Morgunblaðið - 13.10.2006, Síða 4

Morgunblaðið - 13.10.2006, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur og varaþingmaður Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík 27. og 28. október 2006 Opnun kosningaskrifstofu Verið velkomin á opnun kosningaskrifstofu minnar í Skeifunni 19, 4. hæð. Gengið inn að vestanverðu (sama hús og Hreysti og Ljósin í bænum). www.kolbrun.ws (WebSite) Föstudaginn 13. október kl. 17.00 6 SÆTIKO LB RÚ N TVEIR menn réðust að ungri konu í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags og drógu hana inn í húsasund þar sem annar nauðgaði henni. Deildarstjóri neyðarmóttöku vegna nauðgana segir að nauðganir sem þessar, þ.e. þar sem ókunnugir menn ráðast fyrirvaralaust á konur, hafi frekar færst í vöxt á undanförnum tveimur árum þó að til- vikin séu sem betur fer fremur fá, um 5–10 mál á ári. Hluti skýringarinnar sé talinn liggja í aukinni neyslu örvandi fíkniefna. Að sögn Sigurbjörns Víðis Eggertssonar, aðstoð- aryfirlögregluþjóns í Reykjavík, var tilkynnt um nauðgunina klukkan rúmlega fimm um nóttina. Vegfarandi hafði komið stúlkunni til hjálpar þar sem hún var á Lækjartorgi, ringluð og í miklu upp- námi vegna árásarinnar, og látið lögreglu vita. Veg- farandinn beið með stúlkunni þar til lögregla kom á staðinn og þaðan var hún flutt á neyðarmóttöku vegna nauðgana á Landspítalanum í Fossvogi. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hélt annar mað- urinn stúlkunni niðri meðan hinn nauðgaði henni. Málið er í rannsókn en konan mun ekki hafa getað gefið greinargóða lýsingu á mönnunum. Árásarmenn stundum 17–18 ára Eyrún Jónsdóttir, deildarstjóri neyðarmóttöku vegna nauðgana, segir að á þessu ári og í fyrra hafi þeim tilvikum heldur fjölgað þar sem ókunnugir menn ráðast á konur utandyra, t.d. þegar þær eru á leið heim til sín, og nauðga þeim. Oft sé það þannig að þetta byrji með áreiti, yfirleitt af hálfu fleiri en eins karlmanns, en endi með því að einn nauðgi kon- unni. Dæmi séu um að 17–18 ára piltar ráðist þann- ig á konur. Aðspurð um hugsanlegar skýringar sagði Eyrún að fjölgunin hefði verið tengd við aukna drykkju og neyslu sterkra fíkniefna, s.s. am- fetamíns og kókaíns, og neyslu á sterum. Klámvæð- ingin hefði hér einnig áhrif. Allur gangur er á því hvort slíkar árásir eru kærðar til lögreglu og Eyrún sagði að sumar konur leituðu ekki heldur á neyðarmóttöku. „Ef þessar konur koma til okkar þá er það stundum vegna þess að þær eru hræddar við að hafa smitast af einhverju og þurfa aðstoð við að takast á við það mikla áfall sem svona árás er.“ Þá væri oft erfitt að hafa hend- ur í hári árásarmanna en það væri lögreglunnar að gera sitt besta til að hafa uppi á þeim. Í gær hafði Eyrún ekki handbærar nákvæmar upplýsingar um fjölda málanna en sagði að þau væru um 5–10 á ári. Það væri mikilvægt að ala ekki á ótta kvenna við að vera einar á ferli og hún minnti á að um 70% nauðgana færu fram á heimilum. Tveggja manna leitað vegna nauðgunar í húsasundi Í HNOTSKURN » Árið 2005 rannsakaði lögreglan íReykjavík 43 nauðgunarmál. Þau voru 25 árið á undan og 33 árið 2003. » Í 70% tilvika fara nauðganir fram áheimilum og í 50% tilvika þekkja árás- armennirnir fórnarlömb sín. Heldur færist í vöxt að konur verði fyrir árásum og nauðgunum utandyra TÍU þúsund manns höfðu komið í verslun IKEA í Garðabæ síðdegis í gær, á fyrsta opnunardegi versl- unarinnar á nýjum stað. Opið var til 22 í gærkvöldi og bjóst Þórarinn Ævarsson framkvæmdastjóri IKEA við að fjöldi gesta færi í 20 þúsund áður en yfir lyki. Að sögn Þórarins er nýja verslunin gjörbreyting frá því sem fólk átti að venjast á gamla staðnum við Holta- garða, þótt ekki væri nema fyrir fjölda bílastæða sem nú eru 1.200 en voru 300 við Holtagarða. „Öll aðstaða hér er miklu betri en áður og við höfum tækifæri til að sýna fleiri útfærslur og lausnir. Síðan er vöruúrvalið meira,“ sagði hann. Á opnunardeginum í gær var þung umferð á Reykja- nesbrautinni sem olli einu vandkvæðum dagsins að mati Þórarins. Mikið var um að fólk kæmi með börnin í nýju verslunina og taldist Þórarni til að nú væru fimm manns í bíl miðað við tvo allajafna á gamla staðnum. Opið verður kl. 22 í kvöld og alla helgina. Morgunblaðið/Eyþór Þúsundir gesta komu í nýja IKEA-búð BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam- þykkti í gær tillögu Björns Inga Hrafnssonar, formanns ráðsins, að selja Fríkirkjuveg 11 og að finna hentugra húsnæði fyrir Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur (ÍTR). Að sögn Björns Inga kemur til greina að