Morgunblaðið - 13.10.2006, Síða 42

Morgunblaðið - 13.10.2006, Síða 42
42 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Anna JakobínaGuðjónsdóttir fæddist í Skjald- arbjarnarvík á Ströndum hinn 6. október 1913. Hún lést á dvalarheim- ilinu Höfða 4. októ- ber síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðjón Kristjánsson frá Þaralátursfirði og Anna Jónasdóttir frá Þóroddsstöðum í Hrútafirði. Þau bjuggu lengst af í Skjaldarbjarn- arvík og Þaralátursfirði á Strönd- um. Guðjón Kristjánsson og Anna Jónasdóttir eignuðust auk Önnu Jakobínu átta börn. Þau eru: Jónas Kristinn, f. 16. apríl 1906 (látinn), bjó á Ísafirði; Þorsteina, f. 30. októ- ber 1907 (látin), bjó á Akranesi; Ei- ríkur Annas, f. 25. nóvember 1908, býr á Ísafirði; Guðmundur, f. 24. september 1910 (látinn), bjó í Þara- látursfirði og síðar á Ísafirði; Krist- ján Sigmundur, f. 17. nóvember 1911 (látinn), bjó á Ísafirði; Guð- mundur Óli, f. 20. desember 1914 (látinn), bjó á Ísafirði; Pálína Sig- urrós, f. 13. nóvember 1919 (látin), bjó á Munaðarnesi á Ströndum; og Ingigerður Guðrún, f. 9. apríl 1923, bjó í Keflavík. dætur og einn son, búa á Hellu. 4) Bjarnveig Sigurborg, f. 5. júlí 1940, gift Magnúsi Jakobssyni. Þau eiga þrjár dætur og tvo syni, búa í Bol- ungarvík. 5) Selma Jóhanna, f. 20. janúar 1942, gift Ágústi Gíslasyni. Þau eiga fjóra syni og eina dóttur, búa á Steinstúni í Árneshreppi., Börn Kristins og Önnu: 1) Jón, f. 19. desember 1944, kvæntur Úrsúlu Sonnenfeld. Hann á einn son, búa í Reykjavík. 2) Sveinn, f. 4. sept 1946, kvæntur Borghildi Jósúadóttur, búa á Akranesi. Hann á fjórar dætur og tvo syni. 3) Sólveig Stefanía, f. 9. maí 1948, gift Þóri Þórhallssyni. Þau eiga tvær dætur, búa á Akra- nesi. 4) Arngrímur, f. 30. apríl 1950, kvæntur Margréti Hannesdóttur. Þau eiga þrjá syni og tvær dætur, búa á Bolungarvík. 5) Elías Svavar, f. 8. júlí 1951, kvæntur Ingibjörgu Guðrúnu Viggósdóttur. Þau búa á Akranesi. Hann á tvær dætur og einn son. 6) Guðmundur Óli, f. 2. okt. 1952, kvæntur Jóhönnu Jó- hannsdóttur. Þau eiga tvær dætur og tvo syni, búa í Bolungarvík. 7) Guðjón Stefán, f. 4. okt. 1954, sam- býliskona Jóna Sveinsdóttir, búa í Árbæ við Selfoss. Hann á tvo syni og eina dóttur. 8) Benjamín, f. 7. júní 1956, kvæntur Láru Helgu Jóns- dóttur. Þau eiga tvær dætur og tvo syni, búa á Hvammstanga. 9) Óskar, f. 20. mars 1958, sambýliskona Fríða Ingimarsdóttir. Þau eiga tvær dætur og einn son, búa á Akranesi. Afkomendur hennar eru í dag 168. Útför Önnu verður gerð frá Akra- neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Anna Jakobína gift- ist ung Samúel Sam- úelssyni, f. 4. des. 1907, frá Skjald- arbjarnarvík og eign- aðist með honum fimm dætur. Þau bjuggu í Bæ í Trékyllisvík. Hann lést 20. febrúar árið 1942. Anna giftist síðar Kristni Halli Jónssyni frá Seljanesi og eign- aðist með honum átta syni og eina dóttur. Þau bjuggu á Seljanesi 1943 til 1953 er þau festu kaup á jörðinni Dröngum í Strandasýslu og bjuggu þar til ársins 1966. Eftir það bjuggu þau lengst af á vetrum í Bolungarvík en dvöldu á sumrin að Dröngum. Kristinn lést hinn 9. ágúst árið 2000. Síðustu æviár sín dvaldi Anna Jakobína á Dval- arheimilinu Höfða á Akranesi. Börn Önnu og Samúels Sam- úelssonar eru: 1) Þorbjörg, f. 6. mars 1934, gift Stíg Herlufsen. Þau eiga fimm syni, búa í Hafnarfirði. 2) Ágústa Guðrún, f. 23. apríl 1935, var gift Benjamín Jónssyni frá Seljanesi (látinn). Þau eiga þrjár dætur og tvo syni á lífi. Hún býr nú á Akranesi. 