Morgunblaðið - 05.09.2006, Page 37
Morgunblaðið |37
Dansrá› Íslands | Faglær›ir danskennarar Borgartún 6 | 105 Reykjavík | sími 553 6645 | fax 568 3545 | dans@danskoli.is | www.dansskoli.is
VI‹ BJÓ‹UM
UPP Í DANS
Innritun og
uppl‡singar
í síma 553 6645
e›a á dansskoli.is
†mis starfsmanna- og stéttarfélög
veita styrki vegna dansnámskei›a.
Mambó
Tjútt
Freestyle
Footloose
Salsa
Brú›arvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
Sérnámskei› fyrir hópa
N‡justu tískudansarnir
Börn – Unglingar – Fullor›nir
Frítt í heilsuræktina alla vikuna
Nýbýlavegi 24 : 200 Kópavogur : Sími 511 2111 : Fax 581 1171 : Hótel Saga : Hagatorgi : Sími 564 1011 : www.meccaspa.is
Elín Sandra Skúladóttir
Diaeta lífstílsnámskeið
Brynjúlfur Jónatansson
Hvað er jóga og kraftjóga
Páll Erlendsson
Chi Gong og Ayurveda
Gígja Þórðardóttir
Sundleikfimi
Gunnur Róbertsdóttir
Góðan dag
Sóley Jóhannsdóttir
Sóleyjarleikfimi
Margrét Skúladóttir
Jóga
Kolbrún Jónsdóttir
Pilates (sjá einnig pilates.is)
Hver er hugmyndafræðin ábak við ávísun hreyfiseðl-anna?
Rannsóknir sýna að hreyfing
dregur úr einkennum margra sjúk-
dóma og ekki aðeins það, hún get-
ur jafnvel læknað fólk af sumum.
Hugmyndin að baki ávísunum
lækna á hreyfingu felst í því að
virkja fólk sem glímir við svo-
nefnda lífsstílssjúkdóma til þess að
hreyfa sig. Hreyfiseðillinn er eins
og lyfseðill, nema að í staðinn fyrir
lyf skrifar læknirinn upp á hreyf-
ingu og sjúklingurinn þarf að
fylgja fyrirmælum hans í ákveðinn
tíma.“
En hafa læknar og sjúkraþjálf-
arar ekki notað hreyfingu sem
meðferðarform í áratugi?
„Jú, vitaskuld, en þessi nálgun
er hins vegar mun formlegri og
fylgir ákveðnu ferli þar sem árang-
ursmælingar og eftirfylgni tryggja
betri árangur. Hver og einn fær
fræðslu og stuðning sem sniðinn er
að hans þörfum. Markmiðið er að
fólk átti sig á því það verður al-
mennt sjálft að taka ábyrgð á eigin
heilsu og líðan. Hér á landi eru
hreyfiseðlarnir ekki formlega
komnir í notkun en Heilsugæslan í
Garðabæ er að fara af stað með til-
raunaverkefni sem byggir á þess-
um hugmyndum og hefur und-
irbúningur staðið yfir í nokkurn
tíma. Þetta er samstarfsverkefni
sveitarfélagsins, lækna og sjúkra-
þjálfara þar og vonandi vísir að því
að sem koma skal á landsvísu.“
Hvert er hlutverk læknisins í
þessu ferli?
„Það er læknirinn sem metur
hvert tilvik fyrir sig en það hafa
verið teknar saman einar 27 sjúk-
dómsgreiningar þar sem talið er að
hreyfiseðlar geti gefið góða raun.
Þar eru lífsstíls- og velmeg-
unarsjúkdómar áberandi. Dæmi
um þá eru offita, þunglyndi, vefja-
gigt, asmi, sykursýki 1 og 2, há
blóðfita, háþrýstingur, krans-
æðasjúkdómar, hjartabilun, bein-
þynning, slitgigt og síþreyta. Lík-
legt er að ef hreyfingu er beitt sem
2. stigs forvörn gegn þessum sjúk-
dómum hægi það á þróun þeirra,
minnki einkenni og dragi úr lyfja-
notkun.“
Hvert er hlutverk sjúkraþjálf-
arans?
„Sjúkraþjálfarinn fræðir sjúk-
linga um gagnsemi þjálfunarinnar
og gerir þjálfunaráætlun í samráði
við hann. Hann framkvæmir einnig
viðeigandi mælingar í upphafi æf-
inganna og reglulega eftir það til
þess að meta árangurinn. Þjálfunin
getur bæði farið fram undir hand-
leiðslu sjúkraþjálfara og íþrótta-
kennara, eða þá að sjúklingurinn
sér um þjálfunina sjálfur. Það fer
allt eftir því hvað hentar viðkom-
andi en leiðirnar eru fjölbreyttar
og reynt er að koma til móts við
þarfir fólks og áhuga.
Þess má líka geta að Félag sjálf-
stætt starfandi sjúkraþjálfara gerði
könnun meðal almennings fyrr á
þessu ári. Þar kom m.a. fram að
63% þeirra sem notið höfðu þjón-
ustu sjúkraþjálfara töldu að með-
ferðin hefði dregið úr notkun
verkjastillandi og bólgueyðandi
lyfja, en hreyfing er einn af lyk-
ilþáttum í meðferð sjúkraþjálfara.“
Koma hreyfiseðlar í stað lyfja?
„Hreyfiseðlar geta vissulega
komið í stað lyfja en læknir verður
að meta það hverju sinni hvernig
unnið er með þessi meðferð-
arúrræði – sitt í hvoru lagi eða
samverkandi. Hreyfing minnkar
lyfjanotkun í sumum tilvikum og
því má ætla að með tímanum geti
einstaklingar sem fylgja fyr-
irmælum hreyfiseðilsins dregið úr
lyfjanotkun. Þetta er þó allt ein-
staklingsbundið eins og gefur að
skilja.“
Aðstoð Auður Ólafsdóttir, formað-
ur Félags íslenskra sjúkraþjálfara,
segir fólk almennt jákvætt gagnvart
hreyfingu en þurfi oft leiðsögn.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Valkostur Hreyfiseðlar geta komið í stað lyfja en slíkt er metið hverju sinni.
Hreyfing dregur úr
sjúkdómseinkennum
Hreyfing er holl enda byggir hugmyndin á bak
við hreyfiseðla, sem læknar geta ávísað til sjúk-
linga, á vísindalegum rannsóknum um jákvæð
áhrif hreyfingar á heilsufar. Auður Ólafsdóttir,
formaður Félags íslenskra sjúkraþjálfara, svaraði
nokkrum spurningum um þessa nýju ávísanir.