Morgunblaðið - 08.10.2006, Side 67

Morgunblaðið - 08.10.2006, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 67 eflaust fagnaðarfundir í himnaríki. Þið getið spilað Rússa, amma svindl- að og þú þóst ekki taka eftir því. Það eru ekki margir sem geta státað af því að hafa átt slíkt göf- ugmenni að. Þú ert einstakur, afi minn, og við höfum verið heppin að hafa haft þig hjá okkur svona lengi. Svo blíður og hæglátur maður, skiptir aldrei skapi nema ef um- ræðuefnið var stjórnmál. Ég man ávallt eftir því þegar þið amma komuð oftar sem áður upp í sveit í heimsókn til okkar, rétt fyrir 6 ára afmælið mitt. Ég var að snuðra í kringum þig á meðan þú tókst farangurinn ykkar úr bílnum, þú leist á mig kankvís á svip, tókst upp úr skottinu dúkkuvagn og sagð- ir: ,,Hérna, kerlingin mín.“ Amma var nú ekki par hrifin af því að þú værir búinn að láta mig fá afmæl- isgjöfina, en það skipti ekki máli, þú vildir bara gleðja litluna þína. ,,Kerlingin mín“ eða ,,karlinn minn“, það vorum við afabörnin þín. Þessi orð bera ekki mikið með sér en þegar þú sagðir með þínum blíða rómi: ,,Æ, ertu komin, kerlingin mín“ var ekki hægt að fá betri kveðju. Það er sárt að vera fjarri og fá ekki að kveðja þig. Við kvöddumst þó kvöldið áður en ég lagði af stað aftur til Ástralíu, en ég þó í barns- legri von vildi ekki viðurkenna að þetta gæti verið í seinasta sinn sem ég sæti með þér, kyssti þig og faðm- aði. Það er þó huggun harmi gegn að þú varst ávallt umvafinn ást og umhyggju og fékkst þannig hvíldina sem þú þráðir. Ég mun sakna þín en gleðjast yfir því að hafa átt þig. Ég vil kveðja afa með bæn sem ég hef farið með síðan ég var lítil ,,kerl- ing“. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Ég elska þig, afi minn. Sunna Kristín. Enn er höggvið skarð í systkina- hópinn. Laugi, eins og hann var alltaf kallaður, er þriðji bróðirinn sem kallaður er í burtu frá hinu jarðneska lífi á jafnmörgum árum. Laugi var einn af þessum hæg- látu mönnum sem fór lítið fyrir. Vann öll störf sem hann tók að sér af vandvirkni og trúmennsku, hver sem í hlut átti. Laugi var mjög verklaginn og traustur í öllum þeim störfum sem hann vann. Hann var harðduglegur og kappsamur vinnumaður, hugur og hönd fylgdust þar að. Í sveitinni fyrir vestan var Laugi eftirsóttur í vinnu, fór snemma að heiman til að vinna fyrir sér, á vetr- um við skepnuhirðingu og á sumr- um í kaupavinnu sem svo var köll- uð. Hann var vel liðinn af sínum vinnuveitendum sem mátu störf hans að verðleikum. Meðal annars vann hann í þrjú ár hjá Bjarna í Ás- garði, þeim heiðursmanni, sem hældi Lauga fyrir trúmennsku og dugnað. Það var mikil ábyrgð þegar hann tók að sér uppeldishlutverk þriggja barna konu sinnar en það gerði hann af sérstakri umhyggju og umsjón með hjálp sinnar góðu konu. Með konu sinni eignaðist hann tvær dætur. Sameiginlega eignuð- ust þau gott heimili og dæturnar uxu úr grasi og fluttu að heiman. Dætur hans, jafnt sem fósturdætur héldu mikið upp á Lauga. Eftir lát Jónu tók yngsta dóttirin Íris, sem er kennari, að sér að sjá um föður sinn af sérstakri umhyggju á sínu heimili, allt til loka. Nú ert þú allur, kæri góði bróðir. Þegar ég lít til baka er margs að minnast frá liðinni tíð. Efst í huga mínum er þín prúðmennska, góð- vilji í garð annarra og heiðarleiki í hvívetna ásamt vilja og áhuga til að