Morgunblaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN SÍÐASTLIÐINN föstudag birtust í Morgunblaðinu við- brögð Landsvirkjunar við þeirri gagnrýni sem undirritaður setti fram í viðtali í blaðinu tveimur dögum áður. Talsmennirnir segja gagnrýni mína ekki á rökum reista. Einnig kemur fram að hópur sérfræðinga hafi unnið að verkinu. Hafi sá hópur komið úr ýms- um áttum en ekki bara frá einni stofnun eða fyrirtæki. Ekki kemur þó fram hverjir þessir sérfræðingar voru fyrir utan Ágúst Guðmundsson sem vissulega er hæfur á sínu sviði. Fróðlegt hefði verið að fá uppgefið hversu oft sá hópur kom saman og hverjir mynduðu hann, t.d. hvaða sérfræðingar lögðu á ráðin og unnu að jarðeðlisfræðilegum þáttum, hverjir að könnun á eðli sprungna, hverjir að eiginleikum grunnvatns o.s.frv. Megingagnrýni mín á undirbún- ingsrannsóknirnar var þessi: 1. Viðfangsefni rannsóknanna voru skilgreind mjög þröngt. Tiltölulega einhæfum aðferðum var beitt á hverjum stað. Lítil áhersla virðist hafa verið lögð á það að átta sig á stóru drátt- unum í jarðfræði svæðisins. 2. Rannsóknir voru ónógar á jarð- gangaleiðum. Einkum gagn- rýndi ég algeran skort á notkun jarðeðlisfræði- legra mæliaðferða. 3. Rannsóknir á eðli sprungna í lón- stæði Hálslóns og stíflustæði Kára- hnjúka voru ófull- nægjandi. Í ljós kom 2004 þegar sprungusérfræðingar komust á svæðið að sú mynd sem komið hafði fram í undirbúningsrann- sóknunum var röng. Hluti sprungnanna er virkur og til- heyrir sprungukerfi Kverk- fjalla. 4. Rannsóknir á sprungum undir stíflustæði Desjarárstíflu voru litlar sem engar. Gjárnar þar komu fyrst í ljós þegar jarðvegi var flett af. Viðbrögð Landsvirkjunar hrekja í engu þessar athugasemdir. Virkar sprungur við Kára- hnjúka Sá þáttur sem e.t.v. er alvarleg- astur, þ.e. rangt mat á eðli sprungna á Kárahnjúkasvæðinu er ekki nefnd- ur í andsvörum Landsvirkjunar. Þetta ranga mat á sprungunum er ástæða þess að athugun á hugs- anlegum áhrifum aukins vatnsþrýst- ings er hvergi nærri lokið þannig að viðunandi geti talist. Ekki verður dregin önnur ályktun en að ráðgjöf varðandi eðli og virkni sprungna hafi verið verulega ábótavant. Leit að vatnsgengum sprung- um Ábending mín um að eðlilegt hefði verið að nota VLF-mælingar til að leita að vatnsleiðandi sprungum og misgengjum á gangaleiðum er tölu- vert rædd af talsmönnum Lands- virkjunar. Umræðan lýsir vanþekk- ingu á aðferðinni. Þeir tala um að 3-4 mannár hefðu farið í að kort- leggja gangaleiðirnar með VLF. Þetta er fjarstæða. Hefðu menn vilj- að ná mikilli yfirferð á skömmum tíma gátu þeir látið gera VLF- mælingar úr þyrlu eða flugvél. Þannig hefði verið hægt að mæla alla gangleiðina á 1-2 dögum. Ná- kvæmari niðurstöður fást þó með mælingum á jörðu niðri. Allgott yf- irlit hefði fengist með 4-5 samsíða mælilínum eftir gangaleiðinni milli Kárahnjúka og Fljótdals. Auðvelt hefði verið fyrir tvo menn að mæla 5-15 km á dag og ljúka ofan- greindum mælingum á 15-25 vinnu- dögum. Með úrvinnslu hefði heild- arvinna orðið 3-5 mannmánuðir. Mæling stíflustæðis Desjarárstíflu hefði tekið 1-2 daga. Ef niðurstöður gæfu ástæðu til, hefði í framhaldinu verið hægt að kanna einhver svæði betur. Í ljósi þess að fjöldi rann- sóknaborholna var 465 ætti að hafa verið viðráðanlegt að gera 2-3 ská- holur á gangaleiðunum til að