Morgunblaðið - 05.09.2006, Síða 30
B
æklingurinn heitir á
frummálinu „Giving up
for life“ og er saminn
af Jennifer Percival,
hjúkrunarfræðingi og
ráðgjafa í tóbaksvörnum, hjá Royal
College of Nuring í Bretlandi.
Bæklingurinn var þýddur og stað-
færður af Krabbameinsfélagi
Reykjavíkur en þess ber að geta að
Reykleysismiðstöð LSH og Lýð-
heilsustöð komu einnig að útgáfu
hans.“
Halla segir að það hafi tilfinn-
anlega skort leiðbeiningar og les-
efni á reykleysisnámskeiðum
Krabbameinsfélagsins og fyrir þá
sem hyggjast hætta að reykja og
því hafi verið ákveðið að þýða bækl-
inginn. „Á íslensku nefnist bækling-
urinn Hættu fyrir lífið. Þar er farið
í gegnum undirbúning að reyklausu
lífi og fólk leitt skref fyrir skref að
því markmiði að hætta að reykja
fyrir fullt og allt. Reynslan hefur
sýnt að þeir sem undirbúa sig vel
fyrir reyklaust líf ná mestum ár-
angri. Það er mikilvægt að vita á
hverju er von, hvaða tilfinningar
vakna fyrstu dagana og langanir og
hvaða pytti er best að forðast til að
byrja ekki aftur.
Taka einn dag í einu
Halla segir andlegan undirbún-
ing svona mikilvægan því mik-
ilvægt sé að reykingafólk byggi
upp jákvæða ímynd af sjálfu sér
sem reyklausum. „Breytt viðhorf
og breyttur lífsstíll er undirstaða
þess að hætta að reykja fyrir lífið
og ávinningurinn er gífurlegur. Í
bæklingnum er farið í gegnum
fjárhagslegan en ekki síst heilsu-
farslega ávinninginn af því að
hætta að reykja sem er gífurlegur.
Það er aldrei of seint að hætta því
lífslíkur aukast óháð aldri. Rann-
sóknir sýna að ef fólk er á miðjum
aldri minnka líkur á krabbameini
og ef það hættir fyrir þann aldur
minnka þessar líkurnar á reyk-
ingatengdum sjúkdómum um 90%.
Algengustu og alvarlegustu sjúk-
dómarnir sem fylgja reykingum
eru hjarta- og æðasjúkdómar,
lungnakrabbamein og fleiri krabba-
mein, langvinn lungnateppa og
fleiri lungnasjúkdómar.“
Hjúkrunarfræðingurinn segir að
þegar fólk er að hætta að reykja
þá sé mikilvægt að taka einn dag í
einu og segja við sjálfan sig:
„Fyrst ég gat það í gær þá get ég
það í dag líka.“
Tíu bestu ráðin til að
hætta að reykja fyrir lífið
Hafðu samband við fagaðila í
reykleysismeðferð, svo sem Ráð-
gjöf í reykbindindi, lækninn þinn
eða heilsugæslustöðina þína.
Skipuleggðu þig fram í tímann
til að takast á við erfiðar að-
stæður.
Veldu rólegan dag til að hætta
og haltu þig við hann.
Taktu einn dag í einu og fagn-
aðu hverjum degi.
Vertu í sambandi við einhvern
sem vill líka hætta svo þú hafir
stuðning.
Notaðu nikótónlyf eða nikótíns-
laus lyf til að takast á við tób-
akslöngun
Til að byrja með skaltu forðast
aðstæður þar sem þú gætir
freistast til að reykja.
Fylgstu með hvað þú sparar
mikla peninga – og njóttu
þeirra.
Það er ekkert sem heitir að fá
sér aðeins eina sígarettu.
Hugsaðu jákvætt – þú getur
hætt!
Hættu að reykja fyrir lífið
Út er kominn ítarlegur sjálfshjálparbæklingur
með ráðleggingum til reykleysis. Halla Grét-
arsdóttir hjúkrunarfræðingur, fræðslufulltrúi hjá
Krabbameinsfélagi Reykjavíkur, er ein þriggja
sem ritstýrðu bæklingnum.
» Algengustu og alvarlegustu sjúkdómarnir sem fylgja reykingum
eru hjarta- og æðasjúkdómar, lungnakrabbamein og fleiri
krabbamein, langvinn lungnateppa og fleiri lungnasjúkdómar.
Morgunblaðið/Sverrir
Fagaðili Halla Grétarsdóttir hjúkrunarfræðingur segir að það sé mikilvægt að fólk
taki einn dag í einu þegar það hættir að reykja.
Reyklaus Halla Grétarsdóttir
hjúkrunarfræðingur hjálpar fólki
að hætta að reykja.
30|Morgunblaðið
eitt verð, allt innifalið
Faxafeni 9 • 108 Reykjavík • s: 588 0222
Meira fjör, styttri
tími og skemmti-
legur félags-
skapur.
Hjá okkur færðu,
aðhald og stuðning
hvort sem þú þarft
að grennast eða
styrkjast. Regluleg-
ar líkamsmælingar
svo þú getir fylgst
með árangrinum.
Líkamsrækt fyrir konur
Betri heilsa á 30 mínútum
Hringdu og pantaðu
prufutíma og líkamsmælingu
50% afsláttur af þjónustugjaldi
Fyrir a
llar
konur
Curves, Bæjarlind 12 - Sími 566 6161 - curves@simnet.is