tileinka sér það besta og fagra í líf- inu, sáttur við Guð og menn. Efst í huga mínum er þakklæti fyrir langa samleið, sem verður endurtekið í fyllingu tímans. Góður drengur hefur kvatt. Hafðu þökk fyrir allt. Gestur Guðmundsson. Ég kynntist Guðlaugi árið 1981 þegar ég og Jóna Ósk, dótturdóttir Guðlaugs, fórum að draga okkur saman. Hann tók mér strax vel og var hlýr og notalegur í viðkynningu. Guðlaugur starfaði um langan aldur í Áburðarverksmiðjunni og lauk sín- um starfsferli þar. Kona Guðlaugs, Jóna Guðrún Stefánsdóttir, lést árið 1994 og var alltaf ljóst hve hann saknaði hennar. Jóna var ekkja þeg- ar þau kynntust, með ungar dætur sem hann gekk í föðurstað. Guðlaugur var af þeirri kynslóð Íslendinga sem upplifði þær gríðar- legu breytingar sem urðu á íslensku þjóðfélagi og kjörum alþýðunnar frá fyrri hluta 20. aldarinnar og fram yf- ir seinna stríð. Þessar breytingar mótuðu hann og skoðanir hans. Aldr- ei heyrði ég hann skipta skapi eða hnjóða í nokkurn mann nema „hel- vítis íhaldið“. Enda var skemmtilegt að ræða pólitík við hann. Hann fylgdist með pólitíkinni og fótbolt- anum vel fram á þetta ár, þar til veikindi fóru að há honum verulega. Heilsu Guðlaugs fór hrakandi eftir áfall sem hann varð fyrir í lok síðasta árs og varð til að takmarka tjáningu hans og tal. Hugurinn var þó skýr og var sárt að sjá hann eiga erfitt með að skila hugsuninni óbjagaðri í orð- um. Ekki fór á milli mála að þetta olli honum hugarangri. Okkur sem Guðlaugi tengdumst sveið hinsvegar úrræða- og virðingarleysi allsnægta- þjóðfélagsins gagnvart þeim sem aldraðir eru og sjúkir. Þar er þjóð- arskömm sem þarf að bæta úr. Þegar við hittumst var það til siðs að ég fengi í nefið hjá Guðlaugi að gömlum sið. Venjulega uppskárum við hnuss frá Jónu Ósk minni í stað- inn og hlógum báðir að. Enda það sem leitað var eftir. Við andlát Guð- laugs þakka ég aldarfjórðungs kynni, þar bar aldrei skugga á. Börnum mínum þótti mjög vænt um afa Lauga og hann mátti ekki vanta í veislum og afmælum. Vegna vinnu minnar á ég þess ekki kost að fylgja Guðlaugi til grafar og þykir mér það mjög miður. Ættingjum hans votta ég samúð mína. August Håkansson.                        Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og stuðning við andlát og útför elskulegs sonar okkar, föður, unnusta, bróður og barna- barns, KÁRA BREIÐFJÖRÐ ÁGÚSTSSONAR. Kolbrún Ólafsdóttir, Hörður Eiðsson, Ágúst Elbergsson, Árný B. Kristinsdóttir, María Erla B. Káradóttir, Emma Kolbrún B. Káradóttir, Snædís Sól B. Káradóttir, Loreto Castillo, Berglind Brynjólfsdóttir, Sölvi B. Harðarson, Ólafur Helgi Harðarson, Steinunn Harðardóttir, Ragnheiður Ágústsdóttir, Elfa Ágústsdóttir, Kristinn Ágústsson, Ólafur Kr. Þórðarson, Helga Vigfúsdóttir. Útfararþjónusta Davíðs ehf. Vaktsími 896 6988 Davíð Ósvaldsson útfararstjóri Óli Pétur Friðþjófsson framkvæmdastjóri Mínar innilegustu þakkir til allra þeirra fjölmörgu ættingja og vina á Húsavík sem sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför bróður míns, GUNNARS HVANNDAL, Reykjaheiðarvegi 8, Húsavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofn- unar Þingeyinga fyrir hjálpsemina og stuðninginn. Jón G. Kristinsson. Þökkum af alhug samúð og vinsemd við andlát AGNARS ÞÓRÐARSONAR. Hildigunnur Hjálmarsdóttir, Uggi Agnarsson, Margrét Guðnadóttir, Úlfur