Morgunblaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 37
Í STAKSTEINUM Morg-
unblaðsins þann 11. október var
fjallað um viðbrögð mín fyrir hönd
ASÍ vegna tillagna stjórnarflokk-
anna um aðgerðir til lækkunar á
matvælaverði og það
tengt framboði mínu í
prófkjöri Samfylking-
arinnar. Morg-
unblaðið hefur
áhyggjur af því að ég
þekki ekki stefnu
Samfylkingarinnar.
Sá póll sem Morg-
unblaðið tekur í hæð-
ina í þessum skrifum
sínum er vægast sagt
einkennilegur og
óhjákvæmilegt er að
benda á eftirfarandi.
Fagnaðarefni
ASÍ hefur um langt árabil kraf-
ið stjórnvöld um trúverðugar að-
gerðir til að lækka matvælaverð,
sem verið hefur um 50% hærra en
í nágrannalöndum okkar. Það er
rétt hjá höfundi Staksteina að
Samfylkingin hefur á und-
anförnum árum ítrekað tekið þetta
mál upp á Alþingi, sbr. fyr-
irspurnir og þingsályktun-
artillögur Rannveigar Guðmunds-
dóttir og tillögur þingflokksins
nýverið. Nú hafa þau tíðindi gerst
að stjórnarflokkarnir hafa loksins
tekið við sér og lagt fram tillögur
um lækkun vörugjalda og virð-
isaukaskatts af matvælum og er
það mikið fagnaðarefni.
Hentistefna
ASÍ hefur alltaf verið þeirrar
skoðunar að þegar svigrúm er hjá
ríkissjóði til þess að lækka skatta
á almenning verði að tímasetja
þær aðgerðir þannig að tryggt sé
að þær skili sér alla leið. Við nú-
verandi aðstæður í hagkerfinu eru
því miður miklar líkur á að þessi
skattalækkun drífi í raun aldrei til
almennings. Um þessar mundir er
mikill óstöðugleiki á flestum svið-
um efnahagsmála –
gengi krónunnar er í
algjörum rússíbana,
verðbólga þrefalt
hærri en viðunandi
getur talist og við-
skiptahalli meiri en
sögur fara af. Veru-
legar líkur eru á því
að verðbólga og vextir
verði áfram allt of há-
ir sem leiðir til þess
að allur ávinningur al-
mennings af þessari
skattalækkun – ef
hann á annað borð
skilar sér í verðlagi – hverfur í
verðbólgubálinu. Meira segja
Seðlabankastjóri – sem vart getur
talist viðvaningur á sviði stjórnar
ríkisfjármála – telur að óvarlega
sé farið með tilliti til ofþenslu og
verðbólguþrýstings.
Þegar þessi staða er uppi hefur
ASÍ alltaf valið þá leið að verja
forsendur langtíma stöðugleika,
fremur en skammtíma ávinning.
Því er við að bæta, úr því að Stak-
steinar kalla eftir því, að ég hef
persónulega alltaf verið sann-
færður um mikilvægi þessarar
staðfestu í viðhorfum og áherslum
ASÍ. Hitt er einnig greinilegt að
þeir flokkar sem fara með stjórn
efnahagsmála hafa fyrir all-
mörgum árum yfirgefið þessa
stefnu – hvað sem öllum fagurgala
líður um mikilvægi stöðugleika –
enda ríkir hér óstöðugleiki á nán-
ast öllum sviðum efnahagslífsins.
Hafi einhvern tíma verið tilefni til
svefnlausra nótta er það nú. Af-
leiðingar þessarar hentistefnu
birtast þorra fólks með marg-
víslegum hætti og má sem dæmi
nefna húsnæðislánin sem hafa
hækkað gífurlega að undanförnu
og munu vafalaust gera í langan
tíma til viðbótar án þess að nokk-
ur fái rönd við reist.
Forgangsverkefnið
ASÍ hefur lagt á það áherslu að
gerðar verði veigamiklar breyt-
ingar á fyrirkomulagi innflutn-
ingsverndar í landbúnaði í átt til
meira frjálsræðis og opnari við-
skiptahátta, byggt á öflugum
stuðningsaðgerðum við bændur og
starfsmenn í matvælaiðnaði. Í
skýrslu hagstofustjóra frá því í
sumar komu fram bæði vel rök-
studdar upplýsingar og grein-
argóðar tillögur þar af lútandi.
ASÍ kallaði eftir breiðri sátt á
milli verkalýðshreyfingar, bænda
og stjórnvalda um þær tillögur.
Það er rétt hjá höfundi Stak-
steina, að undir þessa stefnumörk-
un hefur þingflokkur Samfylking-
arinnar tekið og lagt fram beinar
tillögur. Hér hafa hins vegar
stjórnarflokkarnir sagt pass, fyrir
utan eitthvað smáklór um ,,allt að’’
lækkun á afmörkuðum vöruflokk-
um. Þetta er í rauninni athygl-
isverð staða og því hlýtur manni
að vera spurn: Hvaða afstöðu ætl-
ar Morgunblaðið, sem barist hefur
fyrir frjálsari viðskiptaháttum, að
taka í þessu máli?
