Morgunblaðið - 13.10.2006, Page 6

Morgunblaðið - 13.10.2006, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LAUGARDAGINN 14. október nk. hefst sex funda röð sem Pétur H. Blöndal alþingismaður stendur fyrir í Háskóla Ís- lands. Fundarstjórar eru þekktir fulltrúar hags- munaaðila og fólk með skoðanir á öndverðum meiði við Pétur. Munu fundarstjórar taka afstöðu til hugmynda Pét- urs eftir fyrirlestra hans, áður en opnað verður fyrir almennar fyr- irspurnir. Pétur er fyrstur íslenskra stjórnmálamanna til að nýta sér þetta fyrirkomulag funda, að því er segir í tilkynningu frá þingmann- inum. Fundirnir eru opnir öllum sem hafa áhuga á þessum málum óháð afstöðu til stjórnmálaflokka. Þeir eru haldnir í aðdraganda prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þar sem Pétur hefur boðið fram krafta sína í 2. til 3. sæti. Nýstárleg fundaröð Pétur Blöndal Pétur H. Blöndal fundar með andstæðingum gagnvart rekstri, svo sem fastar arð- greiðslur OR eða greiðslur vegna ábyrgða á skuldbindingum Lands- virkjunar. Þar sé um að ræða eign sem borgarbúar njóta arðs af og komi þeim til góða þegar veitt er þjónusta. Órökstuddar fullyrðingar Dagur B. Eggertsson borgar- fulltrúi telur að auki órökstuddar þær fullyrðingar KPMG að hagræðing í rekstri hjá borginni hafi ekki gengið eftir. „Þeir skoðuðu ekki [hagræðing- arkröfurnar] inni í fjárhagsáætlunum hvers árs árs fyrir sig og töldu þær hvergi saman. Það kemur því hvergi fram í skýrslunni hvaða hagræðing- arkröfur hafa verið gerðar og hvernig þær hafa staðist,“ bendir Dagur á. Að sögn Stefáns Jóns Hafsteins borgarfulltrúa er meginályktunin sem draga má af efni skýrslunnar sú að fjárhagsstaða borgarinnar sé sterk. „En reksturinn er hár og mikill Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is MEIRIHLUTI sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur ætlar að nota skýrslu KPMG um fjármál borg- arsjóðs frá 2002 til að réttlæta óvin- sælar niðurskurðaraðgerðir, að mati minnihluta í borgarstjórn sem er mis- boðið vegna túlkunar borgarstjóra á niðurstöðum skýrslunnar. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri hefur lýst skýrslunni sem áfellisdómi yfir fjármálastjórn síðasta meirihluta. Minnihluti Samfylkingar í borgar- stjórn hélt blaðamannafund í gær til að svara meintum rangtúlkunum borgarstjóra á efni skýrslunnar. Telja fulltrúarnir ófært að telja einungis fram tölur um skuldir borgarinnar, án þess að geta þess að eignaaukning á móti sé jafn mikil. Fráleitt sé að telja ekki allar tekjur borgarsjóðs með þegar gerð sé grein fyrir stöðu hans og það vissum við svo sannarlega. Það er álit KPMG að fjárhagsstaðan sé sterk en sú upphafslína er ekki þarna og það gagnrýnum við. Framsetning- in er því ruglandi og býður upp á að pólitískur meirihluti sem er að taka við völdum máli skrattann á vegginn.“ Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi segir sjálfstæðismenn nota skýrsluna til að réttlæta niðurskurðinn og sverta þannig fjárhaginn að ósekju. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgar- fulltrúi segir að einkum muni niður- skurðurinn bitna á velferðarþjónustu. Borgarfulltrúarnir tilgreina að hreinar skuldir borgarsjóðs (A-hluta) hafi verið komnar niður í 1,2 milljarða 30. júní 2006 en þær hafi verið 15 milljarðar 1996. Þá hafi ytri endur- skoðun borgarinnar vakið athygli á að frávik frá fjárhagsáætlunum hafi ver- ið nær engin. Einnig sé rangt að borg- in hafi ekki átt fyrir fjárfestingum og niðurgreiðslu skulda því veltufé frá rekstri hjá A-hluta borgarsjóðs var alls 7,9 milljarðar 2002 – 2006 og þessi tala komi glögglega fram í skýrslu KPMG. Segja fjárfrá- vikin sáralítil Morgunblaðið/Sverrir Gagnrýni Borgarfulltrúar Samfylkingar gagnrýna framsetningu á fjár- málaskýrslunni. Björk, Dagur B., Steinunn Valdís og Stefán Jón Hafstein. FORSTJÓRI Umhverfisstofnunar (UST) gerir verulegar athugasemd- ir við stjórnsýsluúttekt Ríkisend- urskoðunar (RE). Davíð Egilson, forstjóri UST, segir í greinargerð að erfitt sé að greina á milli stað- reynda og huglægra atriða í skýrslu RE því í hana skorti kafla um hvernig úttektin var framkvæmd og hvaða gögn voru lögð til grundvall- ar. Þá séu dæmi um að tilvitnanir séu ekki rétt eftir hafðar, þrátt fyrir óskir um leiðréttingar. Forstjórinn segir að eiginleg verkáætlun við