Morgunblaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI Eftir Andra Karl andri@mbl.is MAGNÚS Stefánsson félagsmála- ráðherra mun kynna ríkisstjórninni heildstæða forvarnarstefnu eigi síð- ar en á fullveldisdaginn, 1. desember nk., en um þessar mundir fer fram vinna stýrihóps á vegum félagsmála- ráðuneytis þar sem hugað er að víð- tæku samráði fjölmargra aðila sem þekkja fíkniefnavandann og forvarn- arstarf af eigin raun. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, tók upp um- ræðu um fíkniefnavandann utandag- skrár á Alþingi í gær. Í erindi sínu spurði hann félagsmálaráðherra m.a. út í verkefni sem ríkisstjórnin hafði falið honum, að leiða samstarf þeirra sem að forvörnum starfa og móta heildstæða stefnu í mála- flokknum. Magnús sagði forvarnar- málin í góðum farvegi. „Ég hef þegar skipað fimm manna stýrihóp til að leiða verkefnið undir forystu Ingibjargar Pálmadóttur, fyrrverandi heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra, en sú heiðurs- kona beitti sér mjög fyrir forvörnum í ráðherratíð sinni.“ Í hópnum eru, auk Ingibjargar og fulltrúa félagsmálaráðuneytis, fulltrúar heilbrigðisráðuneytis, dómsmálaráðuneytis og mennta- málaráðuneytis. „Stýrihópurinn vinnur m.a. að því að móta fyrsta, annars og þriðja stigs forvarnir en þær eru í fyrsta lagi aðgerðir sem miða að almennri fræðslu til barna og foreldra, í öðru lagi að leita uppi áhættuhópa og í þriðja lagi að veita þeim sem hafa ánetjast viðeigandi hjálp og stuðning,“ sagði ráðherra sem væntir mikils af samstarfinu. Unnið er að því að tillagan verði kynnt ríkisstjórninni í byrjun des- ember nk. Þingmenn sem stigu í kjölfarið í ræðustól þökkuðu fyrir þarfa um- ræðu. Þuríður Backman, þingmaður Vinstri grænna, gagnrýndi þá að á meðan slík umræða færi fram lægi fyrir Alþingi tillaga um að leyfa sölu á léttvíni og bjór í matvöruverslun- um. Hún sagði það aðeins vera til þess að auka á vandann. Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, sagði nauðsyn að breyta umræðunni um fíkniefni og þann heim sem seljendur og not- endur lifa í. Varast ætti að ræða um hörð fíkniefni, harðan heim fíkniefna og annað slíkt, til að senda ekki ung- mennum röng skilaboð. Óhörðnuð- um ungmennum gæti þótt spennandi að taka þátt í og tengjast hörðum heimi og ætti því frekar að ræða um fíkniefnaneytendur sem sjúklinga. Sæunn Stefánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, lagði mikið upp úr fjölskyldugildunum sem bæri að efla og Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði þörf á því að efla löggæslu og heim- ildir tollgæslunnar. Hann benti auk þess á að nota mætti menntakerfið með öflugri hætti í forvörnum en nú er gert, til dæmis til að sýna afleið- ingar fíkniefnaneyslu. Ný forvarnarstefna kynnt í desember Víðtækt samráð milli allra aðila MAGNÚS Stefánsson, félagsmála- ráðherra, sagði margt hafa áunnist í meðferð fyrir börn og ungmenni undir átján ára, s.s. að nú væri hægt að halda þeim í meðferð án þeirra vilja, en áfram yrði unnið öt- ullega í málaflokknum á næstunni. Morgunblaðið/Sverrir Betri meðferð THORBJØRN Jagland, forseti norska Stórþingsins, er hér í opinberri heimsókn ásamt eiginkonu sinni í boði forseta Alþingis dagana 11.–15. október. Í gær átti Jagland m.a. fund með Sólveigu Pétursdóttur, forseta Alþingis, formönnum þingflokka og formanni Samfylk- ingar. Hann hittir einnig forseta Íslands og ráðherra. Morgunblaðið/Sverrir Forseti Stórþingsins í heimsókn SKOÐAÐ verður samspil almanna- trygginga- og lífeyriskerfisins með það að markmiði að einfalda trygg- ingakerfið, draga úr skerðingaáhrif- um tekna og auka möguleika lífeyr- isþega til að bæta kjör sín, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar, við fyrri umræðu um tillögu þingflokka stjórnarandstöðunnar til þingsálykt- unar um nýja framtíðarskipan lífeyr- ismála. Tillagan er flutt sameiginlega af öllum þingmönnum Samfylkingar- innar, Vinstri grænna og Frjáls- lynda flokksins en fulltrúar flokk- anna hafa að undanförnu samræmt áherslur sínar á sviði almannatrygg- inga, skoðað tillögur og ályktanir og sett saman. „Tillagan endurspeglar það sameiginlega viðhorf stjórnar- andstöðunnar að eitt allra brýnasta verkefnið á sviði velferðarmála hér á landi sé að bæta kjör öryrkja og aldraðra. Þessar tillögur koma til viðbótar og ganga mun lengra en þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur fallist á að grípa til, eftir mikinn þrýsting af hálfu eldri borgara og ör- yrkja,“ sagði Ingibjörg. Tillagan boðar annars vegar taf- arlausar aðgerðir sem fela í sér kjarabætur til öryrkja og aldraðra á þessu ári og svo frá næstu áramótum og hins vegar felur hún sér í sér að- gerðir sem leggja grunn að breyttri grundvallarskipan þessara mála. „Þar eru veigamestu breytingarnar sú afkomutrygging sem tekur mið af raunverulegum framfærslukostnaði sem og tilkoma innbyggðs hvata, eða auknir möguleikar elli- og örorkulíf- eyrisþega til að bæta stöðu sína með viðbótar tekjuöflun án þess að til skerðingar komi.“ Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, fjallaði stuttlega um frítekjumark vegna at- vinnutekna og benti m.a. á það um- fangsmikla nefndarstarf sem unnið var gagnvart öldruðum. „Þetta er samkomulag sem stendur til fjög- urra ára, og auðvitað er alltaf hægt að breyta því með lögum ef svo skip- ast veður í lofti en þetta er sam- komulag sem ríkisstjórnin ætlar að standa við,“ sagði Siv og bætti því við að 12 milljarðar króna hefðu komið þar inn í bæði þjónustuþætti og líf- eyrisgreiðslur. Stjórnarandstaðan vill endurskoða lífeyriskafla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.