Morgunblaðið - 08.10.2006, Síða 71
Fréttir á SMS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 71
menning
Ert þú með sveppi í tánöglum?
Óskað er eftir sjálfboðaliðum á aldrinum 18-65 ára til þátttöku í klínískri rannsókn á albaconazole við
naglasveppasýkingu. Rannsóknin hefur fengið leyfi Vísindasiðanefndar, Persónuverndar og Lyfjastofnunar.
Rannsóknin verður framkvæmd á Húðlæknastöðinni, Smáratorgi 1, Kópavogi, og aðalrannsakandi er Bárður
Sigurgeirsson, sérfræðingur í húðlækningum.
Megintilgangur rannsóknarinnar er að athuga öryggi og lyfjahvörf albaconazole lyfjasamsetningar.
Mismunandi skammtar af lyfinu verða bornir saman við lyfleysu.
Um 72 einstaklingar með naglasvepp munu taka þátt í rannsókninni, en hún tekur yfir 52 vikna tímabil og
gert er ráð fyrir 16 heimsóknum á rannsóknarsetur. Þátttakendur sem ljúka rannsókninni munu fá greiddar
48.000 kr.
Áhætta af þátttöku felst í mögulegum aukaverkunum af notkun rannsóknarlyfsins, bæði þekktum og
ófyrirséðum. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur fái bata af meðferð með rannsóknarlyfinu en niðurstöður
rannsóknarinnar geta leitt til framfara í meðferð á naglasvepp.
Ef þú hefur áhuga á að fá frekari upplýsingar, vinsamlega hafðu samband bréflega, með því að
senda tölvupóst á rannsoknir@hudlaeknastodin.is, eða með því að hringja í hjúkrunarfræðing
rannsóknarinnar í síma 520 4413.
Tekið skal fram að þeir sem svara auglýsingunni hafa á engan hátt skuldbundið sig til að taka þátt í rannsókninni. Taki þeir
þátt, geta þeir dregið sig út úr rannsókninni hvenær sem er, án þess að gefa sérstaka ástæðu fyrir ákvörðun sinni.
4411.
STUNDUM er sagt að ef maður vill-
ist í skóginum á Íslandi sé nóg að
standa upp. Og ef veðrið sé vont
þurfi ekki annað en að bíða í fimm-
tán mínútur. Bandaríkjamaður sem
kom til Íslands til að ræna tveimur
börnum af íslenskri móður fyrir
rúmum áratug, og var settur í stein-
inn fyrir vikið, mun sömuleiðis hafa
látið hafa eftir sér að ef maður lenti í
fangelsi á Íslandi væri nóg að ganga
út. Það gerði hann að minnsta kosti,
þótt hann næðist aftur síðar.
Mér datt þetta í hug á sýningu
kvikmyndarinnar Fjalla-Eyvindar,
eða Bjerg-Eyvind och hans husfru,
sem sýnd var í Tjarnarbíói á mið-
vikudagskvöldið. Þar sat Fjalla-
Eyvindur í íslensku fangelsi, og
hann þurfti ekki annað en að sveigja
rimlana sem vörðu fangelsisglugg-
ann, og hann var kominn út í frelsið.
Ólíkt barnaræningjanum banda-
ríska náðist hann ekki aftur, heldur
hélt á endanum upp á fjöll ásamt
konu sinni, og átti um hríð ham-
ingjuríkt líf.
Á sýningu myndarinnar, sem var
frá árinu 1917 og var gerð af Victor
Sjöström eftir leikriti Jóhanns Sig-
urjónssonar, var frumflutt tónlist
eftir Benedikt H. Hermannsson og
var hún leikin af hljómsveit hans,
Benna Hemm Hemm. Tónlistin var
einstaklega heillandi, hún var blátt
áfram og hæfilega fjölbreytileg og
náði prýðilega að undirstrika and-
rúmsloftið í þessu meistaraverki
kvikmyndasögunnar. Sumt í tónlist-
inni var vissulega fyndið og minnti á
músík í gömlum vestrum, en húm-
orinn fór þó aldrei yfir strikið. Og
þar sem átakanlegri hlutar mynd-
arinnar voru jafnframt ágætlega út-
færðir af hljómsveitinni var heild-
arsvipur tónlistar og kvikmyndar
sterkur og sannfærandi. Útkoman
var ágæt skemmtun þótt enn betra
hefði verið að hafa smáræðis eft-
irspil í lokin, sem hefði rímað við
áberandi forleikinn í upphafi og sett
verkið í meira samhengi við nú-
tímann. Engu að síður: Bravó Benni!
Fjalla-Eyvindur
í Villta vestrinu
KVIKMYNDIR
RIFF 2006: Tjarnarbíó
Leikstjórn: Victor Sjöström. Svíþjóð
1917. Tónlist eftir Benedikt H. Her-
mannsson og flutt af Benna Hemm
Hemm.
Fjalla-Eyvindur Jónas Sen
Morgunblaðið/Eggert
Bravó Benni! Jónas Sen gefur undirleik Benna Hemm Hemm við Fjalla-Eyvind fjórar stjörnur.