úttektina hafi aldrei verið send UST. Fyrstu drög að skýrslunni hafi valdið vonbrigðum fyrir hve hrá þau voru og efnistök. Í drögunum hafi einnig verið mjög al- varlegar staðreyndavillur og „nær- tækari ályktanir en Ríkisend- urskoðun dró voru auðsæjar þegar búið var að leiðrétta þær. “ Vafasamar ályktanir Í greinargerð sinni lýsir forstjóri UST sig ósammála niðurstöðum RE varðandi forgangsröð, faglegan ávinning og kaflanum um samskipti við umhverfisráðuneytið. „Hann deilir heldur ekki þeirri sýn Rík- isendurskoðunar að breytt skipulag án aukinna fjármuna og mannafla muni gera stofnuninni betur kleift svo neinu nemi að sinna þeim verk- um sem henni eru falin. Loks telur hann ályktanir um sparnað vegna flutnings starfsemi frá Akureyri til Reykjavíkur mjög vafasamar,“ skrifar forstjórinn. Ríkisendurskoðun stendur við skýrslu sína samkvæmt tilkynningu embættisins og telur einnig að for- stjóra UST hafi strax í upphafi ver- ið gerð munnlega grein fyrir því hvað fælist í stjórnsýsluend- urskoðun og sömuleiðis fyrir verk- áætlun um gerð áðurnefndrar skýrslu. Forstjóranum hafi því mátt því vera ljóst að skýrslan kæmi ekki eingöngu til með að snúast um það hvort nauðsynlegt fjármagn hafi fylgt auknum verkefnum sem lögð hafa verið á stofnunina. Ríkisend- urskoðun telur að tekið hafi verið tillit til allra réttmætra athuga- semda og vísar því á bug að end- anlegar niðurstöður séu dregnar af röngum eða ónákvæmum upplýs- ingum. Byggt á staðreynda- villum og röngu mati Forstjóri Umhverfisstofnunar gagnrýnir stjórnsýsluúttekt ♦♦♦ ICELANDAIR mun gefa farþegum sínum á leið til Íslands á ákveðnum flugleiðum í desember nk. heimild til að taka með sér meiri farangur en venjulega, án þess að greiða auka- gjald. Er það gert til að koma til móts við Íslendinga búsetta erlendis sem koma heim um jólin. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, segir þegar búið að lýsa því yfir að farþegar á leið til Íslands frá áfangastöðum í Bretlandi – London, Manchester og Glasgow – fái að vera með 35 kg af farangri án þess að greiða aukalega frá 1.–31. desember nk. Venjulega ber að greiða fyrir umframvigt sé farið yfir 20 kg. Farþegar á Saga Class fá að taka með sér 45 kg af farangri. „Hugmyndin er sú að þetta verði gert á fleiri stöðum, til dæmis frá Kaupmannahöfn, en það er ekki búið að ákveða hvernig það verður,“ segir Guðjón. Meiri far- angur í flug í desember samræmi við lög um persónuvernd.“ Einnig segir að nú séu síðustu for- vöð fyrir fyrirtækið að koma á eðli- legum samskiptum við starfsmenn og skorað á það að draga uppsagn- irnar til baka eða ljúka þeim í sátt með samningi um flýtt starfslok. Einnig að taka upp viðræður við full- FJÖLMENNUR fundur starfs- manna álvers Alcan í Straumsvík, sem haldinn var í Bæjarbíói í gær, mótmælti tilefnislausum uppsögnum vinnufélaga sem unnið hefðu hjá fyr- irtækinu áratugum saman og skor- aði á það að draga uppsagnirnar til baka eða ljúka þeim í sátt með samn- ingi um flýtt starfslok. Í ályktun fundarins er bent á að níu manns hafi verið sagt upp frá því í mars í fyrra þegar nýir kjarasamn- ingar voru gerðir án þess að þeir hafi nokkuð til sakar unnið eða að fækka þyrfti starfsmönnum. „Við lýsum eindreginni andstöðu við þá stefnu fyrirtækisins að nota heildstætt langtímamat til að ákvarða með uppsagnir og það án þess að okkur sé gerð grein fyrir í hverju það felst og án þess að við fáum færi til að gera við það athuga- semdir. Þá er full ástæða til að kanna hvort slík upplýsingasöfnun sé í trúa trúnaðarráðs og verkalýðs- félaga um starfsmannastefnu fyrir- tækisins og framkvæmd hennar með það að leiðarljósi að fyrirtækið verði eftirsóknarverður vinnustaður í framtíðinni og að það fari að sam- þykkt Alþjóðavinnumálastofnunar- innar um að starfsmaður hafi rétt á að verja sig fyrir aðfinnslum áður en honum sé sagt upp. Gylfi Ingvarsson, aðaltrúnaðar- maður hjá Alcan, sagði að fundurinn hefði verið mjög fjölmennur og troð- fyllt Bæjarbíó. Ályktunin hefði verið samþykkt einróma með lófaklappi og yrði hún afhent Alcan í dag. Morgunblaðið/Eyþór Starfsmenn Alcan fylltu Bæjarbíó í gær og samþykktu samhljóða ályktun þar sem uppsögnum var mótmælt. Fjölmennur fundur starfsfólks mótmælir uppsögnum Alcan Starfsmanna- stefna verði rædd

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.