kanna eiginleika bergsins þar sem vísbend- ingar væru um vatnsgengar sprung- ur. Í útboðsgögnunum kemur fram að VLF mælingum var beitt á stíflu- stæði Jökulsár við Kárahnjúka. Þó er það ljóst öllum sem reynslu hafa af mælingum sem þessum að stíflu- stæði Jökulsár er einn af fáum stöð- um á virkjanasvæðinu þar sem að- ferðin hentar illa, vegna landslags og mikils dýpis niður á grunnvatn. Þessi saga bendir til þess að ráð- gjöf um það gagn sem hafa má af jarðeðlisfræðilegum mæliaðferðum hafi ekki verið sem skyldi við Kára- hnjúka. Lokaorð Umræða um Kárahnjúkavirkjun er því marki brennd að margir sjá hlutina í svart-hvítu. Það gerir fag- lega umræðu erfiða. Mín skrif snú- ast ekki um það að vera með eða á móti. Þau fjalla um mikilvægi þess að fagleg og vönduð vinnubrögð séu jafnan ástunduð við undirbúning stórframkvæmda. Sé það ekki gert vex áhættan, því ófyrirséðir erf- iðleikar geta komið fram á bygging- arstiginu og lausnir á þeim eru stundum vondar og oft mjög dýrar. Landsvirkjun hefur af að státa býsna góðum árangri í gerð virkj- ana. Reynsla og hæfni þeirra sem stýrt hafa byggingu mannvirkjanna hefur að hluta bætt fyrir hinar göll- uðu rannsóknir við Kárahnjúka. Eins og fram kom í viðtali mínu hef ég góða reynslu af löngu samstarfi við sumt af því hæfa fólki sem starf- að hefur hjá Landsvirkjun. Mér er því alls ekki létt að gagnrýna fyr- irtækið. En fram hjá því verður ekki litið að ákvarðanir um undirbún- ingsrannsóknir við Kárahnjúka hafa leitt af sér yfirsjónir og mistök. Eins og ég hef rakið hér að ofan end- urspegla andsvör fyrirtækisins í Morgunblaðinu síðastliðinn föstu- dag þessa staðreynd. Mikilvægt er að þau mistök verði ekki endurtekin í undirbúningi stórframkvæmda á komandi árum og áratugum. Kárahnjúkar – réttar áherslur í undirbúningsrannsóknum? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar um undirbúnings- rannsóknir Landsvirkjunar við Kárahnjúka »Mín skrif snúast ekkium það að vera með eða á móti. Þau fjalla um mikilvægi þess að fagleg og vönduð vinnubrögð séu jafnan ástunduð við undirbúning stór- framkvæmda. Magnús Tumi Guð- mundsson Höfundur er prófessor í jarðeðl- isfræði við Háskóla Íslands. JAKOB Björnsson, fyrrv. orku- málastjóri, er vafalaust gegn maður, en hann hefur lengi verið iðinn við þá vonlausu iðju að reyna að sannfæra Íslendinga um, að þeir séu að draga úr mengun í heiminum með því að auka hana jafnt og þétt í eigin landi. Einhvern veginn hefur honum ekki tekist það nógu vel, sem ekki er að undra. Nú ryðst Jakob einn ganginn enn fram á síðum Morgunblaðsins 29. september til að gagnrýna ágæta pré- dikun ungs prests, sr Hildar Eirar Bolladótt- ur, í Laugarneskirkju 24. september, þar sem hún talaði tæpitungu- laust um Kára- hnjúkavirkjun og hrikalegar afleiðingar hennar og líkti við eyði- leggingu hinnar fornu Auðunnarstofu á Hólum á sínum tíma, sem var mikið óhappaverk. Jakob er vinur presta, en sér- staklega þeirra, sem eru þægir og góðir og blessa Kárahnjúkavirkjun, eins og sóknarpresturinn á Valþjófs- stað gerði. Það er hans fólk, en við hina hefur hann ýmislegt að athuga. Jakob vitnar í sköpunarsöguna í I. Mósebók og tekur þar út úr hina þekktu setningu, að maðurinn skuli drottna yfir öllu, sem lífsanda dreg- ur, „yfir fiskum sjávarins og fuglum loftsins“. Hann er ekki