Morgunblaðið - 13.10.2006, Page 29
matur
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 29
TVÆR nýjar rannsóknir benda til
þess að baunir geti minnkað hætt-
una á því að fá kirtilæxli í ristli.
Áður höfðu rannsóknir bent til
þess að mikil neysla á þurrkuðum
baunum minnkaði hættuna á
hjartasjúkdómum.
Krabbamein í ristli myndast oft-
ast í kirtilæxli.
Tvo bolla á viku
Rannsókn, sem náði til 35.000
kvenna í Bandaríkjunum, leiddi í
ljós að þær sem borðuðu tvo bolla
eða meira af þurrkuðum baunum á
viku voru 33% ólíklegri til að fá
kirtilæxli í ristli en þær stall-
systur þeirra sem borðuðu hálfan
bolla eða minna á viku.
Önnur rannsókn, sem gerð var
meðal fólks sem áður hafði fengið
kirtilæxli í ristli, leiddi í ljós að
þeir sem sem juku neysluna á
þurrkuðum baunum mest, voru
um 45% ólíklegri til að fá kirt-
ilæxli aftur en þeir sem höfðu
minnkað neyslu sína á baunum lít-
ilsháttar.
Tveir bollar eða meira á viku
eru þá taldir minnka líkurnar á
hjartasjúkdómum um 22% miðað
við þá sem borðuðu þurrkaðar
baunir sjaldnar en einu sinni í
viku.
Baunir góðar fyrir
kyrrsetufólk
Í Bandaríkjunum hefur full-
orðnu kyrrsetufólki verið ráðlagt
að borða um tvo og hálfan bolla af
baunum á viku. Þeim, sem þurfa
fleiri hitaeiningar, er ráðlagt að
borða allt að þrjá bolla á viku, að
því er fram kom á fréttavefnum
MSNBC.com. En heilsusamlegir
eiginleikar bauna eru m.a. taldir
að þakka einstökum efnafræðileg-
um eiginleikum jurtarinnar.
Baunir minnka
hættu á ristilkrabba
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Baunaréttir Með því að bæta baunum við matseldina má draga úr hætt-
unni á ristilkrabba sem og hjartasjúkdómum.
Hreiðar Karlsson yrkir umlandsþekkt fljót sem er
horfið:
Ýmsir kveina af eftirsjá,
aðrir þótt hljóðlega fagni.
Ófrýnilegasta landsins á
loksins kemur að gagni.
Hálfdan Ármann Björnsson,
Hlégarði, bendir á að mörgum
verði tíðrætt um náttúruperlurnar
sem hverfa munu í Hálslón, en
ýmislegt komi í ljós þegar grynnki í
ánni:
Við Jöklu oft var illt að tæta,
ólmaðist hún og bergið mól.
Núna auga næmu mæta
náttúruperlur, sem hún fól.
Þá Hólmfríður Bjartmarsdóttir á
Sandi:
Víst var áin voðalega ljót
og varla rétt að tefja heimsins þróun.
Dettifoss rennur enn um urð og grjót
og útlendingar horfa á þessa sóun.
Bágt á þjóð, að bera slíkan kross
belja jökulfljót um sanda ljóta.
En jöklar hverfa, ef hitnar enn hjá oss
svo allt mun þetta standa fljótt til bóta.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Enn af
Jöklu
FUNDIST hafa mítlar í döðlu-
pakkningum frá Himneskri holl-
ustu, dagsettum 30.05.07. og
31.07.07. Mítlarnir eru í litlu magni
og algjörlega skaðlausir. Í frétta-
tilkynningu frá Himneskri hollustu
kemur fram að fyrirtækið geri
miklar kröfur til afurða sinna og
því hafi verið ákveðið að innkalla
allar sendingar með þessum dag-
setningum.
„Himnesk hollusta hefur frá upp-
hafi lagt metnað sinn í að selja há-
gæðamatvöru, bæði lífrænt rækt-
aða og vistvæna, á íslenskum
markaði og harmar því óþægindi
sem af þessum mistökum hafa hlot-
ist. Varan verður að fullu endur-
greidd við skil.“ Nánari upplýs-
ingar er að fá hjá Himneskri
hollustu.
Mítlar í döðl-
um frá Him-
neskri hollustu