Morgunblaðið - 13.10.2006, Page 24
|föstudagur|13. 10. 2006| mbl.is
*Tilboðsverð 2006
nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf nema að ráði læknis.
Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ.
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
www.nicorette.is
*Tilboðsverð 2006
S
e
p
t.
2
0
0
6
Nicorette Fruitmint
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru
einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að
kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun,
varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar
aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um
lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall,
óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf nema að ráði læknis.
Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ.
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
www.nicorette.is
Nýttbragð
sem kemurá óvart
25%
afsláttur
*

daglegtlíf
Jens Kristjánsson lét gamlan
draum sinn rætast þegar hann
opnaði uppskriftavefinn
www.matseld.is. » 27
netið
Sveitamatur frá ýmsum lönd-
um á vel við í íslenska haustinu
segir Sigurrós Pálsdóttir sem
galdraði fram nokkra rétti. » 28
matur
Hvernig geta hundaræktendur
brugðist við þegar hundar
þeirra greinast með arfgengan
augnsjúkdóm? » 26
daglegt
Ímínum frístundum hlusta égmest á tónlist og þá helstklassíska tónlist. Ég hef aukþess mjög gaman af einsöng
og allri kórtónlist enda hef ég sjálfur
verið í karlakórnum Fóstbræðrum í
meira en tuttugu ár,“ segir Björn
Þorsteinsson, fyrsti bassi og fram-
kvæmdastjóri tómstunda- og menn-
ingarsviðs Kópavogsbæjar. Björn
hefur ásamt fjölmörgum samstarfs-
mönnum hjá Kópavogsbæ staðið að
undirbúningi kanadískrar menning-
arhátíðar, sem sett verður með
pomp og prakt á morgun og standa
mun til 22. október.
„Kórstarfið er mjög gefandi og
skemmtilegt og hvílir mann frá
amstri dagana því umhverfið er svo
gjörólíkt minni venjulegu vinnu.
Kórinn fær fjölda verkefna upp í
hendurnar og kemur fram við hin
ótrúlegustu tækifæri. Og nú stendur
mikið til því síðar í mánuðinum fagn-
ar kórinn, sem telur um 70 syngj-
andi kórfélaga, 90 ára afmæli,“ segir
Björn og bætir við að öll píanótónlist
falli sér vel í geð.
„Ég hef líka alla tíð verið ein-
staklega hrifinn af okkar íslenska
bassasöngvara, Kristni Sigmunds-
syni, sem er svo sannarlega söngvari
á heimsmælikvarða, og ég hef haft
ákaflega gaman af því að hlusta á
sænska tenórinn Jussi Björling.
Hins vegar er ég lítið fyrir dæg-
urtónlistina. Ég hef verið duglegur
við að eyða aurunum í að kaupa plöt-
ur og síðar meir diska enda á ég orð-
ið dágott safn, svona fyrir sjálfan
mig,“ segir Björn, sem starfað hefur
hjá Kópavogsbæ síðan 1978 og sinn-
ir nú m.a. þeim þáttum, sem snúa að
tónlistinni, en Kópavogsbær stendur
að hátt í 40 tónleikum á ári í Salnum,
sem opnaður var í ársbyrjun 1999.
Þar með gjörbreyttist aðstaða til
tónleikahalds í Kópavogi.
Kanadísk menningarhátíð
Kópavogsbær hefur undanfarin
tvö ár staðið fyrir nýjungum á sviði
list- og menningartengdra viðburða
með því að kynna menningu, listir og
þjóðlíf annarra landa. Spánn varð
fyrst fyrir valinu, síðan Rússland og
nú Kanada. Tengsl Íslands og Kan-
ada hafa verið mikil, sér í lagi fyrir
þær sakir að til Kanada fluttist fjöldi
Íslendinga búferlum í lok nítjándu
aldar og í upphafi þeirrar tutt-
ugustu.
Mikið verður um dýrðir á hátíð-
inni og sækir fjöldi listamanna
Kópavog heim þessa daga. Nefna
má tónleika hins heimskunna píanó-
leikara Angelu Hewitt í Salnum og
heimsókn rithöfundarins Michaels
Ondaatje, sem skrifaði m.a. skáld-
söguna The English Patient, en
samnefnd Óskarsverðlaunamynd
var gerð eftir sögu hans.
Kvikmyndahátíð verður alla daga í
Kórnum í Bókasafni Kópavogs auk
þess sem þrjár listsýningar verða
opnaðar í Gerðarsafni á morgun sem
beina sjónum manna að menningu
og list frumbyggjanna.
» Mælt með | 27
Morgunblaðið/Ásdís
Tónlistarunnandi Björn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri tómstunda- og
menningarsviðs Kópavogsbæjar, hefur gaman af klassískri tónlist.
Syngjandi sviðsstjóri
Uppáhaldsstaður: Ég ætti að segja Siglufjörður þar sem ég er alinn þar
upp en mér finnast margir aðrir staðir fallegir, t.d. Borgarfjörðurinn.
Besti tími dagsins: Seinnihluti dags eftir vinnu og fram að háttatíma.
Uppáhaldsgönguleiðin: Göngustígakerfi Kópavogs sem liggur í allar
áttir.
Best að borða: Allt lambakjöt er gott, en ég get lifað á hangikjöti.
Björn mælir með
ÞAÐ skiptir öllu máli hvort nýbök-
uð móðir stormar inn á kaffihús ýt-
andi á undan sér sportlegum
Emmaljunga-barnavagni, Silver
Cross-glæsivagni sem kostar 140
þúsund krónur eða gamalli og lú-
inni kerru sem minnir á úr sér
genginn kassabíl. Ný rannsókn sýn-
ir nefnilega að mæður vega hver
aðra og meta eftir merkjum og ár-
gerðum vagnanna, að því er Berl-
ingske Tidende greinir frá.
Rannsóknin var á vegum Syd-
dansk Universitet og segir einn höf-
unda hennar að mismunandi teg-
undir vagna gefi frá sér ólík
skilaboð. Sportlegu vagnarnir séu
með slöngudekk og gefi til kynna að
eigandinn sé stöðugt á ferðinni og
vilji komast leiðar sinnar. Aðrir
vagnar virðist setja öryggið á odd-
inn meðan Silver Cross-vagnarnir
bendi til velmegunar. „Við metum
hvort annað eftir fötunum sem við
klæðumst, merkjatöskunum sem við
höldum á og matnum sem við borð-
um. Það er því ekkert undarlegt að
stöðugt eldri, ríkari og meðvitaðri
mæðum finnist tegund vagnsins
skipta máli,“ segir Elin Brandi Sø-
rensen hjá Syddansk Universitet.
Þá greindi ein mæðranna í rann-
sókninni frá því að hún hefði nánast
lent í vandræðum með að útskýra
fyrir öðrum konum hvers vegna
hún hefði valið sér ódýran barna-
vagn.
Virðing fylgir vagni hverjum
Morgunblaðið/Ásdís
Virðingartákn Tegund vagnsins skiptir máli þegar kíkt er á kaffihús.
Í október er uppskeran í há-
marki hjá vínbændum í Toskana
á Ítalíu og stemningin alveg
sérstök. » 30
ferðalög
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Lífsbjörg Eitt
fjölmargra lista-
verka á listsýn-
ingunum þrem í
Gerðarsafni.
www.kopavogur.is