Morgunblaðið - 13.10.2006, Page 2

Morgunblaðið - 13.10.2006, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag Yf i r l i t                                  ! " # $ %       &         '() * +,,,                  Í dag Sigmund 8 Forystugrein 32 Staksteinar 8 Viðhorf 34 Veður 8 Umræðan 34/39 Úr verinu 14 Minningar 40/47 Viðskipti 16/17 Leikhús 54 Erlent 18/19 Myndasögur 56 Menning 20, 50/56 Dagbók 57/61 Höfuðborgin 22 Staður og stund 58 Akureyri 22 Víkverji 60 Austurland 23 Velvakandi 60 Suðurnes 23 Bíó 58/61 Daglegt líf 24/31 Ljósvakamiðlar 62 * * * Innlent  Tveggja manna er leitað vegna nauðgunar í húsasundi í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags. Mennirnir tveir réðust að ungri konu og drógu hana inn í húsasund þar sem annar mannanna nauðgaði henni. Deildarstjóri neyðarmóttöku segir að nauðgunum sem þessum, þ.e. þegar ókunnugir menn ráðast fyrirvaralaust á konur, hafi frekar fjölgað á undanförnum tveimur ár- um þótt tilvikin séu sem betur fer fremur fá. » 4  Fjölmennur fundur starfsmanna álvers Alcan í Straumsvík mótmælti í gær tilefnislausum uppsögnum vinnufélaga sem unnið hefðu hjá fyr- irtækinu áratugum saman og skor- aði á það að draga uppsagnirnar til baka eða ljúka þeim í sátt með samn- ingum. » 6  Forstjóri Orkuveitu Reykjavík- ur, segir að ekkert sé óeðlilegt við að Hellisheiðarvirkjun framleiði raf- magn þó að starfsleyfi hafi ekki ver- ið gefið út, en að um tilraunarekstur sé að ræða. Fulltrúi Vinstrihreyfing- arinnar græns framboðs í borg- arráði óskaði á fundi borgarráðs fyr- ir nokkru eftir upplýsingum um það á hvaða forsendum virkjunin hefði verið gangsett 1. október þar sem starfsleyfi hefði ekki verið gefið út. » 64 Erlent  Tyrkir mótmæltu í gær laga- frumvarpi, sem neðri deild franska þingsins samþykkti og kveður á um að það teljist glæpur að neita því að fjöldamorð á Armenum í Tyrklandi í fyrri heimsstyrjöldinni jafngildi þjóðarmorði. » 18  Stjórnin í Kína óttast hern- aðarlega og stjórnmálalega upp- lausn í Norður-Kóreu eftir að þar- lend stjórnvöld tilkynntu að þau hefðu látið sprengja kjarnorku- sprengju í tilraunaskyni. „[Kínverja] hryllir við tilhugsuninni um einhvers konar Írak, Afganistan eða Kosovo við norðausturlandamærin,“ er haft eftir sérfræðingi í kóreskum mál- efnum. » 19  Teflt verður til úrslita í dag í heimsmeistaraeinvígi Búlgarans Ve- selins Topalovs og Rússans Vladim- irs Kramniks í Elista í Rússlandi. Tólftu skákinni í einvíginu lauk með jafntefli í gær. » 1  Margaret Beckett, utanrík- isráðherra Bretlands, sagði í gær að vistun meintra hryðjuverkamanna í fangabúðum í Guantanamo á Kúbu væri óviðunandi þegar mannréttindi væru höfð í huga. » 18 FYRRVERANDI starfsmaður Landssímans hringdi í Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkis- ráðherra (1988–1995), á miðvikudags- kvöld til að segja honum að hann hefði orðið vitni að því sem starfsmaður Landssímans á sínum tíma er símtal Jóns Baldvins við annan mann var hlerað. Þetta segir Jón Baldvin en lætur ekki uppi nafn starfsmannsins. Samkvæmt frásögn Jóns Baldvins hafði málið lengi hvílt á viðkomandi starfsmanni. Á sínum tíma hefði starfsmaðurinn látið vitneskju sína liggja milli hluta því hann óttaðist um starf sitt hefði hann gert eitthvað í málinu þá. „Nú kvaðst hann ekki geta lengur orða bundist vegna þess að honum fannst það þurfa að koma fram í þessari umræðu að hleranir voru stundaðar,“ segir Jón Baldvin. „Það er í stjórnstöð Landssímans sem það fer fram,“ bætir hann við. Jón Baldvin segir að Landssíma- maðurinn fyrrverandi hafi séð kollega sinn sitja mánuðum saman við hler- anir. Hafi sá fyrrnefndi gengið úr skugga um að það var sími Jóns Bald- vins sem var hleraður en þetta hafi hann fengið staðfest þegar hlerunar- maðurinn var fjarri. Þegar Landssímamaðurinn hringdi nú í Jón Baldvin til að tjá hon- um reynslu sína kynnti hann sig með nafni, að því er Jón Baldvin segir og kvaðst viðkomandi starfsmaður reiðubúinn að staðfesta það sem hann sagði Jóni Baldvini þegar hann teldi það annaðhvort nauðsynlegt eða æskilegt. „En hann vildi áskilja sér rétt til þess að ákveða það sjálfur. Hann fór fram á það að ég nefndi ekki nafn hans að sinni og ég virði það,“ segir Jón Baldvin. Halldór Blöndal, landbúnaðar- og samgönguráðherra á árunum 1991– 1995 og æðsti yfirmaður Pósts og síma á þessum tíma, kannast ekki við að hafa nokkru sinni heyrt af hler- unum í Landssímanum. „Mér þykir mjög undarlegt ef starfsmenn Pósts og síma hafa verið að fylgjast með samtölum utanríkisráðherra og þá kannski annarra ráðherra,“ segir hann. „Þá