Morgunblaðið - 13.10.2006, Síða 30
Margir vínbændur íToskana bíða með aðtína berin fram í lokoktóber til að freista
þess að ná síðustu sólargeislunum.
Víða má sjá fólk sem stendur í
ströngu við að tína vínberin og
koma þeim síðan í vinnslu. Ef fólk
hefur tækifæri til að heimsækja
vínekrur á þessum árstíma er um
að gera að stoppa og jafnvel fá að
vera með. Þetta er heilmikil vinna
en mikil stemning og andrúms-
loftið er óneitanlega skemmtilegt.
Flestir vínbændur láta handtína
berin en stærri vínekrurnar á Chi-
anti-svæðinu nota vélar við tínsl-
una. Berin eru svo pressuð (ekki
með fótunum eins og í bíómynd-
unum) og þar með er vínfram-
leiðsluferlið hafið. Þegar vínber-
jatínslunni er síðan lokið er kátt á
bæjum og fagnað með viðeigandi
hætti.
Vínbændur eru bjartsýnir og
segja að vínuppskeran í ár lofi
mjög góðu, vínberin líti vel út og
að það sé nóg af þeim.
Novello vínið, eða nýja vínið, er
yfirleitt drukkið í byrjun nóv-
ember. Chianti er oft notað sem
samheiti yfir Toskanavínin, en
mun meiri breytileiki er á vín-
unum en margir gera sér ljóst.
Toskana framleiðir aðallega rauð-
vín, af Sangiovese-þrúgunni. Bru-
nello di Montalcino ber enn þann
titil að vera eitt af dýrustu vínum
Ítalíu, þó svo að vín eins og Tign-
anello, Solaia og Sassicaia standi
ekki langt að baki. Þegar fólk fer í
vínleiðangur um Toscana ætti það
að veita vínum eins og Morellino
di Scansano og Vino Nobile di
Montepulciano athygli.
Svarti haninn
Chianti-svæðið skiptist í 2 hluta,
Flórens Chianti og Siena Chianti.
Merki Chianti Classico vína er
svartur hani sem flöskurnar eru
merktar með. Sagan segir að mik-
ill rígur hafi verið á milli þessara
bæjarfélaga, svo mjög að ekki var
talið að hægt væri að ákveða
landamörk Chianti-svæðisins á
friðsamlegan hátt. Var því ákveðið
að riddari frá sitt hvorum bænum,
Siena og Flórens, myndi leggja af
stað um leið og haninn byrjaði að
gala í dögun og að þar sem þeir
myndu mætast skyldu landamærin
verða. Sienamenn fóðruðu sinn
hvíta hana vel kvöldinu áður í
þeirri vissu að hann myndi syngja
hátt og vel við dögun, meðan Flór-
Haustuppskeran í Toskana
Ljósmyndir/HHJ
Skemmtilegt Í október er frábært að ferðast um Chianti-svæðið á Ítalíu en þá er uppskerutími hjá vínbændum.
Nokkrar uppástungur fyrir
sælkeraferðina:
www.osteriadipassignano.com,
góður veitingastaður sem sér-
hæfir sig í Antinori-vínum.
www.agriturismo.com, listi yfir
bændagistingar í Toskana.
www.agriturismo.regione.tosc-
ana.it.
www.tuscantrails.com, sjá um
vínsmökkunarferðir um Toskana.
www.voltrona.com, bændagist-
ing á góðum stað nálægt Siena.
Hægt er að fara í reiðtúra um
svæðið á íslenskum hestum.
www.torciano.com, vínsmökk-
unarskóli.
www.vinaio.com, vín og matur.
www.tourbikeflorence.it, vín-
smökkun á reiðhjólum.
www.rignana.it, Bændagisting.
Góður veitingastaður þar nálægt
heitir La Cantinetta di Rignana.
Í sveitum Toskana stend-
ur nú vínuppskeran sem
hæst. Hjördís Hildur Jó-
hannsdóttir heimsótti
vínbændur.
Það er alltaf gaman að
villast í sveitinni, innan
um vínekrur og kýpr-
ustré, og finna sætt
„Agriturismo,“ sem eru
hálfgerðar bændagist-
ingar og oft miklu
huggulegri en hótel.
ferðalög
30 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Stækkaðu við þig fyrir aðeins
1.990.000 kr.
HAUST TILBOÐ Á VECTRA ELEGANCE
Reynsla bíleiganda er að pláss sé dýrt. Nýr Opel Vectra býður upp á hámarksrými fyrir alla farþega en er í verðflokki með mun smærri
bílum. Í akstri gefur hann dýrari bílum ekkert eftir og öll hönnun er gjörbreytt með gæði og þægindi sem algjört forgangsatriði.
Núna bjóðum við þennan frábæra bíl á hausttilboði. Komdu til okkar, keyrðu hann og kollvarpaðu fyrri hugmyndum þínum um Opel.