálastung-ur og kínverska leikfimi, til
þess að bæta heilsu og öðlast hugarró.
Guan Don Quing í Heilsudrekanum
segir að í kínversku nuddi sé unnið
með orkurásir líkamans. „Fjölbreyttri
tækni er beitt í nuddinu til þess að
byggja upp jafnvægi líkamans og auk
þess eru notaðar ýmsar olíur eftir því
hvert vandamálið er, mígreni, þung-
lyndi eða annað. Fyrir þá sem eru t.d.
þunglyndir er til sérstök olía sem hefur
jákvæð áhrif á og hjálpar fólki oft að
komast upp úr öldudalnum, ásamt
öðru. Það eru líka til olíur sem bornar
eru á iljarnar en þær, ásamt nuddinu,
koma betra jafnvægi á innri lífærin.“
Kínverskt
jafnvægi
Morgunblaðið/Ásdís