Morgunblaðið - 05.09.2006, Side 31
Morgunblaðið |31
Er maturinn málið?
• Borðar þú stundum meira en þú
hefur ákveðið?
• Felur þú hvernig þú borðar?
• Hafa matarvenjur þínar og/eða
þyngd hamlandi áhrif á líf þitt?
Við bjóðum upp á greiningu, einstak-
lingsmiðaða ráðgjöf og fræðslu.
Upplýsingar í síma 568 3868 eða
matarfikn@matarfikn.is
mfm miðstöðin
Meðferðar- og fræðslumiðstöð vegna matarfíknar
Ármúla 15, Reykjavík. www.matarfikn.is
Esther Helga Guðmundsdóttir,
ráðgjafi
Herbalife
próteinhristingur er
pakkaður af næringu.
Hugsanlega hollasti
morgunverður í
heimi.
Magnaður
morgunverður!
Jonna s: 896 0935 & 562 0935.
www.heilsufrettir.is/jonna
Þ
essi íþrótt er lygilega
skemmtileg enda mæta
hér heilu fjölskyldurn-
ar á námskeiðin og
klifra. Síðastliðin ár
hefur iðkendum stöðugt fjölgað,“
segir Sjöfn Jónsdóttir, fimleika-
kennari og leiðbeinandi á klifurn-
ámskeiðum.
„Veggjaklifur er góð íþrótt fyrir
börn sem einhverra hluta vegna
finna sig ekki í hópíþróttum því í
klifri er enginn að keppa við ann-
an, aðeins sjálfan sig. Toppurinn á
tindinum er aðeins til í huga hvers
og eins, ef svo má að orði komast.
Það geta því allir náð á toppinn
og sigrað.“
Fjölskylduvæn íþrótt
Sjöfn segir veggjaklifur sótt
jafnt af byrjendum sem og vönum
fjallageitum. „Það þarf að læra og
öðlast ákveðna tækni til þess að
klifra og klífa fjöll og hamra.
Gæta þarf að hverri hreyfingu á
leiðinni upp, hvar á næst að stíga
niður fæti og hvernig. Einnig þarf
að beita höndum og fótum á viss-
an hátt og huga að lík-
amsstöðunni. Fólk æðir því ekki
upp á snarbrattan fjallstind,“ segir
hún og brosir, enda koma margar
fjallageitur á námskeiðin til þess
að læra betri klifurtækni.
„Þeir sem eru óvanari að klífa
fjöll og firnindi koma vegna þess
að veggjaklifur er einfaldlega svo
skemmtilegt og sumir til að sigr-
ast á lofthræðslu. Þetta er
einstaklega fjölskylduvæn íþrótt
því allar kynslóðir geta stundað
hana, fengið holla hreyfingu og
átt góða samverustund í leiðinni.“
Allir
ná á
toppinn
Hjá Fimleikafélaginu
Björk er hægt að
stunda veggjaklifur á
veturna og stundar
fólk á öllum aldri
íþróttina af kappi.