Morgunblaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Stefanía Run-ólfsdóttir fædd- ist í Reykjavík 9. janúar 1912. Hún lést hinn 1. október síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Guðrún Þorbjörns- dóttir, f. 11. apríl 1889, d. 11. desem- ber 1983, og Run- ólfur Sigurjónsson, verkamaður, f. 16. júlí 1886, d. 12. sept- ember 1974. Stef- anía átti eina systur, Þóru Maack, f. 31. október 1919, d. 2. mars 1994. Stefanía giftist 8. maí 1937 Guð- mundi Grímssyni, húsgagnasmíða- meistara, f. 15. desember 1905, d. 4. apríl 1979. Þau eignuðust tvö börn. Þau eru: 1) Úlfar Guðmunds- son, prófastur, f. 30. október 1940. Eiginkona hans er Herborg Páls- 29. ágúst1980. b) Hildur Sig- urgrímsdóttir, búfræðinemi, f. 12. janúar1986. 2) Guðrún Guðmunds- dóttir, f. 10. mars 1945. Eig- inmaður hennar er Örn Sigurðs- son, húsgagnasmíðameistari og myndskeri, f. 7. júní 1943. Dætur þeirra eru: a) Ásta Arnardóttir, jógakennari og leiðsögumaður, f. 28. mars 1964. b) Harpa Arn- ardóttir, leikkona, f. 28. mars 1964. c) Stefanía Arnardóttir, kennari, f. 21. ágúst 1974, sambýlismaður hennar er Gauti Stefánsson, raf- eindavirki, f. 18. janúar 1972, og eiga þau tvö börn, Mána, f. 10. júní 1998, og Sögu, f. 14. maí 2006. Stefanía var fædd og uppalin í Reykjavík. Hún gekk í Landakots- skóla og síðan í Verzlunarskóla Ís- lands og lauk þaðan prófi árið 1930. Að loknu verzlunarskóla- prófi hóf hún störf hjá Útvegs- banka Íslands, en frá 28. mars 1945 rak hún verzlun á Laugavegi 100 í 55 ár. Stefanía verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. dóttir, ljósmóðir, f. 21. janúar 1960. Fyrri kona hans er Freyja Jóhanns- dóttir, kennari, f. 13. nóvember 1944. Börn Úlfars af fyrra hjóna- bandi eru: a) Guð- mundur Freyr Úlf- arsson, samgönguverkfræð- ingur f. 18. október 1970. b) Anna Kristín Úlfarsdóttir Jack, lögfræðingur, f. 28. júlí 1974, hennar maður er Sigmar Jack, læknir, f. 6. júní 1974, og eiga þau tvo syni Hilmi Davíð, f. 8.október 2001, og Brynjar Axel, f. 14. september 2003. Dóttir Úlfars og Herborgar er: c) Guðrún Úlfarsdóttir, f. 14.ágúst 1996. Dætur Herborgar af fyrra hjónabandi eru: a) Herdís Sigurgrímsdóttir, fréttamaður, f. Elsku amma Stebba er dáin. Lífs- hlaup hennar er á enda en kærleikur hennar lifir. Þakklæti er efst í huga mér og virðing. Ég met mikils það sem amma kenndi mér í lífinu. Allt sem við erum höfum við fengið að gjöf. Þetta er mér svo ljóst nú í dag þegar ég kveð ömmu mína elskulegu og mikinn kennara í mínu lífi. Amma sinnti hversdagslífinu alla tíð af mikilli reisn. Hún hafði æv- intýralegan viljastyrk og þraut- seigju sem reyndist henni vel á efri árum. Einhvern veginn fannst mér amma alltaf vera ung. Hún var samt 94 ára þegar hún dó. En andi hennar var ungur og brosið hennar og aug- un voru tímalaus. Amma var Reykjavíkurdama, allt- af glæsileg, alltaf til í að fara í leik- hús, alltaf til í að fara á tónleika, allt- af til í að slá á létta strengi. Hún var bindindismanneskja á vín og tóbak en sparaði ekki við sig kaffið, alltaf svart og sykurlaust. Í Landakots- skóla kom fljótt í ljós mikil náms- manneskja og hæfileikar til hand- anna. Eftir verslunarskólapróf starfaði hún í Útvegsbankanum og það glaðnaði yfir ömmu þegar hún minntist bankaferðanna t.d. á Þing- velli, en þangað fórum við oft saman á haustin, amma var hrifin af haust- litunum. Hún hafði mikið