Morgunblaðið - 13.10.2006, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 9
FRÉTTIR
SÁLFRÆÐINGURINN Alain
Topor, sem kemur hingað til lands
á vegum Geðhjálpar, heldur hér
tvo fyrirlestra. Þeir nefnast „Hvað
virkar í bataferli?“.
Fyrri fyrirlesturinn verður í
dag, föstudaginn 13. október,
klukkan 13 og beinist hann að fag-
fólki. Síðari fyrirlesturinn verður
kl. 13 á morgun, laugardag, og er
hann sniðinn að þörfum notenda
geðheilbrigðisþjónustunnar, að-
standenda þeirra og annars áhuga-
fólks.
Topor hefur skrifað fjöldann all-
an af bókum og kom með virkum
hætti að afstofnanavæðingu geð-
heilbrigðiskerfisins í Svíþjóð og
þróun samfélagslegra úrræða og
einstaklingsmiðaðrar umönnunar.
Skráning fer fram á skrifstofu
Geðhjálpar á Túngötu 7 í Reykja-
vík, í síma 570-1700 og á ged-
hjalp@gedhjalp.is.
Með fyrir-
lestra hjá
Geðhjálp
KRISTJÁN
Möller gefur kost
á sér í fyrsta sæti
á lista Samfylk-
ingarinnar í
Norðausturkjör-
dæmi vegna al-
þingiskosninga á
vori komanda.
Prófkjör Sam-
fylkingarinnar í
kjördæminu fer
fram síðari hluta þessa mánaðar með
póstkosningu.
Kristján var um tíu ára skeið for-
seti bæjarstjórnar á Siglufirði og
hefur verið efstur á lista Samfylking-
arinnar, fyrst á Norðurlandi vestra
og síðan í Norðausturkjördæmi. Á
Alþingi hefur Kristján verið varafor-
maður þingflokks Samfylkingarinn-
ar.
Í kynningarriti sem stuðnings-
menn Kristjáns dreifa er lögð
áhersla á að þau sóknarfæri sem fyr-
ir hendi eru í Norðausturkjördæmi
verði vel nýtt á næstu árum. Knýja
þurfi fram stórátak í samgöngu-
málum, með uppbyggingu þjóðvega,
Vaðlaheiðar- og Norðfjarðargöng-
um, til þess að sameina byggðir í
sterk atvinnusvæði. Þá þurfi að færa
þungaflutninga af þjóðvegum í
strandsiglingar.
Afkomutrygging aldraðra og ör-
yrkja, forgangur menntunar og
menningar og jafnræði og jafnrétti
landsmanna allra eru einnig meðal
helstu baráttumála Kristjáns, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu.
Allar nánari upplýsingar á
www.kristjanmoller.is
Kristján
sækist eftir
fyrsta sæti
Kristján Möller
♦♦♦
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
Ný sparilína
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
j teigi 5
í i 581 2141
Finnurðu ekki stærðina þína?
Eiðistorgi 13, 2. hæð á torginu Sími 552 3970
Saumum buxur eftir pöntun
Tilbúnar stærðir 38-50 eða sérpöntun
Nýr opnunartími
vegna breytinga:
Opið mán.-fös.
kl. 16-18. buxur.is
FLOTTIR TOPPAR
Bæjarlind 6
sími 554 7030
Eddufelli 2
sími 557 1730
Jakki
kr. 5.400
Jakki
kr. 14.990
H Æ Ð A S M Á R A 4
S Í M I 5 4 4 5 9 5 9
Nýtt kortatímabil
Laugavegi 54,
sími 552 5201.
Fyrir
árshátíðina
Ný sending
af glæsilegum
síðkjólum
St. 36-48
Nýbýlavegi 12, Kóp.
Sími 554 4433.
Opið virka daga kl. 10-18
laugardaga kl. 10-16.
Jakkadagar
20% afsláttur