Morgunblaðið - 13.10.2006, Page 31
Fegurð Litirnir í náttúrunni eru fallegir á þessum árstíma í Toskana.
ensbúar völdu sér svartan hana
sem þeir gáfu ekkert að borða.
Haninn, sársvangur, byrjaði að
góla langt fyrir dögun og varð það
til þess að riddarinn frá Flórens
fékk mun lengri tíma og þar af
leiðandi er Flórens Chianti-svæðið
mun stærra en Siena-svæðið.
Eftirréttavín með kexi
Hvítvínin frá Toskana eru ekki
síður mikilvæg, flest unnin úr
Trebbiano-þrúgunni, fyrir utan
Vernaccia di San Gimignano. Vin
Santo er eftirréttavín sem er á öll-
um vínseðlum í Toskana. Það er
borið fram með sérstökum kex-
kökum sem er dýft ofan í vínið.
Frábær eftirréttur.
Antinori er annað samheiti yfir
Toskana. Fjölskyldan er ein af
elstu og helstu vínframleiðendum
á Ítalíu og á rætur sínar að rekja
til 13. aldar. Piero Antinori tók við
stjórnartaumunum árið 1966 og
vann markvisst að því að auka
framleiðsluna og að færa Antinori-
nafnið inn í nútímann. Honum
tókst vel upp og hafði mikil áhrif á
vínframleiðslu um alla Ítalíu. Ant-
inori ræktar vín víða um Toskana
og má nefna: Badia a Passignano
(þar sem er líka frábær veitinga-
staður), Tignanello og Péppoli.
Frá Bolgheri má nefna Verment-
ino og Guado al Tasso.
Bílaleigubíll og kort
Þeir sem eru á leiðinni í sæl-
keraferð til Toskana ættu að fá
sér bílaleigubíl, gott kort og helst
ættu þeir að vera búnir að lesa
sér eitthvað til um vín og mat í
Toskana. Það er best að taka bíla-
leigubíl á flugvellinum í Flórens
eða Pisa til að forðast að þurfa að
hætta sér inn í borgir þar sem al-
þjóðlegar umferðareglur gilda
ekki. Þar gilda bara þeirra reglur!
Það er gott að vera skipulagður
og panta hótel á undan sér, en það
er líka alltaf gaman að villast í
sveitinni, innan um vínekrur og
kýprustré, og finna sætt Agrit-
urismo, sem eru hálfgerðar
bændagistingar og oft miklu
huggulegri en hótel. Þar er oft
hægt að kaupa alls konar góðgæti
sem bóndinn ræktar sjálfur.
Margir vínframleiðendur bjóða
upp á vínsmakkanir, vínsmökk-
unarnámskeið og matreiðslunám-
skeið. Nú, svo fyrir þá sem ekki
keyra eru í boði skipulagðar vín-
smökkunarferðir á reiðhjólum.
Höfundur er búsettur á Ítalíu.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 31
Nýr, fallegri og miklu betri Opel.
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00–18:00. Laugardaga kl. 12:00–16:00.
Þýska tímaritið Auto Bild valdi
Opel bestu þýsku bíltegundina
í Þýskalandi árið 2006
Aukahlutir á mynd: álfelgur
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Orlando Vacation Homes
If you are planning a trip to Orlando, Florida and you are interested
in learning more about vacation home ownership, please contact
us or visit our website.
www.LIVINFL.com
Contact: Meredith Mahn
001-321-438-5566
Domus Pro Realty - Vacation Home Sales Division