litanæmi sem hún nýtti sér vel við hannyrð- irnar. Hún kynntist afa ung og þau voru alla tíð mjög samstiga og skap- andi. Þau byggðu Laugaveg 100 og þar hóf amma störf í Blóm og hús- gögn 1945 og vann þar alla tíð síðan til ársins 2000 en þá datt hún og fékk slæmt höfuðhögg 88 ára gömul. Hún hafði misst afa 67 ára gömul og tók þá bílpróf og keyrði góðu heilli í 20 ár. Það bjó í henni mikill lífskraftur og hún var mjög iðin, féll aldrei verk úr hendi. Langt fram á níræðisaldur vann hún í búðinni og keyrði á kvöld- in í sælureitinn að Gilsbakka, þar sló hún grasflatir og gróðursetti blóm, pældi garðinn, setti niður kartöflur og undi sér vel. Það voru kaflaskil hjá ömmu þegar hún missti afa og önnur kaflaskil þegar hún datt árið 2000. Hún náði sér með einstakri að- stoð dóttur sinnar og bjó á heimili sínu á Laugavegi 100 allt fram í apríl síðastliðinn. Á Laugaveginum skap- aðist einstakt samfélag í húsinu sem þau afi byggðu. Pabbi og mamma vinna þar bæði og amma gat því búið í sinni íbúð og gengið niður stigann í kaffi á sína gömlu kaffistofu og hitt sitt fólk daglega. Kaffistofan var nú hluti af verslun mömmu og fékk nafnið „Kaffistofa kærleikans“. Amma sat þar mikið á daginn og mamma var henni ætíð innan handar meðfram vinnu sinni. Lífshlaup konu sem fæddist 1912 er á enda og það skilur eftir sig fög- ur blómstur kærleikans. Minningar um yndislegar samverustundir ylja hjarta mínu. Samverustundir í sumó þegar ég var lítil. Ég minnist þess þegar amma sat við hannyrðir, við hlustuðum á útvarpssöguna og saumuðum út. Þetta voru kyrrlátar stundir þar sem okkur leið vel. Svo fengum við okkur síðdegiskaffi á eftir. Alltaf nógur tími til að vera saman og sinna því sem þurfti að gera. Hvort heldur sem var að hella upp á könnuna, dytta að húsinu, vaska upp eða pæla garðinn. Að gera það sem þú gerir eins vel og þú getur. Þetta lærði ég af ömmu. Þegar hún kenndi mér að prjóna, sagði hún við mig: „Ef þú gerir vitleysu þá rekjum við hana upp, það sér enginn hvað þú varst lengi að prjóna peysuna, en það sjá allir ef það er ekki vel gert.“ Amma sparaði sér ekki sporin og úr varð göfugt lífshlaup. Úr hverju spori sprettur kærleiksblóm. Já, minning- arnar streyma fram, minningar frá því að ég var lítil og lærði að afgreiða í blómabúðinni hjá ömmu og amma kenndi mér að segja: „Get ég að- stoðað yður?“ Þá var þérað og ég fékk að afgreiða í búðinni sem mér þótti mikill heiður. Minningar um grallarann ömmu, brosið hennar ömmu og hlýjuna í augunum þegar við hittumst. Bros og hlýja sem full- vissa mig um tilvist kærleikans, sem umvefur allt, skilur allt, elskar allt. Við fráfall ömmu hugsa ég mikið um gildismat og gamla tímann. Hennar kynslóð var kynslóð sem tamdi sér nægjusemi og þakklæti. Amma var af þeirri kynslóð sem þekkti þær gjafir sem skyldurækni getur gefið af sér. Hún annaðist fjölskyldu sína af mikilli vegsemd og virðingu. Fjöl- skyldan skipti hana miklu máli og hún elskaði hana og gaf henni tíma sinn og nærveru eins lengi og hún gat. Gjöf hennar snertir hjarta mitt djúpt. Guðdóms elskueðlið djúpa, inn til þín ég mæni klökk. Ó, ég þarf að krjúpa, krjúpa, koma til þín heitri þökk. (Ó. S.) Guð blessi minninguna um ömmu og alla ættingja hennar og ástvini. Ásta Arnardóttir. „Það er logn á jörðu,“ sagði amma við mig fyrir nokkrum vikum. „Ertu þreytt?