Morgunblaðið - 13.10.2006, Side 1
STOFNAÐ 1913 278. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
LANDKÖNNUÐUR
VÍKINGUR HEIÐAR FRUMFLYTUR VERK
SNORRA BIRGISSONAR Í SALNUM Í DAG >> 50
MATSELD.IS
OPINN OG ÓHÁÐUR
UPPSKRIFTABANKI
UMRÆÐA OG GREINAR >> 27
OLIVER TWIST NÝTT NÝTT
Væntanlegt
SÝNISHORN AF NÝJUM OG VÆNTANLEGUM MYNDUM
NÝTT
Aðeins í SkjáBíói getur þú leigt
nýjustu bíómyndirnar og fengið
ókeypis barnaefni með einum
takka á fjarstýringunni.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
MÍKHAÍL Gorbatsjov, fyrrver-
andi leiðtogi Sovétríkjanna, setti í
fyrirlestri sínum í Háskólabíói í
gær fund sinn með Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta í Höfða árið
1986 í sögulegt samhengi, með upp-
rifjun á rafmögnuðu andrúmslofti
kalda stríðsins.
Að loknu ávarpi hans bárust hon-
um fjölmargar spurningar. Spurð-
ur um morðið á blaðakonunni Önnu
Politkovskaju í Moskvu um síðustu
helgi sagði Gorbatsjov það hryggi-
legan atburð. Hann kvaðst þó telja
að Vladímír Pútín Rússlandsforseti
hefði komið á nauðsynlegum stöð-
ugleika eftir óróann sem einkenndi
valdaferil forvera hans Borísar
Jeltsíns.
Inntur eftir því hvers vegna hann
hefði gagnrýnt utanríkisstefnu
stjórnar George W. Bush Banda-
ríkjaforseta sagði Gorbatsjov Bush
verða að læra að hlusta á sjónarmið
annarra ríkja.
Gagnrýndi „forvarnarstríð“
Gorbatsjov gagnrýndi þannig ut-
anríkisstefnu Bush með þeim orð-
um að „forvarnarviðræður“ ættu að
leysa „forvarnarstríð“ af hólmi.
Ekki væri hægt að neyða lýðræði
upp á önnur ríki með hervaldi.
Þá sagði hann marga Rússa hafa
fyllst tortryggni í garð Vestur-
landabúa á valdatíma Jeltsíns,
vegna þess að svo hefði virst sem
þeir hefðu haft ánægju af því að
fylgjast með upplausn landsins.
Hann sagði marga ekki geta sætt
sig við það sjálfstæða Rússland sem
komið hefði fram á sjónarsviðið á
valdatíma Pútíns, Rússland sem
væri ekki stjórnað af Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum. Spurður um þátt
Jeltsíns í að koma honum frá völd-
um sagði hann þá ekki hafa hist síð-
an á jóladag 1991 og að vonandi
myndi ekki verða breyting þar á.
Morgunblaðið/Kristinn
T́ímamót Davíð Oddsson seðlabankastjóri, Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri, Mikhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna, og
dóttir hans, Írína Vírganskaja, á meðal annarra rifja upp minningar af leiðtogafundinum í Höfða en tuttugu ár eru nú liðin frá því hann hófst.
„Pútín forseti hefur
tryggt stöðugleika“
Míkhaíl Gorbatsjov segir tortryggni ríkja í garð hins nýja Rússlands
Í HNOTSKURN
»Gorbatsjov sagði Evrópusam-bandið á leið með að verða
stórveldi líkt og Bandaríkin,
íbúafjöldi sambandsins væri að
nálgast 500 milljónir.
»Að hans mati er þörf á nýrrihugsun til að mæta nýjum
vandamálum heimsbyggð-
arinnar.
»Hann sagðist hafa reynt aðdraga úr valdi sínu á meðan
Jeltsín hefði markvisst reynt hið
gagnstæða. Hugarfarið | Miðopna
BÚLGARINN Veselin Topalov og Rússinn
Vladímír Kramník sömdu um jafntefli í
gær í tólftu skákinni í heimsmeistaraein-
víginu í Elista í rússneska sjálfstjórnarlýð-
veldinu Kalmykíu.
Skákmeistararnir eru því jafnir, með
sex vinninga hvor, og tefla til úrslita í dag.
Markmið einvígisins er að sameina heims-
meistaratitlana í skák.
Samkvæmt reglum einvígisins tefla
meistararnir fjórar skákir og hvor þeirra
fær 25 mínútur í byrjun en tíu sekúndur
bætast við eftir hvern leik. Ef þeir eru enn
jafnir tefla þeir tvær hraðskákir. Dugi
þær ekki verður tefld ein skák til viðbótar.
Hvítur fær þá sex mínútur en svartur að-
eins fimm og ljúki skákinni með jafntefli
hreppir svartur heimsmeistaratitilinn.
Teflt til úrslita
Vladimir Kramnik Veselin Topalov
♦♦♦
London. AFP. | Yfirmaður
breska hersins segir í
viðtali, sem breska dag-
blaðið Daily Mail birtir í
dag, að kalla þurfi
breska herliðið í Írak
heim vegna þess að dvöl
bresku hermannanna
þar auki öryggisvanda-
mál Bretlands.
„Ég segi ekki að erf-
iðleikarnir, sem við stöndum frammi fyrir í
heiminum, stafi af dvöl okkar í Írak en það
leikur enginn vafi á því að hún gerir vanda-
mál okkar verri,“ sagði Richard Dannatt
hershöfðingi í viðtalinu sem var birt á vef-
setri blaðsins í gærkvöldi. „Við ættum að
koma okkur í burtu þaðan einhvern tíma
bráðlega vegna þess að vera okkar þar eyk-
ur öryggisvanda okkar.“
Dannatt, sem var gerður að yfirmanni
breska hersins í ágúst, kvaðst ekki telja að
markmiðin með innrásinni í Írak myndu
nást á næstunni.
Vill breska
herinn heim
Segir veru heraflans
í Írak auka vandann
Richard Dannatt