Morgunblaðið - 13.10.2006, Síða 27
matur
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 27
Spilagleði í Þorlákshöfn
Hljómfagrir tónar munu án efa berast um Þorláks-
höfn um helgina því þar er áformað að halda stórt
strengjasveitamót, sem 250 nemendur úr 21 tónlistar-
skóla hvaðanæva af landinu hafa skráð sig til leiks í.
Krakkarnir ætla að leggja undir sig íþróttahús og
grunnskóla Þorlákshafnar. Hefð er komin á slík mót
annað hvert ár, en þetta er þriðja mót sinnar tegundar
sem haldið er á Íslandi. Mót þessi eru sögð vel til þess
fallin að glæða áhuga, þroska hæfni og veita spilagleð-
inni útrás.
Verslun og menning
Fyrir verslunarglaða er veisla framundan um
helgina. Kringlukast verður í Kringlunni og gera má
ráð fyrir því að margir kíki inn í glænýja IKEA-verslun
í Garðabæ sem jafnframt er stærsta verslun á Íslandi.
Þar verður innflutningspartí alla helgina sem lýkur
með flugeldasýningu á sunnudagskvöld.
Kópavogsbær stendur fyrir kanadískri menning-
arhátíð næstu níu daga sem sett verður í Gerðarsafni á
morgun. Sjónum verður m.a. beint að menningu frum-
byggja, indíána og inúíta. Sögur hafa varðveist af sam-
skiptum Íslendinga og indíána, m.a. við Winnipeg-vatn
þar sem frumbyggjarnir reyndust innflytjendum mikl-
ar hjálparhellur.
Kynjakettir í Reiðhöllinni
Fyrir kattaunnendur
má benda á að haustsýn-
ing Kynjakatta verður
haldin um helgina í reið-
höll Gusts við Álalind í
Kópavogi og verður opið
báða dagana frá kl. 10–
18.
Skák í Sundagörðum
Fyrir skákáhugamenn má nefna að stelpuskákmót
Olís og Hellis fer fram í höfuðstöðvum Olís, Sundagörð-
um 2, á morgun og hefst kl. 13.
Þetta er í annað sinn sem þetta mót
fer fram, en mótið var afskaplega
vel sótt í fyrra og voru flestar sterk-
ustu ungu skákkonur landsins með-
al þátttakenda. Öllum stelpum á
grunnskólaaldri er boðið til leiks.
Samhliða mótinu fer fram drottn-
ingaflokkur þar sem allar konur eru
velkomnar til leiks, en meðal kepp-
enda má nefna landsliðskonurnar
Lenku Ptácníkovú og Guðfríði Lilju
Grétarsdóttur og má þar búast við
harðri baráttu. Skráning fer fram á
heimasíðu Hellis, www.hellir.com.
Dagur hvíta stafsins
Blindrafélagið verður með ýmsar nytsamlegar kynn-
ingar í Smáralindinni á sunnudaginn kl. 13 til 15 í tilefni
af Degi hvíta stafsins, alþjóðlegum baráttudegi blindra
og sjónskertra. Þar er hægt að kynna sér m.a. notkun
hvíta stafsins, sjónhjálpartæki, talgervla, blindralet-
ursskjá, stækkunarbúnað og blindraletursbækur.
Nuddarar verða á svæðinu og bjóða gestum upp á axl-
anudd, handavinnufólk vinnur handverk og hljóðfæra-
leikarar skemmta fólki.
mælt með …
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Hugmyndin að þessum vef kviknaðifyrir nokkrum árum þegar égvar í heimsókn hjá vinkonuminni og hripaði niður uppskrift
á miða sem ég tróð svo í vasann hjá mér.
Heim kominn ætlaði ég að elda eftir þessari
uppskrift en fann ekki miðann, þá fór ég að
hugsa að það vantaði uppskriftabanka á net-
inu sem væri opinn og óháður,“ segir Jens
Kristjánsson, umsjónarmaður vefritsins
www.matseld.is. „Vefurinn er búinn að vera í
smíðum í um tvö ár og var opnaður í sumar.
Það sem er aðallega á vefnum núna eru upp-
skriftir, en þar geta allir skráð uppskriftir á
sitt svæði og aðrir geta skoðað þær. Fljót-
lega verður veitingahúsahlutinn tilbúinn, þar
getur fólk komið sínum skoðunum á veitinga-
húsum á framfæri en allir hafa skoðun á því
sem þeir borða, hvort sem það er heima eða á
veitingahúsi. Síðan kemur þjónustuskrá líka
þar sem hægt er að finna kokka, sali og sér-
búðir. Á endanum á að vera hægt að finna
allt sem tengist mat inni á vefnum.“
Einstakir hæfileikamenn
Vefurinn www.matseld.is er gjaldfrjáls öll-
um notendum. Hver sem skráir sig á vefinn
fær sitt eigið svæði og þar getur hann m.a
skráð sínar uppskriftir, verið með umræðu
og skrifað greinar. Jens segir þetta mjög ein-
falt og að allir geti sett efni þarna inn eða
leitað að uppskrift eftir höfundi, hráefni,
matartegund o.fl.
Samstarfsmenn sína fann Jens á erlendri
vefsíðu. „Sergey Blagodetelev frá Úkraínu
sér um útlit síðunnar og Pradeep Raj Sairam
frá Indlandi um forritun. Ég gróf þá upp á
vefsíðu þar sem hægt er að finna sér sam-
starfsmenn úti í heimi. Þeir eru einstakir
hæfileikamenn og ég var heppinn að fá þá.
