Morgunblaðið - 13.10.2006, Side 22

Morgunblaðið - 13.10.2006, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ SENDUM Í PÓSTKRÖFU www.simnet.is/heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889 fæst m.a. í , Skólavörðustíg 16 Borgartúni 24 - Hæðarsmára 6 Fjarðarkaupum Lífsinslind í Hagkaupum Heilsuhúsið Selfossi Rauðsmári Hormónajafnvægi fyrir konur á breytingaskeiðinu Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hafnarfjörður | Nýbygging við Flensborgarskóla í Hafnarfirði hef- ur breytt gífurlega miklu, að sögn Magnúsar Þorkelssonar aðstoð- arskólameistara. Hann nefnir breytta ímynd skólans í bænum, breytta og betri vinnuaðstöðu og vinnuumhverfi starfsmanna og síð- ast en ekki síst segir hann að bygg- ingin breyti öllu fyrir nemendur skólans. Mikil birta Í apríl 2005 var fyrsta skóflu- stungan tekin að nýbyggingu við Flensborgarskóla og fyrir skömmu var húsnæðið formlega tekið í notk- un. Byggingin er á þremur hæðum, alls um 2.650 fermetrar og um 10.000 rúmmetrar. Í henni eru með- al annars stór matsalur sem jafn- framt er hljómleika- og hátíðarsalur, þrjár kennslustofur, fyrirlestrasal- ur, skrifstofuhúsnæði og vinnuað- staða og setustofa fyrir kennara. „Við erum núna í mjög björtu og fallegu húsnæði, höfum fengið stór- an og fallegan sal sem rúmar mörg hundruð manns í sæti og þetta er gífurlegur munur frá fyrri aðstöðu,“ segir Magnús. „Við vorum í frekar dimmu húsnæði, sem reyndar er verið að vinna í að laga og ljúka á 2007, en breytt litaval í því sem hef- ur verið lagað ásamt nýja húsnæðinu hefur lýst allt upp. Allir sem koma hérna inn og þekktu gamla skólann tala um hvað miklu bjartara sé yfir öllu, miklu meiri birta. Að vera með glæsilegan sal og almennilegar skrifstofur þar sem við getum tekið á móti gestum gjörbreytir aðstöð- unni til að taka á móti fólki og breyt- ir öllu fyrir ímynd skólans.“ Stærsta breytingin Bókasafn skólans hefur fengið nýtt húsnæði og aðstaða kennara er allt önnur og betri en áður var. Magnús bendir á að fyrir breyt- inguna hafi um 60 manns deilt um 80 til 100 fermetra kennarastofu. „Hún var vinnustofa, matstofa, setustofa, kaffistofa og móttökustaður en nú er starfsfólk með miklu betri aðstöðu til að sinna sínum verkefnum.“ Kennslustofur hafa verið bættar, lagfærðar og tæknivæddar en í þær eru komnar eða munu koma magn- arar og hljóðkerfi. „Þær eru á allt öðru plani en þær voru,“ segir Magnús. Öflugt tónlistarlíf er í Flensborg og alla jafna eru um 10% nemenda í skólakórnum. Auk þess eru margir tónlistarmenn í skólanum og segir Magnús að tónlistarlíf hafi jafnan verið í miklum blóma. Salurinn er hannaður fyrir tónlistarflutning og þar er svið fyrir hljómlistarmenn og aðstaða til að vera til dæmis með leiksýningar og ýmsar uppákomur hvenær sem er. „Stærsta breytingin er fyrir krakkana,“ segir Magnús. „Nú hafa þeir staði til að vera á, staði til að at- hafna sig á, staði til að hanga á, lesa, læra, spila eða gera hvað sem er. Þessa aðstöðu vantaði algerlega. Það vantaði þessa notalegu staði sem eiga að vera í skóla. Nú eru þeir til staðar.