ÍTR verði fundið aðsetur í húsi Orkuveitu Reykjavíkur, en ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum. „Þetta fallega gamla hús hentar ekki vel fyrir vinnustað af þeirri stærðargráðu sem Íþrótta- og tómstundaráð er,“ sagði Björn Ingi. Þá mætir húsið ekki nútíma- kröfum til borgarstofnana, t.d. hvað varðar aðgengi fatlaðra og bílastæði. Björn Ingi sagði ljóst að húsið sé friðað. Hann sagði að húsinu verði afmörkuð lóð og það ekki selt með öllum Hallargarðinum. „Ætlunin er að Hallargarðurinn nýtist öllum almenningi áfram og þótt húsinu verði afmörkuð lóð þá er garðurinn svo stór að það kem- ur ekki að sök,“ sagði Björn Ingi. Húsið verður væntanlega aug- lýst til sölu á næstu dögum eða vikum. Björn Ingi kvaðst viss um að mikill áhugi yrði fyrir Frí- kirkjuvegi 11, enda húsið fallegt og sögufrægt. „Við vonumst til að fá sanngjarnt verð fyrir þessa fasteign sem óumdeilanlega er ein sú fallegasta í borginni,“ sagði Björn Ingi. Einnig er að hefjast vinna við að finna framtíðarhúsnæði fyrir ÍTR. „Meðal þess sem kemur til greina er að höfuðstöðvar ÍTR verði flutt- ar í hús Orkuveitu Reykjavíkur, en það verða allir kostir kannaðir í því sambandi,“ sagði Björn Ingi Tillaga Björns Inga var sam- þykkt með fjórum atkvæðum meirihluta gegn tveimur atkvæð- um minnihluta. Fulltrúi Vinstri grænna gerði bókun þar sem m.a. segir: „Það er afar mikilvægt að sú starfsemi sem fer fram í húsinu þjóni almenningi og falli vel að ná- býlinu við grænt og opið svæði borgarbúa en húsið sé ekki falboð- ið auðmannastéttinni í landinu … Fríkirkjuvegur á að vera áfram í eigu borgarinnar, sem á að sjá sóma sinn í því að þar fari fram starfsemi í almannaþágu.“ Fríkirkjuvegur 11 til sölu Morgunblaðið/Þorkell Til sölu Ætlunin er að flytja höfuð- stöðvar ÍTR úr Fríkirkjuvegi 11. LÁTLAUS innflutningur á erlendu vinnuafli einkennir vinnumarkaðinn hér á landi, en það sem af er árinu hafa 4.400 nýir erlendir starfsmenn verið skráðir á íslenskan vinnumark- að. Í septembermánuði einum bætt- ust eitt þúsund manns á íslenskan vinnumarkað og hefur svo mikil fjölgun aldrei áður mælst í einum mánuði. Þetta kemur fram í nýjum tölum Vinnumálastofnunar um atvinnu- ástandið í septembermánuði og er gert að umtalsefni í nýútkomnu vef- riti fjármálaráðuneytisins. Fram kemur að allt árið í fyrra voru 3.900 erlendir starfsmenn skráðir á vinnu- markaði hér og þar áður höfðu flestir verið skráðir árið 2000, en þá voru þeir 2.300 talsins. Einnig kemur fram að frá því að nýjar reglur tóku gildi 1. maí síðast- liðinn um aðgang fólks frá átta lönd- um Austur-Evrópu að vinnumarkaði hér vegna inngöngu landanna í Evr- ópusambandið hefur skráningum fólks þaðan á vinnumarkað hér fjölg- að mjög, en að sama skapi hefur dregið mjög úr veitingu atvinnu- leyfa. Fram kemur einnig að at- vinnuleysið í september mældist 1% og hefur ekki verið svo lítið í fimm ár. 4.400 nýir erlendir starfsmenn HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að sýkna ferðaþjónustufyrirtækið Tindafjöll af kröfum viðskiptavinar sem varð fyr- ir meiðslum í bátsferð með fyrirtækinu niður Skaftá árið 2001. Hann féll út- byrðis þegar gúmmíbát hans hvolfdi en komst af sjálfs- dáðum upp úr ánni. Í dómi Hæsta- réttar var fallist á að sjónarmið um áhættutöku ylli því að mað- urinn gæti ekki krafið Tindafjöll um bætur fyrir tjón sitt, að því gefnu að fyrirtækið hefði staðið forsvaranlega að undirbúningi og framkvæmd ferðarinnar. Var talið sannað að maðurinn hefði, auk sér- staks björgunar- og hlífðarfatnað- ar, fengið nokkrar leiðbeiningar frá vönum leiðsögumönnum um það hvernig hann skyldi bera sig að í ferðinni. Málið dæmdu hæstaréttardóm- ararnir Árni Kolbeinsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Báta- fyrirtæki sýknað Vanir leiðsögumenn veittu leiðbeiningar TVÍTUGUR ökumaður sem aldrei hefur lokið bílprófi ók á mann við Tryggvabraut á Akureyri í gær. Maðurinn slasaðist nokkuð á fæti. Að sögn lögreglu varð slysið við afgreiðslu Bílaleigu Akureyrar við Tryggvabraut á Akureyri með þeim hætti að ökumanninum, sem var að skila bílaleigubíl, fipaðist við akstur- inn þegar hann ók að húsinu og í stað þess að hemla steig hann á bensín- gjöfina og ók á starfsmann leigunnar sem stóð á stétt framan við húsið, með þeim afleiðingum að starfsmað- urinn klemmdist á milli bifreiðarinn- ar og hússins. Félagi ökumannsins próflausa hafði fengið bílinn lánaðan hjá leig- unni, samkvæmt upplýsingum lög- reglu. Próflaus ökumaður ók á mann á gangbraut ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.