sá fyrsti sem það gerir. Það sem Jakob varar sig ekki á, er, að það er hættulegt að taka eina setningu út úr sköpunarsögunni án þess að skoða heildarboðskap henn- ar. Heildarmyndin er nefnilega sú, að maðurinn sé aðeins ráðsmaður og honum beri sem slíkum að fara vel með gjafir Guðs og nýta af skyn- semi. Manninum er ekki gefið neitt það vald af skapara sínum, sem veiti honum leyfi til að fara með náttúr- una að eigin geðþótta og tortíma henni. Maðurinn skal alltaf lúta Guðs vilja, annars er hann að gera sig æðri Guði, gera sig að herra en ekki ráðsmanni, taka sér vald, sem hann hefur ekki. Það er verið að gera nú um stundir á Austurlandi. Vilji Guðs er, að sköpunin viðhaldist til nytja fyrir lífið á jörðinni. Kárahnjúkavirkjun með tilheyr- andi óafturkræfum umhverf- isspjöllum er einmitt lýsandi dæmi um skammsýni og græðgi manneskj- unnar í sinni verstu mynd, þar sem ekki er hikað við að eyðileggja dýr- mæt náttúruverðmæti fyrir óborn- um kynslóðum þessa lands. Það er ekki þörfin sem knýr á eins og á dögum Auð- unnarstofu, heldur græðgin. Við Íslend- ingar erum ekki svo fá- tæk þjóð í dag, að við þurfum að eyðileggja það sem við eigum dýr- mætast, landið, sjálfan höfuðstól tilveru okkar sem þjóðar um ókomna tíð. Það var þetta, sem Hildur Eir var að vekja athygli á í sinni ein- lægu predikun, og þökk sé henni fyrir það. En það líkar Jakobi ekki vel. Hann spyr, hvort gleymst hafi að undanþiggja Kárahnjúkasvæðið, hvort það sé ekki líka hluti af sköpunarverkinu, sem manninum sé ætlað að drottna yfir eins og öllu öðru. Jakobi bætist liðsauki frá Smára Geirssyni, fyrrum forustumanni vinstri aflanna í bæjarstjórn Nes- kaupstaðar, sem er hin síðari árin hlöðukálfur í fjósi Halldórs Ásgríms- sonar, sem reyndar er nú hættur að gefa þar á garða. Smári gagnrýnir einnig prédikun Hildar Eirar og tel- ur hana ekki „guðsmanni“ sæmandi, þar sem hún horfi aðeins á aðra hlið málsins, nefnilega umhverfisþáttinn, en ekki hin jákvæðu áhrif á atvinnu- líf Austurlands. Það er auðvitað út- úrsnúningur í hæsta máta. Það veit Smári jafnvel og ég. Svona á ekki að prédika af stóln- um, telja þessir heiðursmenn. Það er allt í lagi að mótmæla á friðsaman hátt og styggja engan, „ en altari og prédikunarstóll eru ætluð til ann- arra nota“, segir Jakob í grein sinni. En til hvaða nota, að segja ekki neitt, sem snertir neinn? Hvar, ef ekki á prédikunarstólnum, ber að ræða sið- ferðilegar spurningar, er snerta mál- efni, er varða framtíð manns og heims, þar sem hinni góðu sköpun Guðs er ógnað af græðginni og fram- tíð óborinna kynslóða borin fyrir róða, eins og nú er þegar farið að koma í ljós í sambandi við breytingar á loftslagi jarðar af völdum gróð- urhúsalofts. Boðskapur Jesú Krists er ekki sætsúpa, sem gott er að inn- byrða með sunnudagssteikinni, held- ur dauðans alvara, sem á erindi við synduga menn. Hvað hefði Kristur gert í okkar sporum? Hvað gerði hann, er hann velti um borðum víxlaranna, pen- ingamanna þess tíma, og rak þá út með svipu? Myndi hann ekki gera nákvæmlega sama í dag, þar sem fulltrúar hins alþjóðlega auðmagns ráða ráðum sínum, hvernig þeir geti eyðilagt jörðina? Ættum við ekki að styðja þá, sem vekja athygli á hætt- unni, fremur en að gagnrýna? Eru þeir, sem það gera, sérstakir tals- menn framtíðarinnar, eins og þeir láta