Morgunblaðið - 05.09.2006, Page 38
Júdó er bardagaíþrótt semJapaninn Jigoro Kano þró-aði undir lok 19. aldar,byggt á enn eldri vopn-
lausri bardagaíþrótt sem heitir ju
jitsu. Eins og sú íþrótt byggist júdó
á kastbrögðum, gripum og lásum
en Kano setti auk reglna um íþrótt-
ina sjálfa strangar heiðursreglur
um samskipti íþróttamanna.
Björn Halldórsson hefur iðkað
júdó frá árinu 1974 og þjálfað í ára-
raðir bæði
hér heima og erlendis. Áður en
hann hóf iðkun júdó hafði hann
verið í fimleikum frá barnsaldri.
,,Ég hef þjálfað síðustu árin hjá
Íþróttafélagi Reykjavíkur, ÍR, og
tók þátt í stofnun júdódeildar við
félagið sem nú státar af flestum
virkum deildum allra félaga á land-
inu. Það er mikill uppgangur í
júdódeildinni, jafnt á meðal
yngstu kynslóðanna og þeirra
eldri. Það er fólk
á öllum aldri í júdó, sem er ekk-
ert síður fyrir konur en karla.
Þetta mjög góð og holl hreyfing
sem jafnvel kynslóðir geta æft sam-
an.“
Björn segir að júdó sé eins og
skák. „Það má stunda íþróttina sér
til skemmtunar en fara líka alla
leið í atvinnumennsku. Við bjóðum
alla velkomna.“
Útrás Íþróttin veitir áreiðanlega góða útrás ekki síður en holla hreyfingu.
Júdókonur Þóra
Björg Sigmars-
dóttir og Hrönn
Gunnarsdóttir
hafa æft júdó í
tæpt ár.
Litrík Beltin í Júdó er litrík og íþróttin er fyrir alla, konur og karla, börn, unglinga sem og þá sem komnir eru yfir miðjan aldur.
Vopnlaus Júdó er vopnlaus bardagi þar sem ákveðnar heiðursreglur gilda.
Reynslubolti Björn Halldórsson,
þjálfari hjá ÍR, hefur stundað júdó
í rúm 30 ár.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Vopnlaus bardaga-
íþrótt og holl hreyfing
38|Morgunblaðið
• New Balance 1060 voru valdir bestu skórnir
á markaðnum í sumar
• Ný glæsileg lína var að koma.
• Fást einnig í breiddarnúmerum.
• Sérfræðiaðstoð við val á æfinga- og
hlaupaskóm
Ókeypis göngugreining
Sérverslun fyrir hlaupara
og annað íþróttafólk
Síðumúli 31 • s: 553 1020 • Opið virka daga 11-18