er mjög undarlegt að við- komandi starfsmaður skuli ekki hafa skýrt sínum yfirmönnum frá því og eftir atvikum mér,“ segir hann. Kom inn í mitt samtal tveggja ráðherra Magnús Skarphéðinsson kom fram í Kastljósi Sjónvarpsins, sem og Jón Baldvin og sagði Magnús að hann hefði fyrr á árum lengi haft á tilfinn- ingunni að sími sinn væri hleraður. Eitt sinn þegar hann hefði hringt út í bæ hefðu komið miklir smellir á lín- una og skyndilega hefði hann verið staddur í miðju símtali Þorsteins Pálssonar, þáverandi forsætisráð- herra, og Halldórs Blöndal. Umræðu- efnið hefði verið eldhúsdagsumræður á Alþingi, menn og málefni og þvíum- líkt. „Ég hlustaði lengi á þetta samtal og hugsaði með mér að, ef einhver á að trúa mér, þá tek ég nú upp þetta samtal og kveikti á segulbandinu og lofaði mönnum sem ég treysti að hlusta á þetta,“ sagði Magnús. Sagði hann að nokkrir valinkunnir menn hefðu fengið að heyra upptökuna. Sagðist hann hafa sagt Matthíasi [Jo- hannessen þáverandi ritstjóra Morg- unblaðsins], sem ekki hefði trúað frá- sögn hans en hefði borið málið undir Þorstein. „Og þetta reyndist rétt, ég vissi allt innihald samtalsins,“ sagði Magnús. Fullyrðir að Jón Bald- vin hafi sætt hlerunum Halldór Blöndal, þáverandi ráðherra, telur málið undarlegt Í HNOTSKURN »Fyrrverandi starfsmaðurLandssímans sagðist hafa orðið vitni að því þegar kollegi hans hleraði síma Jóns Bald- vins Hannibalssonar í ráð- herratíð hans. »Símamaðurinn var að sögnJóns Baldvins hræddur við að segja frá málinu á sínum tíma þar sem hann óttaðist að missa vinnuna. Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is „SÁ aðgangur sem við höfum haft að æðstu mönnum á þessu sviði hér í Washington undirstrikar að mín- um dómi að Bandaríkjamönnum er full alvara með því plaggi sem þeir undirrituðu [í fyrradag] eins og okk- ur er full alvara með því, og ég tel að samstarfið á þessum nýja grunni fari mjög vel af stað,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið eftir fund hans og Björns Bjarnasonar dómsmálaráð- herra með Robert S. Mueller, for- stjóra alríkislögreglunnar (FBI), í höfuðstöðvum hennar í gær. Geir sagði fundinn með Mueller hugsaðan til þess „að fylgja eftir ákvæðum í samkomulaginu sem við undirrituðum [á miðvikudag]. Dómsmálaráðherra, sem unnið hef- ur af mikilli elju við að styrkja lög- regluna og landhelgisgæsluna, hef- ur verið með sérstaka fundi, m.a. með strandgæslunni og heima- varnaráðuneytinu, og allt er þetta á grundvelli hins nýja samkomulags.“ Forsætisráðherra segir mjög mikilvægt fyrir Íslendinga að fylgja strax eftir ákvæðum í samkomulag- inu á sviði lögreglumála og land- helgisgæslunnar til þess að takast á við nýjar ógnir. „Okkar stofnanir verða að skipuleggja sig upp á nýtt með tilliti til þess að varnarliðið er farið og ég tel að þetta hafi farið vel af stað; þessi mál voru ítrekað rædd á öllum fundum okkar, bæði í gær og í dag, en verða í framhaldinu í höndum löggæslustofnana okkar,“ sagði Geir. Björn Bjarnason segir áherslu hafa verið lagða á það á fundum sín- um hér vestra hve samstarf þjóða sé mikilvægt þegar tekist er á við al- þjóðlega glæpi og hryðjuverk. „Við erum að efla löggæslu okkar og skiptumst á skoðunum við þá um það. Það eru ekki alls staðar sömu viðhorfin í þessum málum; við byggjum okkar afstöðu á evrópsk- um hefðum en hér eru oft og tíðum önnur grundvallarsjónarmið þegar fjallað er um samskipti við afbrota- menn og annað slíkt. Við ætlum ekki að taka þau upp, en það er gagnlegt að fylgjast með því hvað aðrir eru að gera,“ sagði dómsmála- ráðherra. Hann nefndi að viðfangs- efnin væru stöðugt að breytast og mjög mikilvægt væri fyrir Íslend- inga að hafa aðgang að mönnum í fremstu röð í baráttunni gegn af- brotum í netheimum, svo dæmi væri tekið. „Íslensk stjórnvöld hafa átt sam- skipti við alríkislögregluna í áratugi og sá pólitíski grundvöllur sem nú er kominn verður bara til þess að treysta samstarfið enn frekar.“ „Samstarf á nýjum grunni fer vel af stað“ Samstarf Geir H. Haarde forsætisráðherra og Björn Bjarnason dómsmálaráðherrra með Robert S. Mueller, for- stjóra bandarísku alríkislögreglunnar (FBI), í höfuðstöðvum stofnunarinnar í Washington í gær. Vagnhöfða 23 - Sími 590 2000 Seltjarnarnesi Gerið verðsamanburð margar stærðir KT verslun Akureyri Njarðarnesi S. 466 2111 All Terrain 31” 15.296,- stgr. 33“ 17.289,- stgr. 35” 17.996,- stgr. Er jeppinn tilbúinn fyrir veturinn? Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir kynningarblað frá Astma- og ofnæmisfélaginu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.