Við höfum aldrei hist og samskipti okkar
fara fram í gegnum tölvu. Ég reikna með að
vinna með þeim næstu árin því þessu verk-
efni lýkur aldrei,“ segir Jens, en það er líka á
döfinni að markaðssetja vefinn á ensku í
framtíðinni. „Viðbrögðin við www.matseld.is
hafa verið merkilega góð miðað við að vef-
urinn hefur ekkert verið auglýstur. Not-
endahópurinn er kominn yfir 500 manns á
þessum tveimur mánuðum og fjölgar í hon-
um á hverjum degi,“ segir Jens ánægður og
bætir við að það virðist hafa verið þörf fyrir
slíkan vef hér á landi.
Íslensk kjötsúpa í uppáhaldi
Jens er forfallinn mataráhugamaður.
„Áhuginn á mat hefur lengi verið til staðar
hjá mér. Ég elda mikið en veitingahúsin og
það sem þau hafa upp á að bjóða er samt
meira áhugamál hjá mér.“ Jens segir uppá-
haldsmatinn sinn vera íslenska kjötsúpu þótt
hann eldi líklega mest af indverskum græn-
metismat um þessar mundir. „Íslenska kjöt-
súpan er afskaplega merkileg en ég kann
ekki að elda hana. Ég vil hafa hana bragð-
mikla, feita, með pipar, ekki miklum grjón-
um og frekar þunna,“ segir þessi mikli mat-
gæðingur að lokum og gefur uppskrift að
indverskum grænmetisrétti.
Allir hafa skoðun á mat
Morgunblaðið/Kristinn
Lostæti Á næstu grösum er einn af uppáhaldsveitingastöðum Jens Kristjánssonar.
Strengjabaunir í kókos
1 tsk. sinnepsfræ
10 curry lauf
1 tsk. turmeric duft
1 tsk. svartar linsubaunir (ósoðnar)
100 g laukur, fínt saxaður
200 g strengjabaunir, skornar smátt
3 grænir chile-ávextir, skornir í strimla,
fræhreinsaðir ef vill
50 g ferskur kókos, gróft hakkaður
olía
salt
Olían hituð á stálpönnu. Sinnepsfræin
sett út á. Þegar þau fara að springa eru
currylaufin og linsubaunirnar settar út í
og steikt í 7–8 mín. eða þar til linsubaun-
irnar hafa tekið gylltan lit. Lauk bætt við
og steiktur í um 5 mín. eða þar til hann
brúnast dálítið. Þá er chile-pipar og tur-
meric bætt út í og steikt í 2 mínútur.
Strengjabaunirnar settar út í ásamt 3–4
msk. af vatni og suða látin koma upp. Þá
er lækkað undir, lok sett á pottinn og soð-
ið í um 10 mínútur eða þar til baunirnar
eru soðnar en samt stinnar. Rétturinn er
því næst tekinn af hitanum, kókosnum
hrært saman við og smakkað til með salti.
Athuga ber að þetta er „þurrsteiktur“
réttur og því á að suðu lokinni enginn
vökvi að vera á pönnunni. Uppskriftina
fékk Jens úr bókinni Fresh flavors of
India eftir Das Sreedharan, annan eig-
anda Rasa-veitingahúsakeðjunnar í Lond-
on.
TENGLAR
...............................................................
www.matseld.is
Í TILEFNI 7 ára afmælis Kassa.is verður
ný heimasíða tekin í notkun sem gefur
söluaðilum kost á að stofna eigin netversl-
un innan kassi.is auk þess að einstaklingar
geta skráð flokkaðar auglýsingar og upp-
boð. Viðkomandi netverslun getur einnig
sett einstök tilboð í vikulegt fréttabréf
kassi.is sem nær til yfir 50.000 ein-
staklinga.
Styrkja Ómar Ragnarsson
Kassi.is hefur jafnframt ákveðið að
hefja svokölluð styrktaruppboð. Oft á tíð-
um eru málefni, einstaklingar eða fjöl-
skyldur sem þarfnast sérstaks stuðnings
þar sem málefni þeirra heyrir ekki undir
neina stofnun eða tryggingar sem tryggja
e.t.v. ófyrirséðan skaða sem viðkomandi
hefur orðið fyrir. Þeir einstaklingar eða
fyrirtæki sem hafa áhuga á að styðja við-
komandi einstakling eða málstað geta því
gefið hlut eða hluti á viðkomandi styrkt-
aruppboð, ágóðinn rennur óskiptur til við-
komandi. Upplýsingar um viðkomandi
styrktaruppboð og hver hefur orðið fyrir
valinu í hvert skipti fyrir sig verður sent
út í vikulegu fréttabréfi, þannig geta
áhugasamir einnig fylgst með framgangi
söfnunar.
Fyrsta styrktaruppboð þessarar teg-
undar verður haldið til stuðnings Ómari
Ragnarssyni. Það er að frumkvæði Jó-
hanns G. Jóhannssonar, tónlistar- og
myndlistarmanns, sem Ómar Ragnarsson
varð fyrir valinu sem fyrsta samstarfs-
verkefnið á þessu sviði. Jóhann hefur gefið
olíumálverkið Ofar Jörðu (verð samkv.
verðskrá kr. 350.000) sem boðið verður
upp á kassi.is til stuðnings málefninu.
Nýtt hjá Kassa.is