“ Mikil breyting í Flensborg Morgunblaðið/Eyþór Aðstaða Matsalur sem er jafnframt hljómleika- og hátíðarsalur hefur gjörbreytt allri aðstöðu í Flensborg. Í HNOTSKURN » Flensborgarskóli í Hafn-arfirði tók til starfa 1. júní 1882 og verður haldið upp á 125 ára afmæli skólans næsta sumar. » Liðlega 700 nemendur eruí Flensborg og hafa aldrei verið fleiri. » Fyrir tæplega áratugvoru um 400 til 500 nem- endur í skólanum en þeim hef- ur fjölgað jafnt og þétt og er gert ráð fyrir að þeir verði um 800 að ári. Garðabær | Skipulagsnefnd Garða- bæjar hefur samþykkt að ARKþing, Batteríið, Kanon arkitektar, Teikni- stofa arkitekta og Zeppelin arkitekt- ar taki þátt í rammaskipulagsgerð í Hnoðraholti í suðurhlíðunum gegnt Vífilsstöðum. Í fundargerð kemur fram að 13 hönnunarhópar hafi sýnt málinu áhuga og sótt um að taka þátt í skipulagsgerðinni. Allir hafi verið taldir hæfir og sagðir vera með góða reynslu af skipulagsvinnu á öllum sviðum. Valið hafi því verið vanda- samt. „Markmið skipulagsgerðar- innar er að fá fram framsækið og raunhæft rammaskipulag sem verði forsögn og stjórntæki fyrir frekari ákvarðanatöku varðandi uppbygg- ingu í Hnoðraholti,“ segir í fundar- gerðinni. Gert er ráð fyrir að niðurstaða rammaskipulagsgerðar liggi fyrir 7. febrúar 2007. Hnoðraholt ramma- skipulagt Garðabær | Skipulagsnefnd Garða- bæjar leggur áherslu á gæði frekar en magn í sambandi við sameig- inlega hesthúsabyggð Garðabæjar og Kópavogs á Kjóavöllum. Í fyrirliggjandi tillögu er gert ráð fyrir hverfi fyrir 4.000 til 4.700 hross og hefur nefndin miklar efa- semdir um svo mikinn fjölda. „Við leggjum áherslu á gæði frekar en magn og viljum byggja til framtíðar með umhverfissjónarmið í huga,“ segir Stefán Snær Kon- ráðsson, formaður nefndarinnar. Vill byggja til framtíðar ♦♦♦ AKUREYRI SÝNINGIN „Frá vaxhólkum til geisladiska“ verður opnuð í dag, föstudag kl. 17, í Amtsbókasafninu á Akureyri í tilefni af aldarafmæli hljóðritunar á Íslandi. Árið 2003 voru 100 ár liðin frá því að Jón Pálsson bankagjaldkeri og organisti hóf að safna þjóð- fræðaefni með hljóðritunum á vax- hólka. Í tilefni af því aldarafmæli var sett upp sýning haustið 2004. Við undirbúning aldarafmælisins kom fram hugmynd um að setja síð- ar upp framhaldssýningu í smækk- aðri mynd á þeim stöðum þar sem Ríkisútvarpið rekur svæðisútvarps- stöðvar. Fyrsta tilraun af því tagi er hljóðritasýning, sett upp í Amts- bókasafninu á Akureyri í samstarfi við ýmsa aðila. Hljóðritasýning í Amtsbókasafninu STEFÁN Árnason og Ágúst Stef- ánsson hafa að undanförnu vakið mikla athygli vegna heimasíðu sem þeir sjá um fyrir hið nýsameinaða handboltalið Akureyrar. Á síðunni birtast margar nýjar fréttir á hverj- um degi, gott yfirlit yfir alla leiki ásamt því sem skrifaðar eru beinar lýsingar frá hverjum einasta leik. Síðast en ekki síst er birt nákvæm tölfræði, í lok hvers leiks, um hvern einasta leikmann og fjöldi mynda. Þeir félagar tóku við heimasíðu KA síðasta vetur og þá byrjaði þessi öfluga umfjöllun um handboltann. Þegar KA og Þór sameinuðust í liðið Akureyri í haust vildu forráðamenn félaganna endilega fá þá til áfram- haldandi samstarfs. Þeir eru metn- aðarfullir og stefna á að gera enn betur í vetur. Ánægja með beinu útsendingarnar ,,Fólk hefur verið mjög ánægt með beinu lýsingarnar,“ segir Ágúst. „Þeir sem búa heima og er- lendis geta þannig auðveldlega fylgst með leikjunum.