“ spurði ég. „Alþreytt,“ svar- aði hún. Amma lifði í níutíu og fjögur ár heilsuhraust lengst af og glæsileg. Daginn sem hún dó skein sólin á heiðbláum himni. Jörðin skartaði sínu fegursta. Haustlitir í trjám og runnum. Sunnudagur. Auðmjúk jörð að búa sig undir vetrarhvíld. Laufin falla í logni á jörðu og tárin falla á vota kinn. Amma fylgir móður jörð í hringrás lífsins. Kærleikurinn í hinsta andartaki skilyrðislaus. Lát- laus eins og lognið. Amma elskar okkur og við elskum hana. Djúpt er þakklæti mitt og dýrmætar eru minningarnar. Amma að skera neð- an af rósum í blómabúðinni. Amma með anímónulauka í skyrdollum inni í svefnherbergi að koma þeim til fyr- ir sumarið. Amma að slá með orfi og ljá uppi í sumó. Amma að taka upp kartöflur. Amma að prjóna vett- linga. Amma að drekka kaffi. Amma að kaupa stjúpur. Amma á sinfón- íutónleikum. Amma í leikhúsinu. Amma að baka smákökur fyrir jólin, fjórar sortir. Amma að skrifa afmæl- iskort. Amma orðin langamma. Amma með opinn faðminn. Amma brosandi. Amma, elsku amma mín. Hvílík hlýja í einu orði. Amma. Amma hét Ingveldur Stefanía Runólfsdóttir, sjálf vissi hún ekki af Ingveldar nafninu fyrr en um ferm- ingu. Hún var mikil námsmann- eskja, lærði í Landakotsskóla hjá nunnunum á dönsku og fór síðan í Verslunarskólann. Svo kynntist hún afa, Guðmundi Grímssyni og oft sagði hún við mig að hann væri besti maður sem hún hefði þekkt á ævinni. Þau voru dugleg og samstiga, bjuggu fyrst á Karlagötunni en byggðu Laugaveg100 á stríðsárun- um og bjó amma í tjaldi á Þingvöll- um á meðan verið var að klára á Laugaveginum. Afi opnaði blómabúð fyrir ömmu, hann var orðinn hjart- veikur og vildi að hún hefði eitthvað öruggt ef hann félli frá. Amma rak blómabúðina í fimmtíu og fimm ár eða þar til hún datt og fékk alvarlegt höfuðhögg árið 2000. Hún náði sér á undraverðan hátt upp úr því með dyggum stuðningi dóttur sinnar enda báðar með eindæmum vilja- sterkar konur. Samband þeirra var ákaflega sterkt og vináttan djúp- stæð. Amma og afi keyptu einn hektara lands í Mosfellssveit 1948 sem fékk nafnið Gilsbakki. Þar var mestmegn- is bara melur, en þau hófust strax handa við að rækta landið. Raka grjóti, sá og gróðursetja tré og blóm. Þarna var hennar unaðsreitur. Og þar á ég mínar yndislegustu minn- ingar með ömmu. Það eru hvers- dagslegar minningar, fullar af friði. Amma og ég og Ásta að hlusta á út- varpssöguna, allar með eitthvað á prjónunum. Þrestir að syngja fyrir utan, svo er sagan búin og við fáum okkur kaffi og kringlur. Við förum saman í berjamó og tínum bláber til að hafa eftir kvöldmatinn, amma tín- ir í appelsínugulu könnuna. Við reyt- um arfa. Tínum rifs. Amma kemur með nýjar kartöflur úr garðinum, smælki, sem við sjóðum og borðum með miklu smjöri. Við hitum kaffi og fáum okkur pönnukökur með rjóma. Höfum það huggulegt. Við náum í vatn niður í læk í grænu könnurnar og vökvum stjúpur. Allt ber að sama brunni. Umhyggja fyrir lífinu, skyldurækni og alúð. Rósir, bláber, kaffi og bros, einfaldleiki ástarinnar. Nú ilmar rósin eina á öðrum stað, handan við mannlegan skilning. En einhverstaðar á ég vinkonu á himn- um og þegar ég hvísla „elsku amma mín“, mætir helgidómur lífsins leyndardómi dauðans, bros hennar er á mínum vörum og hjarta mitt í hennar. Guð blessi ömmu og allt hennar ævistarf. Blessun fylgi öllum hennar ættingjum og vinum. Guð blessi blómin hennar og trén og fuglasönginn í sumó. Harpa Arnardóttir. Hún Stebba