3) Sigurvina Guð- munda, f. 1. ágúst 1937, gift Erlingi Guðmundssyni. Þau eiga fjórar Elskuleg móðir mín er dáin tveimur dögum fyrir 93 ára afmæl- ið sitt. Hún var orðin þreytt og þráði hvíldina. Hún dó ekki ein, hjá henni voru börnin hennar. Hún eignaðist 14 börn sem öll lifa hana. Hún annaðist þau eins vel og kraft- ar hennar leyfðu. Hún sofnaði síð- ust á kvöldin og vaknaði fyrst á morgnana. Hún sat í horninu við eldavélina á meðan var að hlýna og prjónaði sokka eða vettlinga, það þurfti mikið af þess háttar plögg- um. Eldiviðurinn var mór og spýtur og stundum kolamoli ef hann var til. Allt varð að spara, efnin voru lítil, ein tunna af steinolíu var keypt fyrir veturinn og reynt að láta hana duga. Fóstri minn átti trillu og var oft á sjó og við höfðum alltaf nóg að borða og urðum stór og sterk eftir aldri. Mörg kvöld þegar ég var lítil á Seljanesi sat hún með minnstu börnin við spýtnaeldavélina og ljós- geislarnir gægðust út um rifurnar á vélinni og mamma söng með sinni fallegu röddu alls konar ljóð og lög, við sátum á gólfinu og kúrðum okk- ur upp að fótum hennar. Stundum urðum við svo hugfangin af ein- hverju sérstöku lagi að hún varð að syngja það svo oft að hún var farin að kvarta. Ég man daginn sem við fluttum að Dröngum, það var búið að pakka saman þessu litla dóti sem við átt- um og bera það niður í trilluna, Eyrarbræður voru komnir á sinni trillu og kýrnar fóru í hana. Mamma, fóstri minn og börnin fóru í hina og dótinu skipt í báðar. Ég var aftur í hjá fóstra og var svolítið sjóveik eins og vanalega, hann varð að ýta við mér og láta mig pumpa bátinn til að hafa úr mér aum- ingjaskapinn. Svo þegar við fórum fyrir Landeyjarnar spurði hann: „Hvernig líst þér á?“ Nú mér leist vel á, allt var svo grænt og fallegt. Mömmu þurfti ekki að spyrja, hún var komin í draumalandið sitt, þar hafði hún svo oft komið og verið hjá nöfnu sinni og frænku á Dröngum. Jakobína á Dröngum hafði oft sent matarbita til frænku sinnar í Skjaldarbjarnarvík þegar fátæktin og harðindin voru allt að drepa eft- ir aldamótin 1900. Okkur leið vel á Dröngum þar var nóg að bíta og brenna og mikið frelsi fyrir tápmikla krakka. Við vorum langt frá öðru fólki, við vor- um vinir og félagar alin upp við ást og afsakanir þegar ærslin gengu úr hófi. „Æ, þau eru á svo slæmum aldri,“ sagði móðir okkar og hló innilega. Henni fannst við óskap- lega skemmtileg. Hún var glað- lynd og góðlynd en hafði sitt skap. Ég vil þakka Sólveigu systur minni og Þóri alla þá umhyggju sem þau sýndu henni og starfs- fólkinu á Höfða hversu gott það var henni og hugsaði vel um hana. En nú er hún farin og við mun- um sakna hennar en hún var hvíld- inni fegin og nú er hún sæl. Í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo var nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt, þeim svefni enginn rænir þig. En samt er nafn þitt nálægt mér og nóttin full af söngva klið svo oft, og þetta auða svið bar ætíð svip af þér. Og þungur gnýr sem hrynji höf mitt hjarta lýstur enn eitt sinn: Mín hljóða sorg og hlátur þinn, sem hlutu sömu gröf. (Steinn Steinarr) Kveðja. Bjarnveig. Elsku amma, ég var svo heppin að fá tækifæri til að vera mikið í samvistum við þig. Minningar um þig, samveru okkar og allt sem þú sagðir mér af lífinu og tilverunni, gleði þinni og sorgum hefur rifjast upp undan- farna daga. Þú sagðir mér frá því þegar þú varst barn í Skjaldarbjarnarvík og