Agnarsson, Ásta Briem, Sveinn Agnarsson, Gunnhildur Björnsdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar, móður okkar og tengdamóður, SIGURLAUGAR LÁRUSDÓTTUR (frá Ási, Árskógsströnd), Gullsmára 5, Kópavogi. Jón Stefánsson, Elínborg Jónsdóttir, Börkur Aðalsteinsson, Sigrún Jónsdóttir, Kristján Þór Sigurðsson, Stefán L. Jónsson og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar HLÍNAR MAGNÚSDÓTTUR. Þökkum sérstaklega starfsfólki á Landspítalanum við Hringbraut frábæra hjúkrun og aðhlynningu. Margrét Hlín Sveinsdóttir, Hlín Leifsdóttir, Alexander Hugi Leifsson, Carla A. Martorello, Bergljót Svanhildur Sveinsdóttir, Kjartan Sigurjónsson, Guðrún Arnhildur Sveinsdóttir, Valdimar Þorsteinsson, Sigríður Hulda Sveinsdóttir, Tore Skjenstad, Hrafnhildur Sveinsdóttir, Sigurður Magnússon, fjölskyldur og systkini hinnar látnu. Elsku Bryndís Eva, við erum alls ekki tilbúin að kveðja þig og verð- um það sjálfsagt aldrei. Okkur finnst svo óréttlátt að þú hafir ekki fengið að dvelja hjá okkur lengur en þú átt eflaust að gegna svona mikilvægu hlutverki á himnum. Þú varst alltaf svo lífsglöð enda sáum við þig nánast aldrei öðruvísi en brosandi eða hlæjandi áður en þú veiktist. Og meira segja í veik- indum þínum helstu áfram að heilla alla upp úr skónum. Þú sigraðist á öllum þeim hindrunum sem urðu í vegi fyrir þér og komst sífellt á óvart. Þú varðst að hetju og ert enn og verður alltaf litla hetjan okkar sem kenndi okkur að meta lífið á annan hátt. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Ekki má gleyma að nefna hve lánsöm þú varst að eiga bestu for- eldra sem hugsast getur. Það eru fáir sem gætu staðið sig jafnvel í svona aðstæðum. Elsku Hjörleifur og Bergþóra, það er fátt sem við getum sagt sem ekki áður hefur verið sagt en hugur okkar er hjá ykkur og vonum við að þið fáið styrk til að komast í gegnum þessa erfiðu tíma. Samúðarkveðja, Helena, Jón Óskar, Eva Þórey og Ásdís Karen. Elsku Bryndís Eva, litla ljósið bjarta. Þú hefur gefið mér og kennt mér svo ótal margt á þessum stutta tíma sem þú lifðir. Ég dái þig og virði. Alltaf þegar ég kom að sjúkrabeði þínum fylltist ég lotn- ingu. Ljósið þitt er svo bjart, fallegt og hlýtt. Ljósið þitt stendur fyrir trú, von og kærleik og þessi hugtök hafa dýpri og skýrari þýðingu fyrir mig eftir að hafa fylgst með þér og foreldrum þínum síðastliðna níu mánuði. Lífið getur verið svo grimmt og því fékkst þú og þín fjölskylda að kynnast. En grimmdina og myrkrið sigraðir þú eftirminnilega og eftir situr dýrðin og fallega minningin um þig, elsku blómið. Ég harma að þú þurftir að ganga í gegnum þessi óréttlátu veikindi. Ég harma að dásamlegu foreldrarnir þínir þurftu að ganga í gegnum þessa hræðilegu lífsreynslu. Nú ertu komin til langalangafa þíns sem var svo stoltur af því að þú værir að fæðast en hryggur er hann gerði sér grein fyrir að hann myndi ekki ná að sjá þig líta dags- ins ljós. Afi Gussi og amma Jóa passa þig, elsku litla, fallega barn. Elsku Bebba og Hjölli, þið eruð foreldrarnir á bakvið þetta dásam- lega ljós. Þið eruð uppsprettan. Ég dáist að ykkur. Guð gefi ykkur styrk til að brotna niður og rísa upp á ný. Ömmur, afar, langömmur og langafar, frænkur og frændur, Guð styrki ykkur í sorginni og miss- inum. Kveðja, Guðríður Kristín Þórðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.