“ Heima- leikjum lýsa þeir með því að mæta á staðinn með tölvu og skrifa reglu- lega inn punkta um hvað er að ger- ast, stöðuna, hverjir skora, hver brýtur á hverjum o.s.frv. Þegar úti- leikir eru fá þeir einhvern til að vera í símasambandi við þá allan leikinn sem matar þá með því sem er að gerast í leiknum. Þá sitja þeir bara heima og setja beinu lýsinguna inn þaðan. ,,Þetta er allt spurning um skipulag, ef við fáum hugmynd getum við yfirleitt fengið hana til að ganga upp ef við förum tímanlega í málið,“ segir Ágúst, en þeir redd- uðu t.d. sjálfir snúrum og því sem til þurfti til að fá netsamband í frétta- mannastúkuna í KA-heimilinu. Fað- ir Ágústs, Stefán Jóhannsson, sem sér um tölvukerfi Háskólans á Ak- ureyri, hefur verið þeim drengjum innan handar í tæknilegum hluta heimasíðugerðarinnar. Heimasíðugerðin er öll unnin í sjálfboðavinnu og tekur að sögn þeirra félaga mikinn tíma. Þeir segjast vera með hugann við þetta allan daginn, t.d. hverja þeir eigi að taka viðtöl við og afla upplýsinga um hitt liðið. Þeir taka alltaf nokkur viðtöl eftir leikina við leikmenn og þjálfara, líka úr hinu liðinu. Fé- lagarnir hafa einnig fjallað töluvert um yngri flokkana og telja mik- ilvægt að efla þá umfjöllun enn frek- ar. ,,Krakkarnir hafa svo gaman af því þegar birtast myndir af þeim á síðunni og sagt er frá því sem vel er gert,“ segir Ágúst. Hvatning fyrir ungt fólk Hann telur svona umfjöllun geta verið hvatning fyrir unga fólkið til að halda áfram að iðka íþróttina. Það sé líka mjög mikilvægt að hafa stöðugt eitthvað nýtt á síðunni til að fólk haldi áfram að skoða hana. Stefán æfði handbolta á yngri ár- um en þjálfar nú 5. flokk drengja og langar að einbeita sér að þjálfun í framtíðinni. Hann útskrifaðist sem stúdent frá Verkmenntaskólanum á Akureyri síðastliðið vor en vinnur nú á leikskólanum Krummakoti í Eyjafjarðarsveit ásamt þjálfuninni. Stefán er sonur hand- og fótbolta- kappans Árna Stefánssonar sem mörgum er kunnur þannig að hann á ekki áhugann langt að sækja. Ágúst hefur æft handbolta frá 8 ára aldri, spilar nú með 3. flokki KA og stefnir að því að komast eins langt og hann getur í handbolt- anum. Hann segir að gott gengi Al- ferðs Gíslasonar með KA hafi á sín- um tíma kveikt áhuga sinn á handboltanum ásamt frammistöðu íslenska landsliðsins. Hann er í öðr- um bekk Menntaskólans á Akureyri og því fer mestallur tími hans fyrir utan skólann í að spila handbolta eða skrifa um handbolta. Slóðin á heimasíðu handbolta- félagisins Akureyrar er: www.ak- ureyri-hand.is Handboltaumfjöllun vekur athygli Morgunblaðið/Ragnhildur Aðalsteinsdóttir Beinar lýsingar Stefán Árnason og Ágúst Stefánsson í fréttamannastúkunni. Eftir Ragnhildi Aðalsteinsdóttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.