Forgangsverkefnið núna er að
tryggja að þessi aðgerð skili sér
til almennings og ASÍ er að sjálf-
sögðu reiðubúið til þess að leggja
sitt af mörkum með öflugu verð-
lagseftirliti gagnvart smásölunni
til að tryggja að svo verði. Hins
vegar hljótum við að spyrja til
hvað aðhaldsaðgerða stjórnvöld
ætli að grípa til að tryggja að
þetta leiði ekki til hærri vaxta og
verðbólgu.
Sammála Seðla-
bankastjóra
Gylfi Arnbjörnsson svarar
Staksteinum Morgunblaðsins
»Hvaða afstöðu ætlarMorgunblaðið, sem
barist hefur fyrir frjáls-
ari viðskiptaháttum, að
taka í þessu máli?
Gylfi Arnbjörnsson
Höfundur er framkvæmdastjóri ASÍ.
ÓMAR Ragnarson hefur tekið þá
ákvörðun að gangrýna stjórnvöld
fyrir atvinnuuppbygg-
ingu á Austurlandi.
Kárahnjúkar eiga að
hans mati að standa
sem ónotaður minn-
isvarði um ókomna
framtíð. Hans hug-
myndir snúast um að
fá á átta milljón manns
til að borga ákveðna
upphæð á ári, í einn
áratug og í staðinn
myndu þeir fá nafnið
sitt áletrað á þetta
stóra mannvirki. Þær
hugmyndir flokkast
örugglega sem óraun-
hæfar, svo vægt sé til
orða tekið.
Skoðunum Ómars
ber að sýna varúð.
Sjálfur hef ég farið
upp að Kárahnjúkum
og skoðað staðinn vel.
Þó get ég ekki verið
sammála Ómari um að
þessi staður sé falleg-
asti staður Íslands.
Mér þykir vænt um
fallega landið mitt. En
ef við tækjum menn
eins og Steingrím J. og
Ómar alvarlega,
byggjum við ennþá í
moldarkofum. Ég full-
yrði að ef við tækjum upp hug-
myndir Ómars um að flytja orkuna
frá háhitasvæðum, sem hugsuð er
fyrir álver á Bakka við Húsavík,
myndum við mæta sterkari and-
stöðu heimamanna en nokkur gerir
sér grein fyrir. Í raun værum við að
flytja rétt heimamanna til að nýta
sér orkuna í sinni heimabyggð, yfir
landshluta. Íslenska þjóðin mun ekki
sætta sig við þannig vinnubrögð.
Að horfa á uppbygginguna á Aust-
urlandi er frábært og gleður mig að
sjá að fólk þurfi ekki að kljást jafn
mikið við atvinnuleysi og láglauna
drauginn og áður var. Ómar Ragn-
arsson býður ekki upp á neinar
raunhæfar lausnir í stað álvers og
virkjana. Og gleymum því ekki að
aldrei hafa fleiri ferðamenn heimsótt
Austurland en eftir að framkvæmdir
á þessu svæði hófust.
Verslun blómstrar og
lífskjör heimamanna
batna til muna.
Okkur, sem þurfum
að lifa á láglaunasvæði,
við atvinnuleysi og fá-
tækt, er ekki einu sinni
sýnd sú virðing að
virkjunarandstæðingar
komi með raunhæfar
hugmyndir um hvernig
megi breyta ástandinu.
Margir virkjunar-
andstæðingar sjá ekki
að þarfir fólks til að lifa
af er mikilvægasta at-
riðið. Sjálfbær nýting
náttúruauðlinda hefur
viðgengist hjá okkur Ís-
lendingum í árþúsundir
og mun vonandi aldrei
stöðvast.
Sem barn þá horfði
ég á Ómar í fréttunum
og var stoltur af því að
vera Íslendingur, því
eitthvað við þennan
mann fyllti mann þjóð-
hyggju. Því miður hefur
Ómar Ragnarsson
breyst úr þessum
trausta fréttamanni í
ofsafenginn áróð-
ursmann. Þar sem hann
fer með ærumeiðingar gegn fólki,
sem gerir sitt besta til að fólks-
fækkun í þeirra heimabyggð stöðv-
ist, fólki sem vill búa í sinni heima-
byggð, en samt geta notið sæmilegra
lífskjara.
Ég syrgi góðan mann sem bar
virðingu fyrir öðrum. Góðan mann
sem trúði á bætt lífkjör fólks, þar
sem að neyðin var mest. En mest
syrgi ég þann rýting sem Ómar hef-
ur sett í íslensku þjóðarsálina.
Rýtingur
í þjóðarsálina
Alex Stefánsson fjallar um
Kárahnjúkavirkjun og aðgerðir
Ómars Ragnarssonar
Alex Stefánsson
» Að horfa áuppbygg-
inguna á Aust-
urlandi er frá-
bært og gleður
mig að sjá að
fólk þurfi ekki
að kljást jafn
mikið við at-
vinnuleysi og
láglauna draug-
inn og áður var.
Höfundur er í stjórn Sambands ungra
Framsóknarmanna.
Sagt var: Áhrif hans eru yfirgripsmikil.
SNOTRARA ÞÆTTI: Áhrif hans eru víðtæk.
Eða: Áhrifa hans gætir víða.
Gætum tungunnar