seinna unglingur í Þaralátursfirði, alin upp í stórum systkinahópi í miklu ástríki. Þú sagðir mér frá göngunni út í lífið með Samúel afa þér við hlið, þið að hefja búskap í Bæ. Dæt- urnar fæddust hver af annarri, lífsbaráttan var erfið. Samúel fékk berkla eins og margir í hans fjöl- skyldu og dvaldi langdvölum á Víf- ilsstöðum. Þú sagðir mér frá því þegar þú gekkst inn ganginn á sjúkrahúsinu á Ísafirði, komin þangað með Vinsý litla sem var orðin berkla- veik. Þú komst til að skilja hana eftir til langrar dvalar. Sporin út ganginn voru þau þyngstu sem þú hafðir gengið til þessa, en þú hafð- ir ekkert val. Sporin áttu fleiri eft- ir að verða þung, ung misstir þú Samúel, þetta var erfiðasti dagur lífsins. Hann hafði sigrast á berkl- unum, var kominn heim og lífið blasti við en svo dó hann úr botn- langabólgu stuttu eftir heimkom- una. Þú sagðir mér líka frá því þegar þú fluttir að Seljanesi og giftist Kristni afa, frá lífinu þar og hversu gott þér þótti að búa á Dröngum, þar sem nóg var af öllu. Frá fæð- ingu barnanna fjórtán sem þú dáð- ist að og elskaðir öll takmarkalaust. Þú sagðir mér frá draumnum sem þig dreymdi vorið 1952. Bróðir þinn kom til þín og þú spurðir hann hvort hann vildi nú ekki stoppa hjá þér í nokkra daga, en hann svaraði því til að hann ætlaði ekkert að fara aftur, hann væri kominn til að vera. Tveimur dögum seinna fréttir þú að hann hefði farist í Horn- bjargi. Þú sagðist vita að hann hefði komið til að kveðja og þú skírðir drenginn þinn sem fæddist þá um haustið Guðmund Óla í höf- uðið á honum. Lífsbaráttan var oft hörð og allir þurftu að leggja sitt að mörkum jafnt stórir sem smáir og vinnudag- urinn var langur. Árin liðu eitt af öðru, lífsbaráttan harðnaði í afskekktri sveit og þið fluttuð í burtu yfir veturinn. Síðustu árin sem þið afi áttuð saman varst þú orðin lasin, afi tók að sér heimilisstörfin og annaðist þig af mikilli natni. Það breyttist aldrei að með vor- inu fór hugurinn alltaf að leita heim og ferðinni var heitið norður að Dröngum, á fallegasta stað á Ís- landi. Elsku amma, þó ég sjái þig ekki aftur þá veit ég að þegar ég kem næst að Dröngum þá verðið þið afi þar bæði. Hann á hleininni að taka á móti bátnum og þú stendur heima á hlaði með útbreiddan faðminn og sólargeislarnir dansa í hvíta hárinu þínu. Elsku amma, takk fyrir allt, þú gerðir mig að betri manneskju og kenndir mér svo ótal, ótal margt. Anna Kristín Magnúsdóttir. Elsku amma mín er látin. Það er svo margt sem kemur upp í hug- ann, og mig langar að skrifa eitt- hvað af því hér til að minnast minn- ar einstaklega góðu og fallegu ömmu, sem hefur alltaf verið mér afar kær. Eftir að ég varð fullorðin og náði vissum þroska, hef ég oft hugsað til þess hvað líf ömmu hlýtur oft að hafa verið erfitt; að horfa upp á fyrri eiginmann sinn deyja og sitja eftir með fimm lítil börn, og eitt þeirra nýfætt, búa svo við aðstæður sem hljóta oft, allavega ef maður miðar við nútímann, að hafa verið erfiðar á Dröngum, og með öll þessi börn að hugsa um. Þrátt fyrir þetta var aldrei að sjá á ömmu að hún hefði glímt við slíka erfiðleika. Allt hennar hugrekki, jákvæðni og glaðlyndi eru sannarlega einstök og aðdáunarverð, og nútímakonur eins og ég, sem finnst jafnvel stundum erfitt að hugsa um eitt lítið barn, ættu kannski oftar að setja sig í spor ömmu og þeirra kvenna sem lifðu við svipaðar aðstæður og sækja þangað innblástur og styrk til að fást við viðfangsefni hvers- dagsins, viðfangsefni