í veðri vaka? Það gleymdist ekki að und- anþiggja Kárahnjúkasvæðið, Jakob Björnsson. Kárahnjúkasvæðið er hluti af sköpun Guðs, sem okkur ber að virða og umgangast að auðmýkt og ábyrgð gagnvart höfundi lífsins, en ekki með hroka og stærilæti þess, sem telur sig umkominn að umturna því. Við sjáum sýnishorn af því á síð- um Morgunblaðinu 29. september, er lokað var fyrir framrás Jöklu við Kárahnjúka. Það var sorgardagur í lífi þjóðar. Ég vona svo, að Jakob Björnsson haldi áfram að leita sann- leikans í hinni helgu bók. Jakob og sköpunarverkið Ólafur Þ. Hallgrímsson svarar grein Jakobs Björnssonar » Boðskapur JesúKrists er ekki sæt- súpa, sem gott er að inn- byrða með sunnudags- steikinni, heldur dauðans alvara, sem á erindi við synduga menn. Ólafur Þ Hallgrímsson Höfundur er sóknarprestur. EKKI verður lengur orða bundist vegna þeirrar umræðu sem verið hef- ur í fjölmiðlum um að mögulegt sé að hætta við fyllingu Hálslóns og að fresta megi orkuafhendingu til Fjarðaáls um óákveðinn tíma. Látið hefur verið í það skína að eigendur Fjarðaáls séu reiðubúnir til að bíða í fjölda ára eftir raforku frá Norður- landi. Er hægt að hætta við? Það er tálsýn að halda að nú sé hægt að slá öllu á frest og hætta við að nýta Kára- hnjúkavirkjun. Raun- veruleikinn er sá að ef þessar hugmyndir næðu fram að ganga þyrfti Landsvirkjun að afskrifa Kára- hnjúkavirkjun og til- heyrandi flutnings- mannvirki. Lánin sem tekin hafa verið til framkvæmdanna afskrifast hins veg- ar ekki. Jafnframt þyrfti að greiða Al- coa skaðabætur sem næmu ekki að- eins byggingarkostnaði álversins heldur einnig væntum hagnaði. Sam- tals gæti þetta svarað til um 300–350 milljarða króna. Slíkur reikningur myndi enda hjá landsmönnum öllum. Áhrifin yrðu víðtækari. Lánshæf- iseinkunn ríkissjóðs myndi óhjá- kvæmilega lækka við ákvörðun sem þessa, bæði út af fjárhagslegum áhrifum en einnig vegna trúverð- ugleikavandamála. Lánshæfi ríkisins hefur áhrif á lánshæfi bankanna sem myndi versna. Möguleikar bankanna til að styðja við bakið á útrásarfyr- irtækjum, fyrirtækjum á heimamarkaði og al- menningi yrðu ekki þeir sömu og fyrr. Trúverð- ugleiki landsins gagn- vart erlendum fjár- festum myndi bíða hnekki og draga myndi úr erlendri fjárfestingu. Lífskjaraskerðing Það er auðvelt að draga upp dökka mynd af afleiðingum hug- mynda um að hætta við Kárahnjúkavirkjun. Staðreyndin er sú að verið er að leggja til að hver fjörurra manna fjölskylda í landinu greiði viðbótarlán upp á u.þ.b. 4–5 milljónir. Það jafnast á við að hver fjöl- skylda auki skuldir sínar sem nemur andvirði lúx- usbíls án þess að fá nokkru sinni að njóta hans. Telja menn slíku bætandi á fjölskyldur sem þykja al- mennt skuldsettar fyrir? Til viðbótar er verið að leggja til lífskjaraskerð- ingu í gegnum hærri vexti, minni hag- vöxt og lægra gengi. Varla verður þjóðarsátt um lífskjaraskerðingu af þessu tagi. „Minnismerkið við Kárahnjúka“ – At- laga að lífskjörum Stefán Pétursson fjallar um kostnaðinn sem hlytist af því að afskrifa Kárahnjúkavirkjun og tilheyrandi flutningsmannvirki Stefán Pétursson »… verið erað leggja til að hver fjögurra manna fjöl- skylda í landinu greiði viðbótar- lán upp á u.þ.b. 4–5 milljónir. Höfundur er framkvæmdastjóri. Fáðu úrslitin send í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.