systir er dáin. Ekki systir mín heldur systir hennar mömmu. Þetta heiti bar hún Stef- anía Runólfsdóttir í fjölskyldu minni meðan mamma lifði. Það eru forrétt- indi að hafa kynnst svo ólíkum systr- um og um leið finna hve vænt þeim þótti hvorri um aðra og þá gagn- kvæmu virðingu sem þær báru hvor fyrir annarri. Stebba lifði langa ævi og miklar þjóðfélagsbreytingar. Í Hvammi í Ölfusi þar sem afi hennar og amma bjuggu kynntist hún eldhúsi með moldargólfi. Síðar bjó hún ásamt foreldrum sínum og systur í lítilli íbúð á Bergstaðastræti þar sem eld- hús var sameiginlegt með öðrum. Eftir það bjó hún mestan hluta ævi sinnar í stórhýsinu á Laugavegi 100 sem hún og eiginmaður hennar Guð- mundur Grímsson byggðu. Stebba var kaupmaður fram í fingurgómana og rak búðina Blóm og húsgögn í áratugi ásamt eigin- manni sínum og hélt þeim rekstri áfram eftir að hann féll frá. Guðrún dóttir þeirra hefur einnig um langt skeið verið með verslunarrekstur í sama húsi. Stebba fylgdist jafnan grannt með sölunni í verslunum fjöl- skyldunnar, ekki síst á Þorláks- messu og nú síðast í ár komin vel yfir nírætt. Stebba var verslunarskólagengin og talaði dönsku reiprennandi, en hana lærði hún af systrunum í Landakotsskóla. Hún ferðaðist tölu- vert um ævina og verður að teljast heimsborgari. Um Danmörku ferð- aðist hún ásamt Guðmundi eigin- manni sínum á eigin bíl á íslensku númeri einhvern tímann á sjötta ára- tugnum og hafði gaman af að segja frá því þegar dönsk börn á Jótlandi flykktust að bílum og töldu að um ís- bíl væri að ræða enda bíllinn merkt- ur rækilega með stöfunum IS. Stebba lét sig litlu varða tísku og út- litsdýrkun og treysti á Þóru systur og Guðmund í þeim efnum. Eftir að eiginmaður hennar féll frá leitaði hún til ökukennara og fór í ökutíma til að öðlast færni í að aka bíl, þá komin á sjötugsaldur. Þegar kennarinn taldi hana færa um að fara í ökupróf dró hún upp öskuskír- teini sem hún hafði séð um að end- urnýja í áratugi og benti honum á að ekki þyrfti hún að fara í ökupróf, því að hún hefði leyfi til að aka jafnvel hinum stærstu farartækjum. Svona var Stebba áræðin og fram- takssöm. Hún var og minnug vel og hafði gaman af að segja frá og það var þægilegt að vera í návist hennar og auðvelt að líta upp til hennar. Um leið og ég votta frændsystk- inum mínum Guðrúni og Úlfari og fjölskyldum þeirra samúð vegna frá- falls móður þeirra vil ég þakka Stebbu ,,systur“ fyrir góð kynni og artarsemi í garð fjölskyldu minnar. Pétur K. Maack. Fyrir hálfri öld var verslunar- hverfi bæjarins nánast aðeins ein gata, Laugavegurinn sem fram- lengdist síðan af Bankastræti og Austurstræti og endaði við Aðal- stræti að vestanverðu. Austurmörk- in voru hins vegar við Snorrabraut. Þar á horninu stóð stórt og glæsilegt hús og bar hið virðulega númer Laugavegur 100. Ég var stoltur af því að um langt árabil var ég heima- gangur í þessu húsi. Vinur og skóla- bróðir bjó þar á þriðju hæðinni . Hann var sonur eigenda hússins, sem auk búsetu ráku þar umfangs- mikla verslun og húsgagnasmíða- verkstæði. Þetta var tvímælalaust eitt glæsilegasta og best staðsetta verslunarhús bæjarins. Eigendurnir voru Guðmundur Grímsson hús- gagnasmiður og Stefanía Runólfs- dóttir eiginkona hans, sem þarna bjuggu ásamt tveimur börnum sín- um. Húsið reistu þau nánast með eigin handafli. Bankarnir voru ekki fullir af peningum á þeim árum né ólmir að lána