Morgunblaðið - 13.10.2006, Síða 35

Morgunblaðið - 13.10.2006, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 35 EINSTAKT VERÐ Á NÝJUM LEGACY 2007 árgerðin af Legacy markar tímamót. Ný hönnun leiðir saman öryggi, þægindi og magnaða aksturseiginleika. Kraftmikil vélin situr lárétt og lágt í vélarrúminu sem margfaldar eiginleika sídrifsins og gerir allan akstur stöðugari. Nýr og aukinn staðalbúnaður eykur þægindin á meðan ekið er. Það eina sem hefur ekki verið bætt við er verðið. * Samkvæmt sölutölum Umferðarstofu 01/04 til 28/04 2006 SPORT SEDAN VERÐ Beinskiptur 2.490.000 Sjálfskiptur 2.620.000 SPORT WAGON VERÐ Beinskiptur 2.640.000 Sjálfskiptur 2.770.000 STAÐALBÚNAÐUR: 2.0 LÍTRAR - 165 HESTÖFL, SÍTENGT FJÓRHJÓLADRIF, 17” ÁLFELGUR, TVÍSKIPT TÖLVUSTÝRÐ LOFTKÆLING, HRAÐASTILLIR, 6 DISKA GEISLASPILARI MEÐ MP3 OG MARGT FLEIRA. Opið: Mán. - fös. kl. 9:00 - 18:00. Lau. 12:00 - 16:00.Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Akureyri 464 7940 Njarðvík 421-8808 Höfn í Hornafirði 478-1990 Reyðarfirði 474-1453 Umboðsmenn um land allt J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA „ Líklega bestu kaupin í dag “ „ Að reynsluakstri loknum sé ég ekki betur en að nýr Legacy standi þeim gamla að öllu leyti framar. Ef horft er til verðs og búnaðar er nýr Legacy líklega bestu kaupin í dag. “ -Fréttablaðið 27. 9. 06 Í AÐALSKIPULAGI setur sveitarstjórn fram stefnu sína um landnotkun og umhverfismál í sveitarfélaginu. Það getur vart verið skýrara eins og sjá má í Skipulags- og byggingalögum. Á sveitarstjórnarfundi í Skagafirði 5. október síðastliðinn samþykktu sveitarstjórnarfulltrúar meirihlut- ans, Framsóknarflokks og Sam- fylkingar að gera ráð fyrir bæði Villinganesvirkjun og Skata- staðavirkjun á aðalskipulagi sveit- arfélagsins. Áður höfðu þau fellt tillögu VG um að gera ráð fyrir hvorugri virkjuninni. Einnig felldu þessir flokkar nýverið tillögu VG um friðun Jökulsánna í Skagafirði ásamt Austurdal. Það eina sem nú getur stöðvað þessi áform er að almenningur rísi upp og reyni að telja sveitarstjórn hughvarf gagn- vart þessum virkjanaáformum sem nú mega skrifast fyrst og fremst á ábyrgð Samfylkingarinnar. Villinganesvirkjun tilbúin Villinganesvirkjun er tilbúin, virkjunaraðilar bíða einungis eftir aðalskipulaginu. Með því að sam- þykkja Villinganesvirkjun er Sam- fylkingin að leggja það á herðar almennings að verja hendur sínar í þeirri viðleitni að koma þessum virkjunum út af skipulagi. Snúast til varnar gegn stefnu Samfylk- ingar og Framsóknar um virkjun Jökulsánna! Það hefði hins vegar verið allt önnur staða fyrir íbúa héraðsins og heiðarlegri fyrir Samfylkinguna ef það væru nú virkjunaraðilar sem stæðu frammi fyrir því að berjast fyrir því að greiða virkjanaáformum leið inn á aðalskipulag sveitarfélagsins. Jökulsárnar lagðar undir Svo var að skilja á Önnu Krist- ínu Gunnarsdóttur, þingmanni Samfylkingarinnar, í fréttum út- varps nýverið að Samfylkingin hafi verið tilbúin að leggja Jökuls- árnar og Héraðsvötnin undir til að komast í meirihluta með Fram- sókn: „Ég hygg að það hafi orðið að samkomulagi við meiri- hlutamyndun að þetta færi inn á tillögu að aðalskipulagi.“ Anna Kristín var á framboðslista til sveitarstjórnar í Skagafirði og kom að myndun nýs meirihluta með Framsókn. Hún veit því hvað Samfylkingarfólk samdi um á bak við tjöldin. Í grein í Morg- unblaðinu í gær er að finna nafla- skoðun nokkurra forystumanna Samfylkingar í Skagafirði varð- andi virkjanir Jökulsánna, en eina sjáanlega niðurstaðan er sú að þau geta ekki sagt nei við Framsókn- arflokkinn. Tvískinnungur og blekkingar Það þýðir ekki fyrir frambjóð- endur Samfylkingarinnar til sveit- arstjórnar að bregða á flótta í ein- hverjum blekkingaleik þegar þeir finna að vindarnir blása nú á móti þeim og flokknum í þessu máli. Það stangast einfaldlega á orð og gjörðir. Það er tvískinnungur að samþykkja á sveitarstjórnarfundi að stefna að virkjun Jökulsánna eins og Samfylkingin gerði 5. október, þar sem atkvæði hennar réð úrslitum í svo umdeildu máli og koma svo í fjölmiðla daginn eft- ir og segjast alfarið vera á móti viðkomandi gjörningi. Eftir skrif forystumanna Samfylkingar í Morgunblaðinu í gær er ekki að- eins hægt að álykta að Samfylk- ingin sé stefnulaus, hún stefnir í allar áttir. Þeir sem skipa sveitarstjórn- arlista Samfylkingarinnar í Skaga- firði bera sameiginlega ábyrgð á málinu. Sumt Samfylkingarfólk virðist vera að byrja að horfast í augu við afleiðingar gjörða sinna, en í stað þess að snúa við blaðinu reynir það að réttlæta þær og blekkja fólk um mögulegar afleið- ingar þeirra. Ef forystumenn Samfylkingarinnar endurskoða ekki og gera upp við stefnu sína um virkjun Jökulsánna í Skaga- firði á næstu dögum er hins vegar ljóst að almenningi verður ætlað að bjarga henni frá sjálfri sér. Samfylkingin biður almenning að bjarga sér úr snörunni Bjarni Jónsson skrifar um sveitarstjórnarmál í Skagafirði » Þeir sem skipa sveit-arstjórnarlista Sam- fylkingarinnar í Skaga- firði bera sameiginlega ábyrgð á málinu. Bjarni Jónsson Höfundur er sveitarstjórnar- maður VG í Skagafirði. Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.