Morgunblaðið - 13.10.2006, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 13.10.2006, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 39 VARMÁRSAMTÖKIN hafa skorað á samgönguráðherra að kanna þann möguleika að setja upp mislæga vegtengingu á mót- um Vesturlandsvegar og Áslands til að þjóna umferð íbúa Ása- og Landahverfis og verðandi íbúum Helgafellslands í Mosfellsbæ. Til- laga Varmársamtakanna felur í sér að tengibrautin verði leidd í stokk undir götuna Ásland og áfram um göng undir Vest- urlandsveg. Mistök í skipulagsgerð Samkvæmt núgildandi aðal- og deiliskipulagi á að leggja tengibraut úr Helgafellslandi um litla en bratta hlíð sem liggur milli Brekkulands og gömlu Álafossverk- smiðjunnar og þaðan undir brú sem fyr- irhuguð er á þjóðvegi 1 inn í miðbæ Mos- fellsbæjar. Varmárs- amtökin hafa ásamt fleiri íbúum í bænum kært framkvæmdina til umhverfisráðherra á þeirri forsendu að tengibrautin og mótvægisaðgerðir henni tengd- ar beri umhverfi Ásafosskvos- arinnar ofurliði, valdi óaft- urkræfum umhverfisspjöllum í hjarta Mosfellsbæjar og vegi með mjög afgerandi hætti að atvinnu- uppbyggingu í tengslum við ferða- þjónustu og útivist á þessum fjöl- sóttasta ferðamannastað bæjarfélagsins. Telja samtökin ennfremur að gerð hafi verið al- varleg mistök við hönnun skipu- lagsins þar sem tengibrautin sem anna á umferð a.m.k. 10 þúsund bíla á sólarhring einangrar hverfin sem liggja að útivistar- og þjón- ustusvæðinu í Álafosskvos hvert frá öðru. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hef- ur ekki tekið í mál að endurskoða legu tengibrautarinnar og engin verkfræðileg úttekt hefur farið fram á öðrum kostum þrátt fyrir eindregnar óskir bæjaríbúa þar um við endurskoðun aðalskipulags árið 2002 og nú aftur 2006. Tillögur Varmársamtakanna Að áliti sérfræðinga í arkitekta- og verkfræðistétt er sú leið að leggja tengbrautina í 160–180 m stokk undir Ásland styst og liggur beinast við. Staðhættir eru enn- fremur að því leyti ákjósanlegir að jarðvegur virðist að mestu gljúpur sem auðvelda ætti framkvæmdina til muna og draga úr kostnaði. Einnig hefur verið rætt um að tengja tengibrautina við mislæg gatnamót við Þingvallaveg en hef- ur sú tillaga hlotið minni hljóm- grunn þó vert sé að skoða hana líka. Til að skera úr um málið verður hins vegar að gera faglega úttekt á verkinu. Það sem helst vefst fyrir samtökunum er að íbúar í Ásahverfi verða fyrir umtals- verðum óþægindum á meðan á fram- kvæmdum stendur. Eins er ljóst að kostnaður við að leggja götur í stokk er meiri. Sé tekið tillit til heildar- hagsmuna bæjarfélagsins er ljóst að með fyrirhugaðri legu tengi- brautarinnar um Álafosskvos er verið að fórna svæði sem skipt getur verulegu máli fyrir atvinnu- uppbyggingu í Mosfellsbæ í fram- tíðinni. Samstarf við Vegagerðina Í ljósi þess að Vegagerðin hefur sýnt landeigendum í Leirvog- stungulandi mikinn samstarfsvilja og lagt í mikla og kostnaðarsama vinnu við að útfæra tillögur vegna tengingar Leirvogstungulands við Vesturlandsveg telja Varmársam- ökin eðlilegt að fara þess á leit við samgönguráðherra að hann hlutist til um að tillögur íbúasamtakanna verði teknar til skoðunar. Í áskorun samtakanna til ráð- herrans er bent á að Vegagerðin og fyrirtæki í hennar þjónustu búi yfir mikilli sérþekkingu sem kom- ið getur sveitarstjórnum að góðu gagni við skipulagsgerð. Samtök- unum er ljóst að það er ekki í verkahring samgönguráðherra að skipta sér af aðalskipulagsgerð sveitarfélaga en þar sem slík sam- göngumál eru til lykta leidd í sam- starfi sveitarfélags við stofnanir samgönguráðuneytisins teljum við ástæðu til að fara þess á leit við ráðherra að hann láti fagmenn í þjónustu ráðuneytisins meta báðar tillögur Varmársamtakanna, þ.e. vegtengingu við Vesturlandsveg á gatnamótum Áslands og Þing- vallaafleggjara. Áríðandi að gefa málinu forgang Aðalskipulag ásamt deiliskipu- lagi tengibrautarinnar bíður nú af- greiðslu bæjarstjórnar Mosfells- bæjar. Mikilvægt er fyrir alla aðila að samgönguráðherra beini þessu verkefni í réttan farveg áð- ur en bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkir ofangreindar skipu- lagstillögur og hafa Varmársam- tökin farið þess á leit við bæj- arstjórn að fresta ákvörðun þar um þar til niðurstaða ráðuneyt- isins liggur fyrir. Varmársamtökin skora á samgönguráðherra Sigrún Pálsdóttir skrifar um mislæg gatnamót í Mosfellsbæ » Í áskorun samtak-anna til ráðherrans er bent á að Vegagerðin og fyrirtæki í hennar þjónustu búi yfir mikilli sérþekkingu sem komið getur sveitarstjórnum að góðu gagni við skipu- lagsgerð. Sigrún Pálsdóttir Höfundur er í Varmársamtökunum. TENGLAR .............................................. http://blog.central.is/varmarsam- tokin Reykjalundur Álafosskvos Til Þingvalla Ál afo ssv eg ur Varmá Vest url an ds ve gu r j l Helgafelll ll il i ll l f r l gu r Ásland Augað                  ! "# "# $! "# "% &&&' '                                  !      "##     '   (  ) ( GIGTARFÉLAG ÍSLANDS 30 ára 9. okt. Opið hús á morgun Í tilefni af 30 ára afmæli Gigtarfélagsins verður opið hús í Gigtarmiðstöðinni í Ármúla 5 á morgun, laugardaginn 14. október frá kl. 13:00 til 16:30. Dagskráin er: 13:00 Ávarp. Þóra Árnadóttir varaform. GÍ. 13:15 Rannsóknarstofa í gigtarsjúkdómum 10 ára. Kristján Steinsson gigtarlæknir. 13:30 Afhending styrkja. 13:40 Tónlist. 13:55 Hlé – Húsið skoðað, starfsemi kynnt. 14:15 Spennandi tímar, stórstígar framfarir. Arnór Víkingsson gigtarlæknir. 14:45 Hlé – Húsið skoðað, starfsemi kynnt. 15:15 Slitgigt og liðaktín. Helgi Jónsson gigtarlæknir. 15:45 Hlé – Húsið skoðað, starfsemi kynnt. Rétt hreyfing bætir líðan og eykur þrótt Allir velkomnir ÞAKRENNUKERFI á öll hús – allsstaðar Smiðjuvegi 74 Sími 515 8700 BLIKKÁS –                 
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.