fólki fé til slíkra verka. Hann var bóndasonur austan úr Laugadælum, sem lærði húsgagna- smíði og fluttist til bæjarins til að stunda iðn sína. Hún var dóttir verkamanns í Reykjavík, hafði geng- ið í Verslunarskólann, en þá var ekki algengt að alþýðustúlkur stunduðu slíkt nám. Þetta var auðurinn sem þau lögðu upp með. Við Úlfar sonur þeirra vorum saman í skóla um tólf ára skeið og erum miklir vinir og foreldrar hans tóku mér strax vel. Stofan á Lauga- vegi 100 var sú stærsta og glæsileg- asta sem ég hafði komið í. Húsgögn- in báru handverki húsbóndans glæsilegt vitni en heiðurssess skip- aði þó glæsilegur flygill á miðju gólfi, sem sýndi að tónlistin var í hávegum höfð á heimilinu. Þau Guðmundur og Stefanía voru á margan hátt ólík hjón. Hann var hæglátur og rólyndur, lágróma og ljúfmannlegur í allri framkomu, af- kastadrjúgur hagleikssmiður og tón- elskur listunnandi. Stefanía var glæsileg kona, fremur hávaxin og höfðingleg í framgöngu, raddsterk og skýrmælt og talaði gott mál. Hún hefði örugglega staðið sig vel sem fjölmiðlakona eða stjórnmálamaður, ef hún hefði valið sér þannig starfs- vettvang. Hún var glaðlynd, skarp- greind og skemmtileg og tilbúin að gantast við okkur strákana þegar við heimsóttum son hennar. Þau voru samrýnd og samtaka í starfi og heimilislífi. Úlfar hafði greinilega hlotið frjótt og örvandi uppeldi. Fjölskyldan var mjög sam- hent ekki aðeins hjónin og börnin þeirra heldur einnig afinn og amm- an, foreldrar Stefaníu og móðursyst- ir hennar, sem reyndar bjó hjá þeim á Laugavegi 100. Þessu fólki kynnt- ist ég öllu lítillega og á um þau ljúfar og góðar minningar. Sumarbústað átti fjölskyldan uppi í Mosfellssveit. Þangað var mér stundum boðið með og fannst hann fremur höll en sum- arbústaður. Vinátta okkar Úlfars hófst á þeim aldri, þegar unglingarnir eru að reyna að losa böndin við foreldrana og ný áhugamál kvikna, sem foreldr- arnir eru ekki alltaf ánægðir með. Ég og aðrir vinir Úlfars vorum fulltrúar þeirra afla sem hjálpuðu til við að losa um þessi bönd. Ég fann þó aldrei fyrir að ég hafi verið látinn gjalda þess. Ávallt var mér jafnvel tekið, þó óneitanlega hafi stundum verið ýmislegt brallað, sem ekki er foreldrum að skapi. Lýsir þetta víð- sýni þeirra og umburðarlyndi og skilningi á gangi lífsins. Þegar Guðmundur lést árið 1979 hélt Stefanía áfram rekstri verslun- arinnar Blóm og húsgögn og rak hana langt fram á níræðisaldur. Guðrún dóttir hennar hefur einnig stundað verslunarrekstur í húsinu. Hefur það verið ómetanlegt fyrir Stefaníu að hafa hana og eiginmann hennar, sem tók að sér rekstur hús- gagnaverkstæðisins á miðhæðinni, sér til trausts og halds í húsinu. Hún fór í ökutíma og hóf að aka bíl eftir að Guðmundur lést þó að hún væri komin fast að sjötugu. Laugavegur 100 er sjálfsagt eitt fárra húsa á því svæði sem nánast ekkert hefur breyst síðan það var byggt fyrir um sextíu árum. Versl- anirnar á neðstu hæðinni eru að vísu ekki þær sömu og liturinn á glugg- unum er annar. Annað er nánast óbreytt og ekki er að sjá að mikið hafi þurft að sinna viðhaldi hússins, sem ber þess vitni að vel hefur verið að verki staðið í upphafi. Við leiðarlok er ég þakklátur þeim Guðmundi og Stefaníu fyrir góð og uppbyggileg kynni og stuðning við mig og mína gegn um tíðina. Bestu þakkir. Ingjaldur Bogason. Stefanía Runólfsdóttir Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.