sem í sjálfu sér eru yfirleitt auðveld ef miðað er við þá hluti sem amma og hennar samtímakonur þurftu að glíma við. Nú, þegar elsku amma mín er dáin og ég lít yfir farinn veg, eru hvað sterkastar þær minningar úr bernsku minni sem tengjast komu ömmu á vorin þegar þau Kristinn voru á leið að Dröngum. Á hverju vori, þegar amma mín kom, var eins og húsið okkar fylltist hlýju og gleði. Amma var svo afar góð við okkur, hún gaf okkur alltaf eitt- hvað, eins og til dæmis nammi úr Kaupfélaginu, sem fyrir okkur var mikið nýmæli, svo sjaldan var það sem við fengum sælgæti. Hún var ætíð svo glaðlynd og jákvæð, og kringum hana var einstök birta sem lýsti upp allt í kring. Amma mín var líka svo falleg og gædd miklum þokka. Hún var alltaf vel til höfð, í fallegum, litríkum peysum, með glitrandi brjóstnælur og hár- spennur eða kamba í sínu silki- mjúka, hvíta hári. Ég man að ég dáðist alltaf að fallegu skartgrip- unum og hárskartinu hennar, sem fóru henni líka svo vel og undir- strikuðu hennar innri og ytri feg- urð. Ást ömmu á börnum var einnig greinileg í allri hennar framkomu við okkur, og alla sína tíð var hún einstaklega barngóð manneskja. Síðustu árin þekkti amma mín mig kannski ekki þegar ég kom í heimsókn til hennar, en hún var alltaf glöð að sjá mig, hélt í höndina á mér og fannst gott þegar ég strauk höndina hennar og fallega hvíta hárið. Hún var alltaf kát og brosti til mín af einlægri og barns- legri gleði. Þessar heimsóknir voru dýrmætar samverustundir, og sem fyrr var alltaf gott að vera í návist hennar ömmu minnar. Og á þessum stundum mundi ég ætíð þá daga þegar amma mín kom á vorin og fyllti bernskuheimili mitt birtu og yl. Elsku amma mín, nú ertu farin og samverustundirnar verða ekki fleiri, í þessu lífi allavega. Ég mun sakna þín. Hvíl þú í friði. Þín Ingibjörg. Anna Jakobína sagði mér af bernsku sinni norður í Þaraláturs- firði þegar þau systkinin fengu kannski bara eitt epli hvert í jóla- gjöf. Þessi mynd er einhvernveginn svona. Það er rautt gljáandi epli í bæ lengst norður á Ströndum. Það eru jól. Eplið verður risastórt, eplið verður allur heimurinn. Allur heim- urinn einsog miðnætursólin á vorin. Gefur fyrirheit, ilman, bragð, fram- andleika, hátíð, frið, undur. Þetta er allur heimurinn. Og lítil stúlka grípur um það báðum höndum og getur ekki bitið í það fyrir andakt. Eða sökkvir tönnunum á kaf í eplið því hún elskar lífið og vill fá að smakka það. Það hlýtur að vera því seinna eignast litla stúlkan tvo eig- inmenn og fjórtán börn. Þau eru lífið hennar og sálin, hún er einsog eplið og sólin, hefur endalaust eitt- hvað handa þeim. Og í krafti góð- mennsku hennar og fegurðar verð- ur til meiri góðmennska og meiri fegurð. Sennilega lærði Kristinn Jónsson stríðnina af konu sinni Önnu Jak- obínu. Hún með þetta stríðnislega blik í augum, og hún var ekkert alltaf að hanga í tungumálinu eða svokölluðum rökræðum einsog karlmenn gera, heldur fussaði hún, hnussaði, hristi hausinn eða setti þetta blik í augað. Eða hún tísti bara einsog söngfugl. Tístið hennar Önnu sló út rökfræðina. Eða hún hló. Já, hún hló bara. Hló að allri vitleysunni. Anna Jakobína ól upp strákinn minn hann Kristjón. Hún gerði það af þvílíkum kærleika að á þeim stundum þegar hann ætlaði fram af brúninni var kærleikur hennar hans eina haldreipi. Og þessvegna um morguninn þegar hann kom og tilkynnti mér lát hennar sá ég þetta blik í augum hans sem hafði ekki verið þar áður, þennan skerandi sársauka, þetta blik sem blikar að- eins norður á Ströndum þegar eitt- hvað slitnar sem getur ekki slitnað. Anna hafði mikið innsæi í fólk því að hún elskaði fólk og átti svo mik- ið af fólki. Hún elskaði lífið. Hún var lífið. Hún kom mér á óvart þeg- ar hún talaði um fólk, þá sló hún út alla sálfræðinga, hún sá sársauka sem fólk beitti mikilli tækni til að fela, hún kunni að taka á móti fölskvalausri gleði. Framar öllu var hún hugrökk því það þarf hugrekki til að geta elskað. Ég get þakkað henni með því að þora að elska. Elísabet Kristín Jökulsdóttir. Þegar mér barst andlátsfregn Önnu kom upp í huga minn, að þeg- ar maður hennar lést fyrir sex ár- um, langaði mig að senda honum kveðju á þessum vettvangi, sem ekki varð af. Ég reyni því að gera bragarbót við þessi tímamót. Það eiga þau skilið, bæði voru þau sveitungar mínir og góðir vinir. Bæði áttu þau rætur sínar á Ströndum og hér unnu þau allt sitt lífsstarf, sem ekki var lítið. Anna ólst upp í Skjaldarbjarnarvík og Þaralátursfirði. Kristinn að mestu alinn upp við Ingólfsfjörð, á Eyri, Teigastöð og Seljanesi, sem hann vildi kenna sig við. Nokkuð komu þau sitt úr hvorri áttinni þegar leiðir þeirra lágu saman. Þegar hér var komið, var Anna búin að vera gift Samúel Sam- úelssyni í Bæ, þar sem þau bjuggu. Árið 1942 lést Samúel aðeins þrjá- tíu og sjö ára, og höfðu þeim þá fæðst fimm dætur og sú yngsta, Selma Jóhanna, aðeins mánaðar- gömul. Við Ingólfsfjörðinn snerist lífið um síldarævintýrið, sem entist til miðrar tuttugustu aldarinnar. Því kynntist Kristinn, en hugur hans beindist til sjómennsku á yngri ár- um og var hann orðinn hertur í þeim „eldi“, búinn að lenda í mann- raunum, sem hann bjargaðist úr fyrir eigið harðfylgi. Þau hófu sinn búskap á Selja- nesi, þar var þá ekki rúmt um fyrir stóra fjölskyldu, jörðin ekki vel fall- in til búskapar og foreldrar hans voru þar fyrir, þar bjuggu þau í sjö ár. Árið 1953 var jörðin Drangar til sölu. Varð það að ráði að þau keyptu jörðina og fluttu þangað. Drangar var talin góð bújörð, þó ræktun yrði ekki mikið komið við var þar gott sauðland, og hlunn- indin til sjávarins gerðu hana að matarkistu. Þarna voru þau komin á draumastaðinn, og bundu mikla tryggð við Dranga, og svo var um alla fjölskylduna. Drangar voru þeirra Paradís á jörð. Á Dröngum búnaðist þeim vel. Og árin liðu það er komið árið 1966. Á búskaparár- um sínum höfðu þeim fæðst níu börn, ein stúlka og átta drengir, allt mannvænlegt fólk. Þrátt fyrir það er farið að fækka í heimili á Dröngum. Þau sjá að ekki er stætt lengur, fyrir fullt og allt yfirgefa þau samt ekki Dranga. Þau fluttu að Melum með bústofn sinn og höfðu þar í seli næstu tvö árin. Eft- ir það voru þau vetrarlangt á Selja- nesi til ársins 1971. Um leið og vor- aði voru þau komin að Dröngum. Eftir það bregða þau á það ráð að hafa vetursetu utan heimasveitar sinnar. Var það svo meðan starfs- þrek þeirra entist. Ekki var Krist- inn bóndi sáttur við þessa niður- stöðu, en ekki var um að sakast. Nú spyr máski einhver: Var þetta ekki bugað fólk? Víst hafa þau ver- ið orðin vinnulúin, en þau voru glöð og reif og enginn þreytu- eða upp- gjafartónn. Nærri má samt geta, að húsmóðirin á Dröngum hefur oft gengið vinnulúin til hvíldar, en í fari hennar var ekkert, sem hét víl eða vol. Hún kostaði öllu til fyrir fjölskylduna. Kristinn hugleiddi mikið